Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986. Utlönd Burt með bókhaldsóreiðu Haukur L. Haukasan, DV, Kaupmhofa; Veitingahús og barir í Kristjaníu í Kaupmannahöfn hafa fengið tveggja vikna frest til að koma reglu á bókhald sitt og skil á sölu- skatti. Ef ekkert gerist innan þessa tíma mun Hans Engell, vamarmálaráð- herra Dana, en Kristjama var áður herbúðir, biðja lögreglu um að loka stöðunum. Kristjanía var gerð „lögleg“ á þingi fyrir skömmu og síðan hafa átt sér stað viðræður innan stjóm- arflokkanna um greiðslur sölu- skatts og hreinlætiskröfúr yfirvalda á svæðinu. Nú óskar ráðherrann að þessi mál komist á hreint. Herferð lögreglunnar í Kristja- níu fyrir nokkru, þar sem upptækt var gert nokkurt magn af hassi auk vopnabirgða, virðist hafa hreyft við yfirvöldum í þe&su sambandi. Stelton kaffikönnur hættulegar? Haukur L. Haukaaan, DV, Kaupmhcín; Hjón nokkur frá Vejle á Jótlandi hafa farið þess á leit við yfirvöld að varað verði við kaffikönnu er framleidd er undir vörumerkinu Stelton. Hefur kaffikanna þessi orsakað alvarlegan bmna margra smá- bama til þessa. Hjónin héldu síðustu jól sín á sjúkrahúsi eftir að tveggja og hálfe árs sonur þeirra haföi velt Stelton könnu heimilisins og skaðbrennst af heitu kaffinu rétt fyrir jólin. Kaffikönnur af Stelton gerð standa á eldhúsborðum hálfrar milljón danskra heimila. Á henni er svokallað veltilok eropnast þeg- ar könnunni er hallað. Ef kannan veltur rennur allt kaffið úr henni þar sem veltilokið er ekki skrúfað fast en liggur í opinu á könnunni. Nýverið hafa læknar á Hvidovre sjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn haft þrjú illa brennd böm til með- höndlunar. Höfðu þau öll velt Stelton könnu heima hjá sér. Árið 1983 vömðu dönsku neyt- endasamtökin við því að láta börh vera ein í nálægð þessarar könnu. Þrátt fyrir slys tengd Stelton kaffi- könnunum hafa ekki orðið nein klögumál og er það líklega vegna þess að ekki hafa komið fram nein- ir framleiðslugallar við gerð könnunnar og þar með enginn möguleiki á skaðabótum. Upj)mnaleg útgáfa þessarar könnu er úr stáli og hún veltur ekki eins auðveldlega og eftirlík- ingar úr plasti. Gefa til kynna tengsl hiyðju- verkaafla og Sýriendinga Sendiherra Sýrlands í Bonn hefur eftir brottvikningu fjögurra starfs- manna frá Þýskalandi gefið óljóst í skyn að Sýrlendingamir kunni að hafa verið í tygjum við alþjóðleg hiyðjuverkaöfl án vitundar eða blessunar ráðamanna í Damaskus. I viðtölum við fréttamenn í gær- kvöldi, skömmu eftir að utanríkis- ráðuneytið í Bonn sagði honum að senda þijá diplómata hans úr landi áður en vika er liðin og fækka her- málaráðgjöfum sendiráðsins úr fjórum í þrjá, sagði sendiherrann að Sýrland mundi senn sanna að Dam- askus heföi ekkert haft með sprengjutilræðið í V-Berlín á dögun- um að gera. í sprengingunni særðust sjö. Bonnstjómin greip til brottvísun- arinnar eftir að fram kom í réttar- höldum yfir Jórdaníumönnunum tveim, sem sakaðir era um sprengju- tilræðið, að þeir hefðu fengið sprengiefriið frá A-Berlín með Sýr- lendingi, manni sem starfar í leyni- þjónustu flughers Sýrlands. Sendiherrann sagði að heima í Sýrlandi færi nú fram ítarleg rann- sókn á því hvort nokkur stofhun, samtök eða einstaklingar væra við- riðin sprengjutilræðið en ef rétt reyndist mundi viðkomandi refsað stranglega. Ekki kvaðst sendiherrann búast við að diplómötum frá Vesturlöndum yrði vísað burt úr Sýrlandi eftir brottvikninguna í Bonn því að sýr- lensk stjómvöld vildu eiga gott samstarf við Vesturlönd. Svíar hrósa íslensku óperunni Gunnlaugur A. Jónæan, DV, Lundi: „Þegar tillit er tekið til þess að óperusalurinn tekur aðeins fimm hundrað áhorfendur í sæti er það kraftaverk að starfsemi skuli halda áfram.“ Þannig segir meðal annars í ítarlegri og mjög jákvæðri grein um íslensku óperana er birtist í sænsku dagblaði nú í vikunni. I greininni er sagt að íslenska ój> eran haldi nú upp á fimm ára aiinæli sitt þrátt fyrir að fyrirtækið hafi frá byrjun virst dauðadæmt. Sagt er frá þeim óperum sem fluttar hafa verið á liðnum árum á vegum fslensku ópierunnar og fjallað er sér- staklega um sýningu hennar á Trúbadomum, eða II Trovatore. Þeir söngvarar, sem nefhdir era, fá yfirleitt góða dóma en enginn þó betri en Kristinn Sigmundsson sem sagður er mundu sóma sér á sviði í bestu óperuhúsum hvar sem væri í heimin- um. Þá er sagt að þrátt fyrir landfræði- lega legu séu íslenskir óperusöngvarar langt frá þvi að vera einangraðir, hafi aflað sér menntunar erlendis og fengið ráðgjafa frá útlöndum til að liðsinna sér. Kristinn Sigmundsson, fyrir miðju, ásamt meðleikurum sinum i sýningu ís- lensku óperunnar á II Trovatore, er óperan sýndi fyrir skömmu. Faer Kristinn mikið lof í sænskri blaðagrein fyrir skömmu þar sem fullyrt að er söngvarinn myndi sóma sér i bestu óperuhúsum hvar sem væri í veröldinni. Rúmstæðið er gamall Volkswagen Wolfi Huber frá Jenbach í Austurríki sést hér á myndinni hamast við að bóna rúmið sitt en það bjó hann til úr gamalli Volkswagen-bifreið (eða bjöllu eins og þær voru kallaðar). Huber, sem rekur kaffisölu, hlutaði bílinn i tvennt til þess að koma hon- um inn í húsið og inn í svefnherbergi þar sem hann smíðaði úr honum rúm og skreytti siðan að smekk. Dýrustu fyrirtækja- kaup í Danmörku Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmhofn; Lyfjafyrirtækið Novo, hið stærsta sinnar tegundar í Dan- mörku, hefur keypt keppinaut sinn, lyfjafyrirtækið Ferrosan. Er hér um að ræða mestu og dýrustu fyrirtækjakaup í Dan- mörku fyrr og síðar. Er kaupverðið rúmlega sex hundruð milljónir danskra króna og borgar Novo um fimm krónur danskar fyrir hverja krónu höfúð- stóls Ferrosan. En það er ekki aðeins Ijárhags- hliðin er vekur áhuga Novo heldur það sem gerist í huga vísinda- manna Ferrosan. Era vísindamenn fyrirtækisins framarlega í rannsóknum á tauga- lyfjum ýmiss konar og sér Novo þar fram á milljónagróða í dollur- um. Er það langtum meira en aðalframleiðsla Novo, insúlínið, hefúr fram að þessu gefið af sér. Ferrosan hefúr ekki getað þróað framleiðsluhugmyndir sínar und- anfarin ár og selt framleiðslurétt- indi til útlanda. Eftir söluna til Novo verður hægt að framleiða flest það sem vísindamennimir era að sýsla með. Auk þess þótti æskilegra að Fer- rosan yrði áfram danskt, en fjöldi alþjóðlegra lyfjafyrirtækja haföi sóst eftir Ferrosan og hugmyndum þess fyrir mun hærri fjárapphæðir. Umsjón: Guðmundur Pétursson og Hannes Heimisson Listunnendur SfíSSSSSAt—«• *— 2200 taónui. . , ono „toeruðuro og áritaðmu ssrsai'rsfia—- TU sýnis'og'sölu i smáauglýsingadeild, Þverholti 11, sími 27022, kl. 9-17 aila virka daga. eIU gŒ- VBA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.