Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1986, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1986. 15 Aðgerðir í stað orða „Þeir sem aö Rauöa kross húsinu standa eru ekki í nokkrum vafa um að mikið er ógert í baráttunni gegn vímuefnum og að starfsemi hússins er aðeins einn liður í þeim aðgerðum sem nauðsynlegt er að grípa tii og það fyrr en siðar.“ Neysla ávana- og fíkniefiia meðal ungmenna á íslandi er veruleg. Það sýna endurteknar rannsóknir. Lang- stærsti hluti vandans er áfengis- neysla. Ungmenni, 15-19 ára, virðast eiga auðvelt með að útvega sér áfengi og þeir eru ófáir sem einnig segjast hafa prófað ólögleg vímu- efni. Á hverju ári er vímuefhaneysla ungmenna til umræðu í fjölmiðlum og jafiioft kemur fram gagnrýni á að ekki sé nóg að gert til að spoma gegn vandanum. Bent er á ýmis úr- ræði; aukna fræðslu, hert eftirlit og viðurlög og aukna aðstoð við þá sem ánetjast hafa vímuefnum. í hita augnabliksins heyrist jafnvel sagt: „Við viljum aðgerðir í stað orða.“ Svo var einnig á aðalfundi Rauða kross íslands á Akureyri í maí 1984. Þá var samþykkt að láta kanna með hvaða hætti Rauði krossinn gæti helst orðið að liði í baráttunni gegn fíkniefnum og „komið þeim til hjálp- ar sem heljargreipar fíkniefhanna hafa hremmt og aðstandendum þeirra“. Niðurstaða þeirrar athug- unar var að koma á fót eins konar neyðarathvarfi fyrir unglinga, hjálp- arstöð, þar sem ungmennum í vanda yrði veitt fyrsta hjálp. í upphafi var ekki ljóst hvað vandi þeirra, sem voru hjálparþurfi, væri stór né heldur hve margir þyrftu á hjálp að halda. Það var þvi ákveðið að gera tilraun með að reka hjálpar- stöð til reynslu í 6 mánuði. Var talið KjaUaiinn Dr. Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir að á þeim tíma ætti að koma i ljós hvort ástæða væri til áframhaldandi reksturs. Átta Rauða kross deildir standa að rekstrinum, - úr Reykja- vík, Kópavogi, Mosfellssveit, Garðabæ, Hafnarfirði, Grindavík, Suðumesjum og Vestmannaeyjum. Reykjavíkurborg tók hugmyndinni strax af skilningi og velvild og lagði til starfseminnar gegn lágri greiðslu hentugt húsnæði að Tjamargötu 35 sem sjálfboðaliðar og félagasamtök hafa hjálpast að við að gera vistlegt og heimilislegt. Ótvíræð þörf fyrir hjálparstöð Þegar eftir 6 mánuði þótti sýnt að ótvíræð þörf væri fyrir hjálparstöð af þessu tagi. Var því tekin ákvörðun um áframhaldandi- rekstur til árs- loka 1986. Hjálparstöðin er opin allan sólarhringinn og veitir bömum og unglingum að 18 ára aldri, sem þangað koma og óska aðstoðar, fyrstu aðhlynningu. Á þeim ellefu mánuðum, sem liðnir eru frá opnun Rauða kross hússins, eins og það er nefnt, hafa 80 ungmenni alls staðar af landinu leitað sér hjálpar. Með- alaldur gesta er rúmlega 17 ár, stúlkur yngri, eða 16 ára, en drengir 18 ára. Hlutfall kynja er svipað. Langflestir, eða V* gesta, koma utan venjulegs vinnutíma og 62% em hvorki í vinnu né í skóla. Rauða kross húsið einn liður í aðgerðum gegn vímuefnum Ástæðan fyrir komu em sam- skiptavandamál við foreldra eða forráðamenn, heimilisleysi, vímu- efhaneysla, vanræksla, andlegt og líkamlegt ofbeldi. Hægt hefur verið að taka á mörgum þeim vandamál- um sem ungmennin eiga við að stríða - veita fyrstu hjálp og að- hlynningu, ræða við þau og gerast milligöngumenn í að skapa betri fé- lagslegar aðstæður eða útvega meðferð vegna vímuefnaneyslu eftir því sem við hefur átt. Langtíma ár- angur er vandmetinn. Margt bendir hins vegar til að það fyrirbyggjandi starf, sem hér er unnið, muni skila góðum árangri. Hver þekkir ekki dæmi um ungmenni sem hefúr villst af leið en fundið aftur með góðri aðstoð? Þeir sem að Rauða kross húsinu standa eru ekki í nokkrum vafa um að mikið er ógert í baráttunni gegn vímuefnum og að starfsemi hússins er aðeins einn liður í þeim aðgerðum sem nauðsynlegt er að grípa til og það fyrr en síðar. „Ég styð Rauða kross húsið“ Áformað er að auka símaþjónustu Rauða kross hússins og hefja for- eldrasamstarf og fræðslu um vímu- efiii. Allt þetta kostar fé. Að halda uppi starfsemi allan sólarhringinn er líka kostnaðarsamt en nauðsyn- legt ef ná á til þeirra sem eru í mestri þörf fyrir hjálp. Rekstrar- kostnaður í ár verður um 4,7 milljón- ir króna. Þar af leggur Rauði krossinn til 3,5 milljónir. Þá vantar upp á 1,2 milljónir og á að afla þess fjár með merkjasölu í dag og á morg- un, laugardag 29. nóvember, undir kjörorðinu: Eg styð Rauða kross húsið. Verð merkjanna er 100,- krón- ur. Jafnframt hefur verið opnaður tékkareikningur nr. 622266 í Iðnað- arbanka íslands til styrktar hjálpar- stöðinni. Aðgerðir í stað orða. Hjálpaðu Rauða krossinum að hjálpa ungmennum í vanda. Dr. Guðjón Magnússon. „Á þeim ellefu mánuðum sem liðnir eru frá opnun Rauða kross hússins, eins og það er nefnt, hafa 80 ungmenni alls staðar af landinu leitað sér hjálpar.“ Að brjóta afsiðunarvegginn Mikil afsiðun hefur farið fram í þessu landi. En hvað er afsiðun og hvaða rök eru fyrir því að afsiðun hafi farið fram? Afsiðun Menn borga ekki skuldir sínar, er það ekki afsiöun? Jú, en allur fjöld- inn getur ekki borgað, fólk bara ge'tur ekki borgað. En þegar það tók að láni peningana, sem það skuldar, þá ætlaði það að borga og vill borga en getur það ekki. Af hveiju er þetta svona? Þetta er afsiðun samt Jú, almenningur hefur afsiðast. Hvemig stendur á því að þú sem ert að skrifa þetta og ert í fyrsta sæti á framboðslista ert að segja svona? Heldurðu að þú hafir eitthvað út úr því? Rétterfið spurning Ég verð að svara þessu eins og ég hefi oft svarað þessu í viðtölum við fólk. Það er ekki málið hvort ég hef eitthvað út úr því, ég skulda eins og hinir og bömin mín skila til mín, eins og böm hinna, að einhver frá fógeta hafi komið. Það sem skiptir máli er að athuga hvers vegna við getum ekki borgað. Og ég vil geta borgað eins og allir aðrir. En ég veit hvers vegna við getum ekki borgað. Og þegar ég veit hvers vegna við getum ekki borgað þá veit ég líka hver veldur þessum ósið. Afsiðun aftur Ef einhver heldur vpndum sið að fólki nógu stíft og lengi og fólk getur ekki komið í veg fyrir hann þá verð- ur vondi siðurinn hluti af daglega lífinu. Vondi siðurinn verður ein af þeim áhættum sem fylgja þvi að lifa og vera til. Ef eiturlyfjaneysla eykst þá íjölgar glæpum. Við reynum að fækka glæpum með lögreglu og dóm- stólum. En þar sem eiturlvíjaneyslan KjáUaiinn Þorsteinn Hákonarson formaður landsnefndar Bandalags jafnaðarmanna minnkar ekki þá getum við ekki fækkað glæpum. Peningaleysið En hvað veldur því að við verðum að reyna að lifa og reyna að láta sem ekkert sé þó við lesum að það eigi að bjóða okkur upp. Það sem veldur þessu er alveg það sama og með eit- urlyfin. Forráðamenn þjóðarinnar eru orðnir háðir peningaaustri í vit- leysu. Og þeir eru svo háðir þessu að þeir láta bjóða okkur upp til að geta haldið áfram. Og við verðum að læra að lifa við að láta auglýsa okkur sem einhverja hunda enda þótt fólk leggi nótt við dag og er ekki óalgengt að hjón eða par vinni fjórfalda vinnu. Skítatrikk módel 83 Peningaleysið á orsök sína í því að ráðamenn blekktu þjóðina hvem- ig komið var 1983. Þetta er ekki einfalt mál en það skiptir þig miklu að fatta hvemig þetta trikk var, þú ert hvort sem er að borga nokkur hundmð þúsund á ári í það. Og ég vil ekki, og ég veit að þú vilt ekki heldur, borga hundmð þúsunda í vitleysu þegar þú gætir haft pening- ana sjálfur. Það sem gerðist var eftirfarandi. Greiðslubyrði af erlend- um lánum hafði hækkað mjög mikið og sérstaklega af dollaralánum. Þetta kom misjafhlega niður eftir þvi hvort tekjur vom í dollurum eða í annarri mynt. Þessi greiðslybyrði var ekki reiknuð út af Þjóðhags- stofnun fyrir mismunandi atvinnu- vegi og fólk, forstjórinn þar tók þátt i vitleysunni. En greiðslybyrði, t.d. Landsvirkjunar, fjórfaldaðist. En frystihús og útgerð höfðu miklar tekjur í dollurum og greiðslubyrðin jóst því miklu minna hjá þeim. En þá kom ríkisstjóm sem þurfti að fela eina einfalda staðreynd fyrir þjóð- inni. Og stjómarandstaðan sagði ekki neitt heldur. Þessi staðreynd, sem var verið að fela, var að Lands- virkjun fór á hausinn. En þá vom framkvæmdar efnahagsaðgerðir til að Landsvirkjun færi ekki á hausinn en ég og þú færum á hausinn í stað- inn. Þetta fór svona fram. Lands- virkjun fékk 166% hækkun á gjaldskrá. Og dollarinn var festur í verði. Þetta þýddi að greiðslubyrði þeirra sem höfðu tekjur í dollurum hækkaði en greiðslubyrði Lands- virkjunar lækkaði þegar sjávarút- vegurinn fór að framleiða dollara handa Landsvirkjun á niðurgreiddu verði. En ég og þú máttum ekki keppa við Landsvirkjun um dollar- ana í bankanum og hvemig var það gert? Með því að lækka kaupið okk- ar. Og hvað svo Og af því að kaupið lækkaði þá tók fólk út sparifé sitt. Og þá var bara til erlent lánsfé. Til þess að geta verið að lána almenningi erlent láns- fé þá varð að hafa sérstakan dulbún- ing á erlendu peningunum. Þessi dulbúningur em svokölluð lán- skjaravísitölubréf. Þar er bæði lánskjaravísitala og vextir sem Jó- hannes Nordal ákveður. Og hús- byggjendur fengu slík lán. Og húsbyggjendur lentu í að fá greiðslu- byrði Landsvirkjunar yfir á sig með þeim lánum. Það gerði víst ekkert til þótt þeir fæm á hausinn. Það gerði heldur ekkert til þótt sjávarút- vegur færi illa og þar væri framin eignaupptaka líka. Það þurfti að vemda heiður þeirra manna sem höfðu lagt í miklar og óarðbærar fjárfestingar. Og reikningurinn var dulbúinn handa þjóðinni. Lækkun á fasteignaverði Þegar skuldir, sem höfðu safhast upp í áratugi, vom færðar með skíta- trikkinu yfir á almenning með mjög ójöfrium hætti þá lækkaði verð fas- teigna. Þessi lækkun ætti að hafa orðið á Landsvirkjun sem fór í reynd á hausinn en var bjargað með trikk- inu. Og þá sögðu bankamir, þið eigið engin veð, við verðum að bjóða ykk- ur upp. Rangar fjárfestingar Við höfum fjárfest sem nemur einni heilli þjóðarframleiðslu meir en nálægar þjóðir á síðustu 20 árum. Það er upphæð sem nemur öllum erlendum skuldum, öllum sköttum í ár og öllum skuldum húsbyggjenda. Og vegna þessa þá höfðum við 30% of lágt kaup. Það er víst eitthvað um 300 þúsund á meðalfjölskyldu. 300 þúsund skattfrítt. Brjótum vegginn Við verðum vör við það i BJ að fók hefúr um sig ákveðinn vamar- vegg. Þessi veggur er að fólk segir eitthvað á þessa leið. „Þeir em allir eins, þetta þýðir ekkert, ef þú ert að rífa kjaft þá lendirðu illa í því, þess- ir þingmenn em bara fyrir sig, þjóðfélagið er allt svona.“ Þetta er orsök afsiðunarinnar og þennan vegg ætlum þú og ég að brjóta, við ætlum að lækna eyðslufíkn kerfis- ins. Annars stöndum við uppi með ennþá lægri tekjur eftir tíu ár. Þorsteinn Hákonarson „Forráðamenn þjóðarinnar eru orðnir háðir peningaaustri í vitleysu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.