Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 04.12.1986, Blaðsíða 23
FIMMTUDAGUR 4. DESEMBER 1986. 23 Nýjar bækur JttMWttill- ELSKHUGINN Elskhuginn ettir Marguerite Duras Elskhuginn eftir franska höfundinn Marguerite Duras er komin út í ís- lenskri þýðingu Hallfríðar Jakobsdóttur. Bók þessi hefur slegið eftirminnilega í gegn meðal lesenda og fyrir hana hlaut höfundur bæði Concourt-verðlaunin árið 1984 og Ritz-Hemingway-verðlaunin árið 1986. Marguerite Duras, sem er meðal fremstu rithöfunda ÍVakka í dag, byggir hér á minningum frá uppvaxtarárum sín- um í Indókína og í kynningu forlagsins segir: Elskhuginn er sagan um fyrstu ást- ina, raunsönn frásögn ungrar, franskrar skólastúlku um samband hennar við sér eldri og auðugan aðdáanda af kínversk- um ættum. Þetta er saga hinnar for- boðnu, þöglu ástríðu þar sem gleði og sorg, ást og ótti endurspegla andstæður mannlífsins. Bókaútgáfan Iðunn gefur út. Cartland Hvíta blómið hans Barbara Cartland Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur gefið út bókina Hvíta blómið hans eftir Barböru Cartland. Þetta er þrettánda bókin sem Skuggsjá gefur út eftir Barböru Cartland. Ivan Volkonski fursti er glæsilegur ungur maður sem heillar kvenfólkið en hann hefur ekki enn fundið þá konu sem hann getur fellt sig við. En þegar hann sér hina fögru og hrífandi dansmey, Lok- itu, fellur hann samstundis fyrir henni eins og aðrir hafa gert á undan honum. Hvíta blómið hans er 168 bls. Bókin var sett og prentuð í Prentbergi og bund- in í Bókfelli. Sigurður Steinsson þýddi bókina. Undraleiðir ástarinnar Theresa Charles Bókaútgáfan Skuggsjá, Hafnarfirði, hefur gefið út nýja skáldsögu eftir Ther- esu Charles, Undraleiðir ástarinnar. Eftir Theresu Charles hafa áður komið út margar bækur sem flestar eru enn fáanlegar. Tom og Jósa eru mjög ástfangin og ætla að gifta sig. En heimsstyrjöldin og hin eigingjarna móðir Jósu aðskilja þau. Tom verður að vera fjarri heimkynnum þeirra og starfa fyrir flugherinn og Jósa þarf einnig að fara í burtu. Jósa vinnur á Silfurkambi, búgarði sem hinn ungi Nikulás Darmayne á og hefur erft eftir föður sinn. Jósa laðast einkennilega að hinum sterka og ein- beitta Nikulási og hún neitar að trúa hinum illgjörnu sögusögnum um hann sem ganga meðal fólksins í nágrenninu. Undraleiðir ástarinnar er 223 bls. Hún var sett og prentuð í Prisma og bundin í Bókfelli. Andrés Kristjánsson þýddi bókina. Enga stæla! Andrés Indriðason Út er komin hjá Máli og menningu unglingabókin Enga stæla! eftir Andrés Indriðason. Þetta er sjálfstætt framhald af bók Andrésar Bara stælar! sem kom út í fyrrahaust. Enga stæla! gerist í unglingavinnunni sumarið eftir 8. bekk. Þar púla þau í sólskininu Jón Agnar, Lilli himnastigi og Ragnhildur (þessi sem slagar hátt upp í ungfrú heim). Jón Agnar og Ragnhildur fá það verkefni að mála yfir ósóma sem Lilli hefur skrifað á skólavegginn meðan verkstjórinn var að horfa á annað og þá verða þau af tiiviljun vitni að því að brotist er inn í skólann þeirra. í kjölfar- ið fylgir æsispennandi eltingaleikur sem þó verður stundum gráthlægilegur því krakkarnir eiga ekki eingöngu í höggi við þjófa heldur leynifélagið Svörtu hauskúpuna líka. Enga stæla! er 140 bls., unnin að öllu leyti í Prentsmiðjunni Odda hf. Brian Pilkington gerði kápumynd. Ástin á tímum kólerunnar Gabríel García Marquez Út er komin hjá Máli og menningu ný skáldsaga eftir kólumbíska nóbels- verðlaunahafann, Gabríel García Marquez, og nefnist hún Ástin á tímunv kólerunnar. Guðbergur Bergsson rit- höfundur þýðir verkið. Sagan gerist í litskrúðugri hafnarborg við Karíbahaf undir lok síðustu aldar og á fyrstu áratugum þessarar. Hún er í raun ástarsaga: í miðju sögunnar er Florentínó Aríza, maður sem bíður elsk- unnar sinnar í hálfa öld, svo gagntekinn verður hann á unga aldri af hinni ómót- stæðilegu Fermínu Daza. Og meðan lesandinn bíður með honum, sífellt spenntari og vondaufari í senn, skemmt- ir Marquez honum með ótal frásögnum uns niðurstaða fæst á ferð með Kar- ibíska fljótasiglingafélaginu eftir hinu mikla Magdalenuíljóti. Ástin á tímum kólerunnar kom fyrst út á spænsku í desember 1985 og hefur bókin hlotið afbragðsviðtökur. íslenska útgáfan er 306 blaðsíður að stærð og unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Robert Guillemette gerði kápu. sk wÉm yW' BEGGJA SKAUTA BYR Beggja skauta byr Ingibjörg Sigurðardóttir Hinar hugljúfu ástarsögur Ingibjargar Sigurðardóttur eru í algjörum sérflokki og njóta stöðugt mikilla vinsælda meðal almennings. Beggja skauta byr er 27. bók höfundar. Bókin er 196 bls. að stærð, prentuð og bundin í Prentverki Odds Björnssonar á Akureyri. Verð með söluskatti kr. 750,00. VIKUBLAÐ FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Kökublað Vikuimar með átján uppskriftum að ýmsu jólagóðgæti Kökublað Vikuimar er ómissandi við jólabaksturinn. Stjömukvöld íBroadway. Ungfrú Hollywood oghinar stjömumar. Sakamálasaga Vikunnar eftir Gunnaj Gunnarsson, Lifandi lík. Fjórði kafli heitir Er manneskjan miUjóna virði? Vikuviðtalið: „Égsegistundum íganmiaðþaðsé búiðaðskeraúr méraUtnemasál- inaenhenniná þeiraldrei,“segir Sigrún Jónsdóttir, myndlistarmaðurí Kirkjumunum. NafnVikunnar: EgillEðyarðsson segir:„Egfer mínareiginleiðir ímyndlistinni.11

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.