Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987. Erlendir fréttaritarar Sambataktur og lúðra- svertarmars á kjöt- kveðjuhátað í Hollandi Syngjandi og dansandi ganga Hollendingar í skrautlegum búningum um göturnar á kjötkveöjuhátíðinni. Danmörk: Ekki lengur fiá- dráttarbært að bjóða við- skiptavinum út Haukur L. Haúkssan, DV, Kaupmannahöfri; Hinar sígildu viðskiptamáltíðir í Darunörku, þar sem viðskiptavinir fyr- irtækja njóta safaríkra steika, dýrra árgangsvina og alls tilheyrandi, eru á undanhaldi, allavega innan veggja matsölustaðanna. Orsökina er að finna í breyttum skattareglum um frádráttarbæran kostnað fyrirtækja en til hans hafa_ margir stórir reikningar frá veitinga- húsum verið taldir. í fyrra var reglun- um breytt á þann hátt að einungis 75 prósent reikningsupphæðarinnar urðu frádráttarbær en áður hafði verið hægt að draga alla upphæðina frá skatti. Um áramót fannst mörgum keyra um þverbak þar sem aðeins 25 prósent reikningsupphæðarinnar urðu þá frádráttarbær til skatts. Áhrifa breytinganna gætir nú þegar en þau voru óveruleg fram að áramót- um. Hvað varðar matelskt viðskipta- fólk þá fer það sjaldnar út að borða og haldið er fast um seðlana og greiðslukortin í þau skipti sem farið er á veitingahús. Er ekki óalgengt að fyrirtæki ráði til sín kokka til að sjá um einstakar máltíðir sem notið er innan veggja fyrirtækisins. I þeim til- fellum er allur kostnaður frádráttar- bær. Fram að breytingum frádráttar- reglnanna nutu ófáir veitingamenn góðs af gestrisni fyrirtækja en nú er komið annað hljóð í strokkinn. Sjá margir veitingamenn fram á magra tíma. Velta sumra veitingahúsa hefur minnkað um allt að 40 prósentum og þurft hefur að segja upp starfsfólki. Hjá sambandi veitingamanna í Dan- mörku er reiknað með að um fimm þúsund manns í atvinnugreininni muni missa vinnuna eftir breytingarn- ar en þar hafa þær mælst illa fyrir. Islenskt viðskiptafólk, sem vant er gestrisni Dananna, má sjá fram á fá- breytilegri máltíðir á veitingastöðum en því meiri lúxus í matsal fyrirtækj- anna. Sígrún Haröardóttir, DV, Amsterdam: Kjötkveðjuhátíðin í borginni Ma- astricht í Suður-Hollandi er einhver sú tilkomumesta í Evrópu í dag. Tveimur til þremur dögum fyrir há- tíðina taka sumir forskot á sæluna og dansa sy.igjandi imi göturnar málaðir í öllum regnbogans litum. Alitið er að þriðjungur fólks á kjöt- kveðjuhátíðinni í Maastricht sé aðkomufólk sem komi gagngert þangað til að taka þátt í hátíðahöld- unum. Samkvæmt hefð er prins kjöt- kveðjuhátíðarinnar krý’ndur í janúarlok en hápunktuiinn er þriggja daga villt svall sjö vikum fyrir páska. Hátíðin hefst formlega á laugardegi með því að prinsinn marserar í miðaldaklæðum ásamt ráðgjöfum sínum inn í ráðhús borg- arinnar til þess að taka við borgar- lvklunum fyrir þriggja daga valdatímabil sitt. Lúðrasveit og sekkjapípuleikarar klæddir að skoskum sið fylgja honum. Fjölmenn skrúðganga Þegar prinsinn hefur tekið við borgarlyklunum er vemdari kjöt- kveðjuhátíðarinnar, stærðar pappa- kerling sem kölluð er ..Mooswief* (grænmetiskonan), hengd upp á stöng þar sem hún gnæfir yfir aðal- torg borgarinnar og hátíðin er hafin. Á sunnudeginum hefst ótrúlega fjölmenn skrúðganga þar sem fólk gengur saman í hópum og eru göngumenn í hverjum hóp klæddir í sams konar búning þar sem hug- myndafluginu hefur verið gefinn laus taumur og er útkoman stundum hreint ótrúleg listaverk. Ákveðin tónlist fylgir svo hverjum hóp og blandast þar saman eldfjörug samba- lög, hollenskur kjötkveðjuhátíðar- söngur og lúðrasveitarmars. Mikill fjöldi skreyttra vagna með heilu leiksviðunum á tilheyrir göngunni. Fylgja tíu til fimmtán manns hveij- um vagni. Dagur barnanna Bolludagur er dagur barnanna og er skrúðganga dagsins skipulögð með börnunum sjálfum. Böm á öll- um aldri taka þátt í skrúðgöngunni og aka mamma og pabbi þeim yngstu í bamavögnum og kerrum. Skrúðgangan á sprengidag er til- einkuð hljómsveitum og lúðrasveit- um sem skipaðar em fimm til áttatíu hljóðfæraleikurum sem marsera og dansa um götumar. Eftir því sem líða tekur á hátíðahöldin verður sambatakturinn meira ráðandi og að skrúðgöngu lokinni, sem er klukkan fimm daglega, dreifast hljómsveitimar um göturborgarinn- ar og leika fyrir dansi á tveimur til þremur stöðum á hverri götu mið- bæjarins frarn á morgun. Allt atvinnulíf í Maastricht liggur niðri meðan á hátíðahöldunum stendur að undanskildum bjórkrám, kaffi- og veitingahúsum. Að kvöldi sprengidags er svo kjötkveðjuhátíð- inni formlega slitið með því að grænmetiskonan er tekin niður. I flestum stærri borgum Hollands er haldin smávegis kjötkveðjuhátíð á sunnudeginum og í Amsterdam er þetta dulbúin auglýsingaherferð ýmissa fyrirtækja. Vorndari kjötkveðjuhátiðarinnar er stærðar pappakerling og gnæfir hún yfir aðaltorgi borgarinnar Maastricht. Noregur: RHhöfúndar í mál við útgefendur PáH VflHálmssan, DV, Osló: Norskir rithöfundar eiga mun erfið- ara með að draga fram lífið nú en á millistríðsárunum. Aðeins örfáir met- söluhöfundar geta helgað sig ritstörf- um óskiptir. „Rithöfundur gat framfleytt sér í eitt ár á millistríðsárunum með því að selja bók í tvö þúsund eintökum. Núna þarf maður að skrifa metsölubók til að geta lifað sómasamlega í eitt ár,“ segir framkvæmdastjóri rithöfunda- sambands Noregs, Frank 0. Anthun. Frá árinu 1980 til 1985 hækkuðu tekjur rithöfunda um tæp þijátíu pró- sent en á sama tíma hækkuðu verka- mannalaun um tæp fimmtiu prósent. Ein meginástæðan fyrir slæmri af- komu rithöfunda er að höfundarlaun bókaútgefenda hafa lækkað jafnt og þétt síðustu áratugi'. Árið 1916 borg- uðu útgefendur rithöfundum tæplega þrisvar sinnum meira fyrir hverja selda bók en þeir gera núna. Norska rithöfundasambandið undir- býr þessa dagana málsókn á hendur bókaútgefendum. Þetta verður próf- mál þar sem dómstólar taka afstöðu til réttmætis þeirrar tekjuskiptingar sem nú er í gildi á milli bókaútgefenda annars vegar og rithöfunda hins veg- ar. Saksóknin er liður í baráttu rithöfundasambandsins fyrir bættum kjörum rithöfunda i Noregi. Danmörk: Óábyrg notkun persónuleika- prófa Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmaimahöfn: I nýlegri rannsókn frá verslunar- háskólanum í Kaupmannahöfn kemur fram að stór fyrirtæki í Danmörku nota oft á tíðum ensk-amerísk per- sónuleikapróf við ráðningar án þess að laga þau að dönskum aðstæðum og án þess að vita almennilega hvem- ig túlka eigi niðurstöðurnar. Því sé mörgum umsækjendum um störf hafn- að á vafasömum forsendum. Formaður danska sálfræðingafé- lagsins, Bente Örum, lýsir áhyggjum sínum yfir því að leikmenn skuli leggja prófin fyrir fólk en ekki sálfræðingar. Eigi að nota þau með varúð og aðeins sem lið í heildarmati á hverjum ein- staklingi. I mörgum prófanna er notast við hugtök sem hafa oft aðra þýðingu í Danmörku eða á Norðurlöndum. Þarf fyrst að leggja prófin fyrir hóp Dana er samsvarar nokkum veginn sam- setningu þjóðfélagsins. Þær niður- stöður em síðan grundvöllur aðlögunar prófanna að dönskum að- stæðum. Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.