Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1987, Blaðsíða 40
r Hafir þú ábendingu um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrifft - Dreifing: Sími 27022 Frjálst,óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1987. Tlllögur LÍÚ: Stjórn á fram- boð á Þýska- Jandsmarkað Stjóm Landssambands íslenskra út- vegsmanna samþykkti í gær að leggja til við sjávarútvegsráðuneytið að komið verði á ákveðinni stjórnun á ferskfiskútflutning til Þýskalands. Breski markaðurinn var ekki tekinn með í þetta. Hugmyndir Landssam- bandsins eru þær að gámaútflytjendur tilkynni til sambandsins á föstudegi hvað þeir ætli að flytja mikið út næstu viku á eftir. Skrifstofa sambandsins fylgist með ástandi markaðarins og gefi útflytjendum upplýsingar um verð og horfur. Með þessu móti er hægt að stýra þvi nokkuð hve mikið fer á markaðinn, eða að minnsta kosti að- vara menn ef sýnt þvkir að um offram- -^ið verði að ræða. Bresku fiskmarkaðirnir eru ekki teknir með og ekki gert ráð fyrir stýr- ingu á þá til að byija með. Heldur er ekki gert ráð fyrir að stýring verði á siglingum togara eða annaira fiski- skipa. þetta nær eingöngu til gámaút- flutningsins. I tillögum sambandsstjórnarinnar er ekki gert ráð fyrir að sambandið hafi vald til að stöðva útflutning þótt sýnt sé að um offramboð á markaðnum sé að ræða heldur verði aðeins um upp- lýsingabanka að ræða. Loks er gert 'trtð fýrir tilraun til 3ja mánaða. í dag mun stjórn Landssambands útvégs- manna leggja þessar tillögur sínar fyrir sjávarútvegsráðherra. -S.dór Brotist inn í Garðsapótek: Þúsundum af lyfja- töflum var stolið Brotist var inn í Garðsapótek að- faranótt þriðjudagsins og þaðan stolið þúsundum af lyfjatöflum. Var hér að- allega um diazepam. valíum og amfetamíntöflur að ræða, auk nokk- urs magns af mogadon og öðrum róandi og örvandi lyfjum. I sama húsi og Garðsapótek er við Sogaveginn er einnig fyrirtækið Strandberg hf. Virðast innbrotsþjóf- amir fyrst hafa farið þar inn, brotið upp hurðir en litlu stolið. Síðan var farið inn í Garðsapótek. -FRI LOKI Þá er að fara að framleiða fyrir tíu þúsund kallinn! Þrjátíu barna heimili seld einkaaðilum? Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, telur koma til greina að selja einkaaðiium helminginn af 60 bamaheimilum borgarinnar og efiia þannig til samkeppni um hagkvæm- an rekstur þeirra. Jafiiframt vill hann kanna hvort ekki borgi sig að greiða foreldrum fyrir að gæta bama sinna heima, 10 þúsund krónur á bam, en það er framlag borgarinnai- vegna bams á bamaheimiB. Þetta kom fram í máli borgarstjóra sem sat við spjailborð með fleirum á viðskiptaþingi Verslunarráðsins í gær. Davíð sagði meðal annars að vel gæti borgað sig fynr foreldri með til dæmis þrjú böm að fá greiddar 30.000 krónur heim á mánuði í stað- inn fyrir að sækja vinnu fyrir sama kaup og kosta af því kaupi gæslu bama sinna á bamaheimili. Ef þetta er kona og konan er dug- leg getur hún svo bætt bami við og fengið 40.000 krónur á mánuði i kaup frá borginni fyrir uppeldi bama sinna, sagði Davíð Oddsson. Hann sagði að einnig kæmí til ábta að færa rekstur skóla að hluta til á hendur einkaaðilum. Þá sagðist hann ekki hitta þann bankastjóra Landsbankans sem hefði með við- skipti við borgina að gera öðruvísi en að bankastjórinn legði til að en borgin leggur 160 milljónir með rekstrinum á ári eða bálfa milljón króna á dag. Jónas Haralz landsbankastjóri leiðrétti borgarstjóra og sagðist leggja að honum að koma á sam- keppni um þessa þjónustu við borgarana. -HERB Við komuna til Kaupmannahafnar Hermannsson og Lisbeth Schliiter. Veðrið á morgun: Skúrir um sunnan- og austanvert landið Á fimmtudaginn verður sunnan- og suðvestanátt og skúrir um sunnan- og austanvert landið en sunnan- og suðaustanátt og að mestu úrkomulaust í öðrum lands- hlutum. Hiti verður á bilinu -4 til 6 stig. $ 12,6% hækkun bænda: Gatiðer . um 200 milljónir 4 Ef ríkið greiðir með einhveijum hætti niður þá 12,6% hækkun á laun- um bænda, sem sexmannanefnd frest- aði um mánaðamótin, mun það kosta einhvers staðar í nánd við 200 milljón- ir króna það sem eftir er ársins. Mismunandi leiðir koma til álita og er talsverður munur á kostnaði við þær. Utreikningar liggja ekki fýrir. Niðurstaða sexmannanefridar, sem ákveður kjör bænda og búvöruverð, varð sú að laun bændanna ættu að hækka um 20,6% í kjölfar kjarasamn- inganna í desember. Síðan ættu að bætast við 2% 1. mars, eins og á hinum almenna vinnumarkaði. Vegna til- mæla ríkisstjórnarinnar voru laun bænda ekki hækkuð um nema 10% 1. mars, sem olli að jafnaði um 5% hækkun á búvöruverði. Þá vantar ' 12,6% launahækkun upp á, sem leiða ( myndi til um 6% búvöruverðshækk- unar, ef ekki kemur til niðurgreiðslna | af einhveiju tagi. -HERB, 4 14 4 4 * 4 á gærkvöld, f.v.: Edda Guðmundsdóttir, Schluter, Steingrímur Símamynd: Haukur L. Hauksson Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmarmahö&i: Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra og kona hans, Edda, komu í | opinbera heimsókn til Danmerkur í gærkvöld. Tóku Poul Schlúter forsæt- isráðherra og Lisbeth, kona hans, á móti þeim á flugvellinum. Dagskrá heimsóknarinnar hefst í j dag klukkan hálfellefu þegar Stein- grímur mun eiga viðræður við Poul Schlúter. Að sögn danskra fjölmiðia I verður ekki síst fundur Steingríms og | Gorbatsjovs í Moskvu meðal umræðu- efnanna. íslenskir námsmenn í Kaupmannahöfn hafa boðað mótmæli I við ráðhúsið á hádegi á morgun vegna skerðingar á námslánum og um kvöld- ið er fundur Steingríms með náms- mönnum í húsi Jóns Sigurðssonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.