Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1987, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1987. 7 DV Atviimumál ACT-skór hvelja til 100% álagningan Brot á lögum um verðlagnmgarmál? DV hefur borist í hendur eintak Samkvœmt upplýsingum hjá Verð- af bréfi, merktu ACT-fréttir, sem sent lagsstofun er bréf þetta hugsanlega hefur verið öllum viðskiptavinum brot á lögum um verðlagningu, sam- Skóverksmiðjunnar Iðunnar á Ak- keppnishömlur og óréttmæta við- ureyri. Þar er þess óskað að við- skiptahætti. Ekki væri hægt að skiptavinimir noti 100% álagningu fullyrða um slíkt fyrr en stofnunin á framleiðsluvörur verksmiðjuimar. hefði haft samband við viðkomandi Orðrétt er bréfið svona: „Við ósk- fyrirtæki og fengið skýringar á tilurð um eftir að viðskiptavinir okkar bréfsins. noti 100% brúttóálagningu á allar Verðlagsstofnun mun á næstunni framleiðsluvörur okkar nema vinnu- kanna þetta mál nánar og í fram- og inniskó, en þar óskum við eftir haldi af þvi grípa til aðgerða ef þörf að verði notuð 80% brúttóálagning. “ þykir. -FRl „Leiðbeinandi, ekki skipunu - segir ÚKiar Gunnarsson um tilmæli ACT „Þetta er leiðbeinandi en ekki skipun um álagningu enda sett fram sem ósk. Ástæður þess eru að við getum ekki selt skó okkar eins og þarf ef einn kaupmaður er með 85% álagningu en annar með 105% svo dæmi séu tekin. Markaðurinn er það iítill að við þurfum að selja mörgum til að geta lifað,“ sagði Úlfar Gunn- arsson, deildarstjóri hjá skógerðinni Iðunni, í samtali við D V er við spuið- um hann um ástæður þess að ACT-bréfið var sent út en hann skríf- ar undir það. En er það ekki hagur neytenda að álagningin sé sem lægst? „Þetta er ekkert nýtt, samanber álagningu á bækur í bókabúðum. Skóverslun er mjög erfiður rekstur nú til dags, dæmi er fjöldi skóbúða á fasteignasölum. Þessir menn verða að geta lifað og rekið sinar búðir. Hvað þessa ósk um samræmda álagningu varðar þá má nefiia að ef okkar búðir lækka álagninguna verða aðrir kaupmenn fúlir og svo öfugt“ Í máli Úlfars kom enn fremur fram að skókaupmenn ættu í verulegum greiðsluerfiðleikum nú, hér hefði ekki komið vetur í þijú ár og því lægju þeir með birgðir af vetrars- kóm. Tvö rigingarsumur heföu svo haft þau áhrif að einnig væru birgð- ir af sumarskóm. -FRI „Við vitum um 16-18 punda fiska í vatninu" segir Sigurður Bergsson, nýkjörinn formaður Stangaveiðrfélags Hafnarfjarðar Sigurður Bergsson, formaður Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar, sleppir seiðum í Kleifarvatni á stærri myndinni og á minni heldur hann á fallegum 20 punda laxi úr Soginu. „Við ætlum að auglýsa Kleifarvatn sem veiðivatn fjölskyldunnar því það er svo gott að skreppa þangað á kvöld- in og um helgar til að renna fyrir fisk. Við ráðgerum að halda áfram urriða- seiðasleppingu, eins og við höfúm gert, næstu árin. Þessi stóri urriði, sem veiðist núna, er úr Laxá í Mývatns- sveit og það sem við vitum um af stærsta fiski í vatninu er 16-18 pund. Það er ekki vitað með vissu hvort þessi fiskur hrygnir í vatninu," sagði Sigurður Bergsson, nýkjörinn formað- ur Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar, í samtali við DV. „En við vonum að þessi nýi stofn, sem við settum og erum að setja í vatnið, muni með tíð og tíma hrygna í vatninu, það hafa sérfræðing- ar sagt að sá möguleiki sé fyrir hendi.“ - Nú virðist sem Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar sé nær eingöngu orðið silungsveiðifélag? „Já, Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar hefúr alltaf verið mikið í silungnum og var reyndar stofnað í kringum Hlíð- arvatn í Selvogi en við höfum verið með aðstöðu þar síðan 1952 þegar fé- lagið var stofnað. Svo gerðum við samning við Hafnarfjarðarbæ um ræktun á Kleifarvatni og höfum verið með það í áratugi. Svo erum við með Djúpavatn og nýja veiðihúsið sem vorum að reisa við Skorradalsvatn. Það stendur til að leigja það út um mánaðamótin maí/júní til félags- manna.“ - Þið eruð ekki með neina laxveiðiá eins og er sjálfir? „Við erum ekki með veiðirétt einir í neinni veiðiá eins og er en höfum ítök í Flókadalsá í Borgarfirði og með nokkra daga í Bíldsfellslandi í Sogi. Við höfum mikinn hug á að fá leigða Veiðivon Gunnar Bender veiðiá fyrir okkur og það er stefnt að því.“ - Hvað kostar að veiða hjá ykkur í Kleifarvatni, Djúpavatni og Skorra- dalsvatni? „I Kleifarvatni kostar dagurinn 500 krónur, hálfúr dagur 350 og svo er hægt að kaupa fj ölskyldusumarkort sem gildir þá allt sumarið og það kost- ar 2000 krónur. I Djúpavatni er aðstaða með húsinu seld á 1200 krónur dagurinn, þá hafa menn allt vatnið út af fyrir sig. Við Skorradalsvatn verður þessi glæsilega aðstaða í boði fyrir félags- menn og svo er hægt að fara til veiða í fleiri vötnum en í Skorradal, svo sem í Svínadalnum og Reyðarvatni. Veiði- leyfin í Kleifarvatni eru seld í bensín- stöðvunum í Hafharfirði, Fitjum í Njarðvík og svo selur sportveiðiversl- unin Veiðivon fyrir okkur." - Nú eru tröllasögur um stóra urriða í Kleifarvatni og hvað gæti sá stóri orðið úr vatninu í sumar? „Við vitum um 16-18 punda fiska og síðasta haust fóru kafarar í vatnið og þeir sáu ótrúlega væna fiska á sveimi. Við fréttum líka af einum sem var á skautum á vatninu fyrir nokkru síðan og ísinn var glær svo hann sá fiskinn vel. Hann var að renna sér, sá allt í einu tvær bleikjur og elti þær, sá þá torfu af vænum bleikjum, stór- fiskum. Það er vaxandi fiskur í vatninu og við höfúm mikinn áhuga á að rækta vatnið betur upp og gera það gott veiðivatn." G. Bender Óskar Kristjánsson trúir því aö Preglandin hjálpi sér aö liía eölilegu lííl Fœít í verslunum meö heilsuvörur og apótekum. Éh eilsuhúsiö Skólavöröustíg 1 Sími: 22966 101 Reykjavík. * Óskar Kristjánsson íékk liöagigt þegar hann var 12 ára gamall. Sjúkdómurinn lagöist þungt á hann. Þjáöist Óskar aí stanslausum sviöa og bólgum í liðamótum. * Þessi einkenni hurfu um nokkurra ára skeið en þegar Óskar var tœplega þrítugur blossaöi liöa- gigtin upp aftur. Lœknar sögöust lítiö geta hjálpað honum. Þeir kunna aöeins eitt ráö: Aö taka Aspirin í ómœldu magni! * „Þetta var auðvitað algjör vitleysa. Aspirin er aö- eins kvalastillandi. Þaö lœknar ekki sjúkdóm- inn,“ segir Óskar. Fyrir 8 árum rakst hann svo á grein um Preglandin í dönsku blaöi. „Ég ákvaö aö prófa og lét kaupa fyrir mig nokkur glös í út- löndum.“ * Óskar byrjaöi aö taka töflurnar og fljótlega fóru áhriíin að koma í ljós. Bólgurnar hjöönuöu. Sviöi og óþœgindi huríu skjótt. Brátt minnkaði hann skammtinn úr 6 töflum á dag í 3. Liðagigtin orsakaöi engar þjáningar lengur. * Preglandin inniheldur gammalynolensýru sem er byggingarefni prostaglandin. Rannsóknir á fólki meö liðagigt benda til aö ein af orsökum hennar sé skortur á þessum mikilvœgu efnum. Bati Óskars Kristjánssonar er ekkert einsdœmi. | Viö í Heilsuhúsinu þekkjum mörg dœmi þess aö o Preglandin hjálpi fólki meö alvarlega sjúkdóma. •Áhiif Pieglandin eru einstaklingsbundin. Oíangieind íiásögn ei byggö á reynslu eins aí þeim fjölmöigu, sem hafa notið góðs af Preglandin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.