Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1987, Blaðsíða 4
22 MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 1987. 62 • 25 • 25 F R ETTAS KOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirliggjandi í birgðastöð BITA' Stál 37.2 DIN 17100 Allar algengar stærðir Hh.e.b. Il.P.E. U.N.P. SINDRA STALHR Borgartúni 31 sími 27222 V/EIST ÞÚ AÐ VEITTUR ER 15% STAÐQREIÐSLU AF5LÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM OKKAR Litaval Síðumúla 32 - sími 689656 - Reykjavík íþróttir DV „Hlakka til að þjálfa á Spáni“ • Gary Mabbutt. Mabbuttáfram hjá Tottenham David Pleat, stjóri Tottenham, styrkti Hð sitt verulega á fostu- dagskvöld þegar hann náði samníngum við tvo kunna leik- menn. Fyrst tókst honum að fa enska landshðsmanninn Gary Mabhutt til að vera áfram hjá Lundúnaliðinu. Samningur Mabbutts rann út í vor og um tíma virtust miklar líkur á að hann feri til Man. Utd. Samn- ingur við United tókst hins vegar ekki og gerði Mabbutt þá nýjan samning við Tottenham til margra ára. Síðar um kvöldið skriíaði Chris Fairclough undir samning hjá Tottenham. Kaupverð þessa sterka miðvarðar er um 500 þús- und sterlingspund. Fairclough er blökkumaður og hefúr leikið í enska landshðinu - leikmenn 21 árs og yngri. Fyrr í sumar hafði Brian Clough, stjóri Nottingham Forest, samið við ShefF. Wed. um sölu á Fairclough. Allt virtist stefha í að hann yrði leikmaður með Sigurði Jónssyni í Shef- feld-liðinu en á síðustu stundu neitaði Fairclough að skrifa und- ir samning við Sheff. Wed. -hsím - Howard Kendall til Bilbao „Howard Kendall hefúr ákveðið að reyna fyrir sér erlendis og það voru mikil vonbrigði fyrir okkur að missa hann,“ sagði Philip Carter, stjómar- formaður Englandsmeistara Everton, eftir að stjómin hafði gert allt til þess að reyna að halda Kendall, stjóra liðs- ins, og boðið honum miklu glæsilegri samning en hann hafði fyrir. En Ken- dall sagði nei og verður ffamkvæmda- stjóri Atletic Bilbao á Spáni. Hann gerði samning til tveggja ára við Bilbao og spánska liðið þarf að greiða Everton 250 þúsund sterlingspund, 16 milljónir króna, þar sem Kendall átti eftir tvö ár af samningi sínum við Everton. „Þetta var erfið ákvörðun fyrir mig en ég hlakka til að þjálfa á Spáni. Ég held að ákvörðun mín sé rétt en það er fjarri öllu lagi að Bilbao hafi greitt mér 200 þúsund sterlingspund við und- irskrift samningsins,“ sagði Kendall. Spænsk blöð höfðu skýrt frá að Ken- dall fengi þessa upphæð, 13 milljónir króna, aðeins fyrir undirskriftina. Bilbao-liðið stóð sig illa á síðasta keppnistímabili, varð í 13. sæti í 1. deild. Félagið hefur átta sinnum orðið spænskur meistari, m.a. annars tvö ár í röð, 1982 og 1983. Þá hefur það 23 sinnum orðið spænskur bikarmeistari, eða oftar en nokkurt annað félag. Barcelona er næst með 20 sigra. Howard Kendall var sex ár stjóri hjá Everton. Á þeim árum varð Ever- ton tvívegis enskur meistari, sigraði í bikarkeppninni og varð Evrópumeist- ari bikarhafa. Er það besti árangur sem einn og sami stjórinn hefur náð hjá Everton. Hann var áður leikmaður hjá Everton og við stjóminni nú tekur Colin Harvey. Hann lék áður með Kendall hjá Everton og hefúr verið hans hægri hönd við stjómunina frá 1983. -hsím Heppnissigur ÍBK gegn Víði Keflvíkingar bættu stöðu sína í 1. deildinni mjög vemlega með 1-3 sigri yfir nágrannaliðinu Víði sem enn hef- ur ekki tekist að fara með sigur af hólmi gegn ÍBK í gegnum tíðina. I flestum tilvikum hefur IBK-sigur verið verðskuldaður, en að þessu sinni vom það heppnin og Þorsteinn Bjamason markvörður sem áttu stærsta þáttinn í þessum útivallarsigri ÍBK sem skor- aði þijú mörk gegn einu heimamanna, þar af tvö í fyrri hálfleik. Keflvíkingar skomðu síðan þriðja markið snemma í s.h. - Helgi Bentsson með fallegu langskoti glæsilegt mark en Víðis- merrn svömðu því með marki á sömu mínútunni. Annars vom leikmenn öllu sókn- djarfari en oft áður, sérstaklega Víðismenn, en þeim varð dálítið hált á því að færa víglínuna framar. Sókn- armenn ÍBK gengu á lagið og nýttu svo sannarlega þau fáu tækiferi sem buðust. Líka ber að geta þess að Daní- el Einarsson, sterkasti varnarmaður Víðis, var í leikbanni eftir Völsunga- leikinn og munaði svo sannarlega um hann. Víðismenn fengu tvö mjög góð færi í byijun leiks en heppnin var yfir gestunum sem náðu svo forustunni með marki Gunnars Oddssonar á 14. mín. eftir slæm vamarmistök Viðispil- tanna, 0-1. Á 41. mín. bætti Óli Þór Magnússon öðm marki við. Fékk knöttinn úr þvögu og skoraði af mark- teigslínu, 0-2. Víðismenn lögðu sig alla fram í sóknarleiknum í seinni hálfleik. Skyndisóknir ÍBK vom þvi ávallt hættulegar og úr einni slíkri skoraði Helgi Bentsson hjá sínum fyrri félög- um þriðja mark IBK. Heimamenn létu þó ekki bugast. Á sömu mínútunni skorar Björgvin Björgvinsson, sem nú er farinn að sýna sínar betri hliðar, með skalla eftir að Þorsteinn Bjama- son hafði reynt að hremma knöttinn frá Gísla Eyjólfssyni án árangurs, 1-3. Við markið jókst kraftur heimamanna um allan helming. Spiluðu þeir ÍBK- vömina oft sundur og saman, en gátu ekki rekið endahnútinn á tilraunir sínar og skorað. Þeir vom hittnari á marksúlur og þverslá. Einnig sýndi Þorsteinn Bjamason snilli sína hvað eftir annað og varði eins og honum er best lagið, þar á meðal vítaspymu Grétars Einarssonar sem Baldur Scheving dæmdi þegar Ægir Már Kárason braut á Hlíðari Sæmundssyni á 64. mín. Þrátt fyrir ósigur Víðis sýndi liðið mjög góðan leik oft á tíðum og beittan sóknarleik sem ekki hefúr sést hjá þeim í sumar. Skotfimina vantaði hins vegar og það gerði gæfumuninn. Keflvíkingar léku yfirvegað. Leikað- ferðin bar árangur, þeir leyfðu mótherjunum að sækja, en samt komu vamarveikleikar í ljós. Miðjan opin - vamarmenn svifaseinir, svo hefði Þor- steins Bjamasonar ekki notið við má ætla að úrslitin hefðu orðið önnur en þau urðu. Maður leiksins Gunnar Oddsson Áhorfendur: 1050. emm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.