Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Blaðsíða 36
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði... Dustin Hoffman er ekki mjög heppirm maður. Hann hafði ákveðið að gera sér dagamun og skrapp með börnin sín tvö í tívolí. Þegar hann hafði gengið um allan garðinn með afkvæmunum og prófað ýmislegt sem stóð til boða gengu þau fram á lukkumiðatjald þar sem vinn- ingarnirvoru bangsaraf öllum stærðum og gerðum. Dustin er barngóður maður með af- brigðum og hann lofaði krökkunum sínum að skyldi vinna sinn bangsann handa hvoru. Hvort sem þið trúið því eða ekki þá tók það Dustin fjórar klukkustundir að vinna tvo eins bangsa. Og upphæð- in sem fór í leikinn? Litlar 40 þús. krónur til að fá vinninga að upphæð ca 400 krónur. En Dustin segir að þetta hafi verið vel þess virði. Allar vildu meyjarnar eiga hann, eða allavega mynd af honum. Laugardalshöllin alveg kjaftfull af aðdáendum. Hjartaknúsariim Morten í A-ha Twiggy, sem nú er 36 ára, segist að- eins kæra sig um frægðina vegna dóttur sinnar, Carly, sem nú er 7 ára gömul. Barns- faðir Twiggy dó fyrir fimm árum og síðan hefur hún séð um sig og Carly. Twiggy á nú vaxandi vinsælda að fagna og framtíð þeirra mæðgna er nokkuð trygg. „Frami minn getur verið aðgöngumiði Carly að góðu lífi. Það er mitt æðsta takmark að hún verði hamingjusöm/'segirTwiggy. Elton John Lánið leikur ekki við tónlistar- manninn Elton John þessa dagana. Konan hans fór frá honum og hann á í stappi við almannaróm sem segir hann vera homma og dæmir hann eftir því. Ofan á allt saman varð hann fyrir því óláni fyrir stuttu að glata símanúmera- þókinni sinni. Bókin var úttroðin nöfnum og síma- númerum frægra manna og kvenna, kónga og prinsessa o.s.frv. Elton segir bókina vera ómetanlega og hefur hann heitið firnaháum fundarlaun- um. Þá eru tvær stórhljómsveitir komnar og famar af klakanum. Evr- ópa kom sá og sigraði og ekki vakti hljómsveitin A-ha minni lukku. Eftir að hafa fyllt Höllina tvö kvöld í röð hélt hún heim á leið í 10 daga frí áður en lagt verður í næsta túr. Þessir þrír norsku strákar, sem slógu í gegn fyrir nokkmm árum, eru nú heimsþekktir og unglingar á öll- um aldri þekja veggi sína með myndum af goðunum. Morten Har- ket er vinsælastur þeirra þriggja. Þegar hann hefur upp raust sína em það ófá hjörtun sem fara að slá hrað- ar. Því miður fyrir stúlkur heimsins er Morten á föstu með enskri stúlku sem leggur stund á nútímadans. Þau kynntust þegar hún dansaði í mynd- bandinu við lagið „Take on me“. Þetta er í fyrsta skiptið sem Morten er með stelpu í einhvern tíma. Þau Hversu ótrúlega sem það kann að hittast alltaf þegar tími gefst þó að hljóma þá em helstu áhugamál Morten hafí haft mikið að gera að Mortens fyrir utan tónlistina ræktun undanfömu. orkídea og klifur í trjám! Morten meö stæl, alvarlegur á svip aö syngja fallega ástarballöðu. I partii, sem naldið var í Evrópu eftir tónleikana, náði Sigga Beinteins að ræða stutta stund við Morten. Þau eru hér niðursokkin i samtal sitt. DV-myndir KAE Andrew og Sarah í Kanada Guðrún Hjartardóttir, DV, Ottawa: Kanada. Er þetta fyrsta opinbera --------—______________—___ heimsokn hjonanna ungu a erlendn Um þessar mundir em konunglegu grund síðan þau gengu í það heilaga hertogahjónin af Jórvík, Andrew og fyrir einu ári. Sarah, í opinberri heimsókn í Andrew er sá af börnum Elísabetar Hertogahjónin íklædd regnstökkum er þau sigldu upp að Niagara- fossunum. Englandsdrottningar er þekkir Kanada best. Hann er sá eini af þeim er stundaði nám um tíma hér en á síðari hluta áttunda áratugarins var hann í tvær annir í skóla nálægt Peterborough í Ontario. Hefur Andrew einu sinni áður komið í op- inbera heimsókn til Kanada. Andrew og Sarah hafa nú þegar heimsótt Niagarafossana þar sem þau svifu bæði í þyrlu yfir fossunum og sigldu í báti upp að þeim. Einnig heimsóttu þau borgina Thunderbay þar sem þrumur og eldingar tóku á móti þeim svona til að undirstrika nafn borgarinnar. Um helgina voru þau í höfuðborg Ontariofylkis, Toronto. Þar skoðuðu þau marga athyglisverða staði og enduðu ferðina þar á veðreiðum að breskum sið. Síðustu dagana hafa hjónin dvalið út af fyrir sig í ná- grenni við skóla Andrews fyrir norðan Toronto. Þar sigldu þau á kanóum, stunduðu veiðar og nutu náttúmnnar fjarri ys og þys fjöl- miðla og veislusala. í gær heimsóttu þau Albertafylki og í dag halda þau þar upp á eins árs brúðkaupsafmæli sitt. Andrew og Sarah verða í opinberri heimsókn hér í Kanada í tíu daga en þau ætla einnig að vera á einka- ferðalagi í óbyggðum landsins svo að samtals munu þau dvelja hér í rúmlega þrjár vikur. árs brúðkaupsafmæli sitt I dag. Símamyndir Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.