Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987. Utlönd Sundurleít stjórnarand- staða treystir setu hersins Kim Yong-Sam og Sim Dae-Jung, aöalandstæöingar stjórnarinnar t Suður-Kóreu, hafa komið sér saman um að aðeins annar þeirra verði i framboði sem forsetaefni Lýðræðislega sameiningarflokksins. Hvorugur vill þó víkja fyrir hinum. Simamynd Reuter Kosningabaráttan í Suður-Kóreu er nú hafin og um leiö og frambjóð- andi stjómarflokksins, Roh Tae- Woo, lagði upp í sitt fyrsta kosningaferðalag tilkynnti fyirum forsætisráðherra landsins, Kim Jong-Pil, myndun nýs íhaldsflokks. Hann tilkynnti þó ekki formlega framboð sitt. JP, eins og hann er kallaður, var bönnuð þátttaka í stjómmálum eftir að herinn tók völdin 1980. Hann var tengdasonur Park Chung-Hee Who sem stjómaði Kóreu með jámhendi í átján ár, þar til hann var myrtur 1979. JP var forsætisráðherra á ár- unum 1971 til 1975. Kosningamar í desember verða fyrstu beinu forsetakosningamar frá þvi 1971 þegar Kim Dae-Jung, aðalráðgjafi Lýðræðislega samein- ingáíflokksins, var nálægt því að sigra Park. Óljós mynd Ut á við viröist sem kosningamar séu barátta milli tveggja ólikra afla. Það er að segja á milli óvinsællar herforingjastjómar og stjómarand- stöðu sem hefur lýðræði sem markmiö. En því meir sem þessir tveir hópar era skoðaðir og því meir sem skoðun Kóreubúa sjálfra er könnuð því óljósari verður myndin. Stjómin í Suður-Kóreu er herfor- ingjastjóm jaínvel þótt háttsettir meðlimir hennar séu ekki lengur í einkennisbúningi. Stjómin hefur ekki verið sérstaklega vinsæl þau sjö ár sem hún hefur setið en ímynd hennar batnaði aðeins við hina óvæntu stefnubreytingu í sumar þegar hún lét undan kröfum stjóm- arandstöðunnar og samþykkti beinar forsetakosningar. Litið er á Roh Tae Woo sem hetju og í vissum hópum er litið á hann sem einu trygginguna fyrir þvi að lýðræði verði endurreist í landinu. Herinn er heldur ekki eins ósveigj- anlegur og oft virðist. Þeim ungu liðsforingjum fer fjölgandi sem vilja að herinn einbeiti sér að því að verja landiö. Sundrung er innan hersins og þykir það harla ótrúlegt að hann blandi sér í komandi kosningar. Sundurleit andstaða Sfjómarandstaðan spannar ailt frá íhaldsöflum, sem aðeins vilja komast í valdastöðu, til einfaldra stúdenta sem vilja sameina Suður- og Norð- ur-Kóreu undir forystu Kim II Sung. Mikið ber á milli þessara hópa og er ekki talið útilokaö að þeir sund- rist áður en stjómarandstöðunni tekst að fella stjómina í komandi kosningum. Aöalandstæðingamir innan stjómarandstöðunnar hingað til, Kim Young Sam, leiðtogi Lýðræðis- lega sameiningarflokksins, og Kim Dae Jung, aðalráðgjafi flokksins, hafa komið sér saman um að aðeins annar þeirra bjóði sig fram. Hvor um sig segir reyndar að hinn verði að vikja. Báðir era undir miklum þrýstingi stuðningsmanna sinna um að láta hvergi undan og stuðnings- menn Kim Dae Jungs hafa meira að segja gefiö í skyn að þeir myndi eig- in flokk ef leiðtogi þeirra verður ekki frambjóðandi stjómarandstöð- unnar. Það era meira að segja margir Kóreumenn sem grunar einhvers konar samsæri milli Kim Yong Sam, hersins og Bandaríkjanna, í því skyni að stöðva Kim Dae Jung. Afgerandi áhrif Bæði herinn og stjómarandstaðan gera sér grein fyrir því að Bandarík- in, sem era með fjöratíu þúsund hermenn í landinu, komi til með að hafa afgerandi áhrif á úrslitin. Roh Tae Woo hefur heimsótt Bandaríkin og þar segist hann hafa rætt yfirráö Bandaríkjahers í Suður-Kóreu. Það gæti veitt honum mörg atkvæði. Bandarískur hershöfðingi ræður yfir stórum hluta vamarliðs Suður- Kóreu og er mörgum verr viö þaö en sjálfa nærvera bandarísku her- mannanna. Stjómarandstöðunni er heldur ekki svo illa við stuðning Bandaríkj- anna þó að þeir róttækustu vilji að bandarísku hermennimir taki sam- an pjönkur sínar og fari. Sfjómar- andstaðan veit að Bandaríkin geta stöðvað íhlutun hersins og lítur á Bandaríkin sem bandamann við endurreisn lýðræðis í landinu. Markmið stjómarandstöðunnar er að binda enda á veldi herforingja- sfjómarinnar en ósamkomulagið milli stjómarandstæðinga getur orð- ið til þess að herinn verði áfram viö völd. Stríðsaðilar segja úrslHin ráðast í Washington Leiðtogar sandínistastjómarinn- ar í Nicaragua og contraskæralið- ar, sem beijast gegn stjóminni, eru þeirrar skoðunar að úrslitaorrast- an þeirra á milli verði háð í Washington en ekki í fjallahéruð- um í Nicaragua. Báðir stríðsaðilar eru sammála um aö barátta contraskæruliða líði undir lok þegar þeir njóta ekki lengur fjárhagslegs stuönings frá Bandaríkjunum. Margir hemað- arsérfræöingar Vesturlanda era á sama máh. Reagan Bandaríkjaforseti hefur sagt að hann muni biðja um tvö hundrað og sjötíu milljóna dollara fjárveitingu handa contraskæru- höum á nýju fjárhagsári sem er að hefjast. Vhl forsetinn að greiðsl- urnar fari fram á átján mánaða tímabih. Ef miðað er við upplýsingar hem- aðarsérfræðinga, sem segja að birgðir skæruhða endist til ára- móta, myndi fjárveitingin enn fara fram sex mánuðum eftir að nýr forseti hefur tekið við. Forseta- kosningamar eiga að fara fram í nóvember á næsta ári og nýr for- seti tekur viö embætti snemma á árinu 1989. Óviss úrslit Óvíst þykir hver úrslit umræð- unnar á Bandaríkjaþingi verða og að því er embættismenn og stjórn- málaskýrendur telja kemur hún til með að mótast af friðaráætlun Mið-Ameríkuríkja sem undirrituð var í Guatemala þann 7. ágúst síð- astliöinn. Samkvæmt friðaráætl- uninni er gert ráð fyrir að vopnahléi og lýðræðislegum um- bótum hafi verið komið á í Nic- aragua, E1 Salvador og Guatemala þann 7. nóvember næstkomandií í samræmi við áætlunina hafa stjórnvöld í Nicaragua leyft þrem- ur prestum í útlegð að snúa aftur, ritskoðun hefur verið hætt, útgáfa á blaðinu La Prensa heimiluð á ný og kaþólsk útvarpsstöð opnuð aft- ur. Umbætur kallaðar áróður Reaganstjómin hefur látið sér fátt um finnast og kallað aðgerðim- ar áróður. Að sögn sljómarerind- reka hefur það sannfært marga Contraskæruliðar í Nicaragua með vopnasendingu frá Bandaríkjamönn- um. Símamynd Reuter Mið-Ameríkumenn um að Banda- ríkjaforseti hafi meiri áhuga á að bola stjórn sandínista frá en að koma á friði og lýðræði á svæðinu. Embættismenn í Nicaragua virð- ast sannfærðir um að Reagan tah fyrir daufum eyram á þingi. Segja sumir þeirra að Reagan geti ekki lengur komið fram vhja sínum í einu og öhu, hann hafi flækst í of mörg hneykslismál auk þess sem ekki sé langt eftir af kjörtímabili hans. Eftir að síðasta fjárveitingin th contraskæruliða, upp á þijár og hálfa mhljón dohara, var samþykkt í fulltrúadehd Bandaríkjaþings í síðustu viku sagði forseti fulltrúa- deildarinnar og demókratinn Jim Wright að hann væri þeirrar skoð- unar að ef friðaráætlunin yrði framkvæmd hefði þetta verið síð- asta fjárveitingin th contraskæra- hða. Contraskæruliðar höfnuðu í síð- ustu viku tilboði sandínista um vopnahlé og segja að ekki sé hægt að stöðva átök án samningavið- ræðna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.