Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1987, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1987. Utlönd Varar við afleiðingunum James Baldwin látinn Bandaríski rithöfundurinn Jara- es Baldwin lést í gær í Saind Paul de Vence á frönsku Rivierunni. Baldwin, sem var sextíu og þriggja ára að aldri, var um langt árabil einn af virtustu þeldökkum rithöf- undum Bajidaríkjanna. Eftir hann liggur töluvert mikið safn skáld- sagna, smásagna og leikrita. Sprengjubréf fra sendiráði íslands Eifiðleikar i Kim Dae-jung, einn af frambjóð- endum suður-kóresku stjórnar- andstöðunnar í forsetakosningum þeim sem framundan eru þar í landi, varaði í gær alvarlega við afleiðingum þess ef kosningamar færu ekki fram í fullri sanngimi. Frambjóðandinn útskýrði ekki nánar hvað fælist I sanngirnis- hugtakinu, en stjómarandstaðan hefur kvartað undan því að fram- bjóðandi stjómarflokkanna I landinu sitji ekki við sama borð og þeir. Kim Dae-jung sagöi í gær aö ógnarástand myndi fylgja í kjölfar- ið ef sanngirni yrði ekki gætt. Erflðlega hefur gengið undanfarið að koma matvælum og öðmm hjálp- argögnum á þurrkasvæðin í Eþíópíu. Hundmö þúsunda manna bíða þar hjálpar sem kemur seint og slitrótt. Síðastliðinn sunnudag tókst ellefu flutningabifreiöum að koma tvö hundruð tonnum af matvælum til Wukro, í norðurhluta Eþíópíu. Flutn- ingabifreiðirnar höfðu þá veriö fimm sólarhringa á leiðinni þótt vega- lengdin væri ekki nema tvö hundruð sextíu og fimm kílómetrar. Tuttugu felldir Að minnsta kosti tuttugu manns hafa fallið í árásum skæruliða í Afganistan á sunnudag og mánu- dag. Árásimar hafa verið gerðar á þing leiðtoga landsins, sem staðið hefur undanfama daga, en í gær undirrituðu leiðtogamir nýja stjórnarskrá. Melludólgur eða Lögreglumenn í nú ákaflega reiöir stjómvöldum meðferðar þeirra á einum af fremstu lögreglumönnum lands- ins. Yves Jobic, sem lengi hefur þótt ein af skærustu stjömum frönsku lögreglunnar, hefur und- anfarið veriö yfirheyrður vegna gruns um að hann stæði í útgerð á gleöikonum og sölu á fíkniefnum. Jobic hefur að sjálfsögðu neitað öllum sakagiftum. Flak kóresku farþegaþotunnar, sem talið er aö hafi farist yfir Thai- landi eða Burma um síðustu helgi, hefur ekki fundist enn. Talið er fullvíst aö þotan hafi far- ist og með henni allir þeir hundrað og fimmtán sem um borð voru. Talsmenn kóreska flugfélagsins KAL hafa leitt getum að því að þotan kunni að liafa spmngið i loft upp á flugj. Benda þeir meðal ann- ars á það í því sambandi að flugmaðurinn hafi ekki látið neitt frá sér heyra þótt þotan hafi verið í svo mikilli hæð aö hann hefði átt að geta það. Sprengjng í þotunni gæti skýrt þetta sambandsleysi. Tilraun var í gær gerð til þess að í Líbanon. Var sendiherranum send ráöa af dögum sendiherra Bretlands sprengja í pósti. Tilraunin mistókst Sprengjan kom til breska sendiráðsins i fórum sendimanns sem hélt þvi fram að hún væri frá sendiráði íslands í borginni. Simamynd Reuter algerlega. í fyrsta lagi fann aðstoðar- maður sendiherrans sprengjuna og gat látið gera hana óvirka og í öðru lagi hafði sendiherrann, John Gray, farið frá Líbanon þrem sólarhringum fyrr. Það mun svo einnig hafa vakið grunsemdir aðstoðarmanna sendi- herrans að bílstjóri, sem kom með bréfið í breska sendiráðið, hélt því statt og stöðugt fram að það væri sending frá sendiráði íslands í Beir- út. Aðstoðarmennirnir vissu hins vegar sem var að ísland hefur ekkert sendiráð þar. í bréfinu voru þrjátíu grömm af sprengiefni sem er nógu kraftmikið til að svara til þriggja kílógramma af TNT. John Gray hefur veriö sendiherra Breta í Líbanon frá árinu 1985 og hefur veriö meðal þeirra stjórnarer- indreka sem mest hefur voriö á í Beirút. Hann hefur reglulega fundi með leiðtogum bæði kristinna manna og múhameðstrúarmanna í borginni. Gorbatsjov ekki jafhógn- vekjandi og Errol Flynn Ronald Reagan, forseti Banda- ríkjanna, sagði í gær að hann óttaöist það alls ekki að falla í skuggann af Mikhail Gorbatsjov, leiðtoga sovéska kommúnista- flokksins, á fundi þeirra leiðtog- anna í Washington í næstu viku. „Drottinn minn, ég lék á móti Errol Flynn einu sinni,“ sagði forsetinn. Bandaríkjamenn hafa haft af því nokkrar áhyggjur undanfarið að forseti þeirra komi til með að virð- ast aldurhniginn og takmarkaður bógur við hlið Gorbatsjov. Sovéski leiötoginn er fimmtíu og sex ára og þykir kraftmikill persónuleiki þar sem Reagan er orðinn sjötíu óg sex ára og töluverðra efasemda gætir um andlegt atgervi hans. Sjálfur kveðst Reagan þó óhræddur og vísar, sem fyrr segir, óspart til fyrri starfa sinna í kvik- myndaleik þar sem hann lék á móti mörgum af helstu stjörnum Hollywood. Segist hann ekki öfunda Gor- batsjov af atgervi sínu, vinsældum né nokkru öðru. í gær sagði forset- inn í ræöu í gagnfræöaskóla einum að hann teldi Gorbatsjov sérstakan fyrir tvennt. í fyrsta lagi hefði Gor- batsjov reynst fús til að minnka birgðir Sovétríkjanna af kjarn- orkuvopnum og í öðru lagi hefði Gorbatsjov aldrei talað um al- heimsríki kommúnista. Ronald Reagan segist ekki hræddur um að falla í skuggann. Svo sem sjá má áf myndinni kann þessi fyrrverandi leikari enda margar að- ferðir við að ná athygli þeirra sem umhverfis hann eru. Simamynd Reuter Það er víst engin ástæða til þess að óttast hann þennan, að minnsta kosti ekki fyrir þá sem lent hafa í Errol Flynn. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.