Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1987, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 1987. . 37 r _______________________________Viðskipti Er þorskurinn að falla í verði? Á alþjóöafundi fiskkaupmanna, sem haldinn var í Monte Carlo í haust, þar sem 400 fiskkaupendur frá 15 löndum mættu, kom fram aö ekki mættu fiski- menn búast viö verðhækkunum á ferskum fiski í framtíðinni. Á undanf- ömum árum hafa þorskflök hækkaö um 18 til 20% í Bretlandi. Allar tegund- ir fisks hafa hækkaö um 11% á sama tíma og kjötverö hefur aðeins hækkaö um 4%. Þetta hefur valdið því að sala á frosnum flökum hefur dregist saman. Árin 1976-78 var líkt ástand á mörk- uöunum, hækkun á fiskverðinu var nokkru meiri en á kjötveröi. Hafði þetta þá þau áhrif aö frosni fisk- urinn féll í verði. Árin 1979-82 hækkaði kjötyerö meira en fiskveröiö og eftir- spum eftir fiski jókst á ný. Frá 1983 hefur fiskverö stigið ört en kjötverö staðið í staö. Hiö dýrtíðarvaldandi fis- kverö hefur það í for með sér aö nota verður aðrar tegundir, svo sem Alaska polloch o.fl., segir í Fishing News. Reykjavík: Örfá sýinshom af fiskverði á stór- mörkuöum í Reykjavík. Ýsuflök, bein- laus, í 400 g öskjum, 190 kr., kílóiö 350 kr. Ysuflök í sellófan, 336 g, 141 kr., kíló- verö 423 kr. Skelflett rækja, 500 g, 252 kr., kílóverö 504 kr. Hörpuskelfiskur, 350 g, 456 kr., kílóverð 1117 kr. Ekki mun fólki þykja góöur kostur þegar bæst hafa viö þetta verð 25% og mun verðlag á fiski veröa til þess aö menn sækjast eftir ódýrari matvælum og fisk- neysla minnkar að mun og tel ég þaö mjög miöur. Það verö sem hér hefur birst er eingöngu á frystum fiski. Bretland: Kolinn á um 93 krónur. 2. desember var seldur fiskur úr gámum, 131 lest, fyrir 10 millj. kr. Verð á þorski var 75,86 kr. Ýsuverð 80,89 kr. Koli 92,85 kr. Mánudaginn 7. des. var seldur fiskur úr gámum, alls 300 lestir, fyrir 21,379 millj., meöalverö kr. 71,43. Þriðjudaginn 8. des. var seldur fiskur úr gámum, alls 225 lestir, fyrir 16,Émillj. kr. Meðalverö 74,64 kr. Verö á þorski 71,59 kr. Ýsa 86,61 kr. Koli 94,12 kr. Alls konar flat- fiskur og lúöa 80.85 kr. Hull: Bv. Björgúlfur seldi afla sinn 2. des., alls 130 lestir, fyrir 10,523 millj. Verð á þorski 75,86 kr. Ýsa 80,89 kr. Koli 92,56 kr. Bv. Klakkur seldi afla sinn 7. des., alls 112 lestir, fyrir 7,593 millj., meðal- verö 67,72 kr. Bv. Snæfugl seldi afla sinn 8. des., alls 125 lestir, fyrir 9,1 millj., meðalverð 73,26 kr. Verö á þorski 76.26 kr. Verö á ýsu 85,24 kr. Þýskaland: Lélegt hjá Sléttanesinu. Bv. Slétta- nes seldi í Bremerhaven 7. des., alls 183 lestir, fyrir 8,185 milij. Meöalverö 44,50 kr. Aflinn var skemmdur að hluta en var annars í 2. gæðaflokki. Bv. Vigri seldi afla sinn í Bremerhaven og var verö fyrir afla hans nokkru hærra en hjá Sléttanesi. Rússar: Miklar breytingar hjá Rússum. í viötali, sem Dansk Fiskeri Tidende átti nýlega við fiskveiöiráöherra Sovétríkj- anna, kom meðal annars fram aö miklar breytingar eru fram undan á Úthaldi rússneskra fiskiskipa. Taldi ráðherrann aö ekki væru líkur fyrir að heföbundin fiskveiði yrði aukin aö nokkru marki. Ef auka ætti framleiösl- una yröu að koma til nýir fiskstofnar og yrði það ekki með öðrum hætti en aö ný tækni og tæki kæmu til. Eins og kunnugt er, er fiskveiði Rússa milli 10 og 11 millj. lestir áriega. Aðalbreyting- amar eru fólgnar í þvi aö vistir munu veröa teknar í þeim löndum sem næst eru miðunum hveiju sinni og munu samningar um þaö gerðir viö hvert það ríiti sem slík viðskipti á viö flotann. í sambandi við fiskveiöamar hefur komið 1 ljós aö neytendur em óánægðir með framleiösluna, þeim þykir hún ekki nægilega vönduð. Útgeröin kvart- ar yfir því aö ekki fáist nægilegt verð fyrir fiskinn svo hægt sé aö vanda til framleiöslunnar. Hann sagði að í náinni framtíð yröi þetta tekið til endurskoð- unar og úr þessu yröi bætt. Slíkar breytingar heföu meöal annars í for með sér aö fjölga þyrfti í áhöfnum ski- panna sem heföi aukinn kostnaö í fór með sér. Fiskeldi: Meira fijálsræði Rússa í fiskeldi. Langtímaáætlanir em nú geröar um fiskeldi í ám og vötnum og gróður við ströndina. Nú em framleidd um 2 kíló af fiski á hvert mannsbam í Ráöstjóm- arrikjunum og ætiunin er að margfalda fiskeldið, sagði Nikolaj Kotlajar ráö- herra. Eins og er fást um 3,7 kg af fiski á hektara en stefnt er aö því að afrakst- urinn verði 13,5 kg á hektara. Búunum verður gefið meira fijálsræði við fram- leiðsluna en ríkið mun leggja fram 15 til 18 milljarða rúblna til að byggja upp eldisstöðvar og leggja niður óarðbærar stöðvar. Noregur: Pólsk frystiskip liggja við Lofoten til 31. desember. Sjávarútvegsráðuneytið hefur samþykkt, að beiðni Feitsildfi- skemes Salgslag, að lengja afgreiðslu- frestinn á 7000 tonnum af vorgotssíld til 31. desember. Þessi ákvörðun gildir aðeins fyrir pólsk skip. New York: Kaninn vill lax. Að undanfömu hef- ur eftirspum eftir laxi verið nokkuð góð og verðið verið ágætt. Verö á slægðum laxi, 2-3 kg, 400 kr., á laxi, 3-4 kg, 451 kr., á laxi 4-6 kg, 500 kr. og 5-6 kg 526 kr. New Fiskv. alm. Fulton Engl. kr. kr. Karfi 104 84 Karfaflök 334 309 Stórþorskur, hausaður 160 92 Þorskflök 334 270 Ýsa 229 217 Skötuselshalar 413 Ýsuflök 490 Steinbítsflök 275 275 Keiluflök 244 í nóvember var haldin sjávarréttasýn- ing í Flórída. Fenginn var sérstakur matsveinn frá New York og var hann meðal annars spurður hvaða fisk- Fiskmarkaður Ingólfur Stefánsson tegundir væm bestar til matreiðslu. Fyrst talaði hann um lax, síðan „mar- ulk svo steinbít og karfa en kvað það sorglegt hvaö oftast væri erfitt að fá þessar tegundir. Allt verð hér að fram- an miðast við gengi 6.12.’87. Mílanó: Skötuselshalar í Mílanó. Eins og oftast áður eru það aðallega Norðmenn sem notfæra sér markaðinn í Mílanó. Þrátt fyrir að verð þyki í lægra lagi er eftirfarandi verð nokkuð gott að mínu mati: Heill lax, 315 til 376 kr. Skötusels- halar, 312 til 351 kr. Karfi, 234 til 420 kr. kg. Þorskflök, 242 til 258 kr. kg. Rauðsprettuflök, 346 til 420 kr. Innflutt- ur frosinn lax, 360 til 390 kr. Rauð- sprettuflök, 390 til 420 kr. Verð hjá de Klaudeio Milano 1.12.: Óslægður norsk- ur lax, 751 kr., flakaður lax, 1040 kr. Karfi, 841 kr. Pillaðar rækjur, 900 kr. Rækjur frá Danmörku, 841 kr. kg. Ritaras Ritaraskólinn tekur til starfa 6. og 18. janúar. Kennt er alla virka daga vikunnar, þrjár klukkustundir í senn og hægt að velja á milli tveggja mismunandi dagtíma. Markmið skólans er að út- skrifa sjálfstæða starfskrafta sem hafa tileinkað sér af sam- viskusemi það námsefni sem skólinn leggur til grund- vallar, en kröfúr skólans til sinna nemenda eru ávallt miklar. Til þess að ljúka prófi írá Ritaraskólanum þarf lágmarkseinkunn- ina 7.0 í öllum námsgreinum. Námsefni: □ íslenska ............... 76 klst. □ bókfærsla eða enska .... 90 klst. □ reikningur ............. 36 klst. □ tölvur ................. 39 klst. □ vélritun ............... 24 klst. Q tollur ................ 33 klst. Q lög og formálar ....... 12klst. Q skjalavarsla ..........7.. 9 klst. Q verðbréfamarkaður ....... 3 klst. Framhaldsbrautir í beinu framhaldi af námi í Ritara- skólanum getur þú valið um tvær framhaldsbrautir: fjármálabraut og sölubraut. Með þessum nýju brautum er námið í Ritaraskólanum orðið 2ja ára nám. Sérmenntun íyrir nútíma skrifstofúfólk. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR í SÍMA 10004 OG 21655 Mímiri ÁNANAUSTUM 15 BÍLA-HAPPDRÆTTi HANDKNATTLEIKSSAMBANDS ÍSLANDS 15 SUZUKI FOX-JEPPAR — með drifi á öllum, eins og landsliðið okkar 35 SUZUKI SWIFT — tískubíllinn í ár 50 BÍLAFtMÍ 15 Bl'LAR dregnir út 14. DES. 1987 35 BÍLAR dregnir út 18. JAN. 1988

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.