Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.1988, Blaðsíða 1
17 Dansstaðir - Matsölustaðir - Leikhús - Sýningar - Kvikmyndahús - Myndbönd o. fl. íslenski dansflokkurinn: Ég þekki þig - þú ekki mig íslenski dansflokkurinn frumsýnir fjögur ballettverk undir samheitinu „Ég þekki þig - þú ekki mig“ á sunnudagskvöldið. DV-mynd Brynjar Gauti Á sunnudagskvöldið frumsýnir íslenski dansflokkurinn fjögur bal- lettverk undir samheitinu „Ég þekki þig - þú ekki mig“. Þetta er stærsta verkefni íslenska dans- flokksins þetta leikár og ein af áskriftarsýningum leikhúsgesta. Höfundur og stjórnandi dansanna, er Holiendingurinn John Wismán í náinni samvinnu við hönnuð sýn- ingarinnar, Henk Schut. John Wisman starfar sem dans- ari og danshöfundur við Þjóðarbal- lettinn í Hollandi. Fyrsta verk þessarar sýningar, Ég er að bíða eftir þér, samdi Wis- man að beiðni hollenska ríkissjón- varpsins fyrir keppni ungra evrópskra dansara sem fór fram á Ítalíu í Reggio Emilia sumarið 1985. En frá þeirri keppni var bein sjón- varpsútsending til margra landa. Tónhstin er eftir Louis Andriessen. Annað verkið, Númer 48, var samið fyrir dansflokk Krisztina de Chatel. Upphaflega var Númer 48 heilskvöldssýning en nú verður aðeins sýnt brot af henni. Þriðja verkið, Segðu þetta aftur, hærra, var samið fyrir hollenska þjóðarballettinn árið 1984 fyrir fjóra kvendansara og fjóra karl- Atriði úr sýningu íslenska dansflokksins á verkinu „Segðu þetta aftur, hærra' DV-mynd Brynjar Gauti dansara við 4. kafla sinfóníu eftir Luciano Berio. Eins og kunnugt er samdi Berio sinfóníu fyrir „Swingle Singers" á grundvelli ýmissa þekktra tónlistarverka. Lokaverk sýningarinnar heitir Lokaskilaboð og er það sérstaklega samið fyrir tíu kvendansara flokksins og karldansarana fjóra sem koma til hðs við stúlkumar á þessari sýningu. Tónhstin er úr þremur verkum eftir Laurie And- erson. Henk Schut er hönnuður lýsing- ar, búninga og sviðsmyndar. Gestadansarar sýningarinnar eru íslendingurinn Jóhannes Pálsson, sem starfað hefur með The Penn- sylvania Ballet Company undan- farin ár, Hollendingurinn Corné du Croq, Austurríkismaðurinn Hany Hadaya og Bandaríkjamaðurinn Paul Eastabrook. Dansarar íslenska dansflokksins að þessu sinni eru: Ásta Henriks- dóttir, Birgitte Heide, Guðmunda Jóhannesdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Helena Jóhannsdóttir, Helga Bem- hard, Katrín Hall, Lára Stefáns- dóttir, Ólafía Bjamleifsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir. íþróttir helgarinnar - sjá bls. 31 Myndbönd - sjá bls. 32 Veitingahús vikunnar - sjá bls. 18 Danski rithöfandur- inn Dan Turéll í viðtali - sjá bls. 19 Djassað í Tunglinu Á sunnudagskvöldið verða djass- tónleikar í Lækjartungli, Lækjar- götu 2. Þar kemur fram djasskvart- ettinn Fars á sínum fyrstu tónleikum en í honum eru tónhst- armennimir Stéingrímur Guð- mundsson, Andrea Gylfadóttir, Richard Com og Friðrik Karlsson, allt þekktir tónhstarmenn sem hafa komið víða við á ferlinum. Meðal efnis á tónleikunum eru ýmis djasslög sem sjaldan eru flutt með söng ásamt fmmsamdri „instrumentaT tónlist auk ýmissa laga eftir aðra. Djasskvartettinn Fars. DV-mynd Ragnar Sigurjónsson Sovéska kvikmyndin, Móðir María, verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, nk. sunnudag, 14. febrúar, kl. 16.00. Mynd þessi er 4ra ára göm- ul og þar segir frá rússneskri konu sem Öy6t skömmu eftir byltingu til Frakklands, gengur í þjónustu kirkjimnar og vinnur sem nunna að liknarmálum. Á hemámsámm Þjóðverja í síðari heimsstyrjöldinni veitir hún mönnum úr and- spyrnuhreyíingunni aðstoð síná en er handtekin af nasistum og tekin af lífi i gasklefunum í Ra- vensbrúk, 31. mars 1945. Ljúdmíla Kasatkina leikur móður Maríu en leikstjóri er Sergei Ko- losov. Skýringartextar em á ensku. Fyrirlestur um heimspeki ------------------------------- Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri; Dr. Páll Skúlason, prófessor í heimspeki við Háskóla íslands, flytur fyrirlestur í húsi Verk- menntaskólans á Akureyri nk. laugardag kl. 14. Fyrirlesturinn nefnist „Hver er tiigangur lifs- ins“ og mun Páll fjalla um fjögur ólík viðhorf til spumingarinnar um tilgang lífsins og hvernig henni megi svara. Fyrirlestur þessi er sá fyrsti afþremur í fyrirlestraröð um „Siðtérði og tilgang hfsins". Fyrirlestramir eru öllum opnir. Heims- og | Evrópu- | meistarar á bridgehátíð - sjá bls. 19 \ Ás-leikhúsið - sjá bls. 30 Heims- þekktur fiðlu- snillingur spilar í Fríkirkjunni - sjá bls. 20

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.