Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1988, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1988.
5
1=
Fréttir
Böðvar Bragason:
Lögreglan
hefur fylgst
með
Magnúsi
Böðvar Bragason lögreglsutjóri
sagði í samtali við DV í morgun að
lögreglan hefði fylgst með Magnúsi
Skarphéðinssyni hvalafriðunar-
mánni. Hann neitaði að lögreglan
hefði hlerað síma og opnað póst til
Magnúsar eða annnara hvalafriöun-
armanna.
í nýjasta tölublaði Þjóðlífs er sagt
frá því að hvalafriðunarmaður hafi
orðið fyrir njósnum lögreglu og að
sími hafi verið hleraður og póstur
opnaður.
Magnús Skarphéðinsson sagði við
DV að hann vissi að þetta væri rétt.
Hann vildi ekki segja til um hvaða
hvalafriðunarmaður hefði orðið fyr-
ir þessu. Hann hvorki neitaði né
játaði að hann væri umræddur
hvalafriðunarmaður.
Böðvar Bragason sagði það af og
frá að lögreglan hefði látið hlera síma
og opna póst. Böðvar sagðist ekkert
geta sagt um hvort einhverjir aðrir
stunduðu slíkt, en lögreglan í
Reykjavík hefði ekki gripið til þess-
ara ráða.
-sme
Vestmannaeyjar:
Loðnuafli
kominn í 55
þúsund tonn
- frysting hefst á mánu-
dag
Ómar Garðaisson, DV, Vestmaimaeyjum;
Samkvæmt upplýsingum frétta-
manns þá mun loðnuafli hér í
Vestmannaeyjum vera kominn í um
55 þúsund tonn og skiptist hann
nokkuð jafnt milli loönubræðslanna
hér, Fiskimjölsverksmiðju Einars
Sigurðssonar, FES, og Fiskimjöls-
verksmiðju Vestmannaeyja, FIVE.
Þó mun FIVE hafa vinninginn en þar
voru komin 30 þúsund tonn á mið-
vikudaginn.
Það er reiknað með því að loðnu-
frysting fari hér í gang á mánudag-
inn. Samningar við Japani hafa
gengið treglega þannig að talsverð
óvissa ríkir um þá eins og er.
Nýja postulakirkjan
á Islandi auglýsir guös-
þjónustu á morgun,
sunnudag, kl. 11.00.
Þú er hjartanlega vel-
kominn.
Nýja postulakirkjan
Háaleitisbraut 58-60
(2. hæð) Miðbær
Unnið við laxinn i húsnæði ísfélagsins. DV-mynd Ómar
Laxarækt í Vestmannaeyjum:
Hefurfariðfram úr
björtustu vonum
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum;
Laxaslátrun hófst fyrir skömmu í
Vestmannaeyjum en laxinn er tek-
inn úr eldisbúrum fiskeldisstöðvar-
innar ísnó h/f. Þau eru í Klettsvík
en þar-hófst laxarækt fyrir rúmlega
ári. Fiskurinn hefur dafnað vel í búr-
unum og vaxtarhraöinn farið fram
úr björtustu vonum manna.
Við laxaslátrunina er unnið tvo
daga í viku hverri og hefur allt geng-
ið mjög vel. Hiti hér í vetur og þó
sérstaklega í fyrravetur var nægur í
sjónum til þess aö viðhalda góðum
vaxtarhraða og fór raunar fram úr
björtustu vonum. Við laxinn hafa
orðið vinnu 6-8 manns hér í Vest-
mannaeyjum og þykir góð búbót.
Búið er aö koma upp aðstöðu í
húsnæði ísfélagsins, sem er hluthafi
í ísnó, og þar er laxinn gerður klár
á markaði erlendis, fluttur ferskur '
þangað.
Láttu drauminn um luxusferdina rætast
Hefurþig aldrei langað til að reyna eitthvað nýtt, kynnast öðrum heimsálfum og öðruvísi fólki?
Um páskana liggurleiðin til Thailands, í sautján daga ógleymanlega lúxusferð.
Lúxushótel
-allan tímann!
FlogiðverðurtilKaupmannahafnar,
stigið upp í þægilega breiðþotu SAS og
ekki lent fyrr en í Bangkok. Þar verður
gistí fjórarnæturá The Ambassador
Bangkok, lúxushóteli í hjarta
borgarinnar. Boðið verðurupp á
skoðunarferðir til markverðustu hluta
Bangkokborgarog nágrennis, t.d. á
fljótandi markað, krókódílabúgarð og í
konungshöllina.
Við fljúgum í skoðunarferð
tilChiangMai
1. apríl fljúgum við til hinnar fornu
höfuðborgar Thailands, Chiang Mai,
við rætur Himalayafjalla. Þar er dvalið í
þrjá daga og gist á glæsihótelinu Dusit
Inn, um leið og færi gefst á að kynnast
landi og þjóð I gerólíkri rnynd.
Síðan liggur leiðin til Pattaya
strandarinnar - perlu austursins - þar
sem dvalið verður í 8 nætur á hinu
glæsilega Royal Cliff lúxushóteli. Enn er
boðið upp á skoðunarferðir, enda afnógu
að taka. Auðvitað geturðu tekiðþað
rólega á gullinni ströndinni og notið
fflisas
hitastigið 23-30 gráður og hægir
Monsúnvindar úr norð-austri.
Verðlag ermeð ólíkindum lágt og
Thailendingar viðræðugóðir kaupmenn,
þannig að hægt erað gera reyfarakaup á
handverki í skartgripa-, list- og
fataiðnaði. Þú getur meira að segja
prúttað um leigubílinn!
Nú er tækifærið til að láta drauminn
rætast: Að heimsækja Asíu. íþessari
lúxusferð hjálpar allt til við að gera þér
hana ógleymanlega -þú lofarþér
örugglega að fara einhverntímann
afturi
aðeinskr. 79.800r
Miðað við gistingu í 2ja manna herbergi
og staðgreiðslu. Innifalið í verði erflug,
íslensk fararstjórn og allur akstur í
Thailandi.
Aukagjaldfyrireinbýli, kr. 12.900.-
veðursins eða nýtt hin endalausu
tækifæri til vatnasports, verslunarog
skemmtunar sem þérbjóðast í Pattaya.
Reglan er: Þú hefurþað alveg eins og þú vilt.
Veður- og verðlag: Frábært!
Brottför:27. mars.
Heimkoma: 12. apríl.
Fararstjóri: Svavar Lárusson.
Hægt er að framlengja dvöl í
Kaupmannahöfn, Bangkok
ogPattaya.
Veður er ákjósaniegt á þessum tíma,
Samvinnuferdir - Landsýn
Austurstræti 12 ■ Sími 91-69-10-10
Hótel Sögu viö Hagatorg ■ 91 -62-22-77. Akureyri: Skipagötu 14 • 96-2-72 00.
I