Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988. Fréttir Eysteinn Helgason: Guðjón reyndi að draga úr árangri fyrirtækisins - yfirlýsingar starfsfólks lceland Seafood eru þvingaðar „Guöjón B. Ólafsson, stjórnarfor- maöur Iceland Seafood Corporati- on, hefur reynt aö draga úr árangri fyrirtækisins undir minni stjórn,“ sagði Eysteinn Helgason, fyrrver- andi forstjóri Iceland Seafood, í samtali viö DV í gær. Eysteinn var spuröur um þau atriði sem fram hafa komiö í DV aö undanförnu um að andrúmsloft í fyrirtækinu hafi veriö oröið óbærilegt, viöskiptas- ambönd í hættu og aö hinn góöi árangur á síðasta ári sé ekki jafnglæsilegur þegar aö er gáö, þar sem birgðir fyrirtækisins hafi verið of hátt metnar. „Auövitaö verða starfsmenn óró- legir þegar þeir sjá að tveir af þeirra samstarfsmönnum, og reyndar tveir yfirmenn fyrirtækis- ins, eru reknir án skýringa,“ sagði Eysteinn. „Það er auövelt fyrir fólk að sjá aö yfirlýsingar sem þannig eru gefnar eru ekki óþvingaðar. Ég vísa því á bug aö þetta sé ekki besta ár í sögu fyrirtækisins. Það er alveg sama hvernig á málið er litiö, þetta verður metár hvað varð- ar hagnað og einnig söluhæsta áriö í dollurum taliö. Hvað varðar birgðastöðu þá er það alltaf mat á hverjum tíma hversu miklar birgðir eigi að vera. Verölækkun á hráefni frá verk- smiðjunni hefur ekki komiö fram fyrr en á allra síðustu vikum. Um síðustu áramót hafði fiskblokkin ekki lækkað. Þorskblokk er enn skráð í Bandaríkjunum á tvo doll- ara, eins og verið hefur um nokkurra mánaða skeið. Það er sárt að þurfa að standa í deilum um svo sjálfsagðan og vel mælan- legan hlut sem afkomu fyrirtækis- ins. í DV var því slegið upp að Long John Silver heföi í hyggju að hverfa frá viðskiptum við Iceland Seafood. Síðasta starfsdag minn sótti ég fund hjá Long John Silver. Þar var rætt um seina afgreiðslu og hvern- ig framtíðarafgreiðslu yrði varið. Það er fásinna af mönnum eins og Guðjóni B. Ólafssyni og framleið- endum að tengja störf mín og það að viðskiptavinir ætli að hverfa frá viðskiptum. Ég hef margsinnis var- aö við því að með minnkandi framleiðslu fyrir Bandaríkjamark- að settum við mörg af okkar verömætustu viöskiptasambönd- um í hættu. Eins og margoft hefur komið fram á undanfömum dögum var brottrekstur okkar Geirs Magnús- sonar frá fyrirtækinu án skýring- ar. Það má segja að megnið af þeim skýringum sem hafa verið gefnar eftir á séu óáþreifanlegar. Þær sem þó eru áþreifanlegar eru beinlínis rangar. Um yfirlýsingu Guðjóns B. Ólafs- sonar í DV fyrr í vikunni, þar sem hann segir að ég hafi haft nóg tæki- færi til að koma fram mínum sjónarmiðum á stjómarfundum, þá er það rangt. í fyrsta lagi vegna þess að ég var ekki staddur á nein- um þessara funda og í öðru lagi voru mín mál tekin af dagskrá á tveimur fundum vegna umræðna um launamál Guöjóns B. Ólafsson- ar. Það er líka rangt að ég hafi hitt stjórnina án nærveru hans undir áramót til að ræða þessi mál. Ég hitti stjórnina án Guðjóns 24. sept- ember síðastliðinn og gat þá komið á framfæri skýrslu um ástandið í okkar samskiptum og gert mönn- um grein fyrir þeirri hótun sem komin var fram um brottrekstur ef ég léti ekki að skipunum hans um að reka Geir Magnússon. -gse/GK Guðjón B. Ólafsson: Ágreiningurinn tilkominn vegna minnis- leysis Eriends Ólafur Amaisan, DV, Hamsburg; Guöjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins, sagði, aðspurður, í samtali við DV að þekking Gísla Jónatanssonar á Iceland Seafood Corporation væri algerlega ein- hliða og aö sú þekking væri einungis til komin i gegnum Ey- stein Helgason. Sagði Guðjón að Gísli heföi hvorki haft aðstöðu né gert tilraun til kynna sér málin eins og þau eru í raun og veru. Varðandi launamál sín, sem for- stjóra Iceland Seafood, sagðist Guðjón ítreka það að enginn vafi væri á þvi hvaö heföi verið samið um milli hans og Erlends Einars- sonar. Það virtist hins vegar hafa komið upp deila um túlkunaratriði á þeim samningum. „Þar fullyrði ég að hlutimir voru gerðir eins og rætt var um milli okkar Erlends á sínum tíma, og endurskoðendur hafa staðfest það,“ sagöi Guöjón. Hann sagði að þessi ágreiningur virtist vera kominn upp vegna ein- hvers minnisleysis Erlends Einars- sonar og við það sæti nú. Kevin Gleason hjá Aviation Sales, til vinstri, og Kristinn Sigtryggsson framkvæmdastjóri skrifa undir leigusamning inn í gær. Amarflug fær nýja Boeingþotu Arnarflug tók í gær Boeingþotu, 120 sæta, af gerðinni 737-200 á leigu í sex mánuði af fyrirtækinu Aviation Sales í Flórída í Bandaríkjunum. í leigusamningnum er ákvæði um framlengingu til allt að þriggja ára og um kaupréttindi Arnarflugs. Þot- an veröur aíhent í byrjun apríl í litum Arnarflugs, hvítur skrokkur með grænum merkjum. „Vélin kemur sér ákaflega vel. Þetta er vél með breiðþotuinnrétting- um þannig að við höldum áfram stefnu okkar um gott rými á milli sætanna,“ sagði Kristinn Sigtryggs- son, framkvæmdastjóri Arnarflugs, í gær. Arnarflug byrjar daglegt flug til Amsterdam 1. apríl. Frá sama tíma verður flogið þrisvar í viku til Ham- borgar og tvisvar til Zurich í Sviss. í sumar flýgur félagið svo til fjórða staöarins, Mílanó á Ítalíu. -JGH Skákmótið á Spáni: Jóhann gerði jafntefli Jóhann Hjartarson stýrði svörtu mönnunum í viðureign sinni við Búlgarann Kiril Georgeiev í 8. um- ferð á skákmótsins í Linares á Spáni í gærkvöldi og lauk skákinni með jafntefli. Jóhann er þá kominn með 3,5 vinninga. Hann mætir Ljubojevic í 9. umferðinni sem tefld verður í kvöld. Önnur úrslit í gærkvöldi urðu þau að Timman og Yusupov gerðu jafn- tefli en skákir Ljubojevic og Chandl- er, Portis og Mayu Chiburdanidze, Nunn og Beljavsky og Nicolic og II- lescas fóru allar í bið. Staðan í mótinu að loknum 8 um- ferðum er þessi: 1. Timman 7,0 2. Yusupov 5,0 og biðskák 3. Beljavsky 4,5 og tvær bið- skákir 4. Ljubojevic 4,5 og biðskák 5. Nunn 4,0 og biðskák 6. Chandler 4,0 7. Illescas 3,5 og biðskák 8. -10. Jóhann Hjartarson 3,5 8.-10. Portisch 3,5 8.-10. Georgiev 3,5 11.-12. Nicolic 1,5 og biðskák 11.-12. hiburdanidze 1,5 og biðskák -S.dór Jóhann mun ræða víð Karpov á Spáni - um hvar og hvenær einvígi þeirra fer fram Anatoly Karpov kemur í heimsókn til Linares á Spáni 7. mars næstkom- andi og munu þeir Jóhann Hjartar- son þá ræða saman um hvar og hvenær einvígi þeirra í átta manna kandidataeinvígj unum fer fram. Jóhann sagði í samtali við DV eftir einvígið við Kortsnoj á dögunum að hann vildi helst ekki tefia einvígið við Karpov fyrr en í lok þessa árs en því á að vera lokið fyrir næstu ára- mót. Karpov mun vera sama sinnis en þeir eiga báðir að tefla á hinum sterku stórmeistaramótum sem Stór- meistarasambandið gengst fyrir. Nú hafa bæði Belgíumenn og Júgó- slavar sýnt áhuga aö að fá einvígi þeirra Karpovs og Jóhanns og er tal- ið víst að ef þeir eiga að velja á milli þessara tveggja staða verði Belgía fyrir valinu. -S.dór Staða efstu manna Reykjavíkurskákmótið: Sigurganga Jóns L. heldur áfram - hugsanlegt að Jón verði með 2ja vinninga forskot eftir biðskákirnar í dag Staða efstu manna eftir 8 um- ferðir á Reykjavíkurskákmótinu er þessi: 1. Jón L. Ámason 7,5 2. -4. með 5,5 vinninga Margeir Pétursson Adoijan Walter Browne 5.-16. með 5,0 vinninga Gurevich og biðskák Dolmatov og biðskák Lotronias og biðskák Þröstur Þórhallsson og biöskák Christiansen Dizdar Zsuzsa Polgar Gausel Kari Þorsteins He..mes Hlífar Stefánsson Halldór G. Einarsson o ja_ Þaö er ekkert lát á frábærri tafl- mennsku Jóns L. Árnason og hann virðist hreint óstöðvandi. í 8. um- ferðinni í gærkvöldi var það Carsten Höi sem varð að lúta í lægra haldi fyrir Jóni, sem hrein- lega „rúllaði honum upp,“ svo notað sé skákmannamál. „Það sem er ánægjulegast viö aö horfa á Jón tefla núna er hve lítið hann hefur fyrir sigrunum og hve fallega hann teflir,“ sagöi Guð- mundur Arason, fyrrverandi forseti Skáksambands íslands, í samtali við DV í gærkvöldi. Ög það voru margir fleiri sem höfðu orö á því hve lítið Jón hefur haft fyrir sigrum sínum til þessa. Tvær þýöingarmiklar skákir fóru í bið í gærkvöldi og verða tefldar áfram í dag. Þetta var skák sovésku stórmeistaranna Gurevich og Dol- matov og er hún talin jafnteflisleg og skák Kotronias og Þrastar Þór- hallssonar. Sú skák er líka sögð jafnteflisleg. Fari svo að jafntefli veröi í þessum skákum, er Jón L. Árnason kominn með tveggja vinn- inga forskot þegar aðeins 3 um- ferðir eru eftir. íslensku stórmeistararnir Mar- geir Pétursson og Helgi Ólafsson mættust í gærkvöldi og sigraði Margeir eftir að Helgi lék af sér manni. Það sama kom fyrir hann gegn Jóni L. á dögunum og er engu líkara en Helgi sé sleginn skák- blindu um þessar mundir. Að vísu var hann í tímahraki í gærkvöldi og er þaö í fyrsta sinn sem það hendir hann í þessu móti. Karl Þorsteins og Hannes Hlífar Stefánsson unnu sínar skákir í gærkvöldi og eru báðir komnir með 5 vinninga og eru í hópi efstu manna. í dag verður 9. umferð tefld og mætir Jón L. þá annaðhvort Dol- matov eða Kotroniasi en það fer nokkuð eftir því hvernig biðskák- irnar fara. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.