Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1988, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 4. MARS 1988. 17 Lesendur Bréfritari talar um „niðurbindingarsigur" varðandi hin nýju umferðarlög. Beltanotkun í bifreiðum: Frestið sektunum Ökumaður skrifar: Að kvöldi mánudagsins 15. febrúar sl. var athyglisverður þáttur í ríkis- útvarpinu. Þar létu þeir ljós sitt skína, Óli H. og Ólafur, aðstoðaryfir- lögregluþjónn á Akureyri. Þátturinn hefur án efa átt að vera um umferð- armál en snerist upp í það að vera nær eingöngu um peninga og þá hvemig hægt væri að ná peningum af bílstjórum. Þetta átti að gera með sektum og aftur sektum. Það var eftirtektarvert að Óli H. viðurkenndi loksins (betra seint en aldrei) að hætta gæti stafað af notkun bílbelta. Samt bar þeim Ólunum saman um það, eins og raunar allt annað, að þeir myndu ekki losa sig úr beltunum þótt þeir þyrftu að aka fyrir Ólafsfjarðarmúlann. - En það er margur Múlinn. Annað sem athygli vakti var að þeir era hættir að tala um „öryggis“- belti og einnig hættir að tala um að notkun þeirra sé ódýr líftrygging. Sannarlega tími til kominn! Þá kom það fram að búið væri að skipa sjö manna nefnd og ætti hún að skila einhvern tíma einhverju áliti um umferðarmál (verður sennilega búin að því er þetta birtist). Nú hefur heyrst að í Umferðarráði séu sautján menn, og gæti það nú kallast nokk- um veginn nægilegt, fyrir utan aðra yflrmenn umferðarmála, svo sem bæjarstjóra, sýslumenn, yfirlög- regluþjóna og umferðamefndir í héraðunum. Það má lengi skipa ráðamenn og nefndir og nógir era peningar til að greiða þeim launin. Þessir umferðarfrömuðir virðast vera búnir að gleyma því að árið 1968, þegar breytt var úr vinstri umferð í hægri, var mikil áhersla lögð á fræðslu og menningarlega umferð hjá ökumönnum og alls ekki síður hjá gangandi fólki og öðrum vegfa- rendum. Þetta bar þann árangur að umferðarslys urðu svo til engin. Til- kynnt var að sektum yrði ekki beitt fyrir smávægilegar yfirsjónir. Það að svona vel tókst til er þó ekki hægt að þakka notkun bílbeltanna því að þau voru þá yfirleitt ekki í notkun. Úr því að málin snúast alltaf um peninga væri æskilegt að upplýsa hver þóknunin til þeirra Ólanna fyr- ir að koma fram í nefndum þætti var. Að endingu er svo ástæða til að óska Óla H. til hamingju með þennan „niðurbindingarsigur" og nú getur hann farið að beita sér af fullum krafti fyrir því að binda fólkið í aftur- sætunum og í rútubílum og víðar. Mannlegt og hyggilegt væri af hinu háa Alþingi, með háttvirtan dóms- málaráðherra í broddi fylkingar, að fresta að beita sektum þótt menn bindi sig ekki við bihnn. 4.MARS KL.1300-1900 ^ E TIYHNINC ■ÉBKUM DAGANA Veislueldhúsið Álfheimum 74 MÖTUNEYTI OG FYRIRTÆKI Sendum heitan mat út í hádeginu til fyrirtækja og stofnana. Sími 686220 og 685660 SVFR OPIÐ HÚS föstudaginn 4. mars í félagsheimili SVFR. Húsið opnað kl. 20.30. Dagskrá: Þröstur Elliðason með litskyggnur frá Nes- svæði í Laxá í Aðaldal. Afhending „Footlose"- verðlaunanna. Nýjar íslenskar veiðimyndir á skjánum. Glæsilegt happdrætti. Skemmtinefnd SVFR AKUREYRI: KEA, LÓNSBAKKI ÍSAFJÖRÐUR: GE. SÆMUNDSSON KEFLAVÍK: JÁRN OG SKIP SELFOSS: KAUPFÉLAG ÁRNESINGA . Armstrong. GÓLFDÚKUR SEM EKKI ÞARF AÐ LÍMA Br. 2 m, 3 m, og 4 m TEPPABUDIN Suðurlandsbraut 26-sírni 84850 i..EL.j Qg£j|

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.