Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1988, Side 12
36
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1988.
FÓTAAÐGERÐARSTOFA
fþróttir
DV
KRISTINAR
er flutt úr Hjallabrekku 2 að snyrtstofunni Hrund,
Grænatúni 1 Kóp. Opið frá kl. 13-18 virka daga.
SNYRTISTOFAN HRUND
Öll almenn snyrting. Vorum að byrja með líkams-
nudd og sogæðanudd. Erum með 20% afslátt af
ilmvötnum, rakspírum o.fl.
FÚTAAÐGERÐARSTOFA SNVRTISTOFAN
KRISTlNAR HRUND
SiMI 43434 SiMI 44025
Belgíska knattspyman:
Fimmti sigurinn hjá
Anderiecht í róð
Utboð
Vesturlandsvegur í Norðurárdal 1988
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofan-
greint verk. Lengd vegarkafla 3,6 km, fyllingar
75.000 m3, skeringar 17.500 m3.
Verki skal lokið 1. október 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
í Reykjavík (aðalgjaldkera) og í Borgarnesi frá
og með 11. april 1988.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 2. maí 1988.
V
Vegamálastjóri
/
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
REYKJAVÍKURBORGAR
DROPLAUGARSTAÐIR
heimili aldraðra, Snorrabraut 56
Starfsfólk óskast til sumarafleysinga:
Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar á
hjúkrunardeild heimilisins.
Starfsfólk á vistdeild og í eldhús, ræst-
ingu, þvottahús o. fl.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma
25811 milli kl. 9 og 12 f.h. virka daga.
REYKJKJÍKURBORG
JlcUCMVl Stö^CCl
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
óskar eftir að ráða
SJÚKRALIÐA í HEIMAHJÚKRUN
Dagvaktir og næturvaktir. Fullt starf og hlutastörf
eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri Heilsuverndar-
stöðvarinnar og hjúkrunarframkvæmdastjóri Heima-
hjúkrunar í síma 22400.
Umsóknum skal skila til Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, fyrir kl. 16.00 mánu-
daginn 18. apríl 1988.
Matarfræðingar
óskast
Eldhús Vífilsstaðaspítala.
Matarfræðingar óskast til sumarafleysinga frá 15.
maí til 15. september. Möguleiki á lengri ráðningu
ef um semst. Fullt starf. Vinnutími 07.30-15.30.
Unnið þriðju hverja helgi.
Umsækjendur þurfa að hafa matarfræðingspróf eða
sambærilega menntun.
Nánari upplýsingar gefa Þuríður Hermannsdóttir eða
Friðgerður Guðnadóttir, sími 42800.
Reykjavík, 11. apríl 1988.
RÍKISSPÍTAIAR
STARFSMANNAHALD
Holland:
PSVorðið
meistari
Van Basten fljótur í gang
ítalska knattspyman:
• Diego Maradona skoraði sigurmark Napoli i gær og er markahæstur i
ítölsku 1. deildinni með 13 mörk. Félagi hans, Careca, kemur næstur með 11.
Símamynd/Reuter
PSV Eindhoven tryggði sér hol-
lenska meistaratitilinn í knattspyrnu
á laugardaginn með því að sigra AZ
’67 Aalkmar, 1-0. Markaskorarinn
Wim Kieft geröi sigurmarkið með
skalla fimm mínútum fyrir leikslok.
PSV á enn eftir að leika fjóra leiki
og keppinautarnir, Ajax, fimm en
samt er titillinn í höfn. PSV hefur
haft mikla yfirburði í vetur eins og
sést á töflunni fyrir neðan og eru
fyrir nokkru komnir yfir 100 marka
múrinn.
Ajax vann Willem II, 3-1, með
mörkum frá Witschge, Verlaat og
Winter. Ajax og PSV eiga bæði gullna
möguleika á aö leika til úrslita í Evr-
ópumótunum í knattspymu eftir
frækna frammistöðu í undanúrslit-
unum í síðustu viku.
Staða efstu liða í Hollandi:
PSV............30 25 4 1 106-23 54
Ajax...........29 20 4 5 68-33 44
Twente.........30 13 9 8 55-36 35
Feyenoord.....27 13 7 7 5840 33
Venlo..........30 12 9 9 37-31 33
-VS
- Winterslag nýtti ekki færin gegn Kortrijk
Kristján Bemburg, DV, Belgíu:
Fimmti sigur Anderlecht í röð varð
að veruleika á laugardagskvöldið án
þess þó að hðið þyrfti að sýna góðan
leik á heimavelli sínum gegn Cerle
Brugge.
Leikmenn Anderlecht sóttu stíft en
sköpuðu sér ekki verulega hættuleg
færi lengi vel gegn Cerle Brugge.
Cerle svaraði oft með beittum
skyndisóknum. Fyrsta færið kom á
17. mínútu og það var Arnór Guðjo-
hnsen sem átti hörkuskot en
markvörður Cerle, Dewriendt, varði
með því að slá boltann út - þaöan fór
hann til Nilis sem skaut, en aftur
varði Dewriendt vel. Þaðan fór bolt-
inn til Andersen sem gaf á Keshi,
hann gaf á Eddy Kmcevic sem skor-
aði, 1-0. Góður endapunktur á hraðri
og skemmtilegri lotu.
Stuttu seinna átti Nihs skot í stöng
eftir sendingu frá Kmcevic, en stað-
an í hálfleik var 1-0.
Strax í byijun seinni hálfleiks gaf
Andersen á Arnór sem var í góðu
færi en hitti boltann illa og fór skotið
framhjá. Síðan kom annað markið,
Amór gaf á Nilis sem bmnaði upp
kantinn og gaf fyrir, þar sem Amór
var kominn ásamt Kmcevic, báðir
stukku upp og hafði Krncevic aðeins
betur og skallaði boltann glæsilega í
vinkilinn fjær, 2-0. Arnór fékk síðan
á 82. mínútu boltann frá Janssen fyr-
irliða, á auðum sjó í miðjum teig og
var á fullri ferð og þrumaði hörku-
skoti - en boltinn fór í utanvert
hliðamet marksins, við markvinkil-
inn. Með smáheppni hafði hann því
getað skorað tvö mörk í leiknum.
Áberandi var að leikur Anderlecht
gekk mjög vel þar til kom að víta-
teignum. Leikmenn vom þá ragir að
skjóta og mörg skotanna geiguðu illa.
Góð upphitun eftir sem áður fyrir
bikarleikinn gegn Mechelen á mið-
vikudaginn. Það er heimaleikur, sá
fyrri milli liðanna í undanúrslitun-
um.
• Winterslag fékk færi á færibandi
gegn Kortrijk. Fyrirliðinn Denier það
besta þegar hann lét verja frá sér
vítaspymu. Guðmundur Torfason
lék allan leikinn með Winterslag og
tókst ekki að nýta sér tvö mjög góð
færi - markvörður Kortrijk, Deman,
hefur sennilega spilað þarna sinn
besta leik á tímabilinu. Var hann sem
berserkur í markinu og varði allt
hvað af tók.
„Spila ekki í 2. deild“
„Eg er ánægður með að hafa getað
leikið allan leikinn, þrátt fyrir að
ökklinn sé enn stokkbólginn. Við átt-
um að vinna, en fómm illa með góð
tækifæri. Ef við follum verð ég ekki
áfram hjá félaginu, þar eð ég hef lít-
inn áhuga á að spila hér í 2. deild,“
sagði Guðmundur við DV eftir leik-
inn.
Belgíska
knattspyman
Anderlecht-Cerle Brugge.2-0
Winterslag-Kortrijk.....0-0
Beerschot-Mechelen.....0-1
Waregem-Racing Jet......0-0
Gent-Antwerpen.........1-1
Beveren-Standard Liege..1-0
Club Brugge-St. Truiden.2-1
Liege-Lokeren...........3-0
Club Bmgge. 28 19 4 5 64-31 42
Antwerpen...28 17 8 3 51-24 42
Mechelen..28 19 3 6 42-22 41
Liege.....28 12 13 3 44-22 37
Anderlecht...28 14 8 6 52-23 36
Gent.........28 8 5 15 30-48 21
Lokeren......28 7 7 14 30-39 21
Winterslag....28 7 5 16 27-66 19
RacingJet....28 6 5 17 19-50 17
- Maradona skoraði sigurmark Napoli úr aukaspymu
Marco Van Basten, hollenski
markakóngurinn, var ekki lengi að
finna leiðina í netmöskvana á ný eft-
ir fimm mánaða fjarveru vegna
ökklabrots. Hann kom inn á sem
varamaður hjá AC Milano gegn Em-
poli í gær og skoraði sigurmarkið,
1-0, með glæsilegu skoti utan vita-
teigs í bláhornið á marki gestanna.
Diego Maradona sá samt til þess
að Napoli héldi fjögurra stiga for-
skoti sínu í deildinni. Hann tryggði
meisturunum 1-0 sigur á Inter
Milano þegar hann skoraði á snilld-
arlegan hátt úr aukaspymu á 21.
mínútu.
Úrslit á Ítalíu í gær:
Ascoli - Juventus.............1-1
Como - Avellino...............0-0
Fiorentina - Pisa.............0-0
AC Milano - Empoli............1-0
Napoli - Inter Milano.........1-0
Roma - Sampdoria.............0-2
Torino - Pescara.............2-0
Verona - Cesena..............0-1
Staöa efstu liða:
Napoli........25 18 5 2 48-15 41
ACMilano......25 14 9 2 35-11 37
Roma..........25 13 7 5 36-21 33
Sampdoria.....25 12 8 5 35-23 32
Torino........25 7 13 5 29-25 27
-VS