Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 13.04.1988, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1988. 3 e»v Viötalið Fréttir Áhugamálin kvenlegar dyggðir Nafn: Svanhildur Kaaber Aldur: 43 Staða: förmaður KÍ „Ég er svo lánsöm aö starfiö er mitt aðaláhugamál. Skólamál og málefni kennara eru mjög ofar- lega á baugi hjá mér,“ segir Svanhildur Kaaber, formaöur Kennarasambands íslands. Svan- hildur hefur staðið í ströngu undanfarið í kjarabaráttu kenn- ara en hún tók við formannsstöð- unni íyrir tæpu ári síðan, eða í byrjun júní 1987. Eggiö kennir hænunni „Onnur áhugaraál mín eru saumaskapur og prjónar. Hvort tveggja mjög kvenlegar dyggðir. Ég sauma og prjóna heilmikið á sjálfa mig en dætur mínar tvær eru orðnar svo sjálfstæðar að þær gera þetta sjálfar fyrir sig. Reynd- ar er það frekar orðið þannig á mínu heimili að eggið kenni hæn- unni í þessu sambandi. Aimars reyni ég að vera eins mikið heima og ég get, þótt starfið taki vissu- lega mikinn tíma. T.d. les ég mikiö og finnst mér ósköp gott aö setjast niður með skemmtileg- an reyfara. Bn þar fyrir utan les ég auðvitáð mjög mikið af faglitt- eratur.“ Alltaf átt betur við mig að vera útivinnandi Svanhildur er fædd 1944 í Reykjavik. Hún á tvær dætur og segir hún þær allar þrjár vera periuvinkonur. Svanhildur býr meö Katrínu Ástu, 16 ára dóttur sinni. En eldri dóttir hennar, Kristín Brypja sem er 22ja ára flugfreyja, er flutt að heiman. Sú yngri er fædd í Luxemburg, en þar bjó Svanhildur meö fyrrver- andi eiginmanni sínum og dætrum í þrjú ár. „Það var mjög erfitt í upphafi að vera í Luxemb- ur g, en mér líkaöi vel þegar á leið, enda kynntist ég mörgu góöu fólki. Þaö er auðvitað mjög ólfkt að búa á íslandi eða í afturhalds- sömu, ka.þólsku landi í Miö- Evrópu. Árin í Luxemburg eru t.d. einu árin sem ég hef ekki veriö útivinnandi, en aöstæður á þeim tíma buðu ekki upp á ann- að. Hins vegar hefur það alltaf átt betur við mig að vera útivinn- andi. Á sínum tíma hefði ég alveg viljað dvelja lengur í Lúxemborg en ég hefði aldrei vifjað bijóta allar brýr að baki mér hér heima og setjast aö fyrir fullt og allt i Lúxemborg.“ Yfir hálfan hnöttinn Svanhildur hefúr þegar skipu- lagt sumarfríið og ætlar hún aö ferðast yfir hálfan hnöttinn. „í sumarfríinu ætla ég í langt og gott ferðalag yfir hálfan hnöttinn. Áfangastaðurinn er Ástralía, en þangað hef ég aldrei komið áður þótt landið hafi alltaf vakið áhuga mínn. Ég ferðast alltaf þó nokkuð og þá sérstaklega innanlands í sambandi við starfið. Einstöku sinnum þarf ég líka aö fara utan vegna vinnunnar og er það þá yfirleitt í tengslum við samvinnu Kennarasambands íslands viö kennarasamtök á Noröurlönd- um.“ -JBj Nýja skýrsluformið hefur komið vel út Nokkur ánægja er meðal bifreiða- tryggingafélaganna með þá reynslu sem komin er af notkun þeirra skýrsluforma sem tekin voru i notk- un samhliða gildistöku nýrra umferðarlaga 1. mars. Siguijón Pét- ursson, formaður samstarfsnefndar félaeanna segir að bað taki leneri tíma nú en áður að fara yfir skýrslur vegna umferðaróhappa. Áður voru lögregluskýrslurnar vélritaðar en nú koma allar skýrslur handskrifaðar. Eitthvað er um skýrslur sem eru illa frágengnar og því erfiöar yfirlestrar. Lögreglan í Reykjavík segist álíta að hún verði að hafa afskipti af mikl- um meirihluta þeirra umferðaró- happa sem verða. Þrátt fyrir að ætlast sé til að fólk geti annast skýrslugerðina án afskipta lögreglu þá hafði hún afskipti af 12 árestrum að meðaltah á dag í marsmánuði. Siguijón Pétursson sagði að svo virtist sem tjón væri svipaö og áður, en meira er um alvarleg tjón sem heyra undir kaskótryggingar. Bifreiðatryggingafélögin eru á- nægð með hversu vel viðskiptavinir stóðu í skilum með greiöslur iðgjalda þrátt fyrir þá miklu hækkun sem varð á þeim. -sme SKRIFSTOFUVÉLAR H.F. Hverfisgötu 33, sími: 62-37-37 Það er ekki oft sem að ljósritunarvélar lækka um tugi þúsunda en það heftir gerst hjá okkur. Þar að auki lækka aukahlutir allt að 40% og skápar lækka að meðaltali um 20%. Og til þess að kóróna allt þá veitum við 5% staðgreiðsluafslátt. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.