Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1988, Qupperneq 3
LAUGARÐAGUR 2. JÚLÍ 1988. 3 Fréttir Lrftryggingin brann í verðbólgunni Tiu kronur i stað 200.000 „Þaö sem gerðist í þessum trygg- ingum, eins og í bankakerfinu, var að þetta brann allt upp í veröbólg- unni. Allar þessar gömlu tryggingar voru óverðtryggðar," sagði Bragi Lárusson, deildarstjóri Líftrygginga- félagsins Andvöku. Árið 1931 keypti maður nokkur líf- tryggingu fyrir barn sitt að upphæð 1000 gamlar krónur. Ársiögjaldið var 17,8 krónur en á þeim tíma var verkamannakaupið 1,36 krónur á tímann. Iðgjaldið var greitt í 20 ár en þegar leysa átti það út fyrir skömmu var líftryggingin komin í 10 krónur en það er 2 krónum minna en frímerkið kostar. Tryggingafélag- ið greiddi þó bónus, 800 krónur, þannig að alls fékk konan sem um ræðir 810 krónur út úr tryggingun- um. Ætla má að þessar 10 krónur sem tryggingin var komin í myndi nema um 200.000 krónum í dag. Bragi sagði að líklega hefði samn- ingur konunnar verið gerður við norskt fyrirtæki sem á þeim tíma hafði útibú á íslandi. Árið 1949 tóku svo íslensk tryggingafélög yfir þessar Meðmælandi Hannesar: Afskípti mín eru á faglegum grundvelli tryggingar. Tryggingasamningar eru almennt bundnir ákveðnu lausnar- skilyrði. Þannig verða ekki peningar greiddir nema því skilyrði sé full- nægt. Yflrleitt er annaðhvort miðað við andlát eða aldur þess tryggða. „Fólk átti þess kost að fá svokölluð- um endurkaupum upp úr árinu 1963. Þá voru tryggingafélögin búin að sjá þessa þróun og að kostnaöur við að senda út bréf með rukkun fyrir ið- gjaldið var orðið dýrara en greiðslan. í kringum 1965 komu svo verðtryggð- ar líftryggingar. Nú eru trygginga- samningar bundnir framfærsluvísi- tölu og hækka því í samræmi viö hana á þriggja mánaða fresti,“ sagði Bragi. -JFJ LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN HF Laugavegi 178 - Reykjavík • Sími 685811 „Það er ár síðan það var farið fram á við mig af fyrrverandi mennta- málaráðherra að ég skilaöi greinar- gerð um þau verk sem Hannes lagði fram. Ástæðan fyrir því að til mín var leitað er sú að ég er líklega eini íslendingurinn að Hannesi undan- skildum sem hefur doktorspróf í stjórnspeki. Sú umsögn sem kemur fram í minni greinargerð stendur enn þann dag í dag,“ sagði dr. Gunn- ar Pálsson stjórnmálafræðingur. Gunnar lauk prófl frá New York háskóla 1984 og kenndi í eitt ár við Háskólann í Buffalo. Síðan starfaði hann í 2 ár hjá utanríkisráðuneytinu en síðan lá leið hans til Alþjóðadeild- ar Atlantshafsbandalagsins í Brussel þar sem hann starfar nú. Samkvæmt fréttatilkynningu menntamálaráðu- neytisins segir að í greinargerð Gunnars kemur fram að hann telji Hannes H. Gissurarson tvímælalaust hæfan til að annast kennslu og rann- sóknir á háskólastigi og hann sé vel undirbúinn til að takast á við um- rætt lektorsembætti. Gunnar sagðist ekkert mat geta lagt á félagsvísindadeild Háskólans. Hann hefði ekki starfað þar og væri ekki kunnugur þeim mönnum sem þar störfuðu. „Ég kannast varla við Hannes Hólmstein Gissurarson. Mat mitt byggist á þeim gögnum sem ég fékk og afskipti mín eru atfariö á faglegum grundvelli,“ sagði dr. Gunnar Páls- son. -JFJ Miðbærinn í Reykjavík: Aðförstöðumæla- varðanna linni „Það hefur verið gengið harkalega fram við vörslu bílastæða í mið- borginni og veriö talað um aðför stöðumælavarða í því sambandi. Hefur hún verið til höfuðs þeim sem átt hafa erindi á bíl í miðbæinn. Þessi aðför hefur verið siðlaus gegn þess- um kjarna borgarinnar einum sér. Þarna er þörf á miklum úrbótum," sagði Guölaugur Bergmann, formað- ur Miðbæjarsamtakanna, við DV fyr- ir fund þeirra meö borgarstjóra, formanni skipulagsnefndar og borg- arverkfræðingi. Niðurstöður fundarins voru kynnt- ar á fundi samtakanna á Hótel Borg síðdegis í gær. Þar kom fram að já- kvæð viðbrögð heföu orðið við mörg- um kröfum Miðbæjarsamtakanna, þar á meðal þeirra, að gjald fyrir bíla- stæði myndi lækka um helming, eða í 50 krónur klukkutímann, að sektir lækkuðu í 300 krónur, að dráttarbílar héldu sig utan við miðbæjarkjarn- ann nema nauðsyn krefði, að mið- bæjarstrætisvagn hæfi ferðir eins og um jól, að gjaldfrjálsum bílastæðum íjölgaði. -hlh Skoðaðu skiptitilboð Daihatsu. Þú kemur með þann gamla og ekur burt á þeim nýja. Þú semur um mismuninn eins og þér hentar. BRIMBORG HF. ÁRMÚLA 23 - Sími 685870, 681733 P.S. Það hefur aldrei verið eins auðvelt að semja í bílaviðskiptum. EKéANDI Þarftu að endnmýja?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.