Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1989, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1989, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1989. 21 arlandsins. Með honum á myndinni eru Jón ísli Halldórsson. Kjarvalsstaöir: Skálar, vasar og ílát Kristín ísleifsdóttir opnar á morgun, laugardaginn 28. október, kl. 14 sýningu á verkum sínum í vesturforsal Kjarvalsstaða. Á sýn- ingunni verða um það bil áttatíu skálar, vasar og ílát sem unnin hafa verið í leir á síðastliðnum tveimur árum. Form verkanna eru í flestum tilfellum tilvísun til hluta sem ekki hafa verið notaðir í dag- legu lííl. Kristín er fædd í Reykjavík 1952. Hún útskrifaðist frá Listiðnaðar- og hönnunardeild Tokyo Designers Collage 1979. Hún hefur haidið einkasýningar í Reykjavík og Tokyo og tekið þátt í samsýningum á íslandi, Norðurlöndunum, Ítalíu og Japan. Sýningin er opin alla daga frá kl. 11-18 og stendur til 12. nóvember. Eitt verka Kristínar ísleifsdóttur á sýningu á Kjarvalsstöðum ikhúsið: imsins 1 sum- dsins Aðrir leikarar í Ljósi heimsins eru meðal annarra Arnheiður Ingimundardóttir, Bára Lyngdal Magnúsdóttir, Bryndís Petra Braga- dóttir, Erla Rut Harðardóttir, Eyvindur Er- lendsson, Guðmundur Ólafsson, Jakob Þór Einarsson, Margrét Ákadóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Margrét Ólafsdóttir og fleiri. Leikarar i Höll sumarlandsins eru auk Þórs Tulinius meðal annars Þorsteinn Gunn- arsson, Edda Heiðrún Backman, Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Pétur Einarsson, Sigrún Edda Bjömsdóttir, Jón Sigurbjörnsson, Hanna María Karlsdóttir, Guðrún Asmunds- dóttir og Gísli Halldórsson. Höll sumarlands- ins verður sýnd á sunnudag en frumsýning verður 26. október. -HK lasýning Sýningin er hður í 50 ára afmæli skólans og sýna þar verk sín 1. árs nemendur í mál- un og 2. árs nemendur í skúlptúr. Sýningin er úti við, í anddyri og á göngum spítalans og henni lýkur sunnudaginn 29. október. Jónína Magnúsdóttir við eitt verka sinna. Ninný sýnir í Gallerí list Jónína Magnúsdóttir, Ninný, opnar sýningu á verkum sínum í Gallerí List, Skipholti 50b, laugar- daginn 28. október kl. 15. Jónína er fædd 1955 í Reykjavík. Hún lauk prófi frá Myndlista- og handíðaskóla íslands 1978. Hún hefur einnig stundað nám við Myndlistarskóla Reykjavíkur og á ámnum 1983-1987 stundaði hún nám hjá dönsku listakonunni Elly Hoffmann. Þetta er önnur einkasýning Jón- ínu en hún hefur áður sýnt í Dan- mörku. Auk þess tók hún þátt í IBM-sýningunni Myndlistarmenn framtíðarinnar á Kjarvalsstöðum 1987. Myndirnar á sýningunni em unnar á flísar með postulínslitum, ohu á striga og krít á pappír. Sýn- ingin verður opin daglega frá kl. 10.30-18.00 laugardaga og sunnu- daga frá kl. 14-18. Henni lýkur 5. nóvember. Nýhöfn: Stórarblý- teikningar á pappír Valgerður Bergsdóttir opnar sýn- ingu á verkum sínum í Nýhöfn, Hafnarstræti 18, laugardaginn 28. október kl. 14. Valgerður er fædd í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófl frá Menntaskólanum í Reykjavík 1963, stundaði nám við Myndhsta- og handíðaskóla íslands 1966-1969 og 1971-1973 við Statens kunstind- ustri- og hándværkerskole í Osló 1969-1971. Á sýningunni í Nýhöfn eru stórar blýteikningar á pappír. Teikning- arnar eru flestar frá þessu ári og að hluta til unnar á vinnustofu í Listamiðstöðinni Sveaborg við Helsinki þar sem Valgerður dvaldi í sumar. Valgerður hefur haldið nokkrar einkasýningar, síðast í gaherí Svart á hvítu 1988 og þar áður í stúdíói Listasafnsins í Abo í Finn- landi 1983 þar sem hún var valin teiknari mánaðarins. Valgerður var fulltrúi íslands á Norræna teiknitriennalnum í Svíþjóð í ágúst síðasthðnum. Hún hefur auk þess tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hér heima og erlendis. Valgerður fékk sex mánaða starfslaun frá íslenska ríkinu á þessu ári. Sýningin er opin frá kl. 14-18 um helgar og frá kl. 10-18 virka daga. Henni lýkur 15. nóv- ember. hádegisverð á vægu verði og að erindun- um loknum verður tími til fyrirspuma og mnræðna. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að ræða trúarleg málefni, sem brenna á okkur öltum, við þennan mikilsvirta kennimann. Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að nýta sér þetta tæk- ifæri. Eru kennarar fagmenn? Námsstefna um fagvitund kennara Skólamálanefnd Hins íslenska kennara- félags gengst fyrir námsstefnu um fagvit- und kennara laugardaginn 28. október, í Hafnarborg, Hafnarfirði. Námsstefnan ber yfirskriftina „Era kennarar fag- menn?“ Aðalfyrirlesari námsstefnunnar er dr. Wolfgang Edelstein en auk hans munu 4 kennarar flytja stutt erindi um fagmennsku við kennslu einstakra greina: Sigurður Hlíðar, stærðfræði, Haf- dis Ingvarsdóttir, erlend tungumál, Heimir Pálsson, móðurmál, og Herdís Oddsdóttir, tónmenntir. Flutt verða stutt tónlistaratriði: Kór Öldutúnsskóla mun syngja og félagar úr kór Flensborgar- skóla syngja við undirleik. Námsstefnan hefst kl. 9.30 og er öllum opin. „Búum börnum betri framtíð“ er yfirskrift JC-dagsins sem haldinn verður hátíðlegur laugardaginn 28. okt- óber. í tilefni af JC-deginum munu JC- félögin í Reykjavík og á Seltjamamesi halda skemmtun á Eiöistorgi, Seltjarnar- nesi, í samstarfi við Krísuvíkursamtökin. Boöið verður upp á fjölbreytta skemmtun en hún hefst kl. 14 með ávarpi forseta bæjarstjórnar Seltjarnamess, Guðmars Magnússonar. Dagskránni lýkur kl. 16. Kvöldvökufélagið Ljóð og saga heldur fyrstu kvöldvöku vetrarins laug- ardaginn 28. október kl. 20.30 í Skeifunni 17. Mætum öll og tökum með okkur gesti. Börn og bækur I Blindrabókasafni Laugardaginn 28. október kl. 14 verður haldin bókmenntakynning fyrir böm í Bhndrabókasafni íslands að Hamrahlíð 17. Danski rithöfundurinn H. C. Ander- sen verður kynntur. Keld Gall Jörgensen lektor fjallar um skáldið og verk hans og Gísh Halldórsson leikari les úr verk- um hans. Sjóferðir um helgina Náttúmverndarfélag Suðvesturlands og Eyjaferðir standa fyrir.sjóferðum á morg- un, laugardag, með farþegabátnum Haf- rúnu. Þetta verða síðustu sjóferðirnar í haust. Kl. 10 verður siglt um Kollafjörð og kl. 14 verður siglt suður í Skerjafjörð. Báðar ferðimar taka um tvær klst. Farið verður frá Grófarbryggju neðan við Hafnarhúsið. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Hana nú í Kópavogi verður á morgun, laugardag- inn 28. október. Lagt af stað frá Digranes- vegi 12 kl. 10. Nú fara vetrarvindar að gnauða og við klæðum okkur eftir veðr- inu. Við röltum undir kjörorðinu: Sam- vera, súrefni og hreyfing. Nýlagað mola- kaffi. Fundir III. ráð ITC heldur sinn 21. fund laugardaginn 28. október á Hótel Selfossi, Ársölum'Fund- arstef: Þjálfun og samstarf em lykill að árangri. Skráning hefst kl. 9.45. Kl. 10 er fimdur með forsetum og ráðsfulltrúum deilda. IO. 11 fundarsetning. Á dag- skránni verða venjuleg félagsmál, hæfn- ismat á fyrri hluta fundar, framkvæmt af þingskapaleiðara Landssamtaka ITC, Inger Steinsson. Eftir matarhlé mun María Gröndal, ITC Fífu í Kópavogi, segja frá Landsþingi ITC í Bretlandi sl. vor. Síðan mun Jóna Ingibjörg Jónsdóttir kynfræðingur vera með fræðslu og eftir kaffihlé mun Emil Thoroddsen frá Iðn- tæknistofnun segja frá námskeiðum sem haldin hafa verið fyrir konur um stofnun og rekstur fyrirtækja, reynslu og fram- hald. Gert er ráð fyrir aö fúndinum ljúki kl. 16.30. Gestgjafadeild fundarins er ITC deildin Seljur, Selfossi. Umsjónarmaður fundarins er Guðrún Edda, sími 98-22424. Borgarafundur JC á Akureyri Á Akureyri verður haldinn borgarafund- ur í Borgarbíói og hefst hann kl. 14 laug- ardaginn 28. október. Kjörorð fundarins verður „Búum börnum betri framtíð". Landsfundur Kvennalistans verðm- að þessu sinni haldinn í Básum í Ölfusi dagana 27.-29. október. Fundurinn er opinn öllum kvennalistakonum en nauðsynlegt er að þátttakendur skrái sig hjá starfskonu Kvennalistans í síma 91-13725. II. ráð ITC á íslandi heldur 21. ráðsfund sinn laugardaginn 28. október nk. í Bolungarvik. Margt verður um fræðslu á fundinum og m.a. mun Soffia Vagnsdóttir tónlistarkennari flytja fræðslu um tónhst. Kristjana Miha Thorsteinsson, þingskapaleiðari II. ráðs, mun verða með fræðslu um störf dómara á ræðukeppnum. Forseti II. ráðs er Alex- ía Gisladóttir. í öðm ráði ITC em deildir frá Reykjavík, Akureyri, Mývatni, Bol- ungarvik, Hafnarfirði og Garðabæ. Stefna ITC er að þroska frjálsar og op- inskáar umræður án fordóma um mál- efni, hvort sem er stjómmálalegs, félags- legs, hagfræðilegs, kynþáttalegs eða trú- arlegs eðhs. Ferðalög Ferðafélag Íslands Dagsferð sunnudaginn 29. okt. Kl. 13: Höskuldarvellir - Trölladyngja. Leiðin hggur suður með sjó þar til komið er að afleggjaranum til Höskuldarvaha hjá Kúagerði. Tröhadyngja er lág hæð austur af Höskuldarvöllum. Létt göngu- ferð í fahegu landslagi. Verð 800 kr. Næsta myndakvöid verður miðviku- daginn • 8. nóvember í Sóknarsalnum, Skipholti 50a. Brottfór í dagsferðina er frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíll. Frítt fyrir börn innan 15 ára. Létt gönguferð er góð hvíld. Útivistarferðir Haustblót ó Snæfellsnesi 27.-29. okt. Gist á Lýsuhóli. Nú gönguleið um óvið- jafnanlegt umhverfi. Sameiginleg máltíð á laugardagskvöld. Kvöldvaka. Sundlaug á staðnum. Heiðursgestur á haustblótinu verður Kristján M. Baldursson. Fara- stjóri: Sigurður Sigurðsson. Upplýsingar og farmiðasala á skrifstofu, Grófmni 1. Símar: 14606 og 23732. Dagsferð, sunnudaginn 29. okt. Áhugaverð gönguleið um hverasvæði í nágrenni Hengils: Innstidalur-Ölkeldan. Brottfór kl. 13 frá Umferðarmiðstöð - bensinsölu. Einnig er hægt að koma í rútuna við Árbæjarsafn. Sýningar Málverkasýning Magnúsar Guðmundssonar í Félagsheimih Patreksfjarðar stendur yfir sýning á verkum Magnúsar Guð- mundssonar sem hann hefur málað á sl. Úómm ámm. Magnús stundaði málara- hst í Myndhstaskóla íslands. Sýningin stendur til 29. október. Art-Hún, Stangarhyl 7, Reykjavík Að Stangarhyl 7 er sýningarsalur og vinnustofur. Þar em til sýnis og sölu olíu- málverk, pastelmyndir, grafik og ýmsir leirmunir eftir myndhstarmennina Erlu B. Axelsdóttur, Helgu Armanns, Elin- borgu Guðmundsdóttur, Margréti Salome Gunnarsdóttm- ,og Sigrúnu Gunnarsdóttur. Opið aha virka daga kl. 13- 18. Árbæjarsafn, sími 84412 Opið eftir samkomulagi. Upplýsingar í sima 84412. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74 í safni Ásgríms stendur yfir sýning á myndum Ásgríms frá Þingvöhum. Á sýn- ingunni eru 25 verk, aðahega vatnshta- myndir, en einnig nokkur ohumálverk. Sýningin stendur fram í febrúar og er opin um helgar og á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 13.30-16. Ásmundarsalur v/Freyjugötu, Á morgun opnar Aðalheiður Valgeirs- dóttir sýningu á grafik- og þurrkrítar- myndum. Á sýningunni verða 36 verk, 15 þurrkrítarmyndir og 21 dúkrista. Verkin em öh unnin á þessu ári. Sýning- in stendur th 12. nóvember og er opin kl. 14-20 alla sýningardagana. er. FÍM-salurinn, Garðastræti 6 Kristinn G. Jóhannsson listmálari sýnir 22 ný olíumálverk sem öh fjalla um lands- lag og náttúm landsins. Þetta er 17. einkasýning Kristins enhann hefim einn- ig tekið þátt í íjölda samsýninga hér heima og erlendis. Sýningunni lýkur sunnudaginn 5. nóvember. Gallerí Borg, Pósthússtræti 9 Þar stendur nú yfir sýning á vatnslita- myndum eftir Torfa Jónsson. Torfi hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. A sýningunni nú era vatnshtamyndir, málaðar á Vest- fjörðum sl. sumar. Myndimar era ahar til sölu. Sýningin er opin virka daga kl. 10-18 og um helgar kl. 14-18. í Grafik-gaherí Borg, Austurstræti 10, er mikið úrval af grafik og keramiki, einnig ohuverk eftir yngri kynslóöina í stækk- uðu sýningarrými. Grafik-galleruð er opið virka daga kl. 10-18. Galleri15, Skólavörðustíg 15 Bjöm Geir Ingvarsson sýnir 35 cohage- myndverk, öh unnin á síðustu þremur árum. Sýningin er opin um helgar frá kl. 14- 20 og virka daga kl. 16-20. Sýningunni lýkur sunnudaginn 29. október. Gallerí „einn-einn“, Skólavörðustig 4a Gunnar Kristinsson sýnir myndir og styttur. Myndimar era unnar innan hug- taksins „Anthtz-saga“ en anthtz er gam- alt orð og þýðir andht og hefur að geyma tengsl við trúarbrögð. Þetta er 14. einka- sýning Gunnars. Gallerí List, Skipholti 50B Jónína Magnúsdóttir, Ninný, opnar sýn- ingu á verkum sinum á morgun kl. 15. Myndimar á sýningunni era unnar á flís- ar með postulínshtum, ohu á striga og krit á pappír. Sýningin verður opin virka daga kl. 10.30-18, laugardaga og sunnu- dagakl. 14-18. HennilýkurS. nóvember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.