Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1990, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.1990, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1990. Veiðivon Rétt „hugarfar" hjá Stanga- veiðifélagi Reykjavíkur Það fmnst mörgupi veiðimanninum sem Stangaveiðifélag Reykjavíkur hafi sýnt eindæma gott fordæmi, með því að fara ekki í saminga við áreig- endur upp á hækkanir veiðileyfa. Stangaveiðifélagiö náði Norðurá á góöu verði og Breiðdalsá einnig svo um munaði. Þetta hefðu kannski fleiri átt að gera því svigrúm tii hækkana er ekkert. Ekkert er vitað um hvernig laxveiðin verður næsta sumar en sérfræðingur sem DV ræddi við í vikunni sagðist ekki eiga von á góðu. Árnar hérna á Suður- landi verða í lagi en hinir lands- hlutarair koma verr út. Þaö gæti kannski bjargað að stórlax kæmi í margar veiðiár, nokkir vel yfir 30 pund. Hnýtingar og flugu- köst að koma til Óvenjulega mikil deyfð hefur verið í fluguköstum og hnýtingum í vetur. Ekki það að enginn hafi viljaö kenna, heldur hafa veiðimenn dregið sig inn í híði og hnýtt heima hjá sér og æft sig í kjöllurum. En þetta er eitthvaö að breytast, enda styttist í að veiði- tíminn byrji fyrir alvöru. Kannski ætti maður að hnýta eina rauða... Litlu árnar vinsælar Svo virðist vera sem litlu tveggja, þriggja stanga veiðiárnar verði vin- sælastar í sumar. Hópar taka sig saman og fara nokkir, elda og veiða í hóp. Ár sem eru í þessum hópi eru Gljúfurá, Reykjadalsá, ÁJftá, Set- bergsá, Hörðudalsá, Miðá í Dölum, Krossá á Skarðsströnd, Hvolsá og Staöarhólsá, Hrútafjarðará, Vatns- dalsá silungasvæðið, Hallá, Sandá, Selá, Breiðdalsá, Geirlandsá, Gren- lækur og Sogið svo fáar séu taldar. Það hefur samt heyrst á mörgum að þeir ætli í ríkari mæli í silungsveiði íslenskir stangaveiðimenn munu i auknum mæli sækja i tveggja, þriggja stanga veiðiárnar á sumri komanda. DV-mynd G.Bender Þau eru víða illa nýtt veiðivötnin enda eru þau kringum 1200 og af nógu að taka. Þessi veiðimaður heitir Rúnar Lárusson og bleikjan hans var 3 pund. DV-mynd Sigurður Kr. og skreppa í vötn sem hafa verið vannýtt í mörg ár. Þetta eru vötn á Vestfjörðum, Strandasýslu, Skaga, og víða um Austurland. Af nógu er víst að taka. Orrifervíóa Orri Vigfússon fer víða þessa dag- ana. Hann stendur í samingaviðræð- um vítt og breitt. Svo virðist sem erfiði Orra sé að bera árangur og hann sé að kaupa einhveija kvóta. Til þess var líka leikurinn geröur og að laxinn komi í ríkari mæli upp í íslensku veiðiárn- ar. Það vilja allir. -G.Bender Finnur þú fimm breytingai? 37 Nafn:........ Heimilisfang: Þjoðar- spaug DV í skamm- deginu Aumingja gamla fólkið Við síðustu myntbreytingu varö gamalli konu aö orði: „Að þessir stjórnmálamenn skyldu ekki hafa getað beðið með þessa myntbreytingu þangaö til gamla fólkið væri dáið.“ Eru þeir ekki víða til? Auglýsing úr gömlu dagblaði: „Til sölu reykjarpípur hjá Lár- usi, handa karlmönnum meö svinshaus.“ Ekkert nema kjafturinn Maöur, sem þykir fljótmæltur mjög, komst eitt sinn svo að orði um Jón Baldvin Hannibalsson: „Já, hann sonur Hannibals er sko með kjaftinn fyrir neðan munninn." Upp skal hún aftur, nema... Maður nokkur reyndist tregur tfi aö greiöa líkkistusmið þeim, er smíðaö haföi kistu utan um konu hans, fyrir verkið. Taldi hann verðið alltof hátt. „Ég gref þá bara fjandans kerl- inguna upp aftur og hirði kist- una,“ varð líkkistusmiönum þá að orði. Var maðurinn þá ÍTjótur að greiða líkkistusmiðnum uppsetta fjárhæð fyrir kistuna. Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í Ijós að á myndinni til hægri hef- ur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri mynd- inni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimil- isfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sig- urvegara. 1. Elta stereoferðatæki með tvöföldu segulbandi að verð- mæti kr. 8.900,- 1. Elta útvarpsklukka að verðmæti 3.500,- Vinningarnir eru úr Opus, Skipholti 7, Reykjavík. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 37 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík « Sigurvegarar fyrir þrítu- gustu og fimmtu getraun reyndust vera: 1. Valbjörn Þorláksson, Ránargötu 13,101 Reykjavík. 2. Ragnar Þorvaldsson, Munkaþverárstræti 18, 600 Akureyri. Vinningarnir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.