Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Blaðsíða 6
6 Viðskipti FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 1991. ÓDÝR SÓLUÐ SUMARDEKK STÆRDIR STADGREIÐSLUVERD 135SR13 kr. 2.235. 145SR12 kr. 2.155. 145SR13 kr. 2.240. 155SR13 kr. 2.270. 165SR13 kr. 2.345. 175SR14 kr. 2.765. 185SR14 kr. 3.155. 175/70SR13 kr. 2.795. 185/70SR13 kr. 2.880. 185/70SR14 kr. 3.185. 195/70SR14 kr. 3.190. 205/70SR14 kr. 3.530. ÚRVAL AF ÖÐRUM HJÓLBÖRÐUM. UMFELGUN, SKIPTING, JAFNVÆGISSTILL- ING FRÁ KR. 2970 STAÐGR. Greiðslukortapjonusla og raðgreiðslur. COMBI CAMP COMBI CAMP er traustur og góður félagi í ferðalagið. Léttur í drætti og audveld- ur í notkun. COMBI CAMP er hlýr og þægilegur með fast gólf í svefn og íverurými. COMBI CAMP er á sterk- byggðum galvaniseruðum undirvagni, sérhönnuðum fyrir íslenskar aðstæður, á fjöðrum, dempurum og 10" hjólbörðum. COMBI CAMP er einn niest seldi tjaldvagninn á íslandi undanfarin ár og á hann fæst úrval aukahluta. COMBI CAMP er til sýnis í sýningarsal okkar. TÍTANhf LÁGMÚLA 7 SÍMI 84077 Dollaralán þjóðarinnar: Hækkuðu um millj- arð á einni helqi Gengi dollarans hefur heldur betur verið fljótandi að undanförnu. Hann hefur verið á hraðferð upp á við og hækkaði um 70 aura sjálfa kosninga- helgina. Kosningahelgina hækkaði dollar- inn um 70 aura gagnvart íslensku krónunni. Þessi hækkun hafði það í for með sér að dollaralán þjóðarinn- ar hækkuðum um einn milljarð króna. Þetta skýrir hvers vegna fjár- málastjórar íslenskra fyrirtækja, sem skulda í dollurum, fylgjast í svitakófi með hraðferö dollarans upp á við. Að vísu sljákkaði aðeins í hon- um á miðvikudaginn þegar seðla- bankar stærstu iðnríkjanna tóku sig saman um að selja hann. Ofurtrú á dollar Það voru ekki úrslit kosninganna á íslandi sem réðu því að gengi krón- unnar féll um 70 aura kosningahelg- ina. Ástæðan er þróunin á erlendum gjaldeyrismörkuðum. Kaupendur gjaldmiðla hafa einfaldlega trú á gamla góða dollaranum og kaupa hann. Eftirspurnin hækkar þann gamla í verði. Jakob Gunnarsson, hagfræðingur hjá Seðlabanka, segir að miðað við óbreytt meðalgengi krónunnar hafl 12 prósent hækkun dollarans frá ára- mótum hækkað erlendar skuldir þjóðarinnar um 4,5 prósent eða um 7,5 milljarða króna. Óbreytt meðal- gengi krónunnar þýðir að um leið og dollarinn hækkar í verði lækka Evrópumyntirnar á móti. Dollaraskuldir þjóðarinnar um 1,5 milljarðar dollara Um síðustu áramót voru erlendar skuldir þjóðarinnar um 175 milljarð- ar króna. Þar af var um helmingur dollaralán, eða um 1,5 milljarðar dollara. Einn þeirra sem fylgjast grannt meö þróun dollarans á alþjóðavett- vangi er Jón Sigurgeirsson í alþjóða- deild Seðlabankans. Hann segir að vegna sigurs bandamanna í Persa- flóastríðinu og tæknilegra yfirburða Bandaríkjamanna hafi gripið um sig mikil bjartsýni um getu Bandaríkja- manna í efnahagsmálum. Þá hafi væntingar um lækkandi olíuverð eytt ákveðinni óvissu. Vextir vestan hafs ekki lækkaðir meira „Hlutfall atvinnulausra hefur ver- ið að hækka í Bandaríkjunum síð- ustu mánuði og hefur varla verið meira í um fimm ár. Sömuleiðis hafa aðrir hagvísar sýnt einkenni hæga- gangs í efnahagslífmu þrátt fyrir vaxtalækkanir síðustu mánaða. Fyr- ir skömmu komu svo tölur um að verðbólga í Bandaríkjunum væri lítil og í framhaldi af því töldu menn að seðlabankinn myndi lækka vextina. Það óvænta gerðist hins vegar í síð- ustu viku að seðlabankinn í Banda- ríkjunum sagði að frekari vaxta- lækkana væri ekki að vænta.“ Bestu tölur í átta ár um vöruskiptajöfnuð Jón segir að í kjölfar þessarar yfir- lýsingar seðlabankans hafi birst vikulegar tölur um atvinnuþátttöku sem hafi sýnt betri útkomu en menn bjuggust við. Næst komu svo bestu tölur í átta ár um vöruskiptajöfnuð Bandaríkjamanna en hann var að- eins óhagstæður um 5,3 milljarða dollara í síðasta mánuði. „Við þetta fór dollarinn aðeins upp á við enda vilja menn trúa að dollarinn fari upp á við.“ Um síðustu helgi tapaði flokkur Helmuts Kohl, kanslara Þýskalands, óvænt í héraðskosningum. Við þaö steig dollarinn og markaðsvextir dollarans. Jón segir aö nú horfi menn fram á það við sameiningu Þýskalands að vaxtahækkanir verði ekki eins mikl- ar og búist var við. Auk þess sé útlit fyrir að þýska stjórnin sé með bundna skó í skattahækkunum vegna taps flokks Kohls en það geti leitt til halla á ríkissjóði og aukinnar verðbólgu. Loks sé óvissa um framtíð Gorbatsjovs í Sovétríkjunum og allt þetta hafi áhrif til lækkunar þýska marksins. „Það er almennt hald manna á gjaldeyrismörkuðum að í lok janúar, þegar dollarinn fór í 1,4440 þýsk mörk, hafi dollarinn náð lágmarki í þessari hagsveiflu. Hvað sem gerist á næstunni fari hann ekki niður fyr- ir þetta sögulega lágmark í lok jan- úar.“ Ástæðan fyrir því að dollarinn lækkaði úr 61,55 í 60,83 krónur á miðvikudaginn er sú að seðlabankar Evrópuríkjanna voru með sameigin- legt átak í að selja dollar á alþjóðleg- um gjaldeyrismörkuðum til að lækka hann í verði. Til viðbótar hafi minni eftirspurn eftir varanlegum vörum vestan hafs og loks fyrirhugaður fundur iðnríkjanna sjö um þessa helgi haft áhrif. Loks má geta þess að þegar dollar- inn reis hæst á þriðjudaginn var hann 1,768 þýsk mörk. -JGH Hitasveiflurnar breyta verðinu í síðustu viku var verðið erlendis nokkuð breytilegt. Suma daga hefur það lækkað nokkuð mikið en aðra daga orðið betra. Með sumri og batn- andi veðri ög hitasveiflum má búast við að verðið verði ekki eins stöðugt og það hefur verið í vetur. Margir halda því fram að fiskveiði- stefna EB sé ákaflega illa hugsuð og svo langt hefur þetta gengið að sum- ar þjóðir hafa haft það á orði að þær vilji sína eigin fiskveiðistefnu. Nokkurrar óánægju gætti með páskastoppið varðandi fiskflutning hinna ýmsu markaða, þó mun ekki hafa borið á þessu við íslenska fisk- seljendur en umboðsmenn Norð- manna á Englandi hafa kvartað við norska útflytjendur. Það mun reyna mikið á Aflamiðlunina þegar fram á sumarið kemur með það að ekki fari óhóflega mikill fiskur á erlenda markaðinn. Bretland Bv. Páll seldi afla sinn í Hull, alls 66,5 tonn fyrir 9,5 milljónir kr. Meðal- verð 142,99 kr. kg. Þorskur var á hæsta verði, 170,44 kr. kg, ýsa 218,77 en annar fiskur var á lægra verði. Bv. Óskar Halldórsson seldi í Hull 22. apríl, alls 75,5 tonn fyrir 10,8 millj- ónir kr. Verð á þorski var 144,42 kr. kg, ýsu 164,37, ufsa 74,48 og karfa 69,40 kr. kg. Fiskmarkaðurinn Ingólfur Stefánsson Úr gámum voru seld ails 848,6 tonn fyrir 132,9 milljónir kr. Meðalverð var 154,62 kr. kg. Þorskurinn seldist á 170,62 kr. kg, ýsan 206,53, ufsi 88,97, karfi 62,46, koli 135,50 og blandað 152,32 kr. kg. Þýskaland Bv. Engey seldi í Bremerhaven 22. apríl, alls 223 tonn fyrir 24,5 milljón- ir kr. Meðalverð var 109,71 kr. kg. Þorskur seldist á 121,29 kr. kg, ýsa 156,60, ufsi 101,54, karfi 107,08, grá- lúða 117,21 og blandað 186,70 kr. kg. Bv. Gullver seldi í Bremerhaven 19. apríl, alls 175 tonn fyrir 14,2 millj- ónir kr. Meðalverð var 81,17 kr. kg. Bv. Bessi seldi 19. apríl alls 265 tonn fyrir 29 milljónir kr. Meðalverð úr þessum tveim sölum er sem hér seg- ir: Þorskur 119,25 kr. kg, ýsa 190,85, ufsi 80,31, karfi 80,31 og grálúða 103,49 kr. kg. Rækjuverð lækkar í Noregi Bodö: Einhverjar hörðustu um- ræður um verðlagningu á fiski hafa nú tekið enda. Fiskindustrien Lands- forening og Norges Fiskerlag hafa orðið sammála um eftirfarandi: í fyrsta lagi að lækka verðið á rækj- unni almennt um 1,30 kr. norskar kg eða um 12,20 íslenskar kr. kg. Hluti lækkunarinnar fer til að greiða vexti og geymslukostnað sem nemur 0,50 nkr. kg eða 4,70 ísl. kr. kg. Eftir stendur að lækkunin er í raun um 4,70 ísl. kr. kg. Ráfisklaget mun reyna að fá framgengt jöfnunargjaldi sem er 3,70 kr. kg þar til skip hefur fiskað 80 tonn, síðan minnkandi eftir því hvað veiðin er mikil. Torill Munter blaðamaður Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR INNLÁN ÖVERÐTR. (%) hæst Sparisjóðsbækurób. Sparireikningar 4,5-5 Lb 3ja mán. uppsögn 4,5-7 Sp 6 mán. uppsögn 5,5-8 Sp Tékkareikningar, alm. 1-1,5 Sp Sértékkareikningar VlSITÖLUB. REIKN. 4,5-5 Lb 6 mán. uppsögn 2,5-3,0 Nema Ib 15-24 mán. 6-6,5 Ib.Sp Orlofsreikningar 5,5 Allir Gengisb. reikningar í SDR7.4-8 Lb Gengisb. reikningar í ECU 8,1 -9 Lb ÖBUNDNIR StRKJARAR Vísitölub. kjör, óhreyfðir. 3 Allir Cverðtr. kjör, hreyfðir . 10,25-10,5 Nema Ib BUNDNIR SKIPTIKJARAR. Vísitölubundin kjör 5,25-5,75 Bb óverðtr. kjör 12,25-13 Bb INNL.GJALDEYRISR. Bandaríkjadalir 5-5,25 Bb Sterlingspund 11-11,1 SP Vestur-þýskmörk 7,75-8 Sp Danskarkrónur 8-8,6 Sp ÚTLÁNSVEXTIR ÚTLÁN överðtr. (%) lægst Almennirvíxlar(forv.) 15,25 Allir Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi Almennskuldabréf 15,25-15,75 Lb Viðskiptaskuldabréf(1) kaupgengi Allir H laupareikningar (vfirdr.) útLanverðtr. 18,75-19 Bb Skuldabréf , afurðalAn 7,75-8,25 Lb Isl.krónur 14,75-15,5 Lb SDR 9,75-9,9 Nema Sp Bandaríkjadalir 8-8,5 Lb Sterlingspund 14-14,25 Lb Vestur-þýsk mörk 10,75-10,8 Lb.lb.Bb Húsnæðislán 4,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 23,0 MEÐALVEXTIR Cverðtr. mars 91 Verðtr. apríl 91 15,5 7,9 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala apríl 3035 stig Lánskjaravísitala mars 3009 stig Byggingavísitala apríl 580 stig Byggingavísitala apríl 181,2 stig Framfærsluvísitala apríl 151 stig Húsaleiguvísitala 3% hækkun . apríl VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóöa Einingabréf 1 5,534 Einingabréf 2 2,987 Einingabréf 3 3,628 Skammtímabréf 1,852 Kjarabréf 5,429 Markbréf 2,896 Tekjubréf 2,080 Skyndibréf 1,614 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,653 Sjóðsbréf 2 1,858 Sjóðsbréf 3 1,838 Sjóðsbréf 4 1,594 Sjóðsbréf 5 1,108 Vaxtarbréf 1,8831 Valbréf 1.7527 Islandsbréf 1,149 Fjórðungsbréf 1,080 Þingbréf 1,148 öndvegisbréf 1,136 Sýslubréf 1,160 Reiðubréf 1,124 Heimsbréf 1,058 HLUTABRÉF Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun: KAUP SALA Sjóvá-Almennar hf. 6,10 6,40 Eimskip 5,40 5,62 Flugleiðir 2,30 2,39 Hampiðjan 1.72 1,80 Hlutabréfasjóðurinn 1,84 1.93 Eignfél. Iðnaðarb. 2,32 2,40 Eignfél. Alþýðub. 1,62 1.70 Skagstrendingur hf. 4,40 4,60 Islandsbanki hf. 1,50 1.57 Eignfél. Verslb. 1,73 1,80 Olíufélagiö hf. 5,40 5,65 Grandi hf. 2,48 2,65 Tollvörugeymslan hf. 1,00 1,05 Skeljungur hf. 5,75 6,00 Armannsfell hf. 2,35 2,45 Fjárfestingarfélagið 1,35 1,42 Útgerðarfélag Ak. 4,05 4,20 Olís 2,25 2,35 Hlutabréfasjóður VlB 0,99 1,04 Almenni hlutabréfasj. 1,05 1,09 Auðlindarbréf 0,990 1,042 Islenski hlutabréfasj. 1,06 1,11 Sildarvinnslan, Neskaup. 2,48 2,60 (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn, ib = Islandsbanki Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. RAUTT UÓS RAUTT

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.