Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1991, Blaðsíða 15
FÖSTUDAGUR 26. APRlL 1991. 15 Borgríkið og Island Þaö vakti athygli mína í viðræö- um sjónvarpsins við kjósendur í Reykjavík fyrir alþingiskosning- amar í síðustu viku, að margir þeirra, sem spurðir voru um j öfnun atkvæða milli Reykjavíkur og landsbyggðarinnar, töldu ekki þörf á, að fylgt yrði eftir reglunni um „einn mann, eitt atkvæði", eins og þetta hefur verið nefnt. Viömælendur sjónvarpsins bentu á að landsbyggðin ætti undir högg að sækja og þyrfti því að tryggja réttindi hennar. Sumt af þessu fólki var auðvitað sjálft af landsbyggðinni og rann því blóðið til skyldunnar. Sambýli borgríkisins Reykjavík- ur og landsbyggðarinnar verður á næstu árum eitt aðalviðfangsefni í íslenskum stjómmálum. Ástæðu- laust er aö efna til illdeilna með landsfólki, enda megum við naum- ast við því. - Flestir skilja líka vandann sem við er að glíma. Hins vegar verða stjómvöld og valdhafar að gera sér ljóst að ekki er unnt að bíða miklu lengur með að fiima leið út úr ógöngunum. Og máhð er ekkert síöur aðkallandi fyrir Reykjavík og þéttbýhð á Suð- umesjum en okkur úti á landi. Fjölgun sú, sem orðið hefur á landinu undanfarin ár, hefur nær öh orðið á höfuðborgarsvæðinu, eins og myndin, sem hér fylgir, sýnir. Höfuðborgarsvæðið getur hins vegar ekki meö góðu móti tek- ið áfram við ahri fólksfjölgun á landinu. Vandamáhn, sem fylgja svo örri íjölgun, hrannast upp og verða að lokum óviðráðanleg. Mannlífið batnar ekki endilega í réttu hlutfalh við fólksfjölda. Og vandi landsbyggðarinnar vegna fólksflóttans er uggvænleg- ur, og þó er verst af öllu, ef fólk úti á landi hættir að trúa, að það sé til nokkurs nýtt eða nokkurs meg- Kjallarinn Tryggvi Gíslason skólameistari á Akureyri íbúa eða um tíunda hluta þjóðar- innar. Húsin hnipmðu sig í kring- um Amarhól, í Kvosinni og inn undir Rauðarárlæk og vestur með sjónum og suður á Bráðræðisholt. Engin hús vom á Melunum nema húsaþyrpingin við Sauðagerði, þar sem seinna var Kamp Knox. Nú er Reykjavík glæst borg þar sem búa fjórir af hveijum tíu íbú- um landsins. Undra margt hefur áunnist á tæpri öld. Reykjavík er falleg í góðu veðri, fjallasýn er ein- stök og á haustdögum er himinninn oft hrikalega fagur í útsynningn- um. En skýringarinnar er ekki aö leita þama heldur í þeim aðstöðu- mun sem orðið hefur mhli borgrík- isins og íslands. „Gamla byggðastefnan er gengin sér til húðar og félagsleg þjónusta, menntun og menningarstarf verður ekki eflt, nema til komi ný viðhorf.“ andi; aht hljóti að vera betra fyrir sunnan, nema þá helst veðrið, og á því lifa menn ekki lengi fremur en á guðsblessun og munnvatni sínu. Glæst borg Ekki verður í fljótu bragöi skýrt eða með auðveldum hætti skihð hvers vegna allir vilja búa fyrir sunnan þar sem er ekkert skjól og eilífur stormbeljandi, eins og í út- löndum. Ástæðumar em auðvitað ótal margar og þessi þróun á sér langa sögu, sem ekki verður rakin hér. Um aldamótin var Reykjavík htið sjávarþorp með um sjö þúsund Hlutdeild landsvœða ífólks- fjölgun 1985-1990 Önnur landsvæði, 0,9°/« Onnur sveitar- félög á höfuð- Á borgarsvæðinu, 42,6% Hlutdeild landssvæða I fólksfjölgun 1985/90. - Reykjavík og önnur sveitar- félög á höfuðborgarsvæðinu hafa fengið rúmlega 99% allrarfólksfjölgun- ar á árunum 1985 til 1990. (Hagtíðindi 1990:466). Aætlun um byggð Ótalmargt mætti gera til að stöðva fólksflóttann af landsbyggð- inni. Jafnvel mætti snúa straumn- um við, ef menn vildu. Hér ætla ég aðeins að nefna fimm atriði, sem gætu orðið th að létta mönnum róðurinn. í fyrsta lagi ættu sveitar- félög úti á landi að sameinast í stór sveitarfélög, svo að þau verði líf- vænlegar heildir og sterkt afl í ís- lenskum þjóðmálum og fái í hendur stóraukið vald, eins og Davíð Odds- son benti á í Morgunblaðinu í vet- ur. Samgöngur og ný viðhorf gera þetta bæöi sjálfsagt og eðlilegt. Samfara þessari sameiningu á að breyta lögum um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og þar með lögum um tekjuöflun ríkis og sveit- arfélaga. í öðru lagi á ríkið að flytja stofn- anir og fyrirtæki af höfuðborgar- svæðinu út á land, eins og þeir Jón Baldvin og Ólafur Ragnar lögðu th fyrir 15 árum. Bylting í tölvu- tækni, fjarvinnslu og fjarskiptum hefur m.a. gert það að verkum, að nú er unnt að talast við um þveran hnöttinn. Sama stofnunin getur því verið í Reykjavík og á Seyðisfirði, ef því væri að skipta. í þriðja lagi á Alþingi íslendinga að gera áætlun um samgöngur, at- vinnumál og búsetu í landinu næstu 25 ár þar sem tekið er miö af því sem talist getur félagslega æskilegt og þjóðhagslega hag- kvæmt, því ógerningur er að halda öhu þessu víðlenda landi í byggð. Gamla byggðastefnan er gengin sér th húðar og félagsleg þjónusta, menntim og menningarstarf verð- ur ekki eflt, nema th komi ný við- horf. Engu að síöur verður að nýta landið eftir því sem kostur er og landgæði leyfa. 1 fjórða lagi á að tengja fiskveiðar, fiskvinnslu og sölu fiskafurða í eina hehd í fyrir- tækjum og félögum, á svipaðan hátt og gert hefur verið við fram- leiðslu á landbúnaðarvöru, því þetta er aht eitt og sama málið. í fimmta lagi eiga útflutnings- fyrirtæki, hverju nafni sem þau nefnast, að fá leyfi th að selja eða ráðstafa gjaldeyri sínum að eigin vild. Ef þetta er gert haUast ekki leng- ur á milh borgríkisins Reykjavíkur og íslands og þá er hægt að fara að tala um að jafna kosningarétt milh landshluta - þegar annað mis- rétti hefur Uka verið leiðrétt. Tryggvi Gíslason Hvernig þjóðfélag viljum við hafa Hér? Nú á síðustu árum hefur fijáls- hyggjan verið að ryðja sér æ meira th rúms og eru skoðanir manna á því misjafnar. En hvað er átt við með hugtakinu fijálshyggja? Jú, það að hver sé sjálfum sér næstur og upp á sjálfan sig kominn. Sagt er, með öðrum orðum: Hver verður að bjarga sér sem betur getur. En íhugum þá aðeins hvernig þegnunum reiðir af í slíku þjóð- félagi. Þeir sem eru í tengslum við þá sem betur mega sín eru á grænni grein en þeir sem eru í lægstu þrep- um þjóðfélagsins mega sín ákaflega lítils, svo og minnihlutahópar eins og fatlaðir, aldraðir, svo að ekki sé minnst á bömin. Draumaveröld harðlinu- manna Draumaveröld harðlínumanna th „hægri“ er veröld eins og ég lýsti hér áðan. Þaö mætti ætla að slík öfl réðu ferðinni hér í Reykjavíkur- borg, að minnsta kosti ef viö lítum á þær félagslegu úrlausnir sem okkur borgarbúum er boðið upp á. Heils dags dagvistarpláss eru ein- ungis fyrir forgangshópa sem veld- ur gífurlegu öryggisleysi, bæði hjá foreldrum, sem þurfa oft að sendast bæinn á enda th að koma börnum sínum mhh vistunarstaða, og hjá börnunum sjálfum. Elliheimilispláss eru skammar- lega fá en eldri borgarar, sem eiga fúlgur fjár, geta keypt íbúðir, sér- hannaðar fyrir þá, á slíku verði að annað eins hefur ekki sést fyrr. Kjallarinn Anna Margrét Valgeirsdóttir nemi í félagsfræði í HÍ er fyrir hendi. Engu að síður er það viðurkennt að þau böm og unglingar, sem stunda íþróttir, lenda síður upp á kant við lögin. Skammarlega lítið fjármagn er sett í félagsmiðstöðvar og alveg undir hælinn lagt hvort þær geti fyrir vikið uppfyht þær skyldur sem þeim er ætlað. Hvað stendur upp úr? Þetta er sú draumaborg Reykja- vík sem „svo gott er að búa í“ þar sem auðghdi er sett ofar mann- ghdi. Eða hvað? Hvað er það sem stendur upp úr af verkum núver- andi borgarstjóra? Fjölgun dagvist- arplássa? Aukin þjónusta við aidr- aða? Uppbygging íþróttamann- virkja í samræmi við uppbyggingu nýrra hverfa? Ekki hef ég orðið vör við shk verk að undanfórnu. „Það er svo sem hægt að reisa eitt og eitt íþróttahús en hvergi er komist ná- lægt því að uppfylla þá þörf sem er fyrir hendi. Engu að síður er það viður- kennt að þau börn og unglingar, sem stunda íþróttir, lenda síður upp á kant við lögin.“ Æskulýðsmál eru afgangsmál. Það Hins vegar hef ég orðið vör við er svo sem hægt að reisa eitt og mikla uppbyggingu steinsteypu- eitt íþróttahús en hvergi er komist mannvirkja sem þjóna engu nema nálægt því aö uppfylla þá þörf sem ef vera skyldi hégómagirnd borgar- „Heils dags dagvistarpláss eru einungis fyrir forgangshópa...“ yfirvalda. Það er sjaldnast skráð á spjöld sögunnar þó að einhver vinni sér það th frægðar að gera vel við þá sem minna mega sín í þjóðfélaginu en „perlur" og „ráð- hús“, sem éta upp hundruð mhlj- óna, skrifa sína eigin sögu. Þetta er sá veruleiki sem blasir við eftir 9 ára stjórn sjálfstæðis- manna í borgarstjórn. Er þetta það sem við vhjum sjá hér í þjóðmálum? Erum viö tilbúin að setja auðghdið ofar mannghdinu eins og gert hefur verið undanfarin ár í Reykjavík? Mitt svar er nei og aftur nei! Komist Sjálfstæöisflokkurinn th valda eru harla htlar líkur á að hann breyti út af því stjómar- mynstri sem hefur verið viðhaft hér í borginni undir forystu for- manns Sjálfstæðisflokksins. Anna Margrét Valgeirsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.