Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1992, Blaðsíða 12
12 Spumingin Hvað ætlar þú að gera í sumar? Anna María ÞorsteinsdóttinÉg ætla eitthvaö til útlanda en þaö er óákveö- iö hvert. Böðvar Sveinsson: Það veltur á því hvort ég næ mér í vinnu. Gunnar Jóhannsson: Stunda mína vinnu. Ég hef ekki tekiö mér sum- arfrí í sex ár. Sigrún Baldursdóttir:Ég fer á nám- skeið á Úlfljótsvatni og í sveit á Flat- eyri. Auður Jörundsdóttir: Ég fer í sumar- búðir á Úlfljótsvatni og í veiði í Hallá. Davíð Björgvinsson: Ég fer í sveit rétt hjá Borgamesi. Lesendur Alþingi: Ófærtadskerða ræðutímann Konráð Fríðfinnsson skrifar: Eldhúsdagsumræðurnar eru ár- viss atburður. Hæstvirtur forsætis- ráðherra gagnrýndi stjórnarand- stöðuna harðlega fyrir sleðagang í ræðu sinni. Hann taldi að þessir „langhundar" hennar í ræðupúlti þýddu fráleitt hið sama og vit eða speki. Ráðherrann lagði til að þing- skapalögum yrði breytt til að koma framvegis í veg fyrir svona langlok- ur. Auðvitað eiga aðfmnslur valds- mannsins rétt á sér.Það er hins veg- ar engin ný bóla á íslandi að stjórnar- andstaða „þvælist fyrir“ afgreiðslu stjómarfmmvarpa og mér fmnst persónulega meira en sjálfsagt að hún beiti þessu vopni í hvert sinn sem henni þykir ómaklega að sér vegið af hálfu stjómarliða. Eg minnist í svipinn eins þing- manns, er gegnir nú mikilvægu emb- ætti í núverandi stjórn, hvemig hann þvældist svo fyrir málum að maður hélt eitt augnablik að maðurinn væri ekki með réttu ráði. Og er hann var beðinn um að stytta mál sitt varð hann fýldur mjög og talaði a.m.k. í hálftíma til viðbótar. - Þó er rétt að geta þess að sem ráðheira hefur hann staöiö sig með prýði og komist lipurlega frá mörgum málum. Má þar nefna sölu Ríkisskipa, þótt hún hafi veriö umdeild og jafnvel ónauð- synleg, að mínu mati. Þannig má sjá að fráfarandi stjóm glímdi við svipað vandamál og ríkis- stjómin í dag gerir að umkvörtunar- efni. Að vísu er ég sáttur við þann .Stendur hugur þeirra til lýðræðis eður ei?“ nýja stíl er forsætisráðherra hefur tileinkað sér í þinginu, þ.e. að tala stutt og segja hnitmiðaöar setningar. En þó kemur ekki til greina að skammta þingmönnum tíma með nýrri löggjöf. Eða halda menn að slíkt ráðslag veröi til að styrkja lýð- ræðið? - Ég segi nei. Ég þykist vita að kjósendur vilji ekki sjá einhverja skoðanalausa já- bræður sitja á Alþingi. - Það sem kjósendur fýsir að sjá eru hugrakkir þingmenn með hugsjónir sem þeir þora að halda á lofti og fylgja eftir á heiðarlegan hátt. Slíka menn heftum við ekki með þeirri aðferð að draga úr þeim tíma er þeir sjálfir telja sig þurfa til að koma skoðunum sínum á framfæri. Ööru nær. - Og menn verða að gera upp viö sig hvað þeir vilja 1 þessum efnum. Stendur hugur þeirra til lýðræðis eöur ei? Ef svo er skulu þeir líka átta sig á að horn- steinn lýðræöis er einmitt óskert málfrelsi, hvar og hvenær sem er. Vöruverð á Flórída Jón Ásbergsson, framkvstj. Hag- kaups, skrifar: Á Neytendasíöu DV mánud. 18. maí er farið lofsamlegum orðum um úr- val og gæði grænmetis í verslunum Hagkaups. Sá böggull fylgir þó skammrifi, að mati blaöamannsins, að verölag á „sjaldgæfari tegundun- um“ sé mun hærra þar en í stór- mörkuðum á Flórída. - Telur blaða- maðurinn sjálfgefið að skýra þann verðmun með að: „enginn annar að- ili er með sumar þessar tegundir til sölu, og samkepprin því ekki til stað- ar til að halda veröinu niðri". Um þessa ályktun blaðamannsins er það að segja að innflutningur og sala á grænmeti er frjáls og engar hindranir sem raska samkeppnisað- stööu á markaðnum. Þar hefur Hag- kaup enga sérstöðu aðra en þá að leggja metnað sinn í að bjóða ávallt bestu gæði og mikið úrval. Sú stað- reynd að sumar sjaldgæfari tegundir fást eingöngu í Hagkaupi er vísbend- ing um að kaupmenn telji þessi við- skipti ekki sérlega ábatasöm. Til aö bera saman verðlag á þessum vörum hér á landi og suöur á Flórída, þarf að tilgreina þá kostnaöarliöi sem ekki falla á grænmetið í Banda- ríkjunum en eru verulegur þáttur í verðmyndun þess hér á landi. - Þeir eru: 1) flutningsgjald með flugi til íslands frá Evrópu eða USA. 2) 30% tollur á cif verð grænmetis, þ.e. er- lent kostnaðarverð og flutnings- kostnaö. 3) 25% virðisaukaskattur ofan á alla kostnaöarliði og álagn- ingu kaupmannsins. - Við faglega umfjöllun á virtri neytendasíðu hefði verið eðlilegt að getið væri um þessar forsendur áður en hlaupið er til og stórir dómar felldir um óeðlilega við- skiptahætti. Það er nokkuð mikO einfóldun að kenna ávallt um gróðafíkn kaup- manna eða skorti á samkeppni. Það má t.d. kaupa eftirmiðdagsblöðin í Lundúnaborg úti á götu fyrir 30 pence, eða sem svarar 31 krónu. Sams konar blað og DV kostar á ís- landi 115 krónur. - Varla ætlar blaða- maður Neytendasiðunnar að halda því fram að þennan verðmun megi eingöngu skýra meö því að hér skorti samkeppni í útgáfu eftirmiðdags- blaða? Skattalækkun og betri skattskil Siguijón Sigurðsson skrifar: Mörgum mun blöskra að heyra um þær upphæðir sem við íslendingar eigum útistandandi í sköttum hjá vanskilamönnum og vegna undan- skots af ásettu ráði. Ef upphæðirnar nálgast á annan tug milljarða króna eða meira þá er hér um svo gífurlegt misferli að ræða að á því verður að taka með einhverjum hætti. Viö les- um um það í blöuum að marga mán- uði, stundum ár eða meira, tekur að rannsaka meint skattsvik og venju- lega flækjast svo margir í eitt einasta mál að enginn vill eða þorir að ýta á eftir rannsókn. En hvers vegna að vera að búa til þetta vandamál í skattheimtunni þegar hægt er að leysa þetta allt með einföldum hætti? Hvers vegna má Skattar á neysluvörur, þjónustu, lúx- usvörur - þá greiða allir skatta eftir efnum og ástæðum. ekki hér á landi sem viða annars staðar leggja skatta á neysluvörur - þjónustu - lúxusvörur, svo að hver greiði sinn skatt eftir efnum og ástæðum. Þar sem þetta kerfi er við lýði hefur það reynst vel og skatt- svikum verður varla við komið í þannig kerfi. Ef ekki er þörf á svona kerfi hér á landi þá hvergi. Það er einmitt vegna fámennis og náinna samskipta meðal manna, þar sem flestir þekkja hver annan, að skattsvik er hægt að stunda í svo miklum mæli sem raun- in er hér á landi. Skattalækkun og betri skattaskil er það sem lengi hef- ur verið stefnt að hér og það er engin afsökun fyrir þvi að taka ekki upp einfaldara skattkerfi og fá um leið betri og tryggari skattaskil. MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1992. Úrsögn Ragnheiðar Kristín Magnúsdóttir skrifar: Ég tel að Alþýðuflokkurinn hafi gert mjög rétt f því að kjósa nýjan aðalmann i menntamálaráð í stað þess að láta varamann, Ragnheiði Davíðsdóttur, ganga upp í sæti aðalmanns. Það er nú einu sinni þannig aö þeir sem vilja gefa kost á sér í starf með sfjómmálaflokk- um verða að geta unnið í sam- ræmi við vilja meirihluta flokks- manna. Annað gengur hreinlega ekki í stjómmálastarfi. - Hafi við- komandl ekki þann félagslega þroska verður hann a.m.k. að víkja sæti í trúnaðarstöðum. Búið var aö ákveða að leggja bókaút- gáfu Menningarsjóðs niður og þaö veröur ekki aifturkallað héð- an af. Hagvirki Klettur velkomið Gunnar hringdi: Ég met kjark og bjartsýni Jó- hanns, forstjóra Hagvirkis, sem kom fram í sjónvarpsfréttum sl. miövikudag. Hann vill enn freista þess að byggja hér ódýrari íbúðir en S.S. Byggir. Við hér á svæðinu bjóðum fyrirtækið Hagvirki Klett velkomið hingað norður. Þaö er rétt þjá Jóhanni; okkur veitir ekkert af meiri umsvifum hér, og þó kannski á byggingasviðinu umiram allt annað. Mér finnst það afar dularfullt að taka hærra tilboði eftir að lánastofnun neitar fyrirgreiðslu við það fyrirtæki sem lægra býð- ur í verkið. Aðgangurað ÁTVR-gðgnum Stefán Sigurðsson hringdi: Fyrirtækið Sproti hf. gerir at- hugasemdir við útboðsgögn vegna sölu á framleiðslutækjum og vöruheitum ÁTVR. Hefur m.a. verið farið fram á að endurskoð- andi fái aðgang að upplýsingum um rekstur ÁTVR vegna kostn- aðar og afkomumats á þeim rekstrarvörum sem selja skal. Ekki hefur veriö birt svar for- stjóra ÁTVR varöandi þessa beiöni Sprota hf. en í viðtali við forstjóra ÁTVR i útvarpsfrétt fánnst mér svörin væru í eins konar kansellistíl. Það er kannski ekki óeðlilegt. - Ríkisfyrirtækið ÁTVR er ekki í takt viö breytta tíma og breytta viöskiptahætti. Hverjireru láglaunafólk? Halldór Ólafsson skrifar: i Þjóðarsálina hringdu nýlega nokkrir aðilar sem ræddu mennt- unarmálin. Þeir voru ekki með framhaldsmenntun af neinu tagi og voru sárir yfir þvf að mennta- menn skuli ekki greiða eins kon- ar gjald sem hinir hafa orðið aö bera í sköttum sínum sem m.a. fara til menntamála. Stjórnandi þáttarins spurði hvort menn vildu hafa hér ómenntað fólk í láglaunastörfum. Góð spurning. En ég spyr: Hveij- ir eru láglaunafólk? Það eru ekki endilega þeir sem ekki hafa menntunina. Sjómenn eru t.d. ekki almennt langskólagengnir, en hafa meiri tekjur en flestir menntamenn hér á landi. Mennt- un og há laun fara sjaldnast sam- an hér. Ofháar fánastangir E.M. hringdi: Víða eru fánastangár utan dyra úr samrænú við það sem viðtekin regla segir til um. Aðeins eitt dæmi: Fyrir utan Hótel ísland eru fánastangir sem eru alltof háar, og eru a.m.k. 7-8 sinnum fána- breiddir á hæö. - Lengdin skal vera 5 sinnum breidd fánans. Flöggin á stöngunum voru einnig áberandi óhrein Þaö er vanvirða aö fara ekki eftir regl- um um notkun þjóðfánans.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.