Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1993, Blaðsíða 24
■n%M¥ííMcítí#ii)áSííSÍ®/!i§93.
«*32
Merming______________________________________________________________________________pv
Sigfús Bjartmars.
Zombíljóð
Þetta er mikill ljóðaflokkur, 74 tölusett ljóð
í sjö bálkum. Hann hefst á orðinu „0g“,
þannig hefjast flest erindin framan af, svo
lesandinn er óðar staddur í miðjum klíðum.
Bókmenntir
Örn Ólafsson
Upphafið einkennist af langsóttum líkingum,
helst virðist mér það að skilja sem vetrar-
mynd. Mælanda finnst myrkt umhverfið
snúa baki við honum, glórulaus hríðin
minnir á augnhvítu.
1
Og drífur
blinda hvítuna yfir
óseðjandi fleirtölu
og tómhyggjan magur
biti en sér þó
um sína
Og breið bök
myrkranna tómlát
og sætlega brothætt
upplitin blönk
eins og blóm
Þetta er forboði sköpunarsögunnar sem
hefst í 6. ljóði; mælandi býr til Zombí. En það
enska orð táknar uppvakning, viljalaust og
mállaust vinnudýr. Héðan af er ljóðabálkur-
inn tal mælanda við þessa veru, og má furðu
gegna hve háspekilegt það tal oft er við slík-
an heilaleysingja. En á hinn bóginn má segja
að skiljanlega láti mælandi sér annt um upp-
eldi þessa sköpunarverks síns, varar hann
t.d. við naflaskoðun í 16. ljóði og segir: „stak-
hyggja sófistanna/ er í rauninni ekki hugsun/
heldur eðh“ o.fl. heimspekifræðsla eða lífs-
skoðunar er í þeim dúr. Síðan fræðir hann
Zombí um heiminn. Nánar til tekið birtist
hér heimsmynd ungs, menntaðs íslendings
nú á dögum. Sú heimsmynd er eins og að
líkum lætur ekki skipuleg, heldur brota-
kennd, stokkið úr einu í annað. Hér bregður
m.a. fyrir Óöni, poppsöngvara, bandarískum
kvikmyndum og íslensku landslagi til sjávar
og sveita. Einnig er tekinn fyrir margs konar
hugsunarháttur. En jafnan túlkar mælandi
hvaðeina af kaldhæðni og bölsýni. Víða er
orðalag sem lýtur að dauða, einnig er mikið
um shtið og útþvælt glys, ekki síst það sem
hrifið hefur, svo sem poppgoð sem var eins
konar táknmynd lífsmáttar 1968 (31) eða
helgidómar t.d.: „einnota aht saman/ eins og
ljósþyrnikórónan/ bihega áðan manstu/ á
bensínstöðinni" (38).
Af öhu þessu virðist eðhlegt að álykta að
Zombí sé ávarpaður sem fuhtrúi lesenda.
Form
Nokkuð er um vísanir í bókmenntaverk,
t.d. í kvæði Jónasar Hahgrímssonar (4), Jó-
hanns Sigmjónssonar (9), fyrstu bók Thors
Vhhjálmssonar (21). Sérkennhegast er að sjá
Sigfús vísa th síðustu bókar sjálfs sín (Mýrar-
englarnir faha), því Zombí er með „mýrarhta
vængi“ (7). Einnig ber nokkuð á mótsögnum,
t.d. segir að löngu sé fuhreynt að „aht/ þarf
að falsa af innsæi/ ástúð og umhyggju/ ef það
á nokkumtíma eftir/ aö reynast satt“ (2, auð-
kennt af E. Ó.), ennfremur má telja: umbrota-
kyrrð (3), ærandi kyrrðin, fleirtala ein-
tölunnar, marglyndi einlyndisins (aht í 11).
Hvortveggja gera þessi atriði heimsmyndina
víðfeðma, en jafnframt gera mótsagnirnar
og langsóttar líkingar hana framandi. Stund-
um verða þessar sérkennhegu líkingar m.a.
th að tengja í knöppu formi gamalkunn atr-
iði úr íslenskri sveitamenningu við samtíð
okkar, t.d. í sköpun Zombí (6), einnig um-
myndast bókaskápar og verða að kafaldshríð
úti á melum: „skefur/ í skafl og fonn/ -alsnjóa
bráðum/ af folnuðum síðunum." Ljósaskipt-
um er líkt við sjávarföh, og í framhaldi eru
sundurleitar líkingar um vonir, því veldur
tvíræöni lýsingarorðanna helberar og blá-
berar. Annars vegar getur þetta verið mynd-
ræn lýsing á lífverum, en hins vegar eru
þessi lýsingarorð oft höfð um lygi (5):
[...]
í mjúku aöfalli ljósa
útfalli rökkurs sígildra
vonanna eflaust og í morinu
bíða þær helberar híma þær
bláberar hníga þær og rísa
og löðrið lyngrautt
þangið tunglsvart og
athvarf hinna önduðu
ókomið af hafi.
ÖU þessi samþjöppun gerir ljóðabálkinn
stundum torskihnn en jafhframt magnaðan.
Upphafið er samþjappaðast, en II og III er
miklu aðgenghegra, síðan gengur á ýmsu.
Ég mæh eindregið með þessari bók, ekki
bara við ljóðvini, heldur aUa þá sem hug
hafa á að lesa eitthvaö nýstárlegt, öðruvísi
en það sem þeir gerþekkja fyrir.
Sigfús Bjartmars:
Zombíljóðin.
Bjartur 1992, 101 bls.
Smáauglýsingar - Sími 632700 Þverholti 11
JS hreingerningaþjónusta.
Alm. hreingemingar, teppa- og gólf-
hreinsun fyrir heimili og fyrirtæki.
Vönduð þjón. Gerum föst verðtilboð.
Sigurlaug og Jóhann, sími 624506.
■ Skemmtanir
Hinn góðkunni breski töframaður, The
Mighty Gareth, er tilbúinn til að
skemmta landanum með gríni, glensi,
töfrabrögðum og fleiru. Sama hvert
tilefnið er, staðurinn eða áhorfenda-
fjöldinn, The Mighty Gareth ábyrgist
að allir muni skemmta sér vel.
Tilvalinn á árshátíðimar og þorra-
blótin. Nánari uppl. í s. 91-685959.
Diskótekið Dísa, s. 654455 (Óskar,
Brynhildur) og 673000 (Magnús). Bók-
anir standa yfir. Vinsælustu kvöldin
er fljót að fyllast. Tökum þátt í undir-
búningi skemmtana ef óskað er. Okk-
ar þjónustugæði þekkja allir.
Diskótekið Dísa, leiðandi frá 1976.
■ Bókhald
Bókhalds- og skattaþjónusta.
Tek að mér bókhald og skattframtöl
fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Vönduð og ömgg vinna.
Sigurður Kristinsson bókhaldsstofa,
Klapparstíg 26, sími 91-624256.
Öll bókhalds- og skattaþjónusta.
Bókhaldsstofan, Snorrabraut 54,
Sigurður Sigurðarson,
vinnnusími 91-624739.
■ Þjónusta
Körfubílaleiga. Ný, betri og ódýrari
körfubílaleiga. Leigjum út góða
körfubíla á sanngjörnu verði. Uppl. í
síma 985-33573 eða 91-654030.
Raflagnir, viðgerðir, dyrasímaþjónusta,
tölvu- og símalagnir.
Haukur og Ólafur hf„ rafverktakar,
sími 91-674506
Snjómokstur. Tökum að okkur allan
almennan snjómokstur. Öryrkjar og
aldraðir fá 15% afslátt. Upplýsingar í
sími 91-641459 og 985-24557.
Verktak hf„ s. 68*21 «21.•
Steypuviðg. - múrverk - alm. smíðav.
- lekaviðg. - blikkvinna. Ath. Verktak
er meðlimur í viðgerðadeild MVB.
1-2 smiðir geta bætt við sig verkefnum.
Vönduð vinna. Tilboð eða tímavinna.
Uppl. í síma 91-72356 eftir kl. 15.
■ Ökukennsla
Ökukennarafélag íslands auglýsir:
Hallfríður Stefánsdóttir, Nissan
Sunny SLX, s. 681349, bílas. 985-20366.
Jóhann G. Guðjónsson, Galant
GLSi ’91, s. 17384, bílas. 985-27801.
Gunnar Sigurðsson, Lancer GLX
’91, sími 77686.
Guðbrandur Bogason, Toyota
Carina E ’92. Bifhjólakennsla.
Sími 76722, bílas. 985-21422.
Snorri Bjarnason, Corolla 1600 GLi
LB ’93, s. 74975, bílas. 985-21451.
•Ath. Páll Andrésson. Sími 79506.
Ökukennsla/bifhjólakennsla.
Ný Primera/Ný bifhjól.
Engin bið, kenni allan daginn.
Aðstoð við endurnýjun.
Visa/Euro. Símar 79506 og 985-31560.
Reyki ekki.
Ath. Eggert Þorkelsson, nýr BMW 518i.
Kenni á nýjan BMW 518i, lána náms-
bækur. Kenni allan daginn og haga
kennslunni í samræmi við vinnutíma
nemenda. Greiðslukjör. Visa/Euro.
Símar 985-34744, 653808 og 654250.
Gylfi K. Sigurðsson. Nissan Primera.
Kenni allan daginn. Engin bið.
Ökuskóli. Öll prófgögn. Einnig ensk
og dönsk kennslugögn. Visa/Euro. Hs.
689898, vs. 985-20002, boðs. 984-55565.
Ath. Magnús Helgason, ökukennsla,
bifhjólapróf, kenni á nýjan BMW 518i
’93. Ökuskóli og öll prófgögn ef óskað
er. Visa/Euro. Bílas. 985-20006,687666.
Gylfi Guðjónsson kennir á Subaru
Legacy sedan 4WD, öruggur í vetrar-
akstur. Tímar samkomulag. Öku-
skóli/prófg. Vs. 985-20042/hs. 666442.
Jón Haukur Edwald.
Kenni allan daginn á Mazda 323f
GLXi ’92, ökuskóli, öll kennslugögn.
Visa/Euro. Sími 985-34606 og 91-31710.
Kristján Sigurðsson. Ný Corolla ’92,
kenni alla daga, engin bið, aðstoð við
endurnýjun. Bók lánuð. Greiðslukjör.
Visa/Euro. S. 24158 og 985-25226.
Sverrir Björnsson. Kenni á Galant 2000
GLSi ’92 hlaðbak, hjálpa til við end-
urnýjunarpróf, útvega öll prófgögn.
Engin bið. S. 91-72940 og 985-24449.
Ökukennsla Ævars Friðrikssonar.
Kenni allan daginn á Mazda 626 GLX.
Útvega prófgögn. Hjálpa við endur-
tökupr. Éngin bið. S. 72493/985-20929.
■ Innrömmun
• Rammamiðstöðin, Sigtúni 10, Rvk.
Nýtt úrval sýrufrí karton, margir lit-
ir, ál- og trélistar, tugir gerða. Smellu-,
ál- og trérammar, margar st. Plaköt.
Málverk e. Atla Má. Isl. grafik. Opið
frá 9-18 og laug. frá 10-14. S. 25054.
■ Til bygginga
Húsbyggjandi/húseigandi.
Þarftu að byggja nýtt, breyta eða
laga? Timburhús eru okkar sérgrein,
gömul eða ný (við endurbyggðum
gamla Kennaraskólann). Timburhús
hf„ sími 91-42814 eftir kl. 18.
Vetrarútsala. Dagana 12.-22. jan. gef-
um við 30-50% afslátt af vinnupöllum,
stigum, loftastoðum og vélum. Pallar
hf„ Dalvör 24, Kóp„ sími 641020.
Ódýrt þakjárn. Framleiðum þakjám
eftir máli, galvaniserað, hvítt og rautt.
Timbur og stál hf„ Smiðjuvegi 11,
sími 91-45544.
■ Parket
Parketslípun. Slípum og lökkum allar
tegundir viðargólfa. Gerum tilboð þér
að kostnaðarlausu. Upplýsingar í
síma 91-26699.
■ Dulspeki - heilun
Miðilsfundir. Miðillinn Lesley James
starfar á vegum félagsins frá 18. jan.
Uppl. um einkafundi í síma 91-688704.
Silfurkrossinn.
■ Veisluþjónusta
• Listacafé. Tökum að okkur veislur
fyrir árshátíðir, fermingar og erfi-
drykkjur. Snittur, kaffihlaðborð, kalt
borð. Góð þjónusta. Listacafé, Engja-
teigi 19, sími 91-684255.
■ Verslun
Vélsleðakerrur - jeppakerrur.
Eigum á lager vandaðar og sterkar
stálkerrur með sturtum. Burðargeta
800-2.200 kg, 6 strigalaga dekk.
Yfirbyggðar vélsleðakermr. Allar
gerðir af kerrum, vögnum og dráttar-
beislum. Veljum íslenskt.
Opið alla laugard. Víkurvagnar,
Dalbrekku 24, s. 91-43911/45270.
smáskór
Barnaskóútsala. Mikil lækkun, kulda-
skór, spariskór, inniskór. Smáskór,
Skólavörðustíg 6b, s. 622812.
■ Vinnuvélar
Traktorsgrafa til sölu. CASE 580 G,
árg. ’85, 4x4, vél í góðu lagi. Skoðuð
fyrir ’93. Vs. 985-32850, hs. 91-79846.
■ SendibQar
Mazda E 2200, disil, 4x4, árg. ’88 til
sölu. Mælir, talstöð og sími geta fylgt.
Einnig sæti fyrir 11 manns. Hlutabréf
+ akstursleyfi á N.S. Sími 91-45228.
á næsta sðlustafi • Askriftarslmi 63-27-00
■ Bílar til sölu
BMW 520i, árg. ’89, til sölu, ekinn 45
þús. km, sjálfskiptur, rafmagn í rúðum
o.fl. Skipti athugandi á ódýrari.
Til sýnis og sölu í Bílahöllinni,
Bíldshöfða 5, sími 91-674949.
■ Jeppar
Ford Bronco Custom, árg. ’81, einn
öflugasti jeppi landsins, 44" dekk, no
spin læsingar aftan og framan, breytt
hlutföll, aukatankur, vél 351, ekin 40
þús. km. Allur nýyfirfarinn, skoðaður
’93, talstöð og góðar stereogræjur.
Þennan stoppar ekkert. Staðgrverð
1.450. þús„ gerið tilboð. Uppl. á bíla-
sölunni Bílagalleríi, Dugguvogi 12,
þar sem bílarnir seljast. Sími 812299.
■ Ymislegt
Kjarabót heimilanna
991313
Hringdu og sparaðu þúsundir
•Spænskur veitingastaður býður 50%
afsl. af mat. *30% afsl. af einkatímum
hjá vönduðum málaskóla. »20% afsl.
af ættfræðinámsk. *30% afsl. afvönd-
uðum stereo-ferðatækjum. Uppl. í s.
99-13-13. Mínútugjald er kr. 39.90.