Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 23.04.1994, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994 15 Úr ráðherrastóli í Seðlabanka: Tómas Árnason, Birgir ísleifur Gunnarsson, Jón Sigurðsson og Steingrímur Hermannsson. í greipum flokkanna Síðustu dagana hafa landsmenn reynt að átta sig á margbrotnum uppákomum í Seðlabankareví- unni, þessari nýjustu. Sum atriði í því dapurlega stykki hafa að vísu veriö öllum augljós. Annað er hins vegar enn huhð leyndarhjúp baktjaldamakksins og því einkum efni í getsakir og tilgát- ur manna á meðal. Það hefur auðvitað ekki farið fram hjá neinum að Steingrímur Hermannsson, formaður Fram- sóknarflokksins, tekur innan skamms við störfum sem banka- stjóri við Seðlabankann. Þar sest hann í það sæti sem annar gamall framsóknarráðherra, Tómas Áma- son, varð að víkja úr fyrir aldurs sakir fyrir skömmu. Þetta er sum sé gamh FramsóknarflókksstóUinn í Seðlabankanum. Steingrímur tekur sæti við hlið- ina á Birgi ísleifi Gunnarssyni, fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokks- ins. Birgir hefur sum sé setið um árabil í Sjálfstæðisflokksstólnum í Seðlabankanum. Þriðji bankastjórinn kemur hins vegar að þessu sinni úr röðum starfsmanna bankans. Kannski til að reyna að slá eitthvað á almenna óánægju almennings með póUtíska úthlutun bankastjóraembætta. Kannski vegna þess að enginn bita- stæður eða ásættanlegur krati fannst í embættið. Sjónarspil stjómmálamanna Það kom auðvitað engum á óvart að Steingrímur yrði fyrir valinu. Öðru nær. Það hefur verið á vitorði almenn- ings mánuðum saman að forystu- menn stjómmálaflokkanna væru búnir að semja um þessa niður- stöðu. AlUr vissu þess vegna fyrir- fram, áður en staðan var auglýst opinberlega, að Sighvatur myndi skipa Steingrím í embættið. Þrátt fyrir þetta var sett á svið mikið sjónarspil. Staðan var aug- lýst með pompi og prakt og við- skiptaráðherra lét líta út fyrir að ekkert væri fyrirfram ákveðið. Margir hæfir menn sóttu um emb- ættið, þótt þeir gerðu sér vafalaust fuUa grein fyrir því í hjarta sínu að um póUtískt sjónarspU væri að ræða. Enda hafði bankaráð Seðla- bankans ekki einu sinni lokið við að greiða leynflega atkvæði um umsækjendur þegar sumir þeirra fengu um það skUaboð frá ráðu- neytinu að starfið væri öðrum ætl- að. Og viðskiptaráðherra afhenti svo Steingrími Hermannssyni snarlega skipunarbréfið. ForvitnUegt er að velta því fyrir sér hvers vegna stjórnmálamenn telja sig knúna tíl að búa tU slíka revíu. Þeim virðist óskaplega mikið í mun að þykjast vera að gera eitt- hvað allt annað en þeir eru í reynd að bardúsa. Endurtekið efni Þessi revía núna er nefnUega síð- ur en svo einsdæmi. Þannig hafa ráðherrar, einkum úr Alþýðuflokki, sett nákvæmlega sams konar sjónarspU á svið hvað eftir annað síðustu misserin. Nýlegt dæmi er auðvitað ráðning Jóns Sigurðssonar sem Seðla- bankastjóra fyrir um ári. Þá vissu alUr aö staðan var frátekin fyrir þennan fyrrverandi krataráð- herra. En hliðstæð revía og nú var sett á sviö til að reyna að fela póli- tíska ráðningu í embættið. Enn annað dæmi er ráðning þing- manns Alþýðuflokksins sem for- stjóra Tryggingastofnunar ríkis- ins. Þótt öUum væri það ljóst mán- uðum áður en staðan var auglýst að embættið væri ætlað KarU Steinari Guðnasyni reyndi heU- brigðis- og tryggingaráðherra aö láta Uta út fyrir að ekkert hefði verið ákveðið fyrirfram. Margir hæfir menn sóttu um þennan forstjórastól sem reyndar hefur verið eyrnamerktur krötum í áratugi. Og Karl Steinar fékk auð- vitaö hnossið. Hvað annað? Laugardags- pistOl Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri Elliheimili stjórnmálamanna Þessi síendurtekni blekkingar- leikur bendir auðvitað til þess aö sumir stjórnmálamenn að minnsta kosti skammist sín hálft í hvoru fyrir þær pólitísku embættisveit- ingar sem enn gegnsýra íslenskt stjómkerfi. Annars hlytu flokkamir að ganga hreint til verks og skipa ráðherra sína og þingmenn í feitu forstjóra- embættin án þessarar sýndar- mennsku. Þannig er því reyndar enn háttað í utanríkisþjónustunni sem hefur gengum tíðina veriö vinsælt elU- heimiU fyrir stjómmálaforingja. Fjölmargir ráðherrar og þingmenn þeirra flokka sem mestu hafa ráðið um stjórn landsins frá þvi íslend- ingar fengu fuUveldi hafa endað starfsævi sína í sendiherraembætt- um austan hafs og vestan. Um slík vinnubrögð virðast flestir flokk- anna reyndar hafa haft náið, þegj- andi samkomulag. í eina tíð hét slíkt pólitísk samtrygging. Og þessi ósiður er síður en svo aflagður; síöast í fyrra var einn af ráðhermm Alþýðuflokksins dubb- aður upp sem sendiherra. Enginn eðlismunur Stjómmálaflokkar hafa það meg- inmarkmið nú um stundir að kom- ast tíl valda. Og síðan að njóta vald- anna á meðan gefur. Um þetta snú- ast stjómmál öðm fremur í nútím- anum. StefnumáUn em yfirleitt aukaatriði, ekki síst fyrir kosning- ar. Enda em ýmsir víst famir aö lagfæra kúrsinn í samræmi við nið- urstöður skoðanakannana að am- erískum sið. Um langt árabU var gengið út frá því sem vísu í íslensku stjórnmála- flokkunum að ef og þegar þeirra flokkur kæmist til valda væri það sjálfsagður hluti af „ránsfengnum" að koma „sínum mönnum" í opin- ber embætti. Margir hafa haldið því fram að á þessu hafi orðið veruleg breyting hin síðari ár. Þessu tíl staðfestingar er meðal annars bent á að minna sé um þaö nú en áður að stjóm- málamenn fái stöður bankastjóra hjá ríkisbönkunum (öðrum en Seðlabankanum). Einnig að minna sé um að starfsmenn þeirra opin- beru stofnana, sem stjórnmála- flokkarnir telja mikUvægar hags- munum sínum, séu ráðnir flokks- pólitískt. Þegar grannt er skoðað virðist þessi breyting þó vera meira í orði en á borði. Það má vafalaust segja að um stigsmun sé að ræða miðað við það ástand sem ríkti fyrir tíl dæmis tveimur eða þremur áratug- um. En breytingin er ekki svo gagnger að hægt sé að tala um eðUsmun. Stjórnmálaflokkarnir gína enn yfir þeim valdastöðum í hinu opinbera kerfi sem flokksgæðingar hafa sér- stakan áhuga fyrir. Svo einfalt er það mál. Hins vegar má færa rök fyrir því að stjórnmálaflokkamir hafi minni ítök en áður utan opinbera kerfis- ins. Aukið frelsi Aukið frelsi í viðskiptum alls konar, þar á meðal í bankarekstri, hefur losað um þau miklu tök sem stjórnmálamenn höfðu á öllu at- hafnalífi í landinu. Ekki er langt síðan pólitískir skömmtunarstjór- ar fjármagnsins gátu skipt sköpum fyrir líf eða dauða fyrirtækja. Þótt póhtísk áhrif á streymi fjármagns- ins séu enn mikil í íslensku þjóðfé- lagi þá hefur aukið frelsi og sam- keppni losað mjög um þessi gömlu bönd. Sama hefur reyndar gerst í fjöl- miðlun. Ekki eru margir áratugir síðan íslensku blöðin voru að meira eða minna leyti málpípur stjórnmálaflokka eða fylkinga inn- an þeirra, auk þess sem flokkspóli- tískir sendimenn höfðu ríkisút- varpíð í hendi sér. Þá var ekki óal- gengt að stjómmálamenn tækju viðtöl við sjálfa sig - það er skrif- uðu bæði spumingamar og svörin. Þeirra var valdið. Þetta hefur vissulega gjörbreyst síðustu einn til tvo áratugina. Nú um stundir eru stærstu fjölmiðl- amir í reynd sjálfstæðar stofnanir, óháðarstjórnmálaflokkum. Stjórn- endur þeirra leggja metnað sinn í að þjóna sem best hagsmunum les- enda, hlustenda og áhorfenda. Ekki er laust viö að sumir stjórn- málamenn virðist á stundum sakna „gömlu, góðu daganna" þegar flokksforingjar réðu algjörlega umfjöllun um stjómmál, skrifuðu viðtöl við sjálfa sig og þurftu aldrei að óttast að sagt væri frá mistökum þeirra nema þá í skammargreinum póhtískra andstæðinga. Vafalaust er skýringin á slíkum sökknuði sú að það reynir miklu meira á stjómmálamenn að þurfa sífellt að svara óþægilegum spum- ingum og sannfæra almenning með rökum um réttmæti gerða sinna. En þannig á það auðvitað að vera í þjóðfélagi þar sem lýðræði og frelsi er raunverulegt - en ekki í fjötrum flokksviðja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.