Alþýðublaðið - 03.06.1967, Blaðsíða 9
SÍÐUSTU fjórir netabátarnir tóku
upp net sín núna rétt fyrir mán
I aðamót. Það voru Haukur 22. 5.
og fékk samtals 358.650 kg., Vík-
ingur 22. 5. með 341.530 kg., Að-
albjörg 30. 5. með 191.620 kg. og
síðast, en ekki sízt, Helga II. 30.
5. og fékk alls 793.520 kg., sem
er mesti afli báts miðað við út-
haldstíma, en hann byrjaði ekki
veiðar fyrr en 17. marz. Skip-
stjóri er kunnur netakóngur, Ár
mann Friðriksson.
Nokkrir minni bátanna eru á
handfærum og hafa aflað vel. Val-
ur landaði um 10 tonnum 1. 6.
og sama dag voru Ásbjörg með
tæp 7 tonn og Þórir með 12—13
tonn. Einnig hafa trillur aflað
vel. Humarveiðar eru tiltölulega
nýbyrjaðar og hafa tveir bátar,
sem gerðir eru héðan út orðið vel
varir. T. d. fékk Hafnarberg tæpt
tonn af slitnum humar í fyrsta
róðrinum eftir tveggja daga úti_
vist. Þá landaði Þórarinn Olafs-
son um 700 kg., einnig af slitnum
humar. Nokkrir bátanna eru á
trolli, en ástæðulaust er að birta
fréttir af þeim, því fólk les um
þá jafnvel daglega í sambandi við
landhelgisbrot. Síldarbátarnir eru
nú óðum að tínast austur. Verðið
á síld í bræðslu má teljast gott,
miðið við ástæður, og héldu marg
ir, að það yrði enn lægra. Skyn
samari hluti síldarsjómanna er yf-
irleitt allánægður, en í öllum
stéttum eru menn, sem aldrei er
hægt að gera ánægða og berja
höfðinu við steininn gegn öllum
skynsamlegum rökum. Einn bát-
ur a. m. k. tók ís og salt og
ætlar að reyna að gera túr til
Þýzkalands. Hann og Gísli Árni
fóru í slíkan leiðangur í janúar
s. 1. og gerðu mjög góða túra.
Verðið úti mun samt vera eitt-
hvað lægra núna.
Árangur af veiðum með þorska
nót gaf auma útkomu að ekki sé
iiii t iiiii ii n ■■ mi iii mnii ii ■■ i n 11111111'n iii m imi iii ■■111111111111 ■■
nar
eins voru berir veggir og nak-
ið steingólf. Engin teppi né
neitt annað til að skýla sér
með. Þær skulfu af kulda á
nóttunni á gólfinu, en þó var
svo þröngt og margt um mann-
inn, að ekki var unnt að hreyfa
sig án þess að vekja þann, sem
næstur lá. Til þess að ná í
vatn þurftu fangarnir að klífa
kletta og var því lítið eftir af
skóm margra eftir nokkra daga.
Fæðið var aðeins brauðmatur.
Salerni voru engin, og þegar
konurnar þurftu að ganga örna
sinna, slógu þær hring um-
hverfis staðinn, til þess að a)l-
ir hermennirnir og karlmenn
irnir, sem þarna voru nálægt
sæju ekki til þeirra.
meira sagt. Má öruggt telja, að
útgerðarmenn og sjómenn fari að
gefa línuveiðum meira auga, þeg
ar loðnuvertíðinni lýkur næsta vet
ur og mundi það að minnsta kosti
tryggja meiri atvinnu í landi.
Togararnir.
Þorkell Máni lagði af stað á-
leiðis til Reykjavíkur frá Austur-
Grænlandi á hádegi á fimmtudag
með fullar lestar. Þá voru Hall-
veig Fróðadóttir og Jón Þorláks-
son komin með ca. 150 tonn hvor,
en urðu að hætta veiðum, því ís
var kominn yfir veiðisvæðið. —
Einnig er vitað. að Maí var á
sömu slóðum og einnig Víkingur
og var hann búinn að fá góðan
afla. Karlsefni seldi í Englandi
í vikunni fyrir 11.880 sterlings.
pund og var hann ekki nema 15
daga í túrnum frá því að hann
fór á veiðar og þar til að hann
kom að utan til Reykjavíkur. Sur-
price og Marz seldu í Englandi
á fimmtudag fyrir rúm 13.000
sterlingspund. Þá landaði Ingólf-
ur Arnarson í Reykjavik í vik-
unni 275 tonnum af blönduðum
fiski.
Afli togaranna hefur, eins og
sjá má, verið mjög góður undan-
farið og svo ég taki eins til orða
og sérfræðingar Morgunblaðsins,
þegar þeir geta um góðan afla
togaranna, þá telja þeir einung-
is upp togara Tryggva Ófeigsson-
ar, þá hafa togarar B. Ú. R ekki
farið varhluta af því fiskiríi held
ur. Mest hefur aflazt af þorski á
A-Grænlandi, sem aðallega hefur
farið í herzlu. Til dæmis um
afla togaranna, þá hefur Þormóð-
ur Goði komið þrisvar sneisafull-
ur á tæpum tveim mánuðum, 412
tonn, 443 tonn og nú er verið að
landa úr honum ca. 400 tonnum.
Sennilega fer þetta hálf í taug_
arnar á þeim, sem vilja leggja
Bæjarútgerðina niður. Skipstjóri
á Þormóði er ungur maður, Magn
ús Ingólfsson, og er lítið gefinn
fyrir fréttamenn blaða og sjón-
varps, því hann neitaði þeim al-
gerlega um viðtöl, en ég er nokk
uð viss um, að sumir aðrir hefðu
þegið slíkt með þökkum.
Ekki kæmi mér á óvart, að
útkoman á togurunum yrði betri
núna í ár en mörg undanfarin
Fiskiríið hefur verið betra, og
þegar þeir hafa selt aflann er-
lendis hafa sölurnar margar hverj
ar verið afbragðsgóðar.
Um daginn sendu nokkrir tog-
araskipstjórar Hampiðjunni tón-
inn, og má slíkt merkilegt telj-
ast. Hef ég fyrir satt, að a. m. k.
einn þeirra hafi aldrei notað net
frá henni. Þeir voru ekki margir
togaraskipstjórarnir á stríðsárun-
um, sem vildu koma henni fyrir
kattarnef. Það væri líka einkenni
legt fyrirkomulag að leggja aldrei
orð í belg meðan dugmiklir at-
hafnamenn byggja upp iðnfyrir-
tæki, sem kostar milljónir kr.,
en loksins þegar verksmiðjan er
orðin samkeppnisfær, þá eiga 19
menn að ráða örlögum hennar.
Eins og geta má nærri, sparast
einnig töluverður gjaldeyrir með
þessu innlenda fyrirtæki, og ef
þessir 19-menningar reynast hafa
■ rangt fyrir sór, þá ætti að refsa
■ þeim með því að taka ekki gilda
reikninga vegna úttektar á veið-
arfærum erlendis.
Pétur Axel Jónsson.
H and avinnusýning
nemenda Húsmæðraskóla Reykjavíkur verð-
ur opin laugardag 3. júní frá kl. 2—10 og
sunnudag 4. júní frá kl. 10—10 s.d.
SKÓLASTJÓRI.
TIL LEIGU
er aðstaða til reksturs matstofu í húsnæði Sjó-
mannastofunnar, Vík Keflavík.
Allar upplýsingar gefa Hörður Hallsson sími
2107 og Jóhannes G. Jóhannesson, sími 1579
Keflavík.
Sjómannadagsráð Keflavíkur
og Njarðvíkur.
Fornmunir óskast
Gamlar byssur, olíulampar, gömul húsgögn,
tréskurður, gamalt postulín og glervörur, hvað
eina, sem er 50 ára eða eldra.
Svör óskast send Alþýðublaðinu merkt 800.
Byggingasamvinnufélag vélstjóra.
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
Byggingasamvinnufélags vélstjóra verður hald
inn að Bárugötu 11, mánudaginn 5. júní kl.
20.30.
Áríðandi að félagsmenn mæti. t
STJÓRNIN.
TERYLENE
CRÉPBLÚSSUR
í telpna- og kvenstærðum.
HÚS EIGENDUR
Tökum að okkur að annast frágang lóða, svo
sem gangstéttalögn, hellur eða steypu. Kant-
steinslögn og steypu, j'arðvegsskipti, frá-
rennslislagnir og malbikun með útleggjara og
vibrovaltara.
Vönduð vinna á vægu verði. — Leitið tækni-
legra upplýsinga og tilboða í síma 36454 —
milli kl. 13 og 18,30.
Heimasímar: 37824 — 37757 — 41290.
HLAÐPRÝÐI HF.
3. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ $