Dagur - 01.04.1980, Blaðsíða 5

Dagur - 01.04.1980, Blaðsíða 5
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri Ritstjórnarsímar: 24166 og 23207 Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167 Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON Blaöamaöur: ÁSKELL ÞÓRISSON Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf. Vetraríþrótta- miðstöðin í Hlíðarfjalli I Hlíðarfjalli ofan Akureyrar er nú ein besta aðstaðan sem völ er á hér á landi til iðkunar skíðaíþrótt- arinnar. Fjallið sjálft býður upp á gífurlega möguleika og veðráttan er oftast ákjósanleg. En það sem gerir gæfumuninn eru mannvirkin sem reist hafa verið í fjallinu á undanförnum árum og áratugum. Þar er að finna fullkomnustu skíðalyftu landsins og eina raun- verulega skíðahótelið með nauð- synlegri aðstöðu fyrir almenning. Það mikla starf sem unnið hefur verið í Hlíðarfjalli í þágu þessarar almenningsíþróttar er til sóma og í langan tíma hefur Akureyri verið sannkölluð skíðaparadís. Ekki aðeins fyrir heimamenn — heldur líka fyrir þúsundir annarra lands- manna. í Hlíðarfjalli er ákjósanleg aðstaða til hverskyns útivistar — og allt er þetta aðeins steinsnar frá bænum. Nú í Dimbilviku flykkist fólk til dvalar um páskana og eru t.d. fólksflutningarnir milli Akureyrar og Reykjavíkur ffyrir og eftir páska að þessu sinni svipaðir og allan desembermánuð í fyrra. Meðal þeirra gesta sem heimsækja Ak- ureyri um páskana eru keppendur á skíðalandsmóti. Akureyringar munu kappkosta að veita öllum þessum gestum sínum sem besta þjónustu. Það má ekki gleymast að sífellt þarf að huga að frekari uppbygg- ingu og endurbótum í Hlíðarfjalli. Bæjarfélagið og jafnvel fyrirtæki í bænum ættu að sjá sér hag í því að gera veg Akureyrar sem vetr- aríþróttamiðstöðvar sem mestan og hlúa að þessari starfsemi og styrkja hana eftir bestu getu. Það er staðreynd sem ekki verður á móti mælt að kyrrsetu- mönnum er hreyfing nauðsynleg. Ef þeir stunda t.d. skíðaíþróttina eða fara í fjallgöngur eru þeir að minnka líkurnar á ýmsum sjúk- dómum, sem gjarnan herja á nú- tímafólk. Ef til vill ættu opinberir aðilar, í samráði við forráðamenn íþróttahreyfingarinnar, að hefja enn eina áróðursherferðina og hvetja fólk til að notfæra sér enn frekar staði eins og Hlíðarfjall. Fyrirbyggjandi aðgerðir hafa oft reynst happadrýgstar, en því mið- ur er skilningur á því tæpast næg- ur meðal þeirra, sem fara með fjármál almennings. A þingum U.M.S.E. er tilkynnt um kjör íþróttamanns félagsins og einnig er veittur hinn svokallaði Félagsmálabikar, sem Ungmennasamband Skagafjarðar gaf U.M.S.E. á 50 ára afmœli þess. Hann er veittur því félagi sem talið er að hafi staðið sig best í almennum félagsmálum á liðnu ári. Að lokum er það Sjóvábikarinn sem er veittur því félagi sem er með flest stig samanlagt úr öllum mótum á vegum sambandsins á undan- gengnu starfsári. Það var Hólmfríður Erlingsdóttir sem var kjörinn íþróttamaður U.M.S.E. 1979. Jóhannes sagði í ávarpi er hann flutti þegar úrslit voru kunngerð að Hólmfríður væri vel að viðurkenningunni komin; hún vœri búin að keppa fyrir U.M.S.E. í nokkur ár og ávallt verið í fremstu röð íþróttakvenna á landinu. Ungmennafélagið Reynir á Árskógsströnd hlaut bœði Félagsmálabikarinn og Sjóvábikarinn. Starf Reynis stóð með miklum blómaás. I. ári og sagði Jóhannes að það vœri athyglisvert aðallt fólkið á svœði Reynis stœði sem klettur bak við félagið. Fundargestir á tröppum Þelamerkurskóla. Myndin er tekin seinni þingdaginn. Mynd: á.þ. anna við íþróttahreyfinguna í landinu. Hlutverk U.M.S.E. er fyrst og fremst að sjá um alla sameiginlega starfsemi félaganna og þar ber hæst ýmiskonar móta- hald. Skrifstofan, sem er opin eftir hádegi tvisvar í viku, hefur annast margvíslega þjónustu. Það er líka hlutverk stjórnar U.M.S.E. að fylgjast með starfi ungmenna- félaganna á svæðinu og grípa inní ef okkur finnst að eitthvert félag- ið sé að heltast úr lestinni. — Góð aðstaða til að halda mót og œfa hlýtur að vera ein aðalund- irstaðan fyrir velgengni ung- mennafélaga. Hvað er um þau mál að segja á svœði U. M. S. E. ? — Ég vildi fyrst taka fyrir fé- lagslega þáttinn, en þar erum við vel sett. Það eru líklega félags- heimili í öllum sveitarfélögum á svæðinu og því vel búið að þeim þætti. En þá komum við að íþróttaaðstöðunni. Á sambands- svæðinu er eitt íþróttahús. Það er á Dalvík og er ekki af fullri stærð — að auki er það fullnýtt af Dal- víkingum. Þegar við höfum kvartað við sveitarstjórnir hafa þær oft bent á að stutt sé til Ak- ureyrar. Staðreyndin er hinsvegar sú, að íþróttahúsin þar eru svo ásetin að illmögulegt er að fá tíma. Blaklið U.M.S.E. til dæmis hefur þurft m.a. æfa í miðnætur- tímum í íþróttahúsi á Akureyri! Ef við snúum okkur að íþrótta- völlum er ástandið mun betra. Við höfum nokkra ágæta knatt- spymuvelli og góða frjálsíþrótta- aðstöðu í Árskógi, en enn vantar fyrsta flokks keppnisvöll í frjáls- um íþróttum. Við viljum ekki vera með of mikinn barlóm, en það er orðið mjög mikilvægt að fá íþróttahús á svæðið. — Hverning gengur ung- mennafélögunum að laða til sín nýja meðlimi? — Það er svolítið misjafnt eftir félögum, en á þessum vettvangi megum við ekki sofna á verðin- um. Ef unglingarnir koma ekki inn á aldrinum 14-16 ára er hætl við að þeir taki aldrei þátt í starfi síns ungmennafélags. Það er mis- (Framhald á bls. 6). UNGMENNAFELÖGIN: POTTURINN OG PANNAN í ÞVI SEM GERIST Á FELAGSMALASVIÐINU f SVEITUNUM Þegar mars var um það bil að Ijúka hélt U.M.S.E. 59. árs- þing sitt í Þelamerkurskóla í Hörgárdal. Um 60 manns mættu til þingsins og fjölluðu þar um ýmis mál — m.a. um landsmót ungmennafélaganna sem ráðgert er að halda á Ak- ureyri sumarið 1981. Starf ungmennafélaganna er mjög fjölþætt. í hinum fámennari sveitarfélögum eru þau pott- urinn og pannan í hverju því sem gerist á félagsmálasviðinu og gegna víða mikilvægu hlut- verki í uppeldislegu tilliti. Ein- hver sagði að starf búnaðar- samtaka við Eyjafjörð væri ekki eins gróskumikið og raun ber vitni, ef félagarnir hefðu ekki alist upp í ungmennafé- lögunum. AIIs eru það 13 ung- mennafélög sem mynda U.M.S.E., en félagssvæðið er Eyjafjarðarsýsla að Akureyri undanskilinni. Svalbarðs- strönd telst einnig til umráða- svæðis U.M.S.E. Skráðir fé- lagar eru nú um 1200, en fé- lagsgjöld greiða um 950. FÉLAGSMÁLASKÓLI SVEITANNA Á umræddu ársþingi var Jóhannes Geir Sigurgeirsson var endurkjörinn formaður U.M.S.E. og er hann því að hefja sitt þriðja ár sem formaður. Blaðam. DAGS hitti Jóhannes skömmu eftir þingið og var hann í upphafi inntur eftir helstu málum, sem það tók til meðferðar. — Það var fyrst og fremst undirbúningur fyrir landsmótið, en ef við lítum á nánustu framtíð þá er það helst að halda uppi öflugu fjáröflunarstarfi. Þar verða ungmennafélagar að halda vökunni því fé til reksturs er eilíft vandamál. Samkvæmt þingssam- þykktum verður mikið um að vera í sumar. Mót verða að vísu með hefðbundnum hætti i frjáls- um íþróttum og knattspyrnu. Einnig verður keppt í sundi og handknattleik á að gera betri skil en gert hefur verið. Starf ung- mennafélaganna á sumrin er orðið ákaflega viðamikið: Sem dæmi má nefna að s.l. sumar féll ekki úr sú vika að sambandið stæði ekki fyrir móti einhvers- staðar. — Þegar starfið er orðið jafn unfangsmikið eins og reyndin er með U.M.S.E. — er ekki nauð- synlegt að hafa fastan starfsmann? — Jú, U.M.S.E. var braut- ryðjandi í því að hafa ráðinn framkvæmdastjóra og það hefur aldrei fallið niður. En fjárhags- ástæður undanfarinna ára hafa gert það að verkum að starfið er ekki fullt. S.l. ár t.d. var starfið reiknað frá 'A og upp í Vt starf. Hitt er svo aftur annað mál að þáverandi starfsmaður hafði í huga verkefnin sem lágu fyrir, en Trillukarl skrifar vini sínum opið bréf . . Akureyri 1980 3003 Kœri vinur. Ég skrifa þér þessar línur eigin- lega til aðvörunar. Ég frétti að þú værir tilvonandi trillueigandi á þessum, frá náttúrunnar hendi, besta smábátastað á íslandi. Eins og þú kannski veist, keypti ég mér trillubát. Þar með hafði 25 ára draumur ræst. Jæja, til Akureyrar kom báturinn í haust. Viðlegupláss var ekkert að fá, svo að ég batt bátinn við bryggjuna neðan við slippinn. Ég hafði frétt á skotspónum að fyrir lægi teikning af viðleguplássum fyrir smábáta út í Bót, sem kallað er, og þar yrði jafnvel hafist handa á því herrans ári 1980. Ég tók síðan bátinn upp á land og fór að ditta að honum skrapaði hann og málaði frá masturstopp niður í kjöl. Og nú er vorið að koma og jafn- framt því, löngunin til þess að setja bátinn á flot. En þá byrja ljónin að birtast á veginum. Hvar á að hafa bátinn þegar hann hefur verið sjó- settur? I vandræðum mínum fór ég til hafnarstjóra, sem tók mér með alúð ogkurteisi, en því miður sagði hann eru engin viðlegupláss laus og engrar stækkunar von á næstunni og þó nokkrir á biðlista. Það eina sem hann getur gert er að leyfa mér að fylgjast með því ef pláss losna, og ekki meira um það. En nú langaði mig til að kynnast viðhorfum hafnarnefndar í málinu, svo að ég hringdi í einn af hafnar- nefndarmönnum og spurði hann álits. Af því samtali skildist mér að þeir hafi ekki áhuga fyrir óarðbær- um framkvæmdum. Það er að segja, að tekjur af viðleguplássun- um eru litlar sem engar, sem dæmi um má nefna að leiga af viðlegu- plássi árið 1978 var kr. 4000, 1979 kr. 15.000 og 1980 kr. 30. þús. (Hundaskattur er 30. þús.) Setjum svo að leiga af viðleguplássi væri 100. þús þá yrðu tekjur af þessu 15-20 milljónir króna árlega. Sá sem ég talaði við sagði einnig, að sumir virtust eiga erfitt með að borga þessar krónur. Samt taldi hann að einu framkvæmdirnar sem að dýpka og endurbæta fyrir þá sem þegar hafa lægi, en ekiki að fjölga plássum, svo að þeir sem á hrakhólum eru fái einhversstaðar afdrep. Sem sagt, með þessu virðist eiga að stöðva fjölgun smábáta á sama tíma og bæjaryfirvöld ætla að fylla hluta af höfninni til að mæta ört vaxandi fjölgun bíla. Jæja,.svo mörg voru þau orð, þetta v.erður ekki lengra núna, en ég skal lofa þér að fylgjast með framvindu mála. Vertu ævinlega sæll og blessaður. ^rnj yaiur Viggósson. Jóhannes og Hólmfrfður. Mynd: á.þ. ekki hvort starfið væri hálft eða heilt. — Hvað um vetrarstarf ung- mennafélaganna? — Það er gróskumikið. Félög- in keppa t.d. í bridge og skák og U.M.S.E. sér um skólamót á svæðinu. Annars má geta þess að félögin hafa stundum verið köll- uð „félagsmálaskóli sveitanna". í strjálbýlinu eru það ung- mennafélögin sem halda uppi öllu íþróttastarfi og sérstaklega í fámennari sveitarfélögum eru þau miklu meira. Þar leitast þau við að sinna félagslífi á sem breiðustum grundvelli. Á veturna má minna á að leiklistarstarf er mikilvægur þáttur í starfsemi sumra félaganna. ÆFA BLAK UM MIÐNÆTTI — Nú hefur þú gefið okkur ör- litla skilgreiningu á starfi ung- mennafélaganna. Hvað með þátt U.M.S.E. í starfi þeirra? — I upphafi má geta þess að sambandið er tengiliður félag- . . . . Forsetar þingsins voru þeir Páll Garðarsson frá Árroðanum og Gísli Pálsson, frá Ung- mennafélagi Skriðuhrepps. Gestir þingsins voru m.a. þeir Pálmi Gíslason, formaður U.M.F.Í, Sigurður Geirdal framkvœmdastjóri U.M.F.t. og frá /. S. í. voru mœttirþeir Sveinn Björnsson varaforseti og Sigurð- ur Magnússon útbreiðslustjóri. Einnig sátu landsmótsnefndar- menn þingið sem gestir............. .... Stjórn U.M.S.E. skipa nú: Jóhannes Geir Sigurgeirs- son, formaður, Vilhjálmur Björnsson, varaformaður, Þórir Snorrason, ritari, Gylfi Jónasson gjaldkeri og meðstjórnandi er Magnús Jóhannsson. í vara- stjórn eru: Árni Arnsteinsson, Ólafur Tryggvason og Klœngur Stefánsson. KA tapar 21-18 fyrir fyrir Fylki: Leikmaður nr. 8 hjá Fylki tekur blfðlega á móti Alfreð Gíslasyni. Mynd: Ketill. Hvað qerist næst Og svo vann Fylkir Þór 22-18 Á laugardaginn kepptu Fylkir og Þór, og var þar barátta botn og toppliðs. Þórsarar byrjuðu nokkuð vel og áttu ágæta leik- kafla. Þess í milli datt allt niður í meðalmennskuna, og þá gerðu Fylkismenn hvert markið á fætur öðru. Þrátt fyrir góða við- leitni Þórsara tókst þeim ekki að veita Fylkir þá keppni sem búist hafði verið við af þeim. í hálf- leik var staðan 11-8 fyrir Fylki og þegar flautað var til leiksloka var staðan 22-18 og öruggur sigur Fylkis í höfn og jafnframt sigur í annarri deild. Leika þeir því í fyrstu deild á næsta ári. Dómarar í þessum leik voru þeir sömu og hjá KA og eiga þeir mikið hrós skilið fyrir mjög góða dómgæslu. Eftir úrslit helgarinnar í handbolt- anum er staða Akureyrarfélaganna mjög misjöfn. K.A hafnaði í öðru sæti deildarinnar með 20 stig ásamt Þrótti, en Þórsarar höfnuðu í næst neðsta sæti, rétt á undan nöfnum sínum úr Vestmannaeyjum, sem falla í deild. Þórsarar verða þvi að leika aukaúrslitaleik við næst efsta lið þriðju deildar, sennilega ÍA, um veru sína í annarri deild á næsta keppnistímabili. Þeir hafa fyrr i vetur tapað fyrir lA og geta eflaust gert það aftur. Ef það gerist er það rothögg á handbolta hjá meistaraflokki fé- Fram-stúlkur unnu stöllur sínar úr Þór Á laugardaginn léku Þór og Fram í fyrstu deild kvenna í handknattleik. Framstúlkurnar sigruðu örugglega gerðu 22 mörk á móti 14 hjá Þór. t hálflcik var staðan 12-7 Fram í vil. Framstúlkurnar eru efstar í fyrstu deild kvenna, en Þór neðarlega í deildinni, en þó ekki í fallhættu. lagsins því mikill munur er á því að leika í annarri eða þriðju deild. Það er því einlæg von íþróttasíðunnar að þeir bjargi sér ýfir þennan erfiða hjalla, því liðið hefur á að skipa mjög góðum einstaklingum í íþrótt- inni, en það er eins og einhvern neista vanti í liðið. KA stendur líka í ströngu þessa daga. KA þarf að leika aukaleik við Þrótt um það hvort liðið lendir endanlega i öðru sæti deildarinnar, og fær þá jafnframt rétt til að leika við næst neðsta lið fyrstu deildar um sæti í þeirri deild næsta keppnis- timabil. Það yrði mikil lyftistöng fyrir handknattleikinn hér í bæ, að annað hvort félagið leiki í fyrstu deild og vonandi standa KA menn sig vel í þessum leikjum og flytjast upp í fyrstu deild. Þeir standa lika í ströngu á öðrum vígstöðum. Þeir eru i fjögurra liða úrslitum i bikar- keppni HSl, og eiga að leika við KR. Ef þeim tekst að vinna þann leik lenda þeir í úrslitaleik á móti Val eða Haukum. Handknattleiks- vertíðin er því ekki endanlega búin ennþá þótt farið sé að vora. Fyrstu deildar lið Þórs í hand- knattleik kvenna er einnig í fjögurra liða úrslitum bikarkeppni HSl, og eiga að leika við Ármann. Þórs- stúlkurnar eiga mikla sigurmögu- leika í þeim leik og komast því von- andi í úrslitaleikinn. Draumurinn um 1. deild úr sögunni? Það var mikið um að vera í íþróttaskemmunni á föstu- dagskvöldið. Þá voru rúm- lega sex hundruð manns mætt til að hvetja KA til sig- urs yfir Fylki í annarri deild í handbolta. KA þurfti aðeins eitt stig úr þeim leik tii að tryggja sér sigur í deildinni. Fylkismenn voru hins vegar ekki á því að gefa neitt eftir í leiknum, því ef þeir innu bæði KA og Þór yrðu þeir sigurveg- arar í deildinni. Lukkudísirnar voru KA ekki hliðhollar í þess- um leik, því KA varð að sætta sig við tap. Fylkir gerði 21 mark en KA 18. Það var KA sem gerði tvö fyrstu mörkin í leiknum og fram eftir fyrri hálfleik höfðu þeir ávallt forustu, eitt eða tvö mörk. Á 18. mín, jafna Fylkismenn 8-8. Þá kemur hins vegar góður leikkafli hjá KA og það sem eftir er hálfleiksins gera þeir fjögur mörk en Fylkir aðeins eitt, þannig að staðan í hálfleik var 12-9 KA í vil. Fyrstu mín síðari hálfleik urðu algjör martröð fyrir KA, og hefur það sennilega gert út um leikinn. Sami maður fór eins inn úr sama horni þrisvar sinn- um og skoraði þrjú eins mörk, og jafnaði 12-12. Síðan sást 13-13, 14-14, 15-15, 16-16, enþá fór að síga á ógæfuhliðina fyrir KA og Fylkir náði forustunni. Markmaður Fylkis varði líka eins og ljón og m.a. þrjú vítaköst í síðari hálfleik. Það var sama hvað reynt var síðustu mín., en ekkert heppnaðist hjá KA mönnum og voru Karl Jóhannsson og leikurinn tapaðist 21-18. Gunnlaugur Hjálmarsson og Mjög góðir dómarar leiksins dæmdu þeir mjög vel. 4.DAGUR DAGUR.5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.