Dagur - 11.12.1987, Blaðsíða 1
70. árgangur
Akureyri, föstudagur 11. desember 1987
237. tölublaö
Eining:
Lýsir áhyggjum
vegna gáma-
útflutnings
Vegna áskorunar frá starfs-
fólki Frystihúss Ú.K.E. á Dal-
vík vegna síaukins gámaút-
flutnings á óunnum fiski, hefur
stjórn Einingar gefið frá sér
ályktun þar sem m.a. er lýst
áhyggjum vegna þess ofur-
kapps, sem á sumum útgerðar-
stöðum er nú lagt við að flytja
afla fískiskipa á markað
erlendis.
í ályktuninni segir að með
þessu sé verið að flytja atvinnu
við vinnslu úr landi og atvinna í
heimahöfnum dragist því saman.
Ljóst sé að við þetta skapist
hætta á atvinnuleysi sem og á því
að fiskverkafólk leiti í auknum
mæli í önnur störf. Yrði það til
þess að þegar að því kæmi að
óhentugt þyki að selja óunninn
fisk erlendis, verði það fólk ekki
tiltækt til fiskvinnslu.
Stjórnin bendir einnig á að
fiskverkafólk tapi á þessu tekjum
og gjaldeyristekjur þjóðarinnar
minnki þó svo að fiskurinn seljist
á góðu verði. Jafnframt hljóti
það að vera dýrt að láta fiskiðju-
ver standa ónotuð.
„Stjórnin skorar því á útgerð-
araðila að taka öll þessi atriði til
gaumgæfilegrar athugunar og
væntir þess alveg sérstaklega að
þau útgerðarfyrirtæki, sem að
meira eða minna leyti eru í eigu
sveitarfélaga eða sameignarfyrir-
tækja íbúanna láti ekki glepjast af
því, sem kann að sýnast hagur í
augnablikinu en veldur margs
konar tjóni og tekjuskerðingu,
þegar til lengri tíma er litið.“
VG
dagar
til jóla
,Hvað heldurðu?“ í Sjallanum
Akureyringar og Reykvíkingar reyndu með sér í gærkvöld í spurninga-
þætti sjónvarpsins, „Hvað heldurðu?“ Þátturinn var tekinn upp í Sjall-
anum á Akureyri að viðstöddum miklum Ijölda gesta. Þátturinn verður
sýndur í sjónvarpinu næstkomandi sunnudagskvöld. A myndinni sjást
keppendur ásamt Ómari Ragnarssyni, stjórnanda. Frá vinstri: Erlingur
Sigurðarson, Guðlaug Hermannsdóttir og Sigurpall Vilhjálmsson. Lið
Reykvíkinga var skipað þeim Guðjóni Friðrikssyni, Ragnheiði Bjarna-
dóttur og Illuga Jökulssyni. Mynd: tlv
Mikið um að vera hjá þingmönnum:
Mikill taugatitringur var milli
stjórnar og stjórnarandstöðu á
Alþingi í gaer. Stjórnin er
komin í klemmu með mörg
mikilvæg mál, sem hún vill að
samþykkt verði fyrir jólin.
Stjórnarandstaðan er ekki á
þeim buxunum að hleypa þess-
um málum átakalaust í gegn og
hefur harðlega gagnrýnt verk-
stjórn þessarar ríkisstjórnar.
Mörg mál biðu afgreiðslu er
þingmenn mættu til vinnu
klukkan 10 í gær, en ríkis-
stjórnin hafði risið snemma úr
rekkju og haldið fund klukkan
7.30.
Stjórnarandstaðan hóf málþóf
strax um morguninn og komu
fulltrúar Alþýðubandalagsins,
Borgaraflokks, og Kvennalista í
Taugatitringur a Alþingi
ræðupúlt og gagnrýndu ríkis-
stjórnina fyrir að ætla að keyra í
gegn jafn mikilvæg mál og stað-
greiðslu skatta, húsnæðismálin
og tollamálin á svo skömmum
tíma. Borgaraflokkurinn var í
skæruhernaði allan daginn og var
m.a. vandamál að setja fund í
efri deild, því ekki voru nægjan-
lega margir þingmenn mættir til
að setja fund. Það tókst þó að
lokum og síðan var boðað til
kvöldfunda í báðum deildum.
„Ef stjórnarandstaðan vill gera
þjóð sinni illan leik, þá getur hún
lialdið uppi málþófi og þannig
e.t.v. komið í veg fyrir að jafn
mikilvæg mál og skattabreyting-
arnar og húsnæðismálafrumvarp-
ið nái að komast í gegn. En það
er trú mín að þeir niuni ekki flá
feitan gölt hjá þjóðinni með þeim
vinnubrögðum," sagði Árni
Gunnarsson alþingismaður í við-
tali við Dag.
Málmfríður Sigurðardóttir
alþingismaður kvað stjórnar-
andstöðuna ekki halda uppi mál-
þófi a.nt.k. ekki Kvennalistann.
Ekki væri nein samvinna á milli
stjórnarandstöðuflokkanna um
aðgerðir gegn ríkisstjórninni.
Seinagangurinn hjá ríkisstjórn-
inri væri ástæðan fyrir þessum
kvörtunum. „Þetta eru engin
vinnubrögð. Suma daga hafa
ekki legið nein mál fyrir, en nú
skömmu fyrir jól er hellt yfir okk-
ur mjög ntikilvægum málum. Það
þarf engan að undra að við séunt
óánægðar,“ sagði Málmfríður að
lokum. AP