Dagur - 22.12.1987, Síða 4
4 - DAGUR - 22. desember 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 560 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 55 KR.
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 400 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ANDRÉS PÉTURSSON
(Reykjavík vs. 91-17450, pósthólf 5452, 105 Reykjavík),
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585),
JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON (fþróttir),
PÁLL B. VALGEIRSSON (Blönduósi vs. 95-4070), STEFÁN SÆMUNDSSON,
TÓMAS LÁRUS VILBERGSSON, VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960),
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Hagsmunir aldraðra
látnir víkja fyrir pólitík
Pólitískt útspark sjálfstæðis- og alþýðuflokksmanna í
málefnum aldraðra á Akureyri verður eflaust lengi í
minnum haft. Þar kom fram að stjórnmál og löngun
meirihlutans til að hafa áhrif vega þyngra en raun-
verulegur áhugi á byggingaframkvæmdum fyrir aldr-
aða Akureyringa.
Við skulum minnast þess að upphaf íbúðabygginga
fyrir aldraða kom frá Félagi aldraðra hér í bæ. Nefnd
var skipuð í málið og skilaði hún tillögum þann 16.
janúar á síðasta ári og annar tillögubunki barst frá
henni seint sama ár. í þessum tillögum var talað um
að þessar húsbyggingar væru sameiginlegt verkefni
Akureyrarbæjar og Félags aldraðra. Þar var einnig
gert ráð fyrir að framkvæmdanefnd yrði skipuð tveim-
ur fulltrúum bæjarins og einum frá Félagi aldraðra.
Þessi framkvæmdanefnd átti að hafa yfirumsjón með
framkvæmdum við bygginguna, kynningu og sölu
íbúðanna og setti um húsin reglugerð. Snemma á
þessu ári komst hreyfing á málið en þá kom fram sam-
þykkt frá bæjarráði þar sem ráðið lýsir sig sammála
framkomnum tillögum samstarfsnefndar Akureyrar-
bæjar og Félags aldraðra um íbúðabyggingar fyrir
aldraðra. Öldrunarráði var falið að gera tillögu um tvo
menn og bæjarstjóra var falið að taka upp viðræður við
Magnús Garðarsson tæknifræðing um að hann tæki að
sér starf byggingastjóra. Hvað varðar þjónustubygg-
ingu þá er rétt að geta þess að Akureyrarbær hafði í
hyggju að byggja hana og er ekki komin nein sam-
þykkt um framvindu þess verks.
Og nú byrjar sá pólitíski dansleikur þar sem aðal-
dansarar eru Freyr Ófeigsson, Sigurður Hannesson og
Gunnar Ragnars. Öldrunarráð tilnefndi þá Stefán
Jónsson og Sigurð Hannesson og á fundi í fram-
kvæmdanefndinni var Stefán kjörinn formaður. Til
útskýringar skal þess getið að Stefán er flokksbund-
inn framsóknarmaður en Sigurður er sjálfstæðismað-
ur. Svo virðist sem sjálfstæðismaðurinn hafi dottað á
fundi þeim er formaðurinn var kjörinn og nokkur tími
leið þar til meirihluti bæjarstjórnar hafði áttað sig á að
formaðurinn var úr hópi minnihlutans. Nú voru góð
ráð dýr. Að lokum fann Freyr Ófeigsson lausnina.
Hann lagði til að framkvæmdanefndin yrði sett af,
þökkuð góð störf, og kosin harðpólitísk fimm manna
nefnd með öruggum meirihluta sjálfstæðis- og alþýðu-
flokksmanna. Svo mikið er víst að meirihlutinn var
glaðvakandi þegar sú nefnd var kosin.
Áhugi meirihlutans á málefnum aldraðra sést þó
best á því tilboði aðaldansaranna, Freys og Gunnars,
að bjóða Félagi aldraðra að hafa einn áheyrnarfulltrúa
í nefndinni — án atkvæðisréttar. Mál þetta er afar sér-
kennilegt svo ekki sé meira sagt - og allt kom það til
af því að Stefán Jónsson framsóknarmaður var kjörinn
formaður í nefnd.
Hver veit nema þeirra fóstbræðra Freys Ófeigssonar
og Gunnars Ragnars verði í framtíðinni minnst fyrir þá
sök eina að hafa látið hagsmuni aldraðra víkja fyrir
pólitík. Fljótt á litið stendur fátt annað upp úr. ÁÞ.
Alþingi starfar áfram
- Málefni íþróttasjóðs tekin fyrir í dag
Mikill kraftur var í starfsemi
Alþingis í síðustu viku. Hvorki
meira né minna en 20 mál
urðu að lögum. Þar má t.d.
nefna lög um staðgreiðslu
skatta, húsnæðismálastjórnar-
frumvarpið, lög um skatt á
verslunar- og skrifstofuhús-
næði og lög um brunavarnir.
Hins vegar náðist ekki sam-
staða milli stjórnarflokkanna
um fiskveiðistefnuna og mun
því Alþingi starfa á milli jóla
og nýárs. Þar að auki munu
þingmenn mæta til starfa strax
eftir nýár.
Merkasta frumvarpið sem orð-
ið er að lögum er að öllum líkind-
um húsnæðisfrumvarpið. Það
verður því ekkert af því að Jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmála-
ráðherra segi af sér, eins og hún
hafði hótað, ef frumvarpið yrði
ekki að lögum fyrir jól. Þetta
frumhlaup ráðherrans er kafli út
af fyrir sig í þessu stjórnarsam-
starfi. Það tíðkast önnur vinnu-
brögð í stjórn en í stjórnarand-
stöðu og að margra mati nær það
ekki nokkurri átt að einn ráð-
herra, sama hvað málefnið er
gott, stilli bæði ríkisstjórninni og
Alþingi upp við vegg og hóti að
hætta ef ekki verði orðið við
kröfum hans. Hvað myndi t.d.
gerast ef Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra myndi taka
upp sömu vinnubrögð með
fiskveiðifrumvarpið og félags-
málaráðherra hefur gert með
húsnæðismálin? Líklega yrði
þessi ríkisstjórn þá ekki mjög
langlíf.
En nóg um það. Á sunnudag-
inn reyndi ríkisstjórnin að semja
við stjórnarandstöðuna um að
flýta þingstörfum, þannig að
þingmenn kæmust í venjulegt
jólafrí. Bauð hún stjórnarand-
stöðunni að fresta umræðum um
frumvarp um verkaskiptingu rík-
is og sveitarfélaga, en það mál
hefur verið umdeilt. Þar að auki
bauðst ríkisstjórnin til að fresta
álagningu söluskatts á fisk.
Stjórnarandstaðan kom með
gagntilboð, sem fólst m.a. í því
að fella niður matarskattinn
svokallaða og fór fram á það að
ríkisstjórnin myndi ekki grípa til
neinna efnahagsráðstafana á
meðan þinghlé stæði yfir.
Ríkisstjórnin hafnaði þessu og
lýsti Þorsteinn Pálsson forsætis-
ráðherra því yfir að ekki kæmi til
greina að ríkisstjórnin afsalaði
sér framkvæmdarétti sínum.
Steingrfmur J. Sigfússon formað-
ur þingflokks Alþýðubandalags-
ins sagði að ríkisstjórnin hefði
viljað fá allt fyrir ekki neitt og
það kæmi ekki til greina. Ekki
reyndist möguleiki að ná fram
neinni málamiðlun og sjá því
þingmenn fram á það að starfa á
milli jóla og nýárs, eins og aðrir
menn. Reyndar hafa þingmenn
lýst sig fúsa til þess að starfa þá
og sagði Þorsteinn Pálsson for-
sætisráðherra í viðtali við sjón-
varpið að það væri sjálfsagt að
þeir störfuðu eins og aðrir
launþegar.
Hvað verður um
íþróttasjóð?
Ekki má gleyma því að í síðustu
viku lagði fjárveitinganefnd fram
tillögur sínar og var skýrt frá
lielstu liðum hennar i' Degi á
þriðjudaginn. Tillögur nefndar-
innar hækka fjárlögin um rúman
miljarð en samt sem áður á að
vera hægt að halda fjárlögunum
hallalausum. Mest hækkun var til
samgöngumála og fengu hafnirn-
ar drjúgan part af þeirri hækkun.
Skóla- og fræðslumál hækkuðu
einnig og nokkrir aðrir liðir
minna. Reyndar má einnig búast
við hækkun á fjárlögunum við
síðustu umræðu þeirra sem hefj-
ast í dag.
Beðið er þessarar umræðu með
nokkurri spennu vegna yfirlýs-
inga ýmissa stjórnarsinna um
fyrirvara um ýmsa liði fjárveit-
inganna. Þar má til dæmis nefna
framlög til íþróttahreyfingarinn-
ar. Framsóknarmenn hafa lýst
því yfir að framlög til þess mála-
flokks séu of lág og vilja hækkun
á þeim. Einnig hefur heyrst að
niðurfelling á framlögum til fé-
lagsheimilasjóðs hafi ekki verið
litin allt of hýru auga. Málefni
íþróttasjóðs virðast vera í dálítið
lausu lofti vegna yfirlýsingar
ríkisstjórnarinnar um að fresta
umræðum um frumvarp uni
verkaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga. Áfdrifa þess máls er nú
beðið með nokkurr! :ftirvænt-
ingu víða um land vegna mikilla
framkvæmda íþróttafélaga t.d. á
Akureyri.
Nú skuldar íþróttasjóður ríkis-
ins KA rúmar 4,4 miljónir vegna
vallarhúss og um 250 þúsund
vegna grasvajlar. Þór á inni rúm-
ar 2,8 miljónir vegna vallarhúss,
1,7 miljónir vegna grasvallar og
tæp 100 þúsund vegna handbolta-
og tennisvallar. Golfklúbbur
Akureyrar á inni rúmar 3,8 millj-
ónir vegna golfvallar og golf-
skála. Skautafélag Akureyrar á
inni rúmar 3,6 miljónir vegna
skautasvæðis. Meðal annarra
skulda má nefna framkvæmdir í
Ólafsfirði vegna malarvallar,
sundlaugar, golfvallar og skíða-
stökkbrautar. Á Húsavík má
nefna rúm 900 þúsund vegna 2.
áf. grasvallar og 2,8 miljónir
vegna íþróttahúss. Stjórnmála-
menn hafa gefið loforð fyrir því
að þessar skuldir verða greiddar
hver svo sem framtíð íþrótta-
sjóðs verður.
Fiskveiðistefnan notuð sem
vopn gegn matarskattinum
í gær hélt stjórnarandstaðan uppi
málþófi gegn fiskveiðifrumvarpi
ríkisstjórnarinnar. Skúli Alex-
andersson (Abl.), Danfríður
Skarphéðinsson (Kvl.) og Svavar
Gestsson (Abl.) töluðu öll lengi
um málið og greinilegt var á svip
Halldórs Ásgrímssonar sjávar-
útvegsráðherra að honum var
ekki skemmt. Fréttaskýrendur
telja að með því að tefja málið sé
stjórnarandstaðan að setja pressu
á ríkisstjórnina í sambandi við
söluskattsmálin. Sérstaklega er
það hinn umdeildi matarskattur
sem stjórnarandstaðan vill að
felldur verði niður. Það er vitað
mál að fiskveiðifrumvarpið fer í
gegn með einhverjum breyting-
um, en með þessari aðferð telur
stjórnarandstaðan að þeir geti
sett pressu á ríkisstjórnarsam-
vinnuna. Ástæðan er sú að
skoðanir á fiskveiðifrumvarpinu
eru margvíslegar innan stjórnar-
flokkanna þriggja. Karvel Pálma-
son (A) hefur t.d. boðað að hann
muni flytja breytingartillögur við
frumvarpið og nokkrir stjórnar-
þingmenn í neðri deild hafa ýmis-
legt við frumvarpið að athuga.
í ráði er að ljúka þinghaldi í
dag, en það fer þó eftir því hvort
efri deild nær að koma kvótanum
til neðri deildar í nótt. Þingmenn
mæta síðan til vinnu aftur mánu-
daginn 28. desember og eftir ára-
mót munu þeir mæta óvenjulega
snemma eða mánudaginn 4.
janúar. AP
HAFNARSTRÆTI96 SlMI 96-27744 AKUREYRI