Dagur - 22.12.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 22. desember 1987
Vinningstölur 19. desember
Heildarvinningsupphæð kr. 5.541.763.-
1. vinningur kr. 2.777.946.-
Skiptist á milli 6 vinningshafa kr. 462.991.- á mann.
2. vinningur kr. 830.375.-
Skiptist á milli 511 vinningshafa kr. 1.625.- á mann.
3. vinningur kr. 1.933.442,-
Skiptist á milli 10.682 vinningshafa sem fá kr. 181.- hver.
Upplýsingasími
91-685111.
m
Orðsending til jólasveina
og barna
Karíus og Baktus
fara ekki í jólafrí.
Tannverndarráð
v4,
vdum œikli «g upphai' feltttókM tótmwbc&flwafltá
„Loksins, loksins"
- Vefarinn mikli og
upphaf íslenskra
nútímabókmennta
Út er komin bókin „Loksins,
loksins“ - Vefarinn mikli og upp-
haf íslenskra nútímabókmennta
eftir Halldór Guömundsson bók-
menntafræðing. í henni er fjailað
um þróun íslenskra bókmennta
fyrsta áratuginn eftir fullveldið
1918 með sérstakri áherslu á bylt-
ingarverk þessa tímabils. Bréf til
Láru eftir Þórberg Pórðarson og
Vefarann mikla frá Kasmír eftir
Halldór Laxness. Jafnframt varp-
ar hðfundur Ijósi á nokkur helstu
viðfangsefni og þemu þess
módernisma sem ruddi sér til
rúms í evrópskum bókmenntum í
kringum aldamótin og kannar
áhrif þeirra á Halldór Laxness.
Mál og menning gefur bókina
út. Hún er 232 bls. að stærð og
prýdd mörgum myndum.
Dóphringur
í Danaveldi
Vasaútgáfan hefur gefið út skáld-
söguna Dóphringur í Danaveldi
eftir Frank Jensen. Þetta er í eðli
sínu spennusaga, sem fjallar um
æsileg eiturlyfjaviðskipti í Dan-
mörku. En það sem gerir hana
svo óvenjulega og merkilega er,
að höfundurinn Frank Jensen
starfaði um árabil í fíkniefna-
deild dönsku lögreglunnar og
öðlaðist við það þekkingu og inn-
sýn í þessi mál í hinu óhugnan-
lega eiturlyfjabæli í Kaupmanna-
höfn. Hann lýsir því vel, hvernig
Mjólkursamlag KEA
Akureyri Simi 96-21400
alþjóðlegir sölumcnn dauðans
starfa.
Einkum er vikið í sögunni að
vandamáli stórlaxanna, hvaðan
fjármagnið kemur og hvernig á
því stendur, að stórlaxarnir, fínu
mennirnir sem lifa flott á eymd
vesalinganna venjulega sleppa.
En síðast endar skáldsagan ein-
mitt á hinu æsilega og blóðuga
uppgjöri við nokkra stórlaxa.
Bókin Dóphringur í Danaveldi
er 160 bls. og skiptist niður í 32
kafla. Steingrímur Pétursson
íslenskaði en Kjartan Arnórsson
gerði kápumynd. Bókin er prent-
uð í Prentstofu G. Benediktsson-
ar.
Stjörnumerkin
og kynlífið
Höfundur þessarar bókar, Jdith
Bennett, er bandarísk en mennt-
uð bæði í Evrópu og Bandaríkj-
unum í stjörnuspeki, sálfræði og
kynlífsfræðum. I hartnær tvo ára-
tugi stundaði hún ráðgjöf og er
víðkunn í heimalandi sínu fyrir
störf sín á þessu sviði. Hún lést í
hinu hörmulega flugslysi á O.
Hare flugvelli við Chicago í upp-
hafi þessa áratugar.
í þessari bók leiðir Judith
Bennett skemmtilega saman
stjörnumerki og sálfræði með
aðaláherslu á konur.
Hún bendir ítrekað á að
stjörnumerkið sem slíkt sé síður
en svo einhlít leið til sjáfsþekk-
ingar því stjörnuspekin, eins og
sálin, sé flóknari en svo að stutt
lýsing gefi fullkomna mynd. Pví
kallar hún hvert stjörnumerki
ákveðna „Kvennalýsingu" og
beitir síðan sálfræðinni til að
túlka og víkka út þá mynd.
í lýsingu á hverju stjörnumerki
fjallar höfundurinn fyrst um pers-
ónleikann almennt, en ræðir síð-
an hliðar eins og samskipti, kyn-
hneigð og reiði. Þar beitir hún
sálfræðilegri þekkingu til að sýna
t.d. áhrif reiði á kynhneigð og
samskipti, en líka hvernig hægt
er að draga úr þeim áhrifum.
Útgefandi er Skjaldborg.
List og
lífsskoðun
Út er kominn II. flokkur í heild-
arútgáfu AB á ritverkum Sigurð-
ar Nordals. Nefnist hann List og
lífsskoðun. Þessi flokkur er í
þremur bindum eins og fyrsti
flokkurinn, Mannlýsingar, sem
kom út 1986.
List og lífsskoðun er í raun
mjög fjölbreytt safn, en í aðalat-
riðum má segja að flokkurinn hafi
að geyma skáldskap hans. Enn-
fremur margvíslegar ritgerðir frá
ýmsum tímum, sem tengjast
þessum efnum og bera kaflaheit-
in Skiptar skoðanir (ritdeila við
Einar H. Kvaran), Hugleiðingar,
Háskóli og fræði, Listir, Heil-
brigði og útivist, Endurminning-
ar.
í skáldskaparkaflanum er að
finna kvæði Sigurðar Nordals frá
ýmsum tímum, leikrit hans svo
sem Uppstigningu, hina frábæru
þýðingu á kvæði Frödings um
Atlantis, afburða smásögur eins
og Lognöldur og Síðasta fullið.
En hæst ber vafalaust ljóðaflokk-
inn Hcl, sem er bæði tímamóta-
verk í íslenskum bókmenntum og
sígiidur skáldskapur.
Heimspeki Sigurðar Nordals,
sem með jöfnum rétti má kalla
lífsspeki, birtist hér fyrst og
fremst í fyrirlestrasöfnunum Ein-
lyndi og marglyndi og Líf og
dauði. Hún er aðgengileg öllum
þorra manna. Þorsteinn Gylfason
hefur í ritgerð með Einlyndi og
marglyndi 1986 kallað hana
„manneðlisfræði", tilgangur
hennar er siðferðileg lífernislist.
Bækurnar eru samtals rúmlega
1200 bls. að stærð.