Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994
5
Fréttir
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdasljóri VSI:
Glapræði að semja um
meira en 3 prósent
hvetjum ríkisstjóm að framfylgja launastefnu er tryggi stöðugleika
„Þaö er fráleit fullyröing að Vinnu-
veitendasambandið standi í vegi fyr-
ir því aö kjarasamningar takist við
sjúkraliöa. Viö höfum ekkert með
kjarasamninga opinberra starfs-
manna aö gera. Hins vegar hvetjum
við ríkisstjórn mjög einarðlega og
hvar sem við getum því við komið
til að fylgja fram launastefnu sem
tryggi stöðugleika, lága verðbólgu og
að hér sé áfram hægt að fjölga störf-
um. Við erum ákveðið þeirrar skoð-
unar að þaö væri fullkomið glapræði
og til þess fallið að auka atvinnuleysi
og draga úr hagvexti ef til þess kæmi
að hér yrði samiö um meiri launa-
hækkanir en í löndunum í kringum
okkur. Meðallaunahækkanir í
OECD-ríkjunum 1994 eru áætlaðar í
kringum 3 prósent. í Danmörku, svo
dæmi sé tekið, eru heildarlauna-
breytingarnar í kringum 2 prósent,"
sagði Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, um þá ásökun
sjúkraliða að Vinnuveitendasam-
bandið standi í vegi fyrir því að
samningar takist við sjúkraliða.
Sjúkraliðar halda þvi fram að
vegna þess að VSÍ standi í vegi fyrir
að samningar takist ’/iö þá sé nauð-
synlegt að Þórarinn V. komi í Karp-
húsið og stjórni samningum. Hvem-
ig líst Þórarni á þetta?
„Ég myndi ekki gera það. Aftur á
móti ef fjármálaráðuneytið myndi
leita eftir því við Vinnuveitendasam-
bandið að viö tækjum að okkur gerð
kjarasamninga fyrir ríkið þá mynd-
um við skoða það mjög alvarlega,"
sagði Þórarinn V.
Þess má geta að í fréttabréfi Vinnu-
veitendasambandsins sem er að
koma út segir svo, meðal annars, um
kjaradeilu sjúkraliða.
„Þar er háð kjarabarátta í hefð-
bundnum stíl þar sem byggt er á
samanburði við aðra hópa, í þessu
tilfelli nýlega samninga hjúkrunar-
fræðinga og meinatækna. Svo virðist
sem íjármálaráðuneytið hafi haldið
ógætilega á þeim samningum og ekki
síöur stjórnir sjúkrahúsa með fram-
kvæmd þeirra. Fjármálaráðuneytið
stendur nú frammi fyrir afleiðingum
þessa samnings og getur ekki vikið
sér undan því að leggja spilin á borð
ið og gera opinberlega grein fyrir
innihaldi þeirra. Það er jafnframt
deginum ljósara að sjúkraliðar eru
einungis fyrstir í röð fjölda stéttarfé-
laga opinberra starfsmanna sem
krefjast munu svipaöra hækkana og
haldið er fram að samið hafi verið
um við hjúkrunarfræöinga. Það er
jafn ljóst að einangruð mistök geta
ekki verið grundvöllur annarra
kjarasamninga. Hafi veriö gerð mis-
tök í gerð kjarasamninga við hjúkr-
unarfræðinga eða útfærslu þeirra á
ríkisstjórnin engan kost annan en
að leiðrétta þau, því þau mega aldrei
verða grundvöllur að nýrri verð-
bólgu holskeflu..
Ámi Finnsson, fulltrúi Greenpeace:
Almenningsálit á
hvalveiðum óbreytt
í Bandaríkjunum
„Magnúsi er nokkur vorkunn að
hrærast í þessum heimi hægri öfga-
manna í Bandaríkjunum. Ég held að
þeim sé skemmt þegar þeir fá þennan
mann frá íslandi. Það er atvinna
hans að rægja og rakka niður um-
hverfissamtök. Heima reynir hann
svo að vekja á sér athygli. í honum
blundar sjálfsagt draumur um að
verða hetja,“ segir Árni Finnsson,
fulltrúi umhverfisverndarsamtak-
anna Greenpeace.
í viðtali við DV í gær lýsti Magnús
Guðmundsson hvalveiðisinni því yf-
ir að almenningsálitið í Bandaríkj-
unum væri að snúast íslendingum í
hag hvað varðar hvalveiðar. í því
sambandi bendir hann á að fjölmenn
borgarasamtök, Alliance of America,
hafi lýst yfir stuðningi við íslendinga
í kjölfar fyrirlesturs sem hann flutti
í Bandaríkjunum í sumar. Þá hafi
hópur þingmanna mótmælt stefnu
stjórnvalda í hvalamálum eftir að
hafa hlýtt á fyrirlestur Magnúsar og
séð myndir hans.
Að sögn Árna fer því fjarri að al-
menningur og stjórnmálamenn í
Bandaríkjunum aðhyllist hvalveiðar
í auknum mæh. Á hinn bóginn sé
skiljanlegt að Magnús skynji hlutina
þannig því að á feröum sínum um
Bandaríkin hafl hann einkum setið
fundi hægri öfgasamtaka. Það eigi
meöal annars við Alliance of Amer-
ica, sem Árni segir regnhlífasamötk
hægri öfgamanna og eigi ekkert skylt
viö bandaríska verkalýðshreyfingu.
„í ljósi þess að Magnús hrærist í
þessum heimi er ekki undarlegt að
hann haldi að Bandaríkjamenn séu
að snúast á sveif með hvalveiðum.
Hins vegar er það þannig að það
hlustar enginn á þessa öfgamenn,"
segir Árni.
Ami vísar á bug þeirri fullyrðingu
Magnúsar að Greenpeace eða aðrir
umhverfisverndarsinnar hyggi á
herferð gegn íslendingum eða ís-
lenskum útflutningsafurðum. Þvert
á móti sé mikill áhugi á því af hálfu
Greenpeace að vinna 'með öllum
þeim sem styðja umhverfisvernd.
„Reyndar teljum við að íslensk
stjórnvöld hafi gegnt ákveðnu for-
ystuhlutverki í samfélagi þjóðanna
hvað umhverfisvernd varðar. Og við
geram ráö fyrir að ísland muni virða
alþjóðlegar samþykktir um hval-
veiðibann meðan það er við lýði.“
Kvöldverðartilboð
25/11 - 1/12
k
Ofnbakaður sjávarréttasnúður með gljáð-
um paprikustrimlum og humarrjómasósu
•k
Rósasteiktur lambavöðvi í gráðaostahjúpi
með rauðbeðu, eplasalati og hvítlauks-
ristuðu succhi
•k
Bláberjafrauð
með ferskum jarðarberjum og sykurslöri
Kr. 1.950
Opið i hádeginu mánud.-föstud.
Opið á kvöldin miðvikud.-sunnud.
Nýr spennandi a la carte matseðill
Borðapantanir í síma 88 99 67
Reylqanesbrautm:
Tvær milljomr bfla arið 1993
Ægir Mar Kárason, DV, Sudumesjum:
Það er mikill akstur á Reykjanes-
braut. Árið 1993 fóra aö meðaltali
4963 bílar á dag um brautina sam-
kvæmt mælingum sem gerð var við
Strandarheiðina af Vegagerð ríkis-
ins. Yfir sumartímann fóra 5939
bflar á dag um brautina en 4040
yflr vetrarmánuðina.
Metdagur síðasta árs var 29. ág-
úst en þá fóru 6948 bílar og allt
áriö í fyrra fóru tæplega tvær millj-
ónir bíla um Reykjanesbrautina.
NYTSAMAR
Vasadiskó
með útvarpi.
Ferðatæki
með kassettu.
Svart/Rautt/Hvítt.
RCR3261
Utvarps
klukka
TAD170
Geisla-
spilari
með
fjarstýringu
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI68 90 90 • OPIÐ LAUG. 10-16 - SUN. 13-16
íx-?-U