Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.1995, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 51 Afmæli Magnus Bergsteinsson Magnús Bergsteinsson húsasmíða- meistari, Skaftahlíð 42, Reykjavik, eráttræöurídag. Starfsferill Magnús er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp í foreldrahúsum á Spít- alastíg 8. Hann lauk barnaskóla- námi í Miðbæjarskólanum, prófi frá Iönskólanum í Reykjavík og sveins- prófi 1935 en fékk meistararéttindi 1943. Síöan starfaði Magnús sem at- vinnurekandi í Reykjavík og víöar. Hann hætti sjálfstæðum atvinnu- rekstri 1978 en hóf þá störf hjá Há- skóla íslands og varð byggingastjóri Háskólans. Fjölskylda Eiginkona Magnúsar er Elín Svava Sigurðardóttir, f. 7.8.1920, húsmóðir. Foreldrar hennar voru Sigurður Halldórsson, verkstjóri hjá Reykjavíkurborg, og Marólína Guðrún Erlendsdóttir, húsmóðir. Böm Magnúsar og Elínar: Óskírð- urdrengur, f. 7.11.1939, d. 18.1.1940; Bergsteinn Ragnar, f. 31.3.1941, byggingameistari í Svíþjóð, kona hans er Else M.E. Magnússon, Berg- steinn Ragnar á fjögur börn af fyrra hjónabandi; Marólína Arnheiður, f. 24.7.1942, verslunarmaður, gift Boga Sigurðssyni vélvirkja, þau eiga tvö börn; Ragnhildur, f. 29.12. 1947, gift Ásgeiri Sveinssyni, vél- stjóra, þau eiga fjögur börn; Magnús Svavar, f. 6.1.1954, húsasmiður, sambýliskona hans er Kolbrún Birgisdóttir, Magnús Svavar áþrjú börn, Kolbrún á þrjú börn; Margrét Halla, f. 9.12.1954, verkstjóri, sam- býlismaður hennar er Hafsteinn Kristjánsson verkstjóri. Sonur Magnúsar fyrir hjónaband er Ragn- arBergsteinn, f. 11.9.1937;búsettur í Noregi. Barnabamabörn Magnús- ar og Elínar eru átta. Systkini Magnúsar: Arnheiður, f. 3.4.1902, látin, var gift Franz Páli Þorlákssyni, látinn, skipstjóra, þau eignuðust sjö börn; Jón, f. 30.6.1903, byggingameistari, fyrri kona hans var Marta Guðnadóttir, látin, þau eignuðust fjögur börn, seinni kona hans er Svanbjörg Halldórsdóttir; Jóhannes Ragnar, f. 3.1.1912, múrarameistari, var kvæntur Dýr- leifu Hermannsdóttur, látin, þau eignuðust fjögur börn; Þórir Högni, f. 2.8.1917, látinn, múrarameistari, var kvæntur Þuríði Sigmundsdótt- ur, látin, þau eignuðust þrjú börn; Gunnar Kristinn, f. 29.8.1923, for- stjóri Landhelgisgæslunnar, kvænt- ur Brynju Þórarinsdóttur, þau eiga ijögurbörn. Foreldrar Magnúsar voru Berg- steinn Jóhannesson, f. 6.1.1875, d. 21.5.1940, múrarameistari í Reykja- vík, og Ragnhildur Magnúsdóttir, f. Magnús Bergsteinsson. 20.11.1879, d. 29.12.1935, húsmóðir. Magnús er nú staddur í Svíþjóð þar sem hann dvelur á Fogdögaten 1,25371, Rydebáck. Stefán G. Karlsson Stefán Geir Karlsson, skipatækni- fræðingur og myndlistarmaður, Austurströnd 12, Seltjarnarnesi, verður fimmtugur á morgun. Starfsferill Stefán er fæddur á Fáskrúðsfirði en flutti fjögurra ára til Keflavíkur og ólst þar upp. Hann lauk gagn- fræðaprófi 1962 og lærði plötu- og ketilsmíði í Iðnskólanum í Keflavík og lauk sveinsprófi. Stefán stundaði síðan nám í Tækniskóla íslands og Helsingor Teknikum í Danmörku og lauk þaðan prófi í skipatækni 1973. Hann fékk meistarabréf í plötu- og ketilsmíði fimm árum seinna. Að loknu námi stundaði Stefán kennslu við Iðnskóla Suðurnesja, síðar Fjölbrautaskóla Suðurnesja, og Tækniskóla íslands og jafnframt þýðingu kennslubóka fyrir Iðn- fræðsluráð. Hann var teiknistofu- stjóri í Skipasmíðastöðinni Stálvík hf. í Garðabæ 1980-85 og hefur síðan starfað á tæknideild Sighngamála- stofununar ríkisins. Stefán tók þátt í samsýningum FÍM1979-81 úr hópi leikmanna og hefur þrisvar haldiö einkasýningar á málverkum og skúlptúrum. Skúlptúr hans, stærsta herðatré í heimi, var skráð í Heimsmetabók Guinness 1989 og sótt hefur veriö um skrásetningu annars skúlptúrs hans, stærstu blokkflautu í heimi, í þessa sömu bók. Stefán á sæti í stjórn SGI-ísland og er einn af stofn- endum samtaka stríösbarna á ís- landi. Fjölskylda Stefán kvæntist 1.1.1969 Magneu Reinaldsdóttur, f. 25.4.1945, þroska- þjálfa hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar. Foreldrar hennar: Reinaldo Rivera, f. 15.10. 1918, pósthússtjóri og kaupsýslu- maður, og Guðbjörg Grímsdóttir, d. 1973, húsmóðir. Dætur Stefáns og Magneu: Helena Guörún, f. 16.1.1967, BA í frönsku, gift Nikulási P. Blin, líffræöingi, þau eiga tvö börn, Nikulás Stefán, f. 15.9. 1987, og Kolfmnu, f. 31.10.1990; Ilm- ur María, f. 2.3.1969, nemi í textíÞ defid MHÍ, unnusti hennar er Valur Freyr Einarsson, leiklistarnemi. Systkini Stefáns: María, f. 20.10. 1940, ekkja, og á hún þrjú börn; Jón Pétur, f. 7.10.1942, látinn, dóttir hans er Inga Lilja; Kristinn, f. 10.10.1947, kvæntur Sólveigu Guðmundsdótt- ur, þau eiga þrjú börn. Foreldrar Stefáns: Karl Kr. Jóns- son, f. 8.9.1902, húsgagnasmíða- meistari og síðar kaupmaöur, bú- settur á Grund, og Ingibjörg Sigur- björnsdóttir, f. 18.10.1912, látin. Stefán og Magnea munu halda upp á fimmtugsafmæli sín í vor. Til hamingju með afmælið 15. janúar 85 ára Nanna Einarsdóttir, Hjallaseli 55, Reykjavík. 80 ára Hjálmar Finnsson, Vesturbrún 38, Reykjavík. EinarL. Nielsen vélfneðingur (á afmæli 16.1), Hagamel 38, ; Reykjavík. Kona hans er Svanhildur Jó- hannesdóttir. í>au taka á móti gestum í Odd- feilow-húsinu sunnudaginn 15.janúar frá kl. 16-18. 50 ára 75 ára Brynjólfur Jönsson, Borg, Reykhólalireppi, 70 ára Guðrún Ingibrektsdóttir, Strandgötu 9, Hvammstanga. Anna Eyjólfsdóttir, Merkigeröí 12, Akranesi. Anna dónsdóttir, Stóru-Þverá, Eljótahreppi. Gíslína Jónsdóttir, Sævangi 13, Hafnarflröi. Sígriður Þórðardóttir, Duggufiöru 4, Akureyri. Þröstur Jónsson, Brekkubæ 36, Reykiavík. Hrafnhildur Hámundardóttir, Engjaseli 52, Reykjavík. 40 ára 60 ára Guðrún Gunnarsdóttir, Lyngholti 5, Keflavik. Guðrún Eriendsdóttir, Hliðarvegi 49, Kópavogi. Garðar Karlsson, Vesturgötu 53b, Reykjavík. Anton Helgi Jónsson, Sjaftiargötu 10, Reykjavík. Jón Pálmi Ðavíðsson sölumaður, Hæöargari Ub, Reykjavík. Hann er aö heiman. Kristinn Bjarnason, Reykjavegi 58, Mosfellsbæ. Valgerður Hrólfsdóttir Valgerður Hrólfsdóttir kennari, Grenilundi 5, Akureyri, verður fimmtug á morgun. Starfsferill Valgerður er fædd í Reykjavík og ólst þar upp í Laugarneshverfmu. Hún gekk í Laugamesskóla en á sumrin dvaldi Valgerður í Bolung- arvík hjá móðursystur sinni, Elísa- betu Hjaltadóttur, konu Einars Guðfinnssonar útgerðarmanns. Valgerður lauk verslunarskólaprófi 1964 og kennaraprófi frá Kennara- skólanum 1967. Valgerður var kennari við Árbæj- arskóla 1967-76 en flutti þá til Akur- eyrar og kenndi þar til 1979. Hún fór þá til Svíþjóðar en þar var eiginmað- ur hennar í sérnámi í læknisfræði. Eftir sex ár kom Valgerður aftur til Akureyrar og kenndi þar við Lund- arskóla. Síðustu tvö árin hefur hún verið starfsmaður á Fræðsluskrif- stofu Norðurlands eystra. Valgerður hefur tekið virkan þátt í félagsmálum og verið form. full- trúaráðs Sjálfstæðisflokksins, setið í ýmsum nefndum og verið 1. vara- bæjarfulltrúi fyrir Akureyrarbæ. Hún á sæti í sóknarnefnd Akur- eyrarkirkju. Fjölskylda Valgerður giftist 12.8.1972 Kristni Elís Eyjólfssyni, f. 8.2.1946, lækni. Foreldrarhans: Eyjólfur Stefánsson og Ágústa Sigurbjörnsdóttir. Þau embæðilátin. Synir Valgerðar og Kristins: Hróflur Máni, f. 14.8.1973, nýstúdent og nú við störf í ljósmyndaverslun; Stefán Snær, f. 10.9.1977, mennta- skólanemi; Grétar Orri, f. 6.5.1980, nemi. Hálfsystir Valgerðar, sammæðra: Bima Pálsdóttir, f. 9.7.1933, ekkja Vagns Hrólfssonar frá Bolungarvík. Valgerður Hrólfsdóttir. Þau eignuðust sjö börn. Foreldrar Valgerðar: Hróflur Jónsson, f. 3.12.1910, sjómaður, bú- settur í Bolungarvík, og Margrét Hjaltadóttir, f. 30.4.1905, d. 11.5.1977, starfsstúlka á Kleppsspítala. Valgerður tekur á móti gestum í safnaðarheimih Akureyrarkirkju laugardaginn 14. janúar kl. 20. Hafdís Sigursteinsdóttir. Hafdís Sigursteinsdóttir Hafdís Sigursteinsdóttir hús- móðir, Háabergi 13, Hafnarfiröi, er fertugídag. Fjölskylda Hafdís er fædd í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hún stund- aði nám í Flensborg. Maöur Hafdísar er Theodór Óm- arsson, f. 18.8.1955, múrari. For- eldrar hans: Ómar Zóphoníasson prófdómari og Kristín Theodórs- dóttir, starfar við símavörslu. Börn Hafdísar og Theodórs: Svava Berglind, f. 26.10.1971, versl- unarmaður; Kristín Guðfinna, f. 21.9.1983; ÓmarÁgúst, f. 23.6.1987. SysturHafdísar: EmilíaL, f. 8.8. 1951; Heiðdís.f. 14.1.1955. Foreldrar Hafdísar: Sigursteinn Jónsson, f. 18.8.1931, múrarameist- ari, og Ágústína Berg Þorsteins- dóttir, f. 18.4.1929, leiðbeinandi. Þau em búsett í Hafnarfirði. Hafdís og Heiðdís, tvíburasystir hennar, taka á móti gestum eftir kl. 20 á afmælisdaginn í sal Hauka- hússins við Flatahraun í Hafnar- firði. Heiðdís Sigursteinsdóttir Heiðdís Sigursteinsdóttir húsmóðir, Efstakoti 4, Bessastaöahreppi, er fertugídag. Fjölskylda Heiðdis er fædd í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Sambýlismaður Heiðdísar er Vil- hjálmur Þórðarson, f. 26.9.1956, sendibílstjóri. Foreldrar hans; Þórð- ur Hafliðason og Guðbjörg María Gísladóttir. Börn Heiðdísar: Sigursteinn I. Þorsteinsson, f. 15.8.1972, verslun- armaður; Helma Þorsteinsdóttir, f. 12.4.1980. Sonur Vilhjálms: Andrés Magnús, f. 5.2.1982. Systur Heiðdísar: Emilía I., f. 8.8. 1951; Hafdís.f. 14.1.1955. Foreldrar Heiðdísar: Sigursteinn Jónsson, f. 18.8.1931, múrarameist- ari, og Ágústína Berg Þorsteinsdótt- Heiödis Sigursteinsdóttir. ir, f. 18.4.1929, leiðbeinandi. Þau eru búsett í Hafnarfirði. Heiðdís og Hafdís, tvíburasystir hennar, taka á móti gestum eftir kl. 20 á afmæhsdaginn í sal Haukahúss- ins við Flatahraun í Hafnarfirði. ÆTTFRÆÐINÁMSKEIÐ Ný ættfræðinámskeið byrja bráðlega (15—21 klst. grunnnámskeið; einnig námskeið úti á landi og framhaldsnámskeið). Lærið að rekja sjálf ættir ykkar og notfærið ykkur frábæra rannsóknarað- stöðu. Verðlag aldrei hagstæðara og skipta má greiðslum. Leið- beinandi Jón Valur Jensson. Ættfræðiþjónustan tekur að sér gerð ættartalna, ráðgjöf o.fl. verkefni og býður upp á vinnuaðstöðu við ættarleit. Á annað hundrað nýlegra og eldri ættfræöi- og ævi- skrórrita til sölu, m.a. Bergsætt, Briemsætt, Knudsenætt, Múrara- tal, Reykjaætt af Skeiðum, Víkingslækjarætt, Hjallbjarnarætt, Vig- urætt, Thorarensenætt, Laxdælir, Svalbarðsstrandarbók, Frá Hvanndölum til Úlfsdala (Siglf.), Önfirðingar, Ölfusingar, Keflvík- ingar, Mannlíf á Vatnsleysuströnd, nafnalyklar við manntöl 1801 og 1845 og Ættarbókin. Bóksöluskrá send ókeypis. Uppl. í s. 27100 og 22275. L "" _ Ættfræðiþjónustan, Brautarholti 4, s. 27100 CE)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.