Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Blaðsíða 16
r 16 MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995 Vísnaþáttur Þuru þref í síðasta þætti minntist ég ísleifs Gíslasonar, kaupmanns á Sauðár- króki. í fyrstu vísu þessa þáttar er á ferð gletta sem Þura í Garði sendi ísleifi: Kæmist ég í ellinni eftir glöp og skyssur undir sæng hjá ísleifi aftur fæðist Gissur. Svaraði þá ísleifur að bragði: Við sem þekkjum þínar skyssur þykir meiri von, ef þú fæðir af þér Gissur yrði hann Þorvaldsson. Maður hét Júníus Jónsson og var verkstjóri á Akureyri, vísnavinur og hagmæltur nokkuð. Um skeið var Þura í Garði nágranni Júníus- ar. Eitt sinn sendi Þura konu Jún- íusar afmæliskveðju og hljóðaði hún svo: Gegnum lífið góða ferð á gæfuvegi fínum, þú ert ekki öfundsverð af eiginmanni þínum. Júníusi rann blóðið til skyldunn- ar að þakka fyrir sig og kvað: Þú kvartar ei en kalt er það að kúra einn í næturhúmi og enginn hefði öfundað eiginmann í þínu rúmi. Eitthvert sinn kom Einar Sæ- mundsen að Garði í Mývatnssveit og kvað þá: Þá er ég kominn, Þura mín, að þín- um garði, þijátíu ár ég þráði fundinn, þó ég væri annarri bundinn. Nokkru síðar sendi Þura Einari þessar vísur: Kætir mig þú komst að sjá kvenna- og sveitarprýöi. Nú er lokið þeirri þrá og þrjátíu ára stríði. Þó ég sé fræg í minni mennt, margt hefur öfugt gengið. Sagt er aö heimti þráin þrennt, þegar eitt er fengið. Freymóður Jóhannsson málari dvaldi um skeið í Mývatnssveit. Eitt sinn kvað hann svo: Væri ég ennþá ungur sveinn, ekki skyldi ég gefa neinn snefil af mínum ástararði annarri konu en Þuru í Garði. Þessu svaraði Þura svo: Hvað er að varast, komdu þá, hvar eru lög sem banna? Ég get lifað alveg á ástum giftra manna. Þessa vísu sendi Freymóður til baka: Með þökk fyrir boðið ég sendi þér svanni samúðarkveðju frá giftum manni. Hvað lögin banna, já hvort ég þori, ég kem til þín strax á næsta vori. Þura svaraði: Þá eru kyljur þagnaðar, þá er létt um sporið, fullur heimur fagnaðar, Freymóður og voriö. Vísnaþáttur Valdimar Tómasson Næsta vor segir það að öll fögur fyrirheit voru Freymóði úr minni gengin. Þótt hann færi um hlað í Garði gerði hann ekki vart við sig. Þura kvað: Það var illt að okkar snilli og ástir beggja lentu í banni. Freymóðs er mér horfin hylli, heimurinn varð af listamanni. Eitt sinn var Þura á ferð í bíl og vildi ökumaðurinn, sem hét Krist- ján Jónatansson, véla Þuru til að kveða vísu. Kastaöi hann til hennar vísuparti þessum: Oft hafa svalað sárum þorsta súr og freðin krækiber. Þura botnaði: ■ En er þér sama hvað þau kosta og hver þau tínir handa þér? Verkamannafélagið Dagsbrún Orlofshús 1995 Umsóknareyðublöð um dvöl í orlofshúsum félagsins í sumar verða afhent á skrifstofu félagsins að Lindargötu 9 frá og með þriðjudeginum 18. april nk. Umsóknum skal skilað aftur á sama stað eigi síðar en 3. maí. Húsin eru: 2 hús í Svignaskarði, Borgarfirði 1 hús í Flókalundi, Vatnsfirði 3 íbúðir á Akureyri 2 hús á Illugastöðum, Fnjóskadal 2 hús á Einarsstöðum á Héraði 5 hús í Ölfusborgum 1 hús í Uthlíð í Biskupstungum 1 hús í Hvammi í Skorradal Þeir sem ekki hafa fengið sumarhús sl. fimm ár hafa for- gang með úthlutun. Vikuleigan er kr. 7.000 nema í Hvammi, kr. 10.000. Verkamannafélagið Dagsbrún Matgæðingur vikunnar Sesambrauð og ofnbakaður fiskur Steinunn Magnúsdóttir, líffræð- ingur og húsmóðir í Reykjavík, hefur ekki keypt brauð í tvö ár. „Það margborgar sig að baka brauðin sjálfur," segir Steinunn. Hún bakar stóran skammt í einu, lágmark 6 brauð og allt upp í 12. Mjölið kaupir hún í stórum pakkn- ingum, 40 kfióa sekkjum. „Ég sker brauðið þegar það er orðið kalt og set inn í frysti. Svo tökum við brauðsneiðarnar jafnóð- um út,“ greinir Steinunn frá. Hún býður lesendum DV upp á eina af brauðtegundum sínum og miðast uppskriftin við þrjú brauð. Stein- unn býður jafnframt upp á ofnbak- aðan fisk. Sesambrauð 14 dl hveiti 2 dl rúgmjöl 2 dl hefihveiti 2 dl grahamsmjöl 2 dl sesamfræ 2 msk. gróft salt 1 dl olía 2 dl súrmjólk 8 dl vatn 100 g ger Vatnið hitað og súrmjólk blandað saman við, hitinn má ekki fara upp fyrir 37 gráður. Ef notað er pressu- ger er það leyst upp í vökvanum en ef þurrger er notað er það sett Steinunn Magnúsdóttir. saman við mjöliö. Olíu, salti, ses- amfræi, rúgmjöli, heilhveiti og gra- hamsmjöh blandað saman við vök- vann. Hveitiö hnoðað smátt og smátt út í. Látið lyfta sér í um það bil 50 mínútúr. Hnoðað aftur og skipt í þrennt. Steinunn setur deigið í þrjú jóla- kökuform en bendir á að einnig megi setja það beint á bökunar- plötu. Deigið látið lyfta sér aftur og nú í 20 til 30 mínútur. Sesamfræi stráð yfir. Bakað við 175 gráður í um það bil 35 mínútur. Ofnbakaöur fiskur Meðalstórt ýsuflak salt og pipar 2 msk. smjör 1/2 laukur 1 meðalstór paprika 100 g svepprn 1 dl fisksoð, vatn eða mysa 2 msk. maisenamjöl 1 tsk. kínversk soja 150 g rjómaostur salt 1 dl rifinn ostur Ýsuflakið roðflett og saltað og pipr- að. Sett inn í 175 stiga heitan ofn með álpappír yfir í 10 tfi 15 mínút- ur. Smjörið brætt, paprika og lauk- ur sett út í og látið krauma. Fisk- soðinu eða vatninu bætt út í og maisenamjöli þegar suðan kemur upp. Soja, salt og ijómaostur sett út í. Sósunni hellt yfir fiskinn og rifna ostinum stráð yfir. Bakað viö 210 gráður í um 15 mínútur. Borið fram með soðnum kartöflum eða hrísgrjónum og fersku grænmeti. Steinunn skorar á Láru Maríu Theódórsdóttur á Tjörn, skammt frá Höfn í Homafirði, að vera næsti matgæðingur. „Lára er mikil áhugamanneskja um alla matar- gerð.“ Eftir helgina má fá uppskriftina í Simatorgi DV. Símanúmerið er 99 17 00. Hinhliðin Rússneskar bíó- myndir í uppáhaldi - segir Elísabet Brekkan, ritstjóri bamaefnis RÚV Elísabet Brekkan er ritstjóri bamaefnis hjá Ríkisútvarpinu en böm um allt land fylgjast vel með öllu því sem fram fer þar. Að sögn Elísabetar fær hún mikinn fiölda bréfa þegar getraunir og þrautir eru lesnar en börn á landsbyggð- inni eru þó heldur duglegri að senda inn en börnin á höfuðborgar- svæðinu. Um páskana verður ýmislegt skemmtilegt á dagskrá hjá Elísabetu, meðal annars veröur hinn vinsæli þáttur Frost og funi á dagskrá á páskadag. Það er Elísa- bet sem sýnir hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafn: Elísabet Brekkan. Fæðingardagur og ár: 19. apríl 1955. Maki: Þorvaldur Friðriksson. Börn: Estrid, 17 ára, Brendan, 12 ára, og Patrik, 11 ára. Bifreið: Lada station, árgerð 1993. Starf: Ritstjóri barnaefnis RÚV, stundakennari í Háskóla islands og Námsflokkunum. Laun: Konulaun opinberra starfs- manna. Áhugamál: Leiklist, sérstaklega bamaleiklist, bókmenntir og póli- tík. Hefur þú unnið i happdrætti eða lottói? Já, ég hef þrisvar sinnum unnið um 500 krónur í lottóinu og það heldur mér við efhiö. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Gera eitthvað skapandi sem maður sér árangur af fljótlega. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Leita að reikningum. Uppáhaldsmatur: Lifur finnst mér oföoðslega góð - ég er svo skrýtin kona. Uppáhaldsdrykkur: Vökvinn af Elísabet Brekkan. mansurira-sveppnum en það er sá drykkur sem ég er alltaf að drekka núna. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Ég fylgist ekki vel með íþróttum en neyðist til þess í gegnum börnin mín. Ætli það sé ekki hún Sigrún Huld Hrafnsdóttir. Uppáhaldstímarit: Það er KP en það er hundrað ára sænskt bama- blað sem er svipað og Æskan en þó öflugra. Hver er fallegasti karl sem þú hefur séð fyrir utan eiginmanninn? Christopher Plummer er flottasti karlinn. Ertu hlynnt eða andvíg rikisstjórn- inni? Ég hef ekki tekið eftir að það sé nein ríkisstjóm. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Þeir em flestir látnir sem mig langar að hitta, t.d. leikkonan Anna Magnani en hún var mesta leikkona í heimi. Uppáhaldsleikari: Anthony Hop- kins. Uppáhaldsleikkona: Anna Magn- ani. Uppáhaldssöngvari: Mama Caselh- ot. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Olof Palme. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Það er Lisa Simpson. Uppáhaldssjónvarpsefni: Það sem stendur upp úr eru rússneskar bíó- myndir. Uppáhaldsveitingahús: Ég stunda þau nú ekki mikið. Hvaða bók langar þig mest að lesa? Akkúrat þessa dagana, af því að ég er svo áhrifagjörn, myndi mig langa til að lesa bókina Heimur Soffíu, en ég hef svo mikiö að gera að ég get ekki gert það alveg strax. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Rás eitt, þótt þar megi aðlaga margt betur venjulegu fólki. Uppáhaldsútvarpsmaður: Páll Heiðar Jónsson. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Ég er ekki með Stöö 2. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Helgi litli Helga Sæm. Uppáhaldsskemmtistaður: Kaffí List. Uppáhaldsfélag í iþróttum: Tel mig ekki færa um að gera upp á milli. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Já, gerum við það ekki öll. Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí- inu? Ætli ég hangi ekki eitthvað uppi í Kjós í sumarbústaðnum og taki síðan til í hálfskrifuðum hand- ritahrúgum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.