Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1995, Blaðsíða 5
KÖSTUI)A(JUK 2H. AI’KÍU 1995
»
§
»
I
I
:
dv Fréttir
Rúnar í bænum sinum. Hann flytur
burt haldi Keflavik ekki nafni sinu.
DV-mynd Ægir Már
Rúnar Júlíusson:
FlytfráKefla-
víkmeðmiklum
söknuði verði
nafniðstrikaðút
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
„Ég set húsiö á sölu ef taka á sög-
una undan fótum mínum. Það er
ákveðin saga sem fylgir Keflavíkur-
nafninu og út í hött að strika það út
með einu pennastriki. Gera það að
hverfi í einhverjum Reykjanesbæ,"
sagði Rúnar Júlíuson tónlistarmað-
ur, einn frægasti poppari landsins í
áratugi, í samtali viö DV.
Rúnar hefur alla tíð búið í Kefla-
vík. Hann varð fimmtugur á skírdag
og á poppferli sínum hefur hann
komið Keflavíkurnafninu á landa-
kortið víða um heim. Hann er mjög
ósáttur með hvernig staðið var að
kosningu um nafn á sveitarfélagið
Keflavik-Njarðvík-Hafnir. Hann seg-
ir nafnið Reykjanesbær út í hött og
það muni taka mörg ár og kosta tugi
milljóna króna að markaðssetja það.
Rúnar vill að kosið verði á ný með
öll nöfnin í pottinum.
„Keflavík er mjög þekkt nafn og
mér hjartfólgið. Milljónir manna
hafa farið um flugvöllinn og þekkja
nafnið vel og vita hvar það er á
heimskortinu. Þetta er fallegt nafn
og bæjarstjórnin verður að átta sig á
vilja fólksins en ekki hunsa það.
Keflavík-Njarðvík væri strax betra
en Reykjanesbær. Það er öruggt að
nafnið Reykjavík myndi aldrei leggj-
ast niður þótt sveitarfélögin í ná-
grenninu sameinuðust borginni. Ef
klína á"nýju nafni á bæinn minn mun
ég flytja héðan með miklum sökn-
uði. Ég myndi sennilega flytja úr
landi því ég hef ekki hug á að flytja
til Reykjavíkur. Það er ekki nógu
mikill flutningur fyrir mig,“ sagði
Rúnar.
Skýrrívíking:
Stofnunfyrirtækis
íEistlandikönnuð
Skýrr, Skýrsluvélar ríkisins og
Reykjavikurborgar, er í samvinnu
við Tölvumiðstöð sveitarfélaganna í
Finnlandi um að kanna möguleika á
stofnun fyrirtækis í Eistlandi. Fyrir-
tækið yrði nokkurs konar tölvumið-
stöð eistneskra sveitarfélaga sem eru
250 talsins með 1,5 milljónir íbúa.
Að sögn Jóns Þórs Þórhallssonar,
forstjóra Skýrr, verður það ákveðið
í haust hvort af stofnun fyrirtækisins
verður. Sú ákvörðun mun byggjast á
niðurstöðu hagkvæmniathugunar
sem í gangi er. Athugunin fer fram
með 4 milljóna króna styrk frá NOP-
EF, Norræna verkefnaútflutnings-
sjóðsins.
Aðdraganda þessa verkefnis má
rekja til þess að fyrir tveimur árum
hóf Skýrr samstarf við eistnesk
stjórnvöld um að endurskipuleggja
opinbera stjómsýslu meö tölvutækn-
inni. Hluti af samstarfinu var að
tölvuvæða ríkisbókhaldið fyrir ein-
menningstölvur. Tölvumiðstöð
sveitarfélaganna í Finnlandi heyrði
af þessu starfi í Eistlandi og setti sig
í samband við Skýrr um að koma upp
sams konar miðstöð í Eistlandi. í
framhaldi af því var sótt um styrk
til NOPEF.