Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1995, Side 12
12
FÖSTUÐAGUR 28. APRÍL 1995
Spumingin
Ertu búin/n að setja sumar-
dekkin undir bílinn?
Ásta Sigríður Kristinsdóttir, starfs-
maður Nóatúns: Nei, maðurinn minn
sér um það.
Brynhildur Guðmundsdóttir, starfs-
maður Flugleiða: Nei, ég er ekki búin
að setja sumardekkin undir bílinn
því ég tók þau aldrei undan.
John Crawford bifvélavirki: Ég á
jeppa sem eru á heilsársdekkjum svo
ég þarf ekki að skipta.
Jón Trausti Ársælsson sjómaður: Ég
er á heilsársdekkjum og þarf því ekki
aö skipta.
Bragi Guðmundsson sjómaður: Nei,
það er ég ekki búinn að gera en ég
býst við að gera það eftir helgi.
Brynjólfur Wium bifvélavirki: Nei,
og ég ætla ekki að gera það.
Lesendur
Götuhreinsun 1 Reykjavík:
Betri skipu-
lagningar þörf
Betra skipulag á gatnahreinsun í borginni og íbúarnir hiiðri til með þvi að
færa bifreiðar sínar meðan unnið er að henni.
Arnar skrifar:
Reykjavíkurborg hefur nú tekið til
við að hreinsa götur og gangstéttar
og ekki vanþörf á eftir óvenjumikinn
sandhurð vegna hálkunnar sem hef-
ur haldist svo til stöðugt þar til fyrir
fáum vikum. - Og það er mikið verk
að losa úmferðaræðarnar við allan
sandinn. Hann situr í rennusteinum
og þaðan er erfitt að ná honum nema
með öflugum tækjum.
Á síðustu dögum hafa stórir kústa-
og sprautubílar veriö að verki. Það
er fylgst grannt með þessu og af til-
hlökkun meðal íbúanna í hverfun-
um. En það er stór galli á fram-
kvæmdinni. Sumpart vegpa skipu-
lagsleysis og sumpart vegna þess að
íbúarnir eru ekki nógu meðvirkir og
færa bifreiðar sínar ekki í burtu á
meðan á þessari hreinsun stendur.
Ég hef fylgst nokkuð með þessu,
einkum að morgni dags þar sem ég
fer ekki til vinnu fyrr en síðdegis,
og mér blöskrar hve bifreiðaeigend-
ur eru kærulausir að færa ekki bíl-
ana á meðan hreinsun stendur yfir.
Auðvitað eru margir sem skilja bíla
sína eftir heima að deginum, margir
eru farnir að nota meira strætis-
vagna en áður, en svo er hitt, að
menn sem eru heima horfa oft að-
gerðalausir á þessi stórvirku tæki
borgarinnar við hreinsun án þess að
drífa sig út og færa bílana.
Þetta má auðveldlega lagfæra. Það
yrði best gert með því að gatnamála-
stjóri tilkynnti fyrirfram í fjölmiðl-
um daginn áður hvaða götur skyldu
hreinsaðar aö morgni og léti fylgja
með ósk um að bifreiðar við þær
götur yrðu færðar til á meðan.
Svipaðar tilkynningar heyrðust oft
í morgunútvarpi hér áður fyrr þegar
loka þurfti götum vegna viðgerða og
gátu menn þá hagað ferðum sínum
samkvæmt því. Það er brýnt að þessi
regla verði viðhöfð varðandi gatna-
hreinsun í borginni á þessu vori.
Bílasóparnir verða að komast alveg
•að rennusteinum til að ná upp sandi
og óhreinindum sem safnast hafa þar
yfír veturinn. Síðan þarf að sprauta
kröftuglega að hreinsun lokinni. -
Og það sem meira er; það verður að
hreinsa niðurföllin líka því aö þau
eru flest stífluð. Götur borgarinnar
og gangstéttar þarf að hreinsa vel
eftir veturinn og þá er von til að íbú-
arnir haldi því verki áfram, hver hjá
sér, yfir sumartímann. Það ætti að
-vera borgaraleg skylda hvers húseig-
anda að koma til móts við borgina
eftir að vel hefur verið að verki stað-
ið af hennar hendi.
Upplausn á vinstri væng stjórnmála
Sigurður Kristjánsson skrifar:
Það þarf ekki glöggan mann tii að
sjá og heyra að það er komin hrein
upplausn á vinstri væng stjórnmál-
anna hér á landi. Aö því hlaut líka
að koma eftir það sem á undan er
gengið. Ekki bara vegna úrslita síð-
ustu kosninga, það var kominn
brestur í starf og stefnu allra vinstri
flokka hér löngu áður. - Fall Berlín-
armúrsins og upplausnin sem fylgdi
inn í raðir sósíalista, að ekki sé nú
talað um kommúnistaflokkana, hafði
mikil áhrif um allan heim.
Hér á landi hefur fylgi flokkanna
sem teljast á vinstri væng verið áber-
andi dvínandi og enginn aðhyllist
lengur þá stefnu sem þeir boða.
Hægfara hreyfing þeirra til miðju-
stefnu og allt til hægri stefnu hefur
lítil áhrif.til fylgisaukningar og nú
er of seint fyrir þessa flokka að boða
nýja stefnu, flokkarnir munu eiga
erfltt uppdráttar á nýjan leik.
Forystumenn þessara flokka hér á
landi eru nánast ekki lengur í sviðs-
ljósinu nema þegar ljósvakamiðlam-
ir draga einn og einn þeirra fram á
sjónarsviðið til að fá þá til að tjá sig
um nýja ríkisstjóm. Ummæli þeirra
falla þó í grýttan jarðveg eftir að út-
séð er um aö þeir hafi nokkur áhrif
í náinni framtíð. - Það er því upp-
lausn á vinstri væng stjómmálanna
hér á vordögum og fáir vænta tíðinda
úr þeim herbúðum, hvernig sem mál
þróast í samvinnu hinnar tveggja
flokka ríkisstjómar sem nú er sest
að völdum.
Reykingabannið í flugvélunum:
Leyf ið reykingar á ný
Ragnhildur skrifar:
Það var mikið óheillaspor sem
Flugleiöir stigu með reykingabanni
í öllum flugvélum og á öllurn flugleið-
um félagsins. Nú eru farþegar sem
viljandi eða óviljandi brjóta bannið
meðhöndlaðir sem glæpamenn og
tekið á móti þeim af lögreglu við
lendingu. Auk þess er þetta fyrir-
komulag mun hættulegra en þegar
menn fengu ákveðið svæði í flugvél-
unum til að reykja. Þegar menn fara
inn á salerni til að reykja er hætta á
ferðum en svo var ekki þegar menn
gátu setið í sæti sínu með vindling.
Þegar Flugleiðir tóku upp reyk-
ingabann á sínum tíma var það
eflaust að fordæmi ýmissa annarra
Evrópuflugfélaga, sem tilkynntu
bannið um svipað leyti, þ.á m. hinna
þekktu flugfélaga, SÁS og KLM. Þessi
flugfélög námu þó bannið úr gildi
fljótlega eftir ítrekaðar kvartanir og
ábendingar farþega sem reyktu. í dag
leyfa bæöi þessi flugfélög reykingar
í vélum sínum í vissum sætaröðum
eins og áður. SAS býður því mun
betri þjónustu en Flugleiðir.
Með fullkomnu loftræstikerfi í
flugvélum Flugleiða er því þetta
bann eins og hver önnur sérviska og
hefur ekki önnur áhrif en að ergja
þá farþega sem vilja ekki láta setja
hömlur á frelsi sitt með því að banna
sér að reykja. Litlar eða engar höml-
ur eru hins vegar lagöar á neyslu
áfengra drykkja um borð í vélunum
og ætti það þó að vera brýnna að
halda farþegum allsgáðum en að
ergja einn og einn reykingamann,
úr því það eru sagðir svo fáir sem
reykja yfirleitt.
ríkisstjórn
HaUgrímur skrifar:
Það voru skýr skilaboð frá kjós-
endum að Sjálfstæðisflokkurinn
og Framsóknarflokkurinn ynnu
saman í næstu rikisstjórn eftir
kosningarnar. Það var því að
vonum aö forystumenn þessara
flokka sneru bökum saman um
stjórnarmyndun. Þaö hefði veriö
miður viturlegt að leggja upp í
stjómarsamstarf með Alþýöu-
flokknum með aðeins eins manns
meirihluta. Auk þess sem Al-
þýðuflokkurinn hafði ekki vilja
landsmanna til að sinna kalli um
inngöngu í Evrópubandalagið
sem var þó aðalstefnumál Al-
þýðuflokksins í kosningabarátt-
unni. Nú er þörf á styrkri stjórn
í aðvífandi vanda efnahagslífsins
sem verður mikilvægasta verk-
efnið að fást við á næstu mánuð-
um.
Verðugurfulltrúi
ÍKína
Sigurjón hringdi:
Eg las í nýlegu Financial Times
tilvitnun í hótelstjóra einn hiá
Bejing Hilton hótelinu í höfuð-
borginni þar sem hann tjáði sig
mn framtíöarsýn í hótelrekstri í
Kína. Það er eftirtektarvert að
maður þessi er íslenskur, Halldór
Briem að nafni, og er þekktur
frammámaður i hótelrekstri með
því að veita forstöðu hóteli svo
stórrar hótelkeðju sem Hilton er
og varð fyrst til að hasla sér völl
í Kína.
Húsnæðiskerfið-
fyrstaíbúðin
Ó.S.K. skrifar:
Nú er í bígerð að koma til móts
við hina ungu sem eignast íbúð í
fyrsta sinn. Gott og vel. - Éghefði
þó fremur viljaö sjá rýmri lán-
veitingu til slíkra kaupa, t.d. alit
að 75%, en að lengja lánstímann
í 40 ár. Hið fyrrnefnda kemur
hinum ungu íbúöarkaupendum
miklu betur því að oft er það ein-
mitt sem vantar upp á fyrstu út-
borgun, því há og langvarandi
húsaleiga étur upp allan sparnað.
Sterkasti maður
heims
Ólafur Einarsson hringdi:
Mér flnnst lítið gert úr keppn-
inni um sterkasta mann heims
sem haldin var á síöasta ári og
skilaði okkur heimsmeistara í
þessari íþróttagrein. Sjónvarpið
sýndi nýlega erlendan þátt (mér
skilst frá Ástralíu) þar sem
keppnin var sýnd í heild. Þetta
var afar skemmtilegur þáttur og
sýndi hvilíkt þrekvirki var aö
vinna þessa keppni. Magnús Ver
Magnússon er líklega okkar
þekktasti íslendingur í dag. Hann
á mikíð lof skilið fyrir framgöngu
sina og ætti fremur að fá fálka-
orðu en sumir sem minna verki
hafa skilað.
Tilboðsverð
ájólaköku
Starfsmaður i Kjötbúri Péturs
hringdi:
Vegna lesendabréfs i DV mánu-
daginn 24. april sl. um verð á jóla-
köku í Kjötbúri Péturs í Austur-
stræti vfl ég taka þetta fram: Hjá
okkur er tilboðsverð á Gullkorns-
jólakökum og kosta þær 199 kr.
Rétt er aö þær hafa hækkað en
verðbreytinguna má rekja til
þeirra sem framleiða kökuna, þjá
þeim hefur orðið hækkun.
Einnig vil ég geta þess að við
höfum ekki selt jólakökur á 222
kr. eins og haldið var fram í bréf-
inu. Hins vegar seljum við jóla-
kökur frá MS á 235 kr.