Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1995, Blaðsíða 1
2. MAI1995
IÞROTTIR
Getraunir:
Enski boltinn:
1x2-1 x2-x1x-22x1
ítalski boltinn:
1xx-xxx-211-1xxx
Lottó 5/38:
35 10 14 30(33)
iii/ifittiiiítítí/ítí/iiíUUi/í/íti
Handbolti:
Gunnleifur
með tilboð
frá Krems
Gunnleifur Gunnleifsson,
handknattleiksmaðurinn efnilegi
úr HK og 21 árs landsliðinu, hef-
ur fengið boð frá austurríska 1.
deildar félaginu Krems og ef um
semst mun hann leika með lið-
inu næsta vetur.
Gunnleifur lék með 21 árs
landsliðinu gegn A-landsliði
Austurríkis á flmmtudaginn og í
kjölfar þess kom leikmaður úr
Krems, sem spilar með landslið-
inu, að máli við Gunnieif og
bauð honum aö koma til félags-
ins til æfinga og viðræðna í sum-
ar.
„Þetta er mjög spennandi boð
og ég stefni á að fara til Austur-
ríkis eftir undankeppni heims-
meistaramótsins í júní,“ sagði
Gunnleifur í spjalli við DV.
Hann er 19 ára gamall, rétthent
skytta, og stóð sig vel með HK í
1. deildinni síðasta vetur og var í
hópi markahæstu leikmaxma
deUdarinnar.
Svíar
sigruðu
Frakkaí
úrslitum í
Bercy
Svíar sigruðu á sterku 4-landa
handknattleiksmóti í París um
helgina. Svíar lögðu Frakka í úr-
slitaleik í Bercy-höllinni að við-
stöddum 14 þúsund áhorfendum
með 23 mörkum gegn 20. í leikn-
um um þriðja sætið sigruðu
Spánveijar lið Sviss, 21-17.
Leikur Svía og Frakka bar
þess merki að liðin eru í loka-
undirbúningi sínum fyrir heims-
meistaramótið sem hefst hér á
landi um næstu helgi. Mats Ols-
son, markvörður Svía, lokaði
markinu í fyrri hálfleik og náðu
Svíar þá yfirburðaforystu, 10-1,
og sá kafli gerði út um leikinn.
Svíar hafa sigrað á öllum al-
þjóðlegum mótum sem þeir hafa
tekið þátt í í tvö ár. Erik Hajas
var markahæstur Svía gegn
Frökkum með 6 mörk og Magn-
us Wislander skoraði 5 mörk.
„Við erum tilbúnir í
slaginn á íslandi"
Bengt Johannsson, þjálfari
Svía, var mjög ánægður með leik
sinna manna og sagði þá tilbúna
fyrir slaginn á HM á íslandi.
Svíar unnu alla sína leiki á
mótinu en auk Frakka sigruðu
þeir Spánverja, 28-24, og Sviss,
32-21. Frakkar unnu Sviss, 29-13,
og Spánverja, 20-16.
Miðbæjarhlaup:
Martha varð
önnur í Ósló
Martha Emstdóttir lenti í
öðru sæti í hinu árlega miðbæj-
arhlaupi í Ósjó á sunnudaginn
var. Hlaupnir voru 10 km og
hljóp Marttia á 33,33 mínútum en
norska stúlkan Gunnhild Haile
sigraði í hlaupinu og var 30 sek-
úndum á undan Mörthu.
Hulda Pálsdóttir tók einnig
þátt í hlaupinu og hafnaði í tí-
unda sæti á tímanum 39,28 mín-
útum.
Kúveitar komu
fyrstir á HM
- Rússarnir koma í dag til íslands
Landslið Kúveit kom til íslands
í gær og var þar með fyrsta liðið
sem kemur á heimsmeistaramót-
ið í handknattleik. Landslið
Kúveit hefur verið í æfingabúð-
um í Svíþjóð í mánuð en keppir í
riðlinum sem spilaður verður á
Akureyri.
Kúveitar leika tvo æfingaleiki
við 21-árs landsliðið á miðviku-
dag og fimmtudag í Höllinni en
þeir halda síðan norður til Akur-
eyrar á laugardag.
Núverandi heimsmeistarar í
handknattleik, Rússar, koma til
íslands síðdegis i dag en þeir hafa
dvalið síðustu tvær vikumar við
æfingar í Þýskalandi. Lið Rússa
er geysisterkt og hafa margir trú
á því að þeir verji titilinn og í
þeim hópi er Viggó Sigurðsson,
þjálfari Stjömunnar, sem fylgst
hefúr með undirbúningi Rússa í
Þýskalandi. Rússar munu taka
upp þráðinn að nýju við æfingar í
Garðabæ í boði Stjömunnar fram
að HM.
Suður-Kóreumenn og Banda-
ríkjamenn, sem leika með íslend-
ingum í riðli, koma til landsins á
fimmtudag. Afríkuþjóðirnar
koma allar á föstudag og á laugar-
dag koma þjóðimar sem eftir era.
Dómaramir, 18 að tölu, koma á
föstudag en þeir koma síðan allir
saman til fundar á laugardag til
að samræma ýmis atriði áður en
flautað verður til leiks.
Rífandi miðasala
Miðasalan fyrir HM hefur auk-
ist hægt og bítandi með degi
hverjum og um helgina var ríf-
andi sala, samkvæmt heimildum
DV.
Körfuknattleikur:
Rhodes áfram hjá IR
og Bragi í Borgarnes
- ÍR í viðræðum við Herbert Arnarson
„Við höfúm gengið frá
skriflegu samkomulagi við John
Rhodes og hann mun leika með
okkur og þjáifa liðið. Að vísu á
hann kost á því að fara til liðs I
Argentínu en það era engar líkur
á því að hann fari þangaö," sagði
Jóhannes Sveinsson, formaður
körfúknattleiksdeildar ÍR, í
samtali við DV í gær.
John Rhodes hefur frest til 15.
júní til aö rifta samningnum við
ÍR. Þessa dagana era ÍR-ingar að
ræða nýjan samning við Herbert
Arnarson, besta leikmann ís-
landsmótsins. Era þær viðræður
vel á veg komnar en samkvæmt
heimildum DV hafa engin önnur
lið sýnt Herbert áhuga.
Skallagrímsmenn hafa fengið
góðan liðsauka en Bragi
Magnússon, sem lék með Val sl.
vetur og þar áður með Haukum,
hefúr ákveðið að leika með liðinu
næsta vetur. Bragi var einn besti
maður Valsliðsins á síöasta
tímabili og mun styrkja lið
Skallagríms verulega.
Rhodes.
Herbert.
Bragi.