Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.1995, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 1995
27
Litlibikarinn:
Skagamenn og
unnu sína leiki
Riölakeppnl Litlu bikarkeppn-
innar í knattspymu lauk um
helgina og fara tvö efstu liöin í
úrslitakeppni. Úrslit leikjanna
um helgina og lokastöður í riöl-
unum urðu:
A-riðilI:
Viöir - Akranes...........0-2
Grindavík - Ægir..........2-0
Akranes...,..3 3 0 0 9-0 9
Grindavík....3 2 0 1 4-3 6
Víðir........3 1 0 2 5-5 3
Ægir.........3 0 0 2 1-11 0
B-riðiU:
ÍBV - Afturelaíng........5-0
FH - Selfoss.............4-0
FH...........3 3 0 0 13-0 9
ÍBV..........3 2 0 1 11-2 6
Selfoss......3 1 0 2 5-12 3
Afturelding..3 0 0 3 2-17 0
C-riðiIl:
Skallagrímur - Keflavík..0-1
HK-Grótta...............2-1
Keflavík.....3 2 1 0 7-1 7
HK...........3 1 2 0 4-3 5
Skallagrímur....3 0 2 1 4-5 2
Grótta.......3 0 1 2 4-10 1
D-riðill:
Stjarnan - Reynir.......8-2
Breiðablik -Haukar........2-0
Stjarnan.....3 3 0 0 15-5 9
Breiðablik...3 2 0 1 8-3 6
Haukar.......3 l 0 2 3-7 3
Reynir.......3 0 0 3 3-16 0
# 8-liða úrslít heflast á fimmtu-
daginn kemur og leika þá Akra-
nes-ÍBV, FH-Grindavík, Kefla-
vík-Breiðablik, Stjarnan-HK. All-
ir leikirnir byrja kl. 19.
Finnarsigursælir
í pílukasti
Finnar uröu sigursælir á Norð-
urlandamótinu í pílukasti sem
fram fór á Hótel Lofleiðum um
helgina. B-lið Finna sigraöi A-liö
Finna 1 úrslitaviðureign i sveita-
keppni karla. Finnar unnu einnig
sigur í kvennaflokki, lögðu Dani
í úrslitum. í tvímenningi unnu
Svíar í karlaflokki og Danir í
kvennaflokki.
Skylmingamenn
íöðrusætinu
A-lið íslands í skylmingum fékk
silfurverðlaun í sveitakeppni á
Norðurlandamótinu í Kaup-
mannahöfn um helgina. B-lið Is-
lands lenti í flmmta sætinu. Kári
Freyr Björnsson tryggði sér
Norðurlandameistaratitilinn í
flokki 20 ára og yngri.
Arsenal meistari
íkvennaflokki
Arsenal sigraði Liverpool í úr-
slitaleik bikarkeppni kvenna á
Wembley, 3-2, á sunnudaginn
var. Arsenal hefur um árabil átt
mjög sterku kvennahði á að
skipa.
Koemanáförum
frá Barcelona?
Hollensk útvarpsstöð skýrði frá
þvi í gær að Ronald Koeman væri
á leiðinni frá Barcelona til Feye-
noord og myndi skrifa undir
tveggja ára samning í vikunni.
Koeman, sem 32 ára, hefur leikið
með Barcelona í sex ár.
Svensson til Barcelona
Sænski landsliðsmarkvörður-
inn í handknattleik, Thomas
Svensson, hefur samið við Barce-
lona.til fimm ára. Hann lék áður
með Bidasoa á Spáni. Barcelona
bauð honum átta ára samning.
íþróttir
er vinsælasta keppn-
isgrein fatlaðra íþróttamanna og
einbeitingin I lagi. DV-mynd gk
Hængsmótið:
Reykvíkingar
unnu bikarinn
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyrú
ItlUUðlVIUUDUl UUi
uccugut
Akureyri hélt sitt árlega Hængs-
mót um helgina en það er mót
fyrir fatlaða íþróttamenn, hreyfi-
hamlaða og þroskahefta. Vegna
blakmóts i íþróttahöllinni var
mótið flutt í KA-húsið og haldið
þar við þrengri húsakost en
venjulega en framkvæmd þess
tókst þó mjög vel, enda eru
Hængsmenn orðnir sjóaðir i
framkvæmdinni.
íþróttafélag fatlaðra í Reykja-
vík átti flesta sigurvegara og
vann þar með Hængsmótsbikar-
inn en Sigurrós Ósk Karlsdóttir
fékk Hængsbikarinn sem veittur
er fyrir bestan árangur einstakl-
ings í íþróttafélaginu Akri á Ak-
ureyri. Sigurvegarar i mótinu
urðu annars þessir:
í lyftingum þroskaheftra sjgr-
aði Gunnar öm Erlingsson, Ösp,
en Arnar Klemensson, Viljanum,
í flokki hreyfihamlaöra. I bogfimi
sigraði Ester Finnsdóttir, ÍFR, i
kvennaflokki, Óskar Konráðs-
son, ÍFR, í karlaflokki og Stefán
Jón Heiðarsson, Akri, í opnum
flokki. Jón Heiðar Jónsson, ÍFR,
sigraöi í borötennis karla og
Gunnhildur Sígþórsdóttir, ÍFR, í
kvennaflokki.
Umfangsmesta keppnin var
hins vegar í boccia. í flokki
þroskaheftra sigraði Matthías
Ingimarsson, Eik, Haukur Gunn-
arsson, ÍFR, í flokki hreyfihaml-
aðra, Rökkvi Sigurlaugsson,
Grósku, i opnum flokki og Aðal-
heiöur Bára Steinsdóttir í rennu-
flokki. í sveitakeppninni sigraði
Snerpa í flokki þroskaheftra,
Akur i ílokki hreyfihamlaðra og
Snerpa í opna flokknum.
Kim Magnús og Hraf nhildur meistarar
Magnús Kim Nielsen varð íslandsmeistari í karlaflokki í skvassi sem fram
fór í Veggsporti um helgina. Magnús Helgason varð annar og Gunnar Guð-
jónsson þriðji. í kvennaflokki varð Hrafnhildur Hreinsdóttir íslandsmeist-
Jari, Rósamunda Baldursdóttir önnur og Inga Margrét Róbertsdóttir þriðja.
Vinir sem skrá sig saman fá 1000.- kr. afslátt. Systkini fá 10%
afslátt (1610 kr. hvert).
Sendu skráningarkortið til:
Litli íþróttaskólinn
íþróttamiðstöð íslands
840 Laugarvatni ...eða faxar í.98-61255
Ég heiti:...............................Námskcið:
kt:...............-......... 1.) 18.-25. júní ( )
Heimili:............................... 2.) 26.-01. júlí ( )
Póstnúnier:.......................... 3.) 02.-08. júlí ( )
Nafn ábyrgðarmanns (greiðanda/foreldris): 4.) 09.-15. júlí ( )
Símanúmer:...................
Vinnusími:..................
***
Vinur/systkini heitir:.............................
kt:..................-....
Arnór Guðjohnsen og Hlynur Stefánsson í samtali við DV:
„ Aldrei tekið þátt í
neinu slíku áður“
- Örebro missti 4-0 forystu á síðustu 25 mínútunum
Guömundur Hflmarssan, DV, Örebro:
Það virtist allt stefna í stórsigur
Örebro gegn Frölunda í sænsku
knattspyrnunni í gærkvöldi. Þegar
25 minútur voru til leiksloka var
staöan 4-0 fyrir Örebro en þá datt
botninn alveg úr leik þess í orðsins
fyllstu merkingu. Frölunda geröi
sér lítiö fyrir og náði að jafna, 4-4.
Rétt undir lok leiksins átti Frö-
Iunda síðan hættulegt tækifæri svo
Örebro var bara heppíð að tapa
ekki þegar allt kom til alls.
Hlynur Stefánsson og Amór
Guðjohnsen léku með Örebro allan
tímann en Hlynur Birgisson kom
inn á í stöðunni 4-0 þegar 30 mínút-
ur voru til leiksloka. Hlynur Stef-
ánsson var bestur leikmanna
Örebro í fyrri háifleik og Amór
átti ágæta spretti.
Hlynur Stefánsson og Arnór
sögðu í samtali við DV eftir leikinn
að þeir hefðu aldrei tekið þátt í
neinu slíku áöur. Þetta hefði verið
alveg nýtt fyrir þá á löngum ferli
og hafi þó ýmislegt gengið á um
ævina. Þeir voru að vonum hrika-
lega svekktir og sögðust þó vona
að menn lærðu eitthvaö af svona
leik.
Kristófer Sigurgeirsson lék ekki
með Frölunda, sat raunar eftir
heima i Gautaborg en hann á við
meiðsl að stríða. Ásgeir Elíasson
landsliðsþjálfari var á leiknum í
Örebro en hann hafði deginum áð-
ur verið í Bergen tii að fylgjast með
Ágústi Gyifasyni hjá Brann.
Úrslit leikja í úrvalsdeildinni:
Örgryte - Helsingborg...........0-1
Djurgárden -Degerfors ................2-0
Halmstad -Malmö.................2-2
Hammarby - Norrköping...........0-2
Trelleborg - AIK................1-0
Öster - Gautaborg...............o-O
• Halmstad er efst eftir þrjár um-
feröir með 7 stig, Malmö, Djurgárd-
en, Örebro og TrelJeborg hafa öll 5
stig. Örgryte, með Rúnar Kristins-
son innanborðs, hefur 4 stig i átt-
unda sæti. Meistaramir í Gauta-
borg eru í næstneðsta sætinu með
tvö stig og hefur liðið ekki unnið
leik til þessa.
INNRITUNARKORT
í Litla íþróttaskólann Laugarvatni
• Það var ekkert gefið eftir á öldungameistaramótinu á Akureyri eins og sjá má á myndinni. DV-mynd gk
Öldungar í næturblaki á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Það gekk á ýmsu er 20. Öldungameistaramót íslands í
blaki var haldið á Akureyri um helgina. Þangað mættu
um 450 keppendur í ýmsum þyngdar- og aldursflokkum
og léku um 170 leiki. Leikið var á þremur völlum í íþrótta-
hölbnni og tók keppnin hátt í 50 klukkustundir. Áðfara-
nótt laugardags var síðustu leikjum ekki lokið fyrr en
klukkan 2 um nóttina og um miðnætti á laugardagskvöld.
í mótinu mátti sjá margar gamlar blakkempur sem gert
hafa garðinn frægan og fagnað mörgum íslandsmeistara-
titlum undanfarin ár og áratugi. Sumir eru orönir ansi
„búsældarlegir" og komnir með „kút“ en allir skemmtu
sér hið besta og gleðin var í fyrirrúmi. íslansdsmeistarar
urðu KA í karlaflokki og Völsungur í kvennaflokki. Völs-
ungur varð sigurvegari í 2. deild karla en Bresi í 2. deild
kvenna. í öðlingaflokki karla sigraði Óðinn, Akureyri,
Bresi í ljúflingaflokki karla, HK sigraði í 3. deild kvenna
og Sindri í 4. deiid kvenna.