Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 24.06.1995, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 55 Fréttir Séð yfir heitu pottana við nýju sundlaugina á Egilsstöðum. Linda Karen Guttormsdóttir, afsprengi Jökuldælinga og Egilsstaöabúa, hellti vatni úr gömlu lauginni yfir í þá nýju. DV-myndir Sigrún Skiptu á gömlu sund- lauginni og dráttarvél Smáauglýsingar Ford Econoline, árg. ‘85, til sölu, 6 cyl., sjálfskiptur, ekinn 127 mílur, Síeti fyrir 7. Selst með akstursleyfi á stöð. Skipti á fólksbíl koma til greina. Uppl. í símum 557 4929 og 853 7095. Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstööum: Hér laug er kvödd og lýðs því hvarmur þrútinn en laugin sú mun auka mjög þinn hróður. Að sveitarvenju set þitt traust á kút- inn ef syndari þú reynist ekki góður. Þessa vísu fékk Arnór á Hvanná, oddviti Jökuldælinga, frá Stefáni Bragasyni, bæjarfulltrúa á Egilsstöð- um, ásamt með sundkút er sá síðar- nefndi afhenti Arnóri gömlu laugina á Egilsstöðum sem Jökuldælir hrepptu og verður nú sett upp við skólann á Skjöldólfsstöðum. Stefán gaf þá skýringu að Jökuldælingar væru vanir að hafa kúta við höndina og kynnu vel með þá að fara. I staðinn lætur Jökuldalshreppur dráttarvél eina mikla sem gekk und- ir nafninu „Undrið" uppi á dal en hefur nú fengið nýtt nafn og heitir Sundri. Til þess að minnka fráhvarfsein- kenni við missi þessa ágæta grips fékk Arnór einnig minidráttarvél til að geyma í lófa sér. Arnór gat þess að ekki hefði þótt ástæða til að verð- leggja þessa gripi, dráttarvélina og sundlaugina, enda kæmi að því fyrr en síðar að þessir hreppar yrðu sam- einaðir með öðrum á Héraði. Eftir athöfnina í gömlu sundlaug- inni marseruðu gestir út í nýja laug þeirra Egilsstaðabúa meö dráttarvél- ina í fararbroddi og var öllum nema Sundra boðið að prófa nýju laugina og þiggja kaffi og með því. Nýja laugin er 12,5 x 25 metrar með sambyggðri barnalaug, einnig eru þar tveir heitir pottar. Er þetta hið glæsilegasta mannvirki. Hreinn Halldórsson, umsjónar- maður íþróttamannvirkja á Egils- stöðum, fyllti flösku af vatni úr gömlu lauginni til aö flytja yfir í þá nýju en það var afsprengi þeirra tveggja hreppa sem hér voru að höndla, Linda Karen Guttormsdóttir, sem fékk að hella úr flöskunni í nýju laugina. Stefán Bragason sagði að nú yrði hafm óvígð sambúð með nýju laug- inni en vígsla hennar fórst fyrir dag- inn áður vegna veðurs og aðalgestur þeirrar athafnar, Sigrún Huld Hrafnsdóttir, var veðurteppt í Reykjavík. Hópferðabílar Vinnuvélar 21 sætis M. Benz, árg. ‘81, til sölu. Upplýsingar í síma 587 9798. Körfulyfta, bíldregin, meö 13 m lyftigetu. • Körfubíll VW LT31 m/14 m lyftigetu. • 2 stk. HYMO lyftur, keyranlegar. • Bobcat 543, dísil, árg. ‘87, notkun 1300 tímar, með vökvahamri, gröfu- stykki m/breiðri og mjórri skóflu. Enn fremur gafflar og venjuleg skófla. Upplýsingar f síma 553 1792. Mercedes Benz 0309, árg. 1981. Til sölu Mercedes Benz 0309, árg. ‘81, 26 manna, ekinn 287 þús., aðeins einn eigandi frá upphafi. Staðgreiðsluverð 2,1 milljón. Uppl. gefur Kjartan Ingimarsson f síma 567 4455. Hef oft óskað þess að allt gam- alt f ólk hef ði það eins gott og ég - segir Helga á Syðri-Hofdölum sem býr heima Fimm ættliðir á Syðri-Hofdölum; Helga Rögnvaldsdóttir situr fremst á mynd- inni, fyrir aftan hana Rannveig Jóna dóttir hennar, við hlið Rannveigar er Trausti Kristjánsson sonur hennar, Atli Már, sonur Trausta, situr með son sinn, Friðrik Andra. DV-mynd Þórhallur Þórhatlur Ásmundsson, DV, Sauöárkróki: „Ég hef oft óskað þess með sjálfri mér að allt gamalt fólk heíði þaö eins gott í ellinni og ég. Ég er heppin og hef alltaf verið lánsmanneskja," seg- ir Helga Rögnvaldsdóttir á Syðri- Hofdölum í Viðvíkursveit. Helga, sem orðin er 92 ára gömul, á enn sitt heimili á Syðri-Hofdölum og eyðir þar ævikvöldinu í skjóli Rannveigar Jónu dóttur sinnar og hennar fólks. Segja má að á Syðri-Hofdölum finn- ist í dag eitt fárra dæma á landinu um tilvist gömlu kjarnafjölskyld- unnar sem heyrir nú nánast sögunni til. Þar eiga mú heimili fiiflm ættlið- ir, sá fimmti bættist við 10. mars í vetur. „Ég á ákaflega gott heimili og fólk- iö sér til þess að mér líði vel. Það er margur kominn á elliheimili sem gjarnan vildi geta verið heima en aðstæður leyfa það víst ekki víða. Fólk þarf að fara í vinnu og það er ekki hægt að skilja gamla fólkið eftir eitt heima. Ég hef mína eigin íbúð en dóttir mín sér um mat handa mér og svoleiðis,“ sagði Helga enn fremur. Helga hafði lengi búsforráð á Syðri-Hofdölum ásamt Trausta Árnasyni manni sínum sem lést fyrir 12 árum. Við búi af þeim tók á sínum tíma dóttirin Rannveig Jóna og mað- ur hennar, Kristján Hrólfsson. Fyrir tæpum tveimur áratugum tók síðan við sonur þeirra, Trausti Kristjáns- son, ásamt konu sinni, Ingibjörgu Aadnegard. í vetur fæddist síðan Atla Má syni þeirra sonur er hlotið hefur nafnið Friðrik Andri. Þess má til gamans geta að í móður- ætt Friðriks Andra eru einnig fimm ættliðir á tífi. Hreinlætistæki á lagerverði: Gler-bogahorn frá kr. 26.719 Heilir sturtuklefar, 80x80, frá kr. 29.638 Oras baðtæki, hitast. og einangrað, frá kr. 11.305 Oras handlaugartæki C Salerni m/harðri setu frá kr. 11.397 Handlaugarblöndunartæki Eldhusblöndunartæki frá kr. 2.705 Baðblöndunartæki með handsturtu frákr. 4.172 Allt verð er staðgreiðsluverð Sendum um allt land. N0RMANN Ármúla 22 - simi: 581 3833
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.