Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1995, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1995, Blaðsíða 17
 16 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995 FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST 1995 25 I I 'i Iþróttir Italska knattspyman hefst á sunnudaginn: Flestir veðja á AC Milan GotfmótáHellu Handknattleiksgolfmót fer fram á Hellu sunnudaginn 27. ágúst. Keppt er í sveitakeppni og einstaklingskeppni. 3 mynda sveit og tveir telja og þá eru einn- ig verðlaun í einstaklingskeppni með og án forgjafar. Rástímar eru frá kl. 12. Þátttökurétt hafa hand- knattleiksmenn, dómarar, íþrótt- afréttamenn og þeir sem hafa veríð og eru í stjórnum hand- knattleiksfélaga. Þeir sem hafa 28 og yfir spila á rauðum teigum. Þátttaka skal tilkynnt fyrir kl. 22 á föstudagskvöld í síma 563 2983, 554 6685 og 561 9941. Souness undir pressu Graeme Souness, fyrrum ffam- kvæmdastjóri Liverpool, sem nú er við stjómvölinn hjá tyrkneska liðinu Galatasaray, er strax undir pressu eftir að liðið féll út úr Evrópukeppninni í fyrrakvöld. Galatasaray náði aðeins jafntefli á heimavelh gegn Spörtu frá Prag og féll þar með úr leik i keppn- inni. Stuöningsmenn og forráöa- menn tyrkneska liðssins voru allt annað en ánægðir með það og var baulað á liöið eftir leikinn. Sou- ness hafði sett raarkið hátt og keypti til liösins m.a. Dean Saunders, Barry Venison og Mike Marsh, allt fyrrum leikmenn Li- verpool. Tekinn með eiturlyf Knattspyrnumaðurinn Ricky Otto, sem leikur með Birming- ham, var tekinn meö eiturlyf á Heathrowflugvelli i London fyrir helgi. Kókaín og hass fannst í fór- um Ottos, sem er einn besti leik- maður Birmingham og mörg úr- valsdeildarlið hafa augastað á honum. Máhð er í frekari rann- sókn. Boogersfrá Hammers? Úrvalsdeildarlið West Ham mun líklega seJja Hollendinginn Marco Boogers sem Lundúnalið- ið keypti fyrir rúmlega mánuði síðan frá Spörtu Rotterdam. Harry Redknapp, stjóri „Ham- mers“, hefur ekki veriö nógu ánægður með þennan stóra fr am- herja og tahö er líklegast að hann muni fara aftur til Spörtu. Keppni í itölsku 1. deildinni í knattspyrnu hefst á sunnudaginn. Sparkfræðingar á Ítalíu eru flestir þeirrar skoðunar að erfitt verði fyrir Juventus aö verja meistaratit- ilinn. Liðið sé búið að missa Ro- berto Baggio og auk þess sem varn- arjaxlinn Júrgen Kohler sé farinn frá félaginu. Vialli og Del Piero meiddir Meistararnir í Juventus hefja titil- vörn sína gegn Cremonese án tveggja lykilmanna. Sóknarmenn- irnir snjöllu Gianluca Vialli og Alessandro Del Piero eru báöir meiddir og geta ekki leikið en Del Pierro er einmitt ætlað að fylla skarðið sem snillingurinn Robert Baggio skildi eftir sig. Flestir veðja á að að tími AC Milan sé kominn aftur og að félagið muni hampa titlinum eftirsótta. Roberto Baggio er kominn í her- búðir Milanliðsins og mun án efa leika stórt hlutverk með því. Þá er Líberimaðurinn Georges Weah kominn til félagsins en hann er mjög öflugur miðherji sem leikið hefur með franska liðinu Paris SG. Hinn 35 ára gamli Franco Beresi mun ráða ríkjum í öftustu vörn Milanliðsins og líklega verður þetta síöasta tímabil „kóngsins". AC Milan sækir Padova heim í fyrstu umferðinni. Parma með besta sóknarliðið Parma, sem vann sigur í UEFA- keppninni, er einnig líklegt til af- reka en félagið hefur fengið hinn skæða Hristo Stoichkov, frá Búlg- aríu, til liðs við sig. Meö Stoichkov, Svíann Tomas Brolin og Kólumbíu- manninn Faustino Aspriha er Parma að öllum líkindum með besta sóknartríóið á Ítalíu og þó víða væri leitað. Parma sækir Ata- lanta heim í fyrstu umferðinni og leikur þar án Asprilla sem er meiddur og Brolin tekur út leik- bann. Inter gæti blandað sér í toppbaráttuna Inter Milan gæti hæglega blandað sér í toppbaráttuna en liðið hefur styrkst verulega frá því í fyrra. Paul Ince er kominn frá Man.Utd og verður kjölfestan á miðjunni og í vörninni eru komnir tveir snjallir leikmenn, Brasilíumaðurinn Ro- beto Carlos og Argentínumaðurinn Javier Zanetti. Inter fær nýliöa Vicenza í heimsókn í fyrstu um- ferðinni en þar leikur sænski landsliðsmaðurinn Joachim Björk- lund. Sampdoria búið að missa sterka leikmenn Sampdoria og Roma leiða saman hesta sína í fyrstu umferðinni en ekki er búist við að þessi lið geti blandað sér alvarlega í baráttu efstu liöa. Sampdoria hefur misst sterka leikmenn á borö við Ruud Gullitt, David Platt og Atillo Lomb- ardo. í staðinn hefur liðið fest kaup á franska landsliðsmanninum Christian Karembeu og Hollend- ingnum Clarence Seedhof. Lið Lazio er mikið spurningar- merki í vetur en liðið fær Piacenza i heimsókn á sunnudaginn. Aðal- maður liðsins og markaskorarinn mikli, Giuseppe Signori, verður fjarri góðu gamni í þessum leik en hann er meiddur á ökkla. 2. deild karla: Fylkir og Stjarnan upp í 1. deildina? Knattspyrnumaðurí alvartegum árekstri Skoski knattspyrnumaðurinn Mark Galloway, sem leikur með Celtic, lenti í alvarlegum árekstri í Leicestershire í Englandi í fyrrakvöld. Galloway átti aö fara á lánssamning til 1. deildar liðs Portsmouth en talið er að knatt- spymuferli hans sé lokið þar sem hann slasaðist alvarlega á fótum. SancheztilLA Hugo Sanchez, sá frægi mexík- anski knattspyrnumaður, hefur samið við bandaríska félagið Los Angeles um að leika með því þeg- ar nýja atvinnudeildin í Banda- ríkjunum hefet næsta vor. Sanc- hez er 37 ára gamall og varð fimm sinnum markakóngur spænsku 1. deildarinnar þegar hann lék með Real Madrid. Dregiðíbikamum f gær var til 2. umferðar í ensku deildarbikarkeppninni í knatt- spyrnu. Helstu leikir eru þessir: Stoke-Chelsea Tottenham-Chester Oxford-QPR Leeds-Notts County Bradford-Nottíngham Forest Middlesbrough-Rotherham Bolton-Brentford Bristol Rovers-West Ham Aston Villa-Peterborough Liverpool-Sunderland Millwall-Everton Manchester United-York Swindon-Blackburn Bristol City-Newcastle Leikið er heima og aö heiman og fara Jeikimir fram 18. sept- ember og 2. október. Fylkir og Stjarnan geta um helgina tryggt sér sæti í 1. deild karla í knatt- spyrnu að ári takist þeim að vinna sigur í leikjum sínum. Fylkir og Stjarnan eru efst og jöfn í 2. deildinni og hafa 10 stiga forskot á Þór sem er í þriðja sætinu. Baráttan er hins veg- ar meiri á botninum en segja má að eins og staðan er í dag séu fimm lið í fallbaráttu. 15. umferð 2. deildar hefst í kvöld með fjórum leikjum. Fylkir tekur á móti Víði á Árbæjarvelli, Skalla- grímur og Víkingur eigast við í Borg- arnesi, tvö neðstu liðin, HK og ÍR, leika í Kópavogi og á Akureyrarvelli er bæjarslagur, félögin Þór og KA eigast við. Allir leikirnir heíjast klukkan 18.30. Umferðinni lýkur svo á laugardag þegar Þróttur og Stjarn- an mætast á Valbjarnarvelli klukkan 14. Franziska van Almsick frá Þýska- landi er komin með fern gullverð- laun á Evrópumeistaramótinu í sundi í Vínarborg eftir tvo sigra í gær. Hún sigraði í 400 metra skrið- sundi á 4:08,37 mínútum og var síðan í sigursveit Þjóðverja í 4x100 metra skriðsundi. Van Almsick, sem fékk sex gull á síðasta Evrópumóti, missti af tæki- færinu til að bæta þann árangur í fyrradag þegar hún komst ekki í úr- slit í 200 metra skriösundi. Alexander Popov frá Rússlandi varð Eins og frægt er orðið kærðu Stjörnumenn Þróttara eftir fyrri við- ureign liðanna sem Þróttur haföi betur í og dómstóll KSÍ dæmdi leik- inn tapaðan fyrir Þrótt. Þegar þetta átti sér stað voru Þróttarar í toppbar- áttu 2. deildar en eftir þetta atvik fór að síga á ógæfuhliðina og er hðið nú í fallbaráttu. Staðan í 2. deildinni fyr- ir 15. umferðina er þannig: Stjarnan .14 10 2 2 33-13 32 Fylkir .14 10 2 2 33-18 32 Þór A .14 7 1 6 25-26 22 Skallagr .13 5 4 4 17-16 19 KA .14 5 4 5 18-20 19 ÞrótturR .13 4 3 6 18-20 15 Víðir .14 4 3 7 13-20 15 Víkingur .14 4 3 7 19-28 15 ÍR .14 4 1 9 20-31 13 HK .14 3 3 8 27-31 12 Evrópumeistari í 100 metra skriösundi karla í þriðja skiptið í röð, sigraði á 49,10 sekúndum. Alexandre Tkattsjev frá Rússlandi sigraði í 200 metra skrið- sundi karla á 2:14,69 mínútum, Fumie Kurotori frá Japan í 400 metra fjór- sundi kvenna á 4:45,66 mínútum, Yann Defabrique frá Frakklandi í 200 metra skriðsundi karla á 1:50,04 mínútu, Mette Jacobsen frá Danmörku í 100 metra baksundi kvenna á 1:02,46 mín- útu, og Vladimir Selkov frá Rússlandi í 200 metra baksundi karla á 1:58,48 mínútu. Almsick komin með fjögur gull Verð aðgöngumiða Verða aðgöngumiða á bikarúr- slitaleik Fram og KR er 1100 kr. í stúku, fullorðnir í stæði 700, böm í stæði (11-16 ára) 300 en börn yngri en 10 ára fá frítt í stæði. Forsala miða Forsala aðgöngumiða hjá Fram er í Framheimilinu við Safamýri en hjá KR fer hún fram í KR- heimilinu við Frostaskjól og í Spörtu. Forsölu lýkur á íöstu- dagskvöld en sala aðgöngumiða á Laugardalsvelli hefst klukkan 11 og stendur til 16. Á leíkdag hefst sala aðgöngumiða klukkan 10 á Laugardalsvelli. Guðmundurdæmir Dómari á úrslitaleiknum verð- ur Guðmundm- Stefán Marías- son. Línuverðir verða Kári Gunnlaugsson og Gísli Björg- vinsson. Varadómari er Egill Már Markússon og eftirlitsmaður verður Rafn Hjaltalín. Heiðursgestur Heiðursgestur á leiknum verð- ur Davíð Oddsson forsætisráð- herra og mun hann afhenda bik- *, arinn að leik loknum, ef úrsiit fást. Leikmönnum heilsað Formaður KSÍ, Eggert Magnús- son, mun heilsa upp á leikmenn ásamt Gunnari Guðmannssyni og Guðmundi Óskarssyni, en þeir voru fyrirliðar liða sinna í fyrsta bikarúrslitaleiknum sem fram fór 1960 á milh Fram og KR. Keppnisboltinn Dregið hefur verið um hvaða bolti verður notaður i úrslita- leiknum. 1 hattinum voru boltar frá Lotto og Diadora. Upp kom Diadora. Hermann kynnir Hinn landskunni sjónvarps- maður Hermann Gunnarsson verður kynnir á ieiknum og mun hann sjá um að hita upp áhorf- endur fyrir leik ásamt Páli Sæv- ari Guðjónssyni sem mun hafa tónlistina á sínum snærum. Staðsetning áhorfenda KR-ingar verða í suðurenda stúkunnar en Framarar í norður- endanum. Ástæða er tíl að hvetja fólk til að kaupa miða i tíma og mæta snemma á vöhinn. Öruggt má telja að uppselt verði í stúk- una. Þrisvaráður Fram og KR hafa þrisvar áður leikið saman í úrslitum bikars- ’ ins. KR vann Fram 1960 2-0,1962 3-0 og 1989 vann Fram, 3-1. KR hefur 11 sinnum leikiö til úrslita en Fram 13 sinnum. KR hefur unnið bikarinn 8 sinnum en Framarar 7 sinnum. Nýrleikdagur Ef jafnt verður eftir framleng- ingu verður að fara fram nýr leik- ur. Mótanefnd KSÍ hefur ákveðið að hann fari fram miðvikudaginn 6. september klukkan 20. Verð launin Markaðsnefnd Mjólkuriðnað- arins, sem er styrktaraöih Mjólk- urbikarkeppninnar, greiðir sig- urliðínu 350 þúsund krónur en tapliðinu 150 þúsund krónur. Sígrinum fylgir réttur til þátttöku í Evrópukeppni bikarhafa 1996- 1997, DV DV • Formenn Knattspyrnudeilda KR og Fram, Björgólfur Guðmundsson, KR, og Ólafur Helgi Árnason, Fram, hafa hér bikar- inn eftirsótta á milli sín. Á sunnudag kemur í Ijós hvort hann verður varðveittur næsta árið í Safamýrinni eða í Frostaskjóli. ^ DV-mynd ÞÖK Formenn Knattspyrnudeildar Fram og KR: „Mikið í húfi" - úrslitaleikurinn í Mjólkurbikarnum á sunnudaginn Knattspyrnudeildir Fram og KR efndu til blaðamannafundar í gær í tengslum við úrslitaleikinn í Mjólkurbikarkeppn- inni sem verður háður á Laugardalsvell- inum á sunnudaginn klukkan 14. Ljóst er að mikil eftirvænting ríkir í herbúð- um beggja liða fyrir leik enda mikið í húfi. Sigurliðið vinnur sér rétt til þátt- töku í Evrópukeppninni á næsta ári og þar er eftír miklu að slægjast. Viðureign- ir Fram og KR í gegnum árin hafa ávallt boðið upp á spennu og víst er að hún verður ekki minni á sunnudaginn. Forvígismenn liðanna reikna með 7-8 þúsund áhorfendum og samkvæmt veð- urspám fyrir sunnudag er allt útlit fyrir hið besta knattspyrnuveður. „Það er ljóst að það er mikið í húfi í þessum leik og ekki síst fiárhagslega. Þá er þátttaka í Evrópukeppninni kapps- mál fyrir félög og hún skiptir miklu máli fjárhagslega. Bikarkeppnin er stór viðburður og við ætlum að gera okkar besta í að verja bikarinn á sunnudag,“ sagði Björgólfur Guðmundsson, formað- ur knattspyrnudeildar KR. Reynum að gera Fram að stórveldi á ný „Við höfum átt erfitt uppdráttar í sumar en við erum komnir aha leið í úrslit í Mjólkurbikarnum og það er frábær ár- angur. Fram var stórveldi á árunum 1985 tií 1991 en síðan þá hefur gengið erfiðlega að vinna titla. Viö lítum svo á að með sigri í bikarleiknum á sunnudag hefiist sigurgangan á ný. Við ætlum að reyna að gera Fram að stórveldi á ný,“ sagði Ólafur Helgi Árnason, formaður knattspyrnudeildar Fram. • Magnús Jónsson, þjálfari Fram. • Guðjón Þórðarson, þjálfari KR. Þjálfarar liðanna: Leggjum allt í leikinn „Það er ljóst að það er mikið í húfi í þessum leik. Þetta er stóri leikurinn á hverju sumri í íslenskri knattspyrnu og hugur KR-inga er allur við leikinn. Við munum koma í leikinn af miklum krafti og leggj- um allt í hann. Það er mikill hugur í KR-ingum og við ætlum okkur ekkert annað en sigur á sunnu- dag,“ sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari KR-inga, um úrslitaleik KR og Fram í Mjólkurbikarkeppninni. Við munum vera með hefðbund- inn undirbúning fyrir leikinn. Við förum á Hótel Örk og verðum þar nóttina fyrir leikinn. Við þekkjum andstæöinga okkar vel og vitum nokkurn veginn að hverju við göngum. Það er ekki alveg ljóst enn þá hvort allir eru heilir en ég geri ráð fyrir að svo verði og ég geti valið mitt besta lið í leikinn,“ sagði Guðjón. „Mér finnst við vera á uppleið“ „Mér finnst við hafa verið á upp- leið undanfarið þrátt fyrir tapið gegn ÍBV í Eyjum á þriðjudag. Það var breytt um taktík og talaö eins- lega við leikmenn og það hefur gef- ið góða raun. Liðið hefur verið að leika ágætlega undanfariö eftir erf- iða byrjun í Islandsmótinu. Nokkr- ir leikmenn liðsins hafa átt viö meiðsli að stríða í sumar og hafa ekki getað beitt sér af fullum krafti en ég býst við að þeir og aðrir leik- menn Fram verði klárir í slaginn á sunnudag," sagði Magnús Jónsson, þjálfari Fram, um leikinn. Fyrirliðar KR og Fram: Báðir búast þeir við hörkuleik „Ég á von á hörkuleik, eins og allt- af á milli Fram og KR. Vonandi verð- ur leikurinn góð knattspyrna og sig- ur betra liðsins. Við munum auðvit- að reyna að halda bikarnum í vestur- bænum en ég býst við mjög erfiðum leik gegn Fram,“ sagði Þormóður Egilsson, fyrirliði KR. Tveir hasarleikir fyrr í sumar „Við erum búnir að leika tvo hasar- leiki gegn KR fyrr í sumar og það er ljóst að það verður ekkert gefið eftír á sunnudag. Það eru alltaf hörku- spennandi leikir þegar þessi tvö lið mætast og svo verður áreiðanlega nú einnig. Bæði lið munu þó án efa reyna að leika sem bestan bolta og ég vona að þetta verði góöur og skemmtilegur leikur," sagði Steinar Guðgeirsson, fyrirliði Fram. Leikmenn KR munu dvelja á Hótel Örk nóttína fyrir leikinn en það hef- ur gefist mjög vel, að sögn Guðjóns Þórðarsonar, þjálfara KR. Guðjón ætlar að velja byrjunarhðið um morguninn áður en haldið verður til Reykjavíkur. Framarar ætla að halda sig í bæn- um en leikmenn munu koma saman til kvöldverðar á laugardagskvöldið og hitast síðan í Framheimilinu snemma á sunnudagsmorguninn. Stuðningsmenn liðanna koma saman Stuðningsmenn liðanna láta ekki sitt eftir hggja í undirbúningi fyrir leik- inn á sunnudag. Áhangendur Fram ætla að koma saman á Kringlu- kránni klukkan 10.30 á sunnudags- morgun og KR á Eiðistorgi klukkan 11. 1 Framheimilinu geta börn og unglingar fengið andlitsmálningu í litum liðsins og það sama verður boðið upp á fyrir KR-inga á Eiðis- torgi. Aðstandendur stuðningsklúbbana voru bjartsýnir að fólk myndi fiöl- menna á umrædda staði og frá þeim munu stuðningsmenn fara beint nið- ur í Laugardalinn í góðum tíma fyrir leikinn. 50 ára afmælisleikur KSÍ: Þjóðverjar koma Þýska landsliðíð í knattspyrnu Þjóöverjar, sem urðu heims- mun aö sögn Eggerts Magnússon- meistarar áriö 1990, munu leika við ar,formannsKSI, hafa boðað komu íslendinga á Laugardalsvelli 20. sína til íslands árið 1997 í tilefni af ágúst 1997 í tílefni af afmæhnu. 50 ára afmæli Knattspyrnusam- Þetta er gífurlegur heiður fyrir ís- bands íslands, lenska knattspyrnu. GEIRAUNASEDILINN íþróttir Sund: Eydísaftarlegaí lOOmbaksundinu Eydis Konráðsdóttir hafhaði í 25. sæti af 27 keppendum í 100 metra baksundi á Evrópumeist- aramótinu í sundi í Vinarborg í gær. Eydís kom í mark á 1:07,60 múnútum. Blak: Stúlkurnar keppaíSvíþjóð Unglingalandslið stúlkna í blaki, u-18 ára, tekur þátt í Norð- urlandamótínu sem fram fer í Svíþjóð um helgina. íslendingar eru í riðli með Finnum og Dönum og fyrsti leikur íslenska liðsins er gegn Finnum í dag. íslenska liöið er þannig skipað: Hrönn Grímsdóttir.Þrótti N Jóhanna Jóhannsdóttir.. .Þrótti N Þóra M. Þórðardóttir.Þróttí N Dagbjört Viglundsdóttir. .Þrótti N Guðrún Jónsdóttír..Þrótti N Auður Gunnlaugsdóttir ..Þrótti N Jóhanna E. Jóhannsdóttir.......KA RagnhildurEinarsdóttir.HK Jóhanna Gunnarsdóttir.Völsungi Hilda Kristjánsdóttir.Völsungi Alda Sveinsdóttir.Völsungi Þjálfari liðsins er Bjarni Þór- hallsson. Körfubolti: HraðmótVals aðHlíðarenda Körfuknattsleiksmenn eru komnir á fullt(í undirbúningi sín- um fyrir keppnistímabilið. Um helgina fer fram hið árlega hrað- mót Vals að Hliðarenda og að þessu sinni er þaö mjög sterkt en 10 úrvalsdeildarlið taka þátt í mótinu og verður fróðlegt áð sjá hvernig þau koma undan sumr- inu. Liðunum er skipt i tvo riðla. í A-riðlileika: Grindavík, Keflavík, KR, Þór og Tindastóll og í B-riðl- inum: Akranes, Valur, Skalla- grímur, ÍR og Njarðvík. Mótið hefst klukkan 19 í kvöld með leik Vals og ÍA en siðan rekur hver leikurinn annan. Á laugardag hefst mótið klukkan 10.30 og stendur til 18 og á sunnudaginn er fyrsti leikur klukkan 11.30. Undanúrslit hefiast síðan klukk- an 17.30 og mótinu lýkur með úrshtaleik klukkan 20. Knattspyrna: Völsungargeta fariðuppí2.deild Völsungur frá Húsavík getur um helgina tryggt sér sæti í 2. deild að ári takist hðinu að vinna sigur á Hetti í kvöld og Dalvík nái ekki að vinna sinn leik á morgun. Heil umferð er á dagskrá 3. deildar og er það 15. umferð af 18. í kvöld eru fiórir leikir sem alhr hefiast klukkan 18.30. Völs- ungur tekur á mótí Hetti, Leiknir fær Ægi í heimsókn, Haukar og BÍ leika á Ásvöhum og Þróttur N. og Fjölnir leika í Neskaupstað. Á morgun klukkan 14 fær svo Selfoss Dalvík í heimsókn. þorsteinnhættb hjá Keflvíkingum Ægir Már Káxason, DV, Suðumesjunu Þorsteinn Bjarnason, annar þjálfara 1. deildar liðs Keflavíkur í knattspyrnu, er hættur störfum þar sem hann fcr um helgina til náms í Bandaríkjunum. Þórir Sigfússon verður því eínn með liðið i lokaumferðunmn. Þor- steiim slundar nám í stjórnunar- fræðum við Montgomeryháskóla í Alabama og þjálfar jafnframt markverði skólaliðsins, en með því leika jafnan margir íslending- ar. +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.