Þjóðviljinn - 02.03.1958, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 02.03.1958, Blaðsíða 9
Sunnudagur 2. marz 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (9, Frá 10. ársþingi Frjáls- íþróttasambands Isiands Brynjólfur Ingólfsson fonn. F.R.Í. Iþróttasíðunni hefur borizt eftirfarándi skýrsla um siðasta ársþing F.R.Í.: Tiunda ársþ.'ng Frjálsíþrótta- sambands íslands, var haldið dagana 19. og 20. október 1957, að Grundarstíg 2 í Reykjavík. Formaður sambandsins, Brynj- ólfur Ingólfsson, setti þingið og bauð gesti og fulltrúa velkomna, en meðal gesta var forseti Í.S.Í Bencdikt G. Waage. Forsetar þingsins voru kjörnir þeir Jens Guðbjþrnsson og Axel Tónsson, en lingritarar ón M. Guð- nundsson og óhannes iölyason.. Þingið sóttu 22 fulltrúar frá 9 íþrótta- og héraðssam- böndum. Formaður F. R.í. flutti ít- arlega skýrslu um störf sambandsins á liðnu starfsárj, sem var eitthvert hið glæsilegasta í sögu frjálsra í- þrótta á íslandi. Reikningar sambandsins voru lagðir fram og samþykktir. Sýndu þeir betri niðurstöðu en verið hefur undanfarin ár, þrátt fyrir hið mikla starf, sem unnið var á árinu. Á þinginu var mikið rætt um skýrslugerðir og skil á þeim frá hinum einstöku héraðs- og íþróttasamböndum innan F.R.Í., og kom í ljós, nð um alvarlega vanrækslu var'að ræða um gerð þeirra og skil hjá mörgum sam- bandanna og að aðeins ( mjög fá -skila góðum skýrslum um starfsemi sína. Gerir þetta starf F.R.Í. mun erfiðara en vera þyrfti. Tillögur Á þ.'nginu voru samþykktar allmargar tillögur og eru þess- ar helztar: 1. Ársþing FRÍ felur stjórn sambandsins að vinna að því, að komið verði á a.m.k. e'nni landskeppni erlendis 1958, i sambandi við væntanlega för ís- lenzkra frjálsíþróttamanna á Evrópumeistaráínótið í Stokk- hólmi. 2. Útbreiðslunefnd FRÍ skorar á ársþing FRÍ 1957 að sam- þykkja að taka inn ó fjárhags- áætlun sína 1957—1958 ákveðna upphæð til útbreiðslu- og fræðslumála, og verði sú upp- hæð einkum miðuð við þessi verkefni: a) Ráðnir verði tveir til þríi þjáifarar ó næsta ári, sem í að minnsta kosti einum mán- uði hver ferð.'st um á vegum FRÍ og aðstoði við þjálfun og undirbúning móta. Verði sú þjálfun sérstaklega miðuð við unglinga og drengi og stefnt að. framkvæmd sérstakrar keppni Í3'rir þá. Þjálfarar FRÍ vinni einnig að fræðslufundum og •dómaranámskeiðum, þar sem því verður vjð komið. b) Útbreiðslunefnd FRÍ verði falið að annast útgáfu sérstakra r.'ta, er veiti haldgóða fræðsiu um þjálfun og heilsurækt og verði þessi rit einkum ætluð þeim, er aðstæðna vegna geta ekki not.'ð leiðsagnar íþrótta- kennara um langan 'tíma. 3. Ársþing FRÍ 1957 lýsir á- nægju sinni yfjr þeirri ný- breytni íþróttaþáttar ríkisút- varpsins að efna til kennsluþátta og bréfanámskeiða, í því skyni að-auka áhuga fyrir langhlaup- um, 3ja, 5 og' 10 kíiómelra, og Vfentir þess, að íþróttamenn færi sér þetta vel í nyt. 4. Ársþing FRÍ vill hér með færa Jóhanni Bernhard, rit- stjóra, þakkir fyrir þá framtaks- semi, sem hann hefur sýnt með því að hefja aftur útgáfu í- þróttablaðsins Sports, og bæta þar með úr hinum mikla skorti, sem verið hefur á málgagni og fréttablaði íþröttamanna. Vill þingið hér með hvetja alla í- þróttamenn og velunnara íþrótta- mála til þess að kaupa þetta vandaða íþróttablað og styðja með því að áframhaldandi út- gáfu þess. 5. Ársþ'ng FRÍ samþykkir að senda menntamálaráðherra, hr. Gylfa Þ. Gíslasyni, kveðju og þakkir fyrir stuðning hans við Frjálsiþróttasamband íslands. 6. Ársþing FRÍ 1957 harmar það, að frjálsar íþróttir skuli hafa verið settar skör lægra ó Irnum nýja leikvangi í Laugar-! dal í Reykjavík en knattspyrna. Skorar þingið á stjórn FRÍ að vinna ófram að því, að Laugar- dalsvöllurinn verði tilbúinn sem fyrst til keppni i frjáísum iþrótt- um og e;gi síðar en ó næsta sumri. Jafnframt skorar þingið á íþróttanefnd ríkisins að hraða sem mest greiðslum til fram- kvæmdanna við íþróttasvæðið í Laugardalnum, t;l þess að þeim verði sem fyrst lokið. 7. Ársþing FRÍ 1957 felur væntanlegri stjórn sambandsins að beita sér fjrrir því, að komið verði á drengjakeppni í frjáls- um íþróttum milli Reykjavíkur og utanbæjarmanna sumarið 1958. Ársþingið vill í þessu sam- bandi beina þe;m tilmælum til íþróttabandalags Reykjavíkur, að það athugi vinsamlega fr.am- Frá landskeppni Islendinga og Dana í frjálsum íþróttum sl. kjörnir: sumar. Myndin sýnir íslenzku sveitina, sem sigraði í 4x100 metra boðhlaupi. Frá vinstri: Höskuldur Karlsson, Hilmar I»or- björnsson, Vilhjálmur Einarsson og Guðjón Guðmundsson. Sigurður Helgason, Stykkish. 'Öm Eiðssön, Reykjavik. 12. Ársþing FRÍ 1957 felur væntanlegri stjórn FRÍ að á- kveða næsta meistarámóti íslands stað og tíma. . Stjórn I stjórn fyrir næsta sthffsár voru kjörnir þessir menn: . Formaður: Brynjólfur Ingólfs- son, Reykjavík. Meðstjórnendur: Björn Vil- mundarson, Reykjavík; Lárus Halldórsson, Brúarlandi, Mos- fellssveit; Þórhallur Guðjónsson, Keflavík; Guðmundur S'gurjóns- son, Reykjavík. Varamenn: Jóhannes Sölva- son, Kópavogi; Jón M. Guð- mundsson, Reykjum, Mosfells- sveit; Örn Eiðsson, Reykjavik. Formaður útbreiðslu'nefndar var kjörinn Bragi Friðriksson, Reykjavík, og formaður dómara- og laganefndar Jóhann Bem- hard, Reykjavík. Í frjólsíþróttadómstól voru kvæmd þessarar tiílögu í sam- bandi við væntanlega íþrótta- hátíð í Laugaróalnum, þegar í- þróttasvæðið verður opnað fyr- ir frjálsar íþróttir. 8. Ársþ'ng FRÍ skorar á vænt- anlega stjóm FRÍ að endur- reisa keppni Reykvíkinga og ut- anbæjarmanna, t.d. á þá leið, að Reykjavíkurliðið verði ein- göngu skipað innfæddum Reyk- víkingum. 9. Ársþing FRÍ 1957 beinir þeim eindregnu tilmælum til væntanlegrar stjórnar, að því verð, komið á framfæri við sam- bandsráð Í.S.Í., að jöfnuði verði komið á um fjöldakeppnir þær, sem hin einstökú sérsambönd hafa beitt sér fyrir undanfarin ár, þannig að aðeins ein slík keppni verði leyfð ár hvert og samvinna þá höfð um sem þezt- an árangur þeirrar greinar. 10. Útbreiðslunefnd FRÍ bein- ir.því til ársþings FRÍ 1957, aö þátttaka og þjálfun kvenna í frjálsum íþróttum verði aukin og efld og jafnframt verði efnt til keppni, sem glæða myndi á- huga í þessa átt. 11. í framhaldi af því, að þing- ið samþykkti reglugerð um heið- ursmerki FRÍ og veitingu þeirra, var samþykkt að veita eftirtöld- um mönnum heiðursmerki sam- bandsins fyrir vel unnin störf í þágu frjálsra íþrótta: Gullmerki FRÍ: Brynjólfur Ingólfsson, Reykjav. Guðmundur Sigurjónsson, Rvk. Sigurður Greipsson, Haukadal. Silfurmerki FRÍ: Baldur Möller, Reykjavík Hermann Stefánsson, Akureyri Jakob Hafstein, Reykjavík Skúli Guðmundsson, Reykjavík Stefán Kristjánsson, Reykjavík Eirmerki FRÍ: Björn Vilmundarson, Reykjav. Guðjón Ingimundars., Sauðárkr. Guðmundur Þórarinsson Rvk. Haraldur Sig'urðsson, sýsluskr., Akureyri Ólafur Tryggvason, Reykjavík Jóhann Bemhard, Reykjavík; Jón M. Guðmundsson, Reykjum, Mosfellssve't; Þórarinn Magnús- son, Reykjavík. Endurskoðendur vom kjörnir þeir Gunnar Vagnsson og Hörð- ur Haraldsson, Reykjavík. ★----- Stjörn FRÍ hefur nú skipt með sér störfum sem hér segir: Brynjólfur Ingólfsson formað- ur, Guðmundur Sigurjónsson varaformaður, Björn Vilmund- arson gjaldkeri, Lárus Halldórs- son ritari, Þórhallur Guðjóns- son skjalavörður, Jóhann Bern- hard, form. dómara- og laganefnd- ar, Bragi Fr ðriksson, form. út- breiðslunefndar. Tilboð óskast í eina International T.D.-9 jarðýtu og einn strætis- vagn, er verða til sýnis að Skúlatúni 4 kl. 8—6 mánudaginn 3. marz n.k. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 11 f.h, þriðjudaginn 4. marz. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer í tilboði. Sölunefnd vamarliðseigna. — Útsala Stórkostleg verðlækkun Handtöskur frá kr. 45.00 Húfur frá kr. 35.00 Hálsklútar frá kr. 25.00 Vettlingar frá kr. 15.00 GLUGGINN Laugaveg 30. Kaffi Te Súkkulaði Úrvals kaffibrauð og sm.urt brauð allan daginn. Hádegisverður Grænmetissúpa Hangikjöt Lambasteik m/grænmeti Saltkjöt Steikt hrogn Skyr m/rjómablandi Apríkósur m/rjóma Kvöldverður Aspargussúpa Lambakótelettur Buff m/lauk Soðin smálúða Skyr m/rjómablandi Aprikósur m/rjóma Miðgarður, Þórsgötu 1 — Sími 17-514

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.