Þjóðviljinn - 17.08.1958, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagnr 17. ágúst 1958
ÞlÓÐVlLIINN
ÚtKefandl: Samelnlngarflokkar alWBu — Sósíallstaflokkurtnn. — Rltstiórari
MaimÚB KJartansBon (4b.), Slguröur Guömundsson. — Fréfctarltstjórl: Jón
BJarnason. - RlaBamenn: Asmundur Sigurjónsson, OuÖmundur Vigfússon,
Ivar H Jónsson. Magnús Torfi ólaísson, Sigurjón Jóhannsson. SigurÖur V.
FHfibJóísson. — Auglýslngastjóri: Ouðgelr Magnússon. — Ritstjórn. af-
areiðsla. augiýslngar. prentsmiðja: Skóla>örðusííg 19. — Sími: 17-500 (Ö
Unur). — Askrlftarverö kr. 30 á món. í Reykjavík og nógrennl; kr. 27 ann-
arsstaöai. - Lausasöluverð kr. 2.00. — Prentsmiðja ÞJóövlljana.
Virkjunarmálin
"f gær var lagður homsteinn
að stærsta raforkuverinu
sem nú er í byggingu hér á
landi, virkjuninni við Efra-
Sog. Méð því er fagnað merk-
um áfanga í raforkumálunum,
því að með tilkomu Efra-foss
stöðvarinnar verður raforku-
framkvæmdum í Sogi lokið og
þá virkjuð þar 73 þúsund
kílówött samtals. Til fullvirkj-
unar Sogsins vantar þá þriðju
vélasamstæðuna í Irafossstöð
sem á að framleiða 15.500
kw og fjórðu vélasamstæðuna
í Ljósafossstöð sem framleiða
á 7500 kw, en ráðgert er að
í Soginu fullvirkjuðu verði
stöðvaraflið sem næst 96 þús.
kw og því ætlað að vinna
árlega 480 milljónir kílówatta-
stunda.
Otöðin við Efra-Sog er fyrsta
^ stöðin sem verður full-
virkjuð þegar á fyrsta virkj-
unarstigi. I henni verða tvær
vélasamstæður, sem framleiða
27 þús. kw samtals. Verður
vatníð í aflstöðinni tekið um
jarðgöng beint úr Þingvalla-
vatni, undan suðvestur bakk-
anum. skammt ofan við út-
rennslisósinn. í sjálfan ósinn
verður sett stífla til að halda
því vatni sem nota á í afl-
stöðinni, en hleypa því vatni
framhiá sem ekki á að nota.
Er stífluhæðin miðuð við það,
að geta haldið hæsta vatns-
borði, sem verið hefur í Þing-
vallavatni, sem er 103 metr-
ar. JarðgHngin eru 380 metrar
á lengd en innanmál þeirra
50 fermetrar. Verða þau fóðr-
uð innan með steinsteypu.
Kemur syðri endi ganganna
út í þró til stillingar á vatns-
þrvstingi, sem sett er í miðja
Dráttarhlíð, norðan Úlfljóts-
vatns. Stendur og stöðvarhús-
ið ejálft á norðurbakka Úlf-
ljótsvatns. Heildarkostnaður
við þessar framkvæmdir er nú
áætlaður um 200 milljónir
króna.
Vert er að vekja á því at-
hygli, að þessi virkjun í
Efra-Sogi ,sem nú hefur verið
lagður hornsteinn að, hefði
þurft að komast langtum fyrr
í gagnið en raun verður á.
Vegna þess hve seint var ráð-
izt í framkvæmdir vofir nú
rafmagnsskortur yfir almenn-
ingi og iðnfyrirtækjum á
orkuveitusvæði Sogsins þegar
á næsta ári. Þetta var fyrir
löngu fyrirsjáanlegt og ræki-
iesra á það hent í tíma af
sósíalistum, sem strax við lok
Irafossvirkjunarinnar hófu
baráttu fvrir því að áfram
vrði haldið og bá þegar ráð-
izt í virkjun Efra-Sogs. Var
það allra hluta vegna sjálf-
sagt og hagkvæmt. Þessu
fékkst þó ekki framgengt fyrir
tregðu og skilningsleysi íhalds
aDanna, bæði innan ríkis-
stiómar og bæiarstjómar
Reykjavikur. Og eftir að á-
kvörðun fékkst loks tekin um
virkjunina og undirbúningi
var lokið reyndist ríkisstjórn
Ólafs Thors þess á engan hátt
megnug að tryggja það fé
sem þurfti til framkvæmd-
anna. Tafði þetta máttleysi
stjórnar Ólafs Thors lengi
fyrir framkvæmdum og leyst-
ist málið ekki fyrr en það
komst í hendur núverandi rík-
isstjómar sem tókst að
tryggja nauðsynlegt fjármagn
til virkjunarínnar.
ótt þessi síðasta virkjun í
Soginu sé merkur áfangi í
raforkumálum okkar og leysi
brýnasta vandann i bili þegar
liún er komin í notkun, er
sannarlega engu lokamarki
náð. Það vatnsafl landsins
sem talið er yel virkjanlegt
nemur 3 milljónum hestafla
en af því hafa aðeins verið
virkjuð 110 þús. hestöfl.
Langsamlega stærsti hluti
hins ónotaða en virkjanlega
vatnsafls er í Þjórsá, Hvítá
í Árnessýslu og Jökulsá á
Fjöllum, eða samtals um 2.4
millj. hestafla. Er nú unnið
að rannsóknum á virkjunar-
skilyrðum í þessum ám og
víðar um land þar sem virkj-
unarskilyrði eru ákjósanleg
eða talin koma til greina.
J hinu ónotaða vatnsafli eig-
um við íslendingar dýrmæt
auðæfi sem eiga að auðvelda
þjóðinni lífsharáttuna og upp-
byggingarstarfið á komandi
tímum sé rétt á. haldið. Með
hagnýtingu þess skapast auk-
in og bætt skilyrði til þess að
byggja upp nýjar atvinnu-
greinar og gera atvinnuvegina
fjölbreyttari og traustari. En
þess þarf jafnan að gæta að
allar slíkar framkvæmdir séu
í höndum og eign Islendinga
sjálfra og engra annarra. Og
fyrsta skilyrðið til þess að
við séum menn til þess að ráð-
ast í stærri virkjunarfram-
kvæmdir og uppbyggingu iðn-
aðar í sambandi við þær er
öflug vemd fiskimiðanna við
Island og stórkostleg efling
íslenzks sjávarútvegs. Fisk-
veiðamar á íslandsmiðum em
sú auðlind sem þjóðin verðu”
að ausa af til þess að geta af
eigin rammleik lyft því Grett-
istaki sem stórvirkjanir og
uppbygging nýrra atvinnu-
greina í iðnaði er fyrir jafn^
fámenna þjóð og Islendinga.
hvað sem.um framtíðina
má segja í þessum efnum
þoiir það nú enga bið að á-
kveða næsta virkjunarstað.
Sérfræðingar fjalla nú um
nauðsynlegar rannsóknir og
undirbúning þeirra fram-
kvæmda. Langmestar . líkur
munu til að Þjórsá eða Hvítá
verði fyrir valinu. Raforku-
þörfin og þróun atvinnulífs-
ins hér í þéttbýlasta hluta
landsins knýr á um ákvarðan-
Fréttabréf frá Portoros
Portoros, 8. ágúst.
Fyrsta umferð átti að hefj-
ast klukkan fimm á þriðju-
dag, en blaðaljósmyndarar
komu í veg fyrir það. Þeir
linntu ekki látum fyrr en
klukkan hótaði að slá sex,
þá höfðu þeir vaðið um í
rúman klukkutíma með tvö
þúsund kerta perur til að
styrkja í mönnum augun.
Keppendur voru greinilega
Friðrik'
vankaðir fyrst eftir myndaat-
ið, Enda komu fyrstu leik-
irnir óvenju dræmt. Sumir
hertu á sér í miðtaflinu, en
á fimm borðum varð tíma-
hrakið svo geigvænlegt að
keppendur hættu að skrifa
ieikina.
Friðrik hafði hvítt gegn
Szabo og lék enska leikinn
eins og oft áður. Kom út
Tarrasch-vörn og valdi Szabo
sænska afbrigðið, sem stefn-
ir að því að kæfa hvítan strax
í byrjun. Hefur Szabo sjálf-
sagt búizt við að Friðrik
þekkti afbrigðið illa og var
sú raunin.
Vísarnir á klukku Friðriks
fóru langar leiðir, en á með-
an högguðust vísar Ungverj-
ans varla. Friðrik hafði not-
að tímann vel. Þegar i ell-
efta leik kom hann með at-
hyglisverða nýung. Er það á-
lit meistaranna hér að um
sé að ræða verulega endur-
bót á afbrigðinu, en fréttir
af leiknum hafa þegar verið
sendar til Svíþjóðar. Þessi
nýung Friðriks kom sem
vænta mátti flatt upp á
Szabo og Friðrik jók yfir-
burði sína jafnt og þétt.
Eftir tuttugu leiki er staða
Ungverjans orðin voniítil,
nema hvað tími Friðriks er
orðinn mjög naumur. Friðrik
getur unnið skiptamun en
velur aðra leið, sem er að
vísu ágæt, en ekki nægilega
örugg í tímahraki. I 28. leik
tekur hann loks skiptamun-
inn, en fórnar honum aftur
skömmu seinna.
ir og framkvæmdir. Fram-
kvæmd stórrar virkjunar tek-
ur jafnan nokkurn tíma þótt
öll áherzla sé lögð á að hraða
verkinu. Næsta virkjun hér
suðvestanlands þarf að verða
komin í gagnið eigi síðar en
1966—67. Þetta þýðir að það
má ekki dragast lengur en til
næsta árs að ákvarða það
■vatnsfall sem næst verður
beizlað til meiriháttar raf-
orkuframleiðslu í þágu lands-
manna.
Szabo er nú greinilega bú-
inn að missa alla trú á stöðu
sinni og reynir allt hvað hann
getur til að trufla Friðrik í
tímahrakinu, en finnur ekki
beztu vörnina. Þegar skákin
fór í bið er Szabo með tapað
tafl. Gafst hann upp tveim
dögum síðar án þess að tefla
áfram.
Tal tefldi enska leikinn við
Kolumbíumanninn de Greff
og vann auðveldlega í tæpum
þrjátíu leikjum.
Það einkennir sovétmeist-
arann hve lítið hann virðist
reyna á sig. Mig rekur ekki
minni til þess að hafa nokkru
sinni séð hann í tímahraki.
Aftur á móti komast and-
stæðingar hans nær alltaf í
timrþröng.
Fischer tefldi með hvítu
gegn Neikirk. Mátti undra
barnið þakka fyrir jafntefli
eftir 16 leiki. Búlgarinn hafði
dustað rykið af æfagömlu af-
brigði, sem Bandaríkjamað-
urinn hefur ekki haft tíma til
að læra á sinni stuttu ævi.
Jafritefliskóngamir Panno
og Pachman sömdu um við-
eigandi úrslit eftir 26 friðsæla
leiki í katalónsku tafli.
Bent Larsen hafði hvítt
gegn dr. Filip, fékk hann
snemma betra tafl, en varð
ekki ágengt í miðtaflinu og
bauð jafntefli eftir 32 leiki.
Ungversku flóttamennirnir
Benkö og Fúster tefldu Sikil-
eyjartafl. Jafnaði Fuster
snemma taflið og hafði ágæta
stöðu þegar hann lék af sér
drottningunni í tímaþröng og
tapaði.
Averbach lék enska leik-
inn gegn Cardoso frá Filips-
eyjum. Hafði hann lengst af
betra tafl og miklar vinnings-
líkur þegar skákin fór í bið.
I einföldu aúðunnu biskups-
tafli lék hann hrapalega af
sér og Cardoso náði jafntefli.
Vakti þetta geysimikla furðu,
þar eð Averbach hefur skrif-
að geysiþykkar bækur um
slik endatöfl. Það er heldur
ekki á hverjum degi, sem
unglingar frá Asíu slysa jafn-
tefli á rússneska stórmeist-
ara.einsog Freysteinn komst
að orði.
Skák þeirra Sanguinetti og
Matanovic var all söguleg
framan af. Tefldu þeir af-
forigði af spönskum leik og
virtist Matanovic kunna það
mjög vel. Fékk hann snemma
gott tafl, en Sanguinetti sneri
á hann í miðtaflinu og vann
peð. Þegar skákin fór í bið
hafði Sanguinetti litla vinn-
ingsmöguleika og skákinni
lauk með jafntefli.
Einna athyglisverðustu
skákina í umferðinni tefldu
Bronstein og Gligoric, Sáisch-
afbrigði af kóngsindverja. ■
Ellefti leikur Bronsteins var
nijög athyglisverður og senni-
lega nýung. Hugmyndina hef
ég séð áður hjá Braga Þor-
bergssyni, en veit ekki til
þess að hún hafi verið notuð
áður í kappskák. Gligoric
fékk snemma erfiða stöðu og
síðan gjörtapað tafl, en tíma-
þröngin varð svo mikil að
hvorugur vissi leikja sinna
tal. Léku þeir tveimur leikj-
um meira en þeir þurftu. Lék
Bronstein af sér í bæði skiþt-
in og varð að sætta sig við
jafntefli.
★
Önnur umferð var ekki eins
skemmtileg og sú fyrsta,
Tímahrakið minna og jafn-
teflin fleiri. Friðrik tefldi
Sikileyjarvörn gegn Pachman.
Valdi sá síðarnefndi óárenni-
legt afbrigði, sem Guðmund-
ur Ágústsson teflir alltaf
þegar hann getur. Eyddj.
Friðrik miklum tima í að
jafna taflið og samdi jafn-
tefli eftir að sama staðan
hafði komið upp tvisvar.
Petrosjan tefldi kóngs--
indverja við de Greiff. Hafði
Kólumbíumaðurinn lengi
skárri stöðu, en samdi jafn-
tefli eftir 30 leiki.
Tal tefldi Sikileyjarvörn
gegn Szabo, sem var greini-
lega miður sín eftir skákina,
við Friðrik. Fékk Tal snemma
betra tafl og vann örugglega.
Matanovic og Panno tefldu
einnig Sikileyjartafl. Panno
hafði fundið nýjan leik í
þekktri stöðu, tefldi hann mið-
taflið mjög vel og átti tveim
peðum meira þegar skákin
fór í bið, en Matanovic virð-
ist vera snillingur í slæmum
stöðum. Hann lét péðin sín
standa í dauðanum og óð
með kóng hrók - og riddara
upp borðið og hótaði að máta
Panno, en hann bjargaði sér
á þráskák.
] Szabo
Dr. Filip tefldi Rétibyrj-
un við Sanguinetti. Átti sá
síðamefndi unnið tafl, en lék
því miður í jafntefli í tíma-
hraki.
Larsen hafði svart gegn
Cardoso og tefldi afbrigði af
Sikileyjarvörn sem nær eng-
inn þorir að tefla nema hann.
Reyndi hann um of að flækja
taflið og komst í taphættu,
en náði jafntefli.
Þeir Gligorie og Averbac,
Neikrich og Bronstein sömdu
jafntefli eftir um það bil 20
leiki án þess að til tíðinda
drægi.
Benkö tefldi Sikileyjarvöm
gegn Rosetto, hafði hann
lengi betri stöðu, en tefldi
of ákaft til vinnings og komst
í taphættu, en bjargaði sér
snilldarlega.
1 þessári umferð var
Bobby Fischer mun heppnari
en í þeirri fyrstu. Var
staða hans gjörtöpuð þegar
Fúster tók að leika af sér í
timahraki. Fyrst missti hann
vinningsmöguleikana í peðs-
Framhald á 6. síðu.