Þjóðviljinn - 20.03.1960, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 20.03.1960, Blaðsíða 12
þJOÐVIUIHN Sunnudagur 20. marz 1960 — 25. árgangur — 67. tölublað Frœgasti gluggi á íslandi - og er þó ekki til ennþó r T 1 \ Þessi mynd er tekin um borð i Vatnajökli, en liann er nú í = E JJQgSKUI Olir Slippnum í 12 ára klössun. Starfsmaður frá Stálsmiðjunni er að = E vinna við að logskera stóran hlu'ia af skipsskrokknum og þeytast eldglæringarnar í all- E E ar áttir. Viðgerðin á Vatnajökli mun taka um mánaðartíma. — Ljósm.: Þjóðviljinn. E iTi i i 111111111111111111111M11111111111 i 1111111M1111111 i 111111111111111 m 111111111111111111111111111111111 f 1111111111111111 n 11111111111111111 iTl Yeiting yíirhaínsögu- mannsstarís hneyksli IhaldiS þverbrýtur allar r eglur og hefur * áskoranir félaga og einstaklinga aS engu Skipunin í yfirhafnsögumannsstarfið hér 1 Reykjavik er reginhneyksli sem sýnir aö íhaldiö telur sig geta brotið allar reglur um starfsveitingar og viröist staðráöiö aö ráða til starfa eftir þeirri reglu einni að það séu nógu auðsveip peö. Á fundi í hafnarstjórn 11. þ.m. var samþykkt með 4 atkvæðum gegn 1 að ráða Einar Thorodd- Sen yfirhafnsögumann. Þórður Björnsson skýrði frá því á síð- asta bæjarstjórnarfundi að hann hefði greitt það eina atkvæði sem Einar Thoroddsen ekki fékk, Og færði ýtarleg rök fyrir því hversvegna hann teldi að öðrum hel'ði borið starfið, kvaðst hann telja að starfsaldur ætti að ráða nema því aðeins að elzti starfs- maðurinn væri ónýtur til starfs- ins eða óreglumaður. Guðmundur J. Guðmundsson kvaðst undrast þessa ráðningu mjög. Fyrir fundi hafnarstjórnar lágu bréf frá 6 hafnsögumönnum þar sem þeir> óskuðu að starfs- áldur væri látinn ráða við ráðn- ingu í starfið. Ennfremur bréf frá Starfsmannafélagi Reykja- víkurbæjar þar sem það óskaði að fullt tillit væri tekið til starfsaldurs og hæfni og réttur eldri starfsmanns virtur að fullu. Einnig bréf frá skipstjóra- og stýrimannafélaginu Öldunni og bréf frá Þorvarði Björnssyni yf- irhafnsögumanni með sérstæðum meðmælum með einum umsækj- endanna Kolbeini Björnssyni fyr- ir sérstakan dugnað og hæfni, en Kolbeinn hefur þegar á hefur þurft að halda gegnt yfirhafn- sögumannsstarfi. Umsækjendur um starfið voru 4. Theodór Gíslason heíur verið hafnsögumaður frá 1941 og Kol- beinn Finnsson var skipaður 1942. Magnús Runólfsson nokkr- um árum síðar. En Einar Thor- oddsen, — maðurinn sem íhald- ið réð til starfsins — ekki fyrr en 1955! Hefur gegnt starfinu i 5 ár en hinir um 20 ár. Maður skyldi halda, sagði Guð- mundur J., að eitthvað sérstakt lægi fyrir um yfirburði þessa manns sem hefur stytztan starfs- aldur. Hverju á þetta að þjóna? spurði Guðmundur J. Á að fara eftir viðurkenndum almennum reglum um ráðningu tii starfa? Það hefur ekki verið gert, heldur allar slikar reglur þver- brotnar. Hefur verið ráðinn hæfasti maðurinn? Ekkert liggur fyrir um að svo sé, hcldur hefur annar maður fengið sérstök meðmæli. Ég skora á þá tvo hafnarnefnd- armenn sem hér eru á fundinum að skýra okkur frá því hverjir þeir yfirburðir Einars Thorodd- sens eru, sem réðu því að þeir kusu hann, en fóru ekki eftir óskum hafnsögumannanna, Skip- Frnmhald á 3. siðu X síðasta blaði Verkamanns- ins blaðs sósíalista á Akureyri, er eftirfarandi frásögn: Óvenjulegt mál hefur að und- anförnu verið til meðferðar hjá bygginganefnd og bæjarstjórn Akureyrar. Þau eru málsatvik, að hinn 8. janúar sl. skrifaði Gunnar Steindórsson bygginga- nefnd bréf, þar sem hann ósk- aði eftir að fá leyfi til að setja glugga á suðurstafn íbúðar sinnar í Vanabyggð 2A. Teikn- ing af breytingunni, gerð af Sigtryggi Stefánssyni, fylgdi bréfi Gunnars. En upphaflega teikningu af húsinu Vanabyggð 2A gerði Stefán Reykjalín, hann byggði einnig húsið og seldi Gunnari íbúðina, sem hann á þar nú. Þegar umsókn Gunnars kom til afgreiðslu í bygginganefnd mótmælti Stel'án Reykjalín. sem sæti á i nefndinni, að breytingin yrði gerð og hélt því fram, að þar sem hann væri höfundur að teikningu umrædds húss, gæti ekki bygg- inganefnd eða aðrir leyft nein- ar breytingar á húsinu, nema að sjálfsögðu opið fyrir höfund teikningarinnar að höfða mál gegn bæjarstjórn fyrir að hafa geíið leyfi til breytingarinnar, gæti hann þá sennilega einnig fengið það bannað, að glugginn yrði settur upp á meðan með- ferð málsins stendur yfir. Með því að af málsókn verði fæst úr þvi skorið, hvort höfundar- réttur yfir teikningu nær til þess, að höfundur geti komið í veg fyrir allar breytingar á húsi, sem hann hefur teiknað, meðan hann lifir og afkomend- ur hans í 50 ár eftir andiát hans. Myndi þá ekki mörgum þykja allillt í efni, ef höfund-. ar almennt notuðu sér þennan rétt til að koma í veg fyrir breytingar á húsum, sem þeir hafa teiknað. En glugginn, sem ennþá er ekki kominn á íbúð Gunnars, er þegar orðinn einhver íræg- asti g'luggi á íslandi, eins og bæjarstjóri komst að orði á síð- asta bæjarstjórnarfundi. Mikið á þó frægð hans eftir að auk- ast, ef mál hans á eitir að verða tekið fyrir í hérað$dómi samþykki hans, sem höfundar, °§ Hæstarétti (og kannski kæmi til. Bar hann það fyrir sig', að teikning hússins væri'* hugverk, sem verndað væri samkvæmt höfundalögum, þ. e. iögum um rithöfundarétt og prentireisi, svo og Bernarsam- þykktinni, sem ísland hefur i'ullgilt og hefur þvi lagagildi hér á landi. XÍrslit máisins urðu þau. að bygginganefnd felldi með 3 atkvæðum gegn 2 að verða við beiðni Gunnars. 1. marz kom málið fyrir bæj- arstjórn. Þar var samþykkt að vísa því aftur til bygginga- nefndar til nánari athugunar. — 11. marz var erindi Gunnars að nýju tekið fyrir í bygginga- nefnd, en bygginganefndin taldi ekkert nýtt hafa komið fram í málinu og afgreiddu það frá sér á sama hátt og áður. 15. marz kemur málið enn fyrir bæjarstjórn. — Urðu þá nokkr- ar umræður og virtust bæjar- fulitrúar á einu máli um, að hér væri um háiögfræðilegt at- riði að ræða, sem ekki yrði úr skorið nema af dómstólum. Bæjarstjóri upplýsti m.a., að mál af þessu tagi myndi aldrei fyrr hafa skotið upp kollinum hér á landi. Endalok urðu þau, að bæjarstjórn samþykkti með 7 atkvæðum gegn 1 að leyfa Gunnari að setja umræddan glugga ó íbúð s:na. Er nú ekki vitað, hvað næst gerist í þessu máli. en það er Mannréttindadómstóli Evrópu). 30. sýning í dag Halldór • Pétursson hefur teiknað þessa mynd af „Tobba gamla“ veðurspámanni í „Kardemommúbæ“, en þessi skemmtilegi leikur verður sýnd- ur í þrítngasta sinn í Þjóð- leikltúsinu í dag. miiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiuiiiiiíuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiimimiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiiiiib Alger afvopnun eina færa leiðin Akureyrardeild Menning- ar- og friðarsamtaka ís- lenzkra 'kvenna gekkst ný- lega fyrir almennum fundi. Meðal ræðumanna var dr. Andrea Andreen frá Svíþjóð. í fundarlok var eftirfarandi ályktun samþykkt. „Almennur fundur, babl- inn á Akureyri 9. marz 1960 að tilhlutan Menningar- og friðarsamrtaka íslenzkra kvenna, lýsir einhuga fylgi sínu við algera afvopnun allra þjóða, og telur þá leið eina færa til að tryggja vaxandi og varanlega vel- ferð alls mannkyns. Það er von fundarins, að á fundi æðstu manna stór - veldanna verði tekinn til meðferðar undirbúningur að*. — Algeru banni við kjarn- o rku'vopnatilraunum. — Samningum um að jafna «)11 deilumál og ófrið, sem nú eru á döfinni_ — Almennri og algerri af- vopnun." Á fundinum var einnig samþykkt ályktun, þar sem s'korað er á íslenzk stjórn- arvöld að verða við mála- leitan sjálfstæðishreyfingar Njasalands. immuuuuimuiiiiiiiuuummuiuiiiiiumuimimummuuiuiimiimmmi mmmuuiuuuuuuuuuuimuuuuuuuuuuuuumiiiiiimiiimiiuiimimm

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.