Þjóðviljinn - 24.05.1966, Síða 12
!
I
I
GuSmundur Vigfússon um kosningaúrslitin:
Agætur árangur, sem getur
úrslitum um stjórnmálaþróunina
ráðið
!
Þjóðviljinn bað í gær Guð-
mund Vigfússon að segja
nokkur orð um úrslit kosn-
inganna, og fara ummæli
hans hér á eftir:
„Við borgaTstjómaxkosning-
amar í Reykjavík á sunnu-
daginn hlaut Alþýðubandalag-
ið 7668 atkvæði eða 19,7% af
gildum atkvæðum. Við borg-
arstjómarkosningamar 1962
hlault Alþýðubandalagið 6114
atkvæði í Reykjavík eða
16,8%. Fylgisaukning Alþýðu-
bandalagsins nemur því 1554
atkvæðum og 2,9%. Ég tel að
Álþýðubandalagið megi vel
við þessi urslit una.
Eftir þessar kosningar er
Sjálfstæðisflokkurinn kominn
í minnihluta meðal reyk-
vískra kjósenda. Hann hafði
í borgarstjómarkosningunum
1962 52,9% gildra atkvæða
og 2072 atkvæði fram yf-
ir andstöðuflokkana. Við
kosningamar s. 1. sunnu-
dag hlaut Sjálfstæðisflokkur-
inn aðeins 48,5% gildra atkv.
og hafði nú 1132 atkv. færra
en andstöðuflokkamir saman-
laglt. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur því tapað 4,4% atkv.
frá 1962, hann fær 291 atkv.
færra en þá, og tapar auk
þess allri aukningunni.
Þetta er mikið áfall fyrir
Sjálfstæðisflokkinn og virðist
auðsætt að hann hafi ekki
sízt goldið óvinsælda stjómar-
stefnunnar. Alþýðuflokkurinn
hefur hins vegar sloppið bet-
ur og er þess þó að gæta,
að hann virðisit nú hafa heimt
betur en oft áður. það fylgi
hans, sem veikast er fyrir á-
róðri Sjálfstæðisflokksins og
venjulega fer yfir til þess
flokks í borgarstjórnarkosn-
ingum. Atkvæðaaukning Al-
þýðuflokksins nemiu: 3,7%
miðað við borgarstjómarkosn-
ingamar 1962 en atkvæðatala
hans er nú eilítið lægri en
í þingkosningunum 1963.
Enda þótt Framsóknarflokk-
urinn fái nú 4,3% hærri at-
kvæðatölu en 1962 er augljóst
að sókn þess flokks er nú
stöðvuð í Reykjavík. Hann
fær nú aðeins lítið eitt hærri
atkvæðatölu en í þingkosn-
unum 1963. Framsókn ætlaði
sér þó áreiðanlega stærri hlut
nú, og mátti glöggt greina
það af skrifum og málflutn-
ingi þeirra Framsóknarmanna.
Augljóst er að Framsókn hef-
ur í þessum kosningum tapað
glímunni við Alþýðubanda-
Iagið um fomstusætið fyrir
andstöðunni við Sjálfstæðis-
flokkinn í Reykjavík. Um
þetta verður ekki deilt nú
þegar úrslitin liggja fyrir.
Alþýðubandalagið í Reykja-
vik hafði mjög skamman
tima til undirbúnings og at-
hafna fyrir þessar kosningar.
Ég tel engan vafa á, að við
höfum að nokkm goldið
þessa. og að árangurinp hefði
orðið enn betri með lengri
undirbúningstíma og skipu-
Iagðari vinnubrögðum.
Stuðningsmenn Alþýðu-
bandalagsins unnu frábært
starf fyrir samtök síti og
framboðslista á þeim skamma
tíma, sem um var að ræða.
Þetta ber að þakka nú að
loknum kosningum, og að náð-
um ágætum árangri, sem mikl-
um úrsliltum getur ráðið um
stjómmálaþróun næstu ára,
um Ieið og heitið er á menn
til áframhaldandi starfs og
nýrra dáða fyrir stefnu og
málstað Alþýðubandalagsins.‘‘
|
!
\
\
\
\
\
\
\
\
&
Þriðjudagur 24. maí 1966 — 31. órgangur
114. tölublað.
Norðmenn efstir
á bridgemótinu
Kópavogur.-
Ágætur árangur óháðra, en
óvissa um stjórnarsamstarf
□ Þetta er ágætur árangur, sagði Ólafur Jónsson full-
trúi óháðra kjósenda í bæjarstjóm Kópavogs. — Við höf-
um haldið okkar hlutfalli meðal kjósenda þrátt fyrir
gífurlega mikla fjölgun og innflutning. Við erum ánægðir
með þessa niðurstöðu og ég vil nota tækifærið og þakka
ágætt og samstillt starf allra sem unnið hafa fyrir H-
listann í þessum kosningum.
Um atkvæðaaukningu
Sjálfstæðisflokksins sagði
Ólafur, að hún væri eðli-
leg, fjölgunin í bænum
væri innflutningur beint úr
Tteykjavík, þar sem Sjálf-
stæðisflokkurinn ætti miklu
stærri hluta meðal fbúa en
í Kópavögi, og hefði verið
fyrirfram' vitað, að hann
ætti það einnig meðal þessa
nýja fólks.
Þrátt fyrir þessa aukn-
ingu íhaldsins, tel ég úrslit-
in sýna ótvírætt traust á
okkar starfi hér og bæjar-
stjóranum.
— Verður framhald á
samstarfi með Framsókn í
bæjarstjóm?
— Við lýstum því yfir
fyrir kosningar að við vild-
um halda samstarfinu á-
fram, en þar sem Framsókn
féllst ekki á að gefa sams-
Eins og frá hefur verið skýrt
í Þjóðviljanum var Norræna
Bridgemótið sett á sunnudaginn
| að Hótel Sögu. Eftir tvær um-
i ferðir voru Norðmenn eftir og
! vakti það furðu manna að Sví-
ar, sem hafa verið sigurvegarar
mörg undanfarin ár, voru í 3.
sæti eftir tvær umferðir í opna
flokknum. Þriðja umferðin var
spiluð í gærkvöld og var henni
ekkl lokið -þegar blaðið fór í
prentun.
Úrslitin úr 1. umfer'ð voru
þessi: Finnland II — Danmörk
1 125:95 6—0. Noregur I Finn-
land I 103:65 6—0. ísland I —
Danmörk II 97:83 5—1. Sviþjóð
I — Noregur II 50:76 0—6. Sví-
þjóð II — ísland II 84:82 3—3.
í annarri umferð fóru leikar
þannig: Noregur I — Finnland
II 109:55 6—0. ísland I — Dan-
mörk I 69:100 0—6. Svíþjóð I —
Finnland I 82:94 1—5. Svíþjóð
II Danmörk II 90:64 6—0. ísland
II — Noregur II 51:103 0—6.
Úrslitin í kvennaflokki urðu:
ísland — Finnland 97:93 3—3.
Noregur — Svíþjóð 115:136 1—5.
Danmörk sat yfir.
Staðan í opna flokknum er þá
þessi: Noregur 24 stig, Finnland
11 stig, Svíþjóð 10 stig, ísland
8 stig og Danmörk 7 stig.
GEuggagægir tek-
inn í Kópavogi
Síðan um áramót hefur lög-
reglan í Kópavogi verið í elt-
ingaleik við gluggagægi, sem
hrellt hefur fólk í Vesturbænum.
1 fyrrinótt náðist hann' loksins
og reyndist vera unglingspiltur.
Pilturinn játaði strax á sig að
hafa kíkt á glugga af og til und-
anfarna mánuði. Hann er nú i
gæzlu í upptökuheimilinu £
Kópavogi.
Ódýr skófatnaður frá Frakklandi
Fyrir kvenfólk og börn
Nýjar sendingar
Skóbúð Austurbæjar Skókaup Kjörgarði
Laugavegi 100 Laugavegi 59
ðdýrir sandalar
Fyrir-drengi og karlmenn
Nýjar sendingar
Skóbúð Austurbæjar Skóval Austurstræti 18
Laugavegi 100 Eymundsonarkjallara
Ólafur Jónsson
konar yfirlýsingu fyrir
kosningar, ríkir nú nokkur
óvissa um áframhaldandi
stjórn á bænum.
Á kjörskrá í Kópavogi voru
að þessu sinni 4247 kjósendur,
þar af greiddu 3807 atkvæði
eða um 90 af hundraði. 1 bæj-
arstjómarkosningunum 1962
voru 3103 á kjörskrá í Kópa-
vogi og kosningahluttaka 90,7
prósent.
Úrslit urðu nú þau, að A-Iisti
Alþýðuflokksins hlaut 360 at-
kvæði og 1 mann kjörinn, bætti
við sig 89 atkvæðum frá kosn-
ingunum 1962. B-listi Fram-
sóknarflokksins hlaut 966 at-
kvæði og 2 mcnn kjörna, bætti
við sig 219 atkvæðum. D-listi
Sjálfstæðisflokksins hlaut 1203
atkvæði og 3 menn kjörna,
bætti við sig 402 atkvæðum.
H-Iisti Félags óháðra kjósenda
hlaut 1196 atkvæði og 3 menn
kjörná, jók atkvæðatölu sina
um 269 atkvæði. Auðir seðlar
og ógildir voru 82.
Bæjarfulltrúar Félags óháðra
kjósenda eru Ölafur Jónsson,
Svandís Skúladóttir og Sigurð-
ur Grétar Guðmundsson. Vara-
menn Ámi Halldórsson, Gunn-
ar Guðmundsson og Sigurður
Ólafsson.
Skotið á Kúbúbúa
frá Guantanamo
HAVANA 23/5 — Landvama-
ráðuneytið á Kúbu tilkynnti í gær
að landamæravörður að nafni,
Luis Ramirez Lopiz. hefði lát-
izt af sárum sem hann hlaut
þegar skotið var á hann frá
bandarísku herstöðinni i Guant-
anamo á suðausturströnd Kúbu.
Bandarískir hermenn hefðu einn-
ig skotið á aðra landamæraverði
Kúbumegin við herstöðvarmörk-
in.
W
Arekstur tveggja
enskra togara
ÍSAFIRÐI í gær frá fréttarit-
ara. Síðastl. laugardagsmorgun
varg árekstur mjlli 2ja brezkra
togara 45 sjómilur úf af Deild.
Togarj frá Grimsby, Admiral
Rumett sigldi á bakborðssíðu
togarans Ross Howe frá Aber-
deen. Skipin eru nú á ísafirði
og fara væntanlega fram sjó-
próf í málinu.
Togarinn Admiral Burnett
fór talsvert inn í hitt skipið
og lenti stefnið á honum á
brúarvængnum sem skemmdist
rnikið. Síðan á togaranum, sem
isiglt var á var rifin niðurúr
og var rifan á 2. m. á breidd.
Innan við gatig eru olíugeymar,
sem komu í veg fyrir að sjór
kæmist innúr og þarmeð áð
skipið sykki samstundis.
Þag var um eitileytið aðfara-
nótt sunnudaigsins sem fjórir
togarar si'gldu inn £ ísafjarðar
höfn voru það tveir ofantaldir
togarar og tveir aðrir enskir
togarar sem drógu þá.
Verið er nú að gera við
skemmdir á Admiral Bumett í
skipasmíðastöð Marselíusar
Bernharðsonar en enn er óá-
kveðið hvar viðgerð á hinum
togaranum fer fram og er vænt-
anlegur maður frá Engiandi til
að rannsaka skemmdirnar
Áhöfnin af Rqss Howe dvelst
nú á Herkastalanum á ísa-
'firði nema hvað skipstjórinn
er um borg í Admiral Bumett.
Á sunnudagskvöldið ' var
slökkvilið bæjarins kallað út
tvisvar vegna þess ag kviknað
hafði lítillega í einum enska
togaranum. Þetta kvöld var
mikjl ölvun á ísafirði o^ menn
í æstu skapi o? urðu slagsmál
Kona meiðist
Um hádegi í gær vildi til ó-
happ í Sláturfélagi Suðurlands
vig Skúlagötu Pappakassar sem
lagðir höfðu verið í búnt féllu
út um giugga og lentu á vegfar-
anda, Jóhönnu Jónsdóttur, sem
á heima á Lindargötu 61. Hlaut
konan skurð á gagnauga og var
flutt á slysavarðstofuna.
á höfninni. í slagsmálum þess-
um var einn s'kjpverja af Admi-
ral Bumett særður á hálsi með
hnífi.
Þá gerðist það á ísafirði í
þann mund ©r talning atkvæða
hófst þetta sama kvöld að tveir
drukknir menn bmtust inn í
kirkju staðarins og stálú messu-
víni. Þegar lögreglan kom þar
að vom þeir að henda kirkju-
munum út um glugga, en munu
ekki hafa skemmt mikið. —- H.Ó.
Rætt í Svíþjóð
um eftirlit með
kjarnatilraunum
STOKKHÓLMI 23/5 — I dag
bófst í Stokkhólmi alþjóðaráð-
stefna vísindamanna um leiðir
til að fylgjast með kjamaspreng-
ingum neðanjarðar. Sænska
stjórnin átti fmmkvæðið að ráð-
stefnunni sem vonazt er til að
auðveldi samkomulag um bann
við slíkum kjarnatilraunum. Á
ráðstefnunni em vísindamenn frá
Ástralíu. Kanada', Egyptalandi,
Indlandi, Japan Dg Póllandi. Það
hefur veriðt umdeilt atriði hvort
fylgjast mætti með kjarnaspreng-
ingum neðanjarðar á jarð-
skjálftamælum, og ætlunin er að
reyna að komast að ákveðinni
niðurstöðu.
Börn í hættu
Rétt fyrir kl. 3 í gærdag barst
tilkynning til lögreglunnar um
að 2 börn væru á leiðinni út
Granda. Að sögn lögreglunnar
er það algengt að krakkargangi
út Granda meðan fjara er en
komizt svo ekki til baka. 1 betta
skipti vora þama tvær 10 ára
telpur og þurftu lögreglumenn og
menn úr björgunarsveit Ingólfs
að vaða upp að hnjám með telp-
urnar í fanginu til að komast á
þurrt land.