Þjóðviljinn - 27.10.1970, Page 1
Þriðjudagur 27. október 1970 — 35. árgangur — 244. tölublað.
íslenzka sveitin er 7. á brídgemótinu
íslenzku sveitinni vegnaði ekki
vel á Evrópumeistaramótinu í
bridge um helgina. Á föstudags-
kvöld var hún komin í 1.-2. saeti
en í þeim fjórum umferðum, er
spilaðar voru á laugardag og
sunnudag hrapaði hún niður í
7. sæti.
í 9. umferð föpuðu íslending-
ar fyrir Líbanonmönnum með 6
stigum _ gegn 14. í 10. umfer’ð
gerðu íslendingar hins vegar
jafntefli við ítali, 10:10. í 11.
umferð töpuðu íslendingar fyrir
Finnum, er voru með neðstu
sveitunum á mótinu með 6 stig-
um gegn 14 og loks töpuðu þeir
í 12. umferð fyrir Austurríkis-
mönnum með 0 gegn 20.
Röð efstu sveitanna eftir 12
umferðir er þessi: 1. ítalía 172
stig. 2. Pólland 169, 3. Frakkland
167, 4. Sviss 158, 5. Austurríki
152, 6. Svíþjóð 150, 7. ísland 145.
írland er í 8. saeti, Bretland í
9., Holland í 10. og Noregur í
11. sæti.
Eftir er að spila 9 umferðir.
þannig að röðin á eftir að breyt-
ast mikið enn.
I$>-
Launafólk skipi sér um einn öflugan flokk
— sem berst fyrir hagsmunamálum alþýðu. Aðrar leiðir til að
tryggja sókn vinstri stefnu á Íslandi eru ekki til. Grund-
völlur vinstrisamvinnu verður að vera raunhæf vinstristefna
Eigi Alþýðubandalagið að ná árangri í þeim örlaga-
ríku átökum. sem framundan eru, verður flokkurinn að
eflast svo mjög að hann geti haft úrslitaáhrif á þróun
þjóðmála. Alþýðubandalagið hefur haslað sér völl sem
flokkur íslenzkra launamanna í mjög nánum tengslum
við verkalýðshreyfinguna. Urslit sveitarstjórnarkosn-
inganna í vor sönnuðu að Alþýðubandalagið er forystu-
flókkur launafólks á íslandi og kjaraátökin miklu stað-
festu þá staðreynd. En á meðan launafólk lætur sundra
sér í margvíslegum stjórnmálasamtöku'i.n getur það
ekki haldið til jafns við sameinaðan flokk hægrimanna
á stjórnmálasviðinu. Eigi launafólk að ná árangri í
kjaramálum og félagslegi'i baráttu verður að skipa sér
um einn öflugan sósíalískan stjómmálaflokk, sem er
hagsmunatæki alþýðu og berst fyrir óhvikulli félags-
legri stefnu. Aðrar leiðir til að tryggja sókn vinstri
hreyfingar á fslandi eru ekki til.
Ofangreindui' kafli er loka-
kafiii aðaiályktunar filokiksráðs-
fundar Aliþýðubandalagsins, en
fundinum lauk á sunnudags-
kvöld. Ályktunin um atvinnu-
og dýrtíðarmál verður birt í
heild í blaðinu síðar, en auk
hennar var samlþykkt ályktun
um vinstrasamista,rf, þar sem
hafnað er slagorðaigilamri um
vinstrasamstarf, en krafizt
vinstrasamstarfs um raun-
hæfa vinstristefnu: Vinstri-
stefna verður að fela í sér
samstarf við vedkaaýðshreyf-
inguna og önnur samtök vinn-
andi fölks, segir í ályktun
fiundarins og ennfremur: —
Raunveruleg vinstristefna mið-
ar að því að tryggja sjálf-
stæði þjóðarinnar, standagegn
erlendri ásælni, standa gegn
sívaxandi áhrifavaldi erlendra
auðfyrirtækja í íslenzku at-
vinnulífi, að vfkja hermim úr
landi og að tryggja að ís-'
land standi utan allra hem-
aðarbandaílaga og póílitíslkra
viðskipta- og efnahagsbanda-
laga. — f forustugredn Þjóð-
viljans í daig er tekinn upp
aðalkaifli ályktunarinnar um
vinstrasaimstarf, sem einnig
verður birt hér í blaðinusíð-
I
1400 tonn af eiturefninu flúor
losna árlega í álverksmiðjunni
Jóhann Hafstein lýsir yfir á Alþingi að ríkisstjórn íslands
geti hvenær sem er skipað álverksmiðjunni að setja upp hreinsitæki
□ Magnús Kjartansson flutti í gær framsöguræðu
í neðri deild Alþingis um þingsályktunartillögu
þeirra Geirs Gunnarssonar um varnir gegn
mengun frá Álverksmiðjunni og upplýsti m.a.
eftirfarandi: Miðað við 40 þúsund tonna árs-
framleiðslu á áli, eins og nú er í Strauimi, losn-
ar flúormagn sem nemur hvorki meira né
minna en 1400 tonnum á ári.
Q Af þessu magni berast um 70% burt með ræsti-
loftinu mestmegnis sem flúorvetni. Það magn
sem þannig berst út í andrúmsloftið er því um
980 tonn á ári, 2700 kíló á sólarhring, yfir 100
-<s>
Víðtækasta leit
sem gerð hefur
verið bar ekki
neinn árangur
Á sunnudag lauk leitinni
að Viktori Hansen, er týnd-
ist á rjúpnaveiðuim við Blá-
- fjöll fyrra laugardag. Hafði
ieitin þá staðið vfir í 8
daga aills og er þetta við-
tækasta leit, seim hér hef-
úr farið fram.
Rösiklega 20 sveitir tóku
bátt í leitinni og eru sam-
anlögð dagsverk er farið
haifa í leitina 1195 að tölu.
Tóku þátt í leitinni allar
hjálpar- og björgunarsveitir
á Reykjavíkursvæðinu, af
Suðurnesjum og Suður-
landsundirlendi, frá Akra-
nesi og jafnvel allt frá Ak-
ureyri. Einnig var leitað
æeð flugvé'um, þegar flug-
veður leyfði.
Leitii. barfengan áramigur.
Magnús minnti á að tekizt var
á um það þegar álsamningarnir
lágu fyrir Alþingi hvort skylda
ætti hið erlenda auðfélag til að
setja upp lofthreinsitæki, svo
sem gert hefði verið í öllum
öðrum álverksmiðjum þessa fyr-
irtækis. Þá hefðu jafnt stjórnar-
flokkarnir og hinir erlendu
stjórnendur Swiss Aluminium
talið það óþarft. Það eitt hefði
áunnizt að bi-eytt var gerð
verksmiðjuhússins á þá leið að
þar er hægt að setja upp hreinsi-
tæki.
Náttúruvernd
Magnús rifjaði upp röksemdir
Aiþýðubandalagsþingmanna í
málinu, og las kafla úr ýtarlegri
ræðu Alfreðs Gíslasonar í um-
ræðunum um álsamningana.
Hann rakti svo athuganir Ingólfs
Davíðssonar og krafðist þess, að
hafizt yrði handa um að setja
hreinsitæki upp til að draga úr
flúormengun. Deíldi Magnús fast
á það sjónarmið sem virtist hafa
ráðið afstöðu ríkisstjórnar og
stjóvnenda hins svissneska auð-
félags, að þeir hefðu talið litlu
kíló á hverri klukkustund. Það er hátt í þrjú
tonn af flúorvetni sem sáldrast yfir umhverfi
álbræðslunnar hvem einasta sólarhring allt ár-
ið. Þegar búið verður að tvöfalda verksmiðjuna
tvöfaldast einnig þetta eiturmagn.
□ Ef ekki verður að gert kemst það magn sem
berst út í andrúmsloftið þá upp í 1960 tonn á
ári eða 5400 kíló á hverjum sólarhring.
spillt þó umhverfi verksmiðjunn-
ar yrði fyrir mengun vegna þess
að ekki væri um ræktarland að
ræða, og hélt fram sjónarmiði
náttúruvemdar gegn óskynsam-
legri Dg hættulegri iðnvæðingu.
Á valdi ríkisstjómarinnar
1 lok ræðu sinnar beindi
Magnús þeim spumingum til for-
sætisráðherra hvort hann væri
þeirrar skoðunar að íslenzk
stjórnvöld geti tekið ákvörðun
um það að fyrirskipa að hreinsi-
tækjum verði komið fyrir í ál-
bræðslunni, og svaraði ráðherr-
ann því játandi. Það væri sam-
Framhald á 3. síðu.
iklar og málefnalegar um-
rzcður á flokksráðsfundinum
B Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins var haldinn um
helgina og lauk honum á sunnudagskvöld með stuttu ávarpi
Oddu Báru Sigfúsdóttur, varaformanns Alþýðubandalags-
ins. Flokksráðsfundurinn tókst hið bezta og voru umræður.
líflegar og málefnalegar allan fundartímann, frá föstudegi
til sunnudags.
Fundurinn hófst með venjuleg-
um upphafsstörfum slíkra funda
á föstudagskvöld. Guðmundur
Vigfússon va.r forseti flokksráðs-
fundarins, Svandís Skúladóttir og
Haukur Hafstað vom varaforset-
ar fundai-ins. Á föstudagskvöld
fluttu þeir Ragnar Arnalds og
Lúðvík Jósepsson, framsöguræð-
ur sínar, en á laugardag flutti
Hjörleifur Guttormsson, fram-
söguræðu um náttúruverndarmál.
Vakti ræða Hjörleifs verðskuld-
aða athygli og verður hún birt
í heild í Þjóðviljanum á sunnu-
daginn.
Að lokinni framsöguræðu Hjör-
leifs fóru fram almennar umræð-
ur og var þátttaka í umræðunum
mjög mikil. Meðal þeirra sem
tóku til móls voru Eðvarð Sig-
urðsson, Hjalti Kristgeirsson,
Magnús Kjartansson, Rafn Guð-
mundsson, Ölafur Jónsson, Stykk-
ishólmi og margir fieiri. Á laug-
ardagskvöld og á sunnudags-
morgun störfuðu svo nefndimar
og skiluðu áliti sínu á sunnudag
eftir hádegi. Fundurinn á sunnu-
dag hófst með því að Guðmund-
ur Hjartarson gerði grein fyrir
áliti kjörnefndar, þá gerði Sig-
urður Magnússon grein fyrir áliti
flokksstarfsnefndar, Adda Bára
Sigfúsdóttir skýrði álit allsherjar-
neifndar og Lúðvík Jósepsson tal-
aði fyrir hönd stjómmálanefndar.
Urðu miklar umræður um
nefndarálitin og var margt tekið
fyrir í umræðunum.
Er fundinum lauik síðdegis á
sunnudag var það mál manna að
fundurinn hefði tekizf, hið bezta,
og um sjöleytið á sunnudagskvöld
sleit Adda Bára Sigfúsdóttir
varaformaður Alþýðubandalags-
ins fundinum með snjöllu ávarpi.
Á sunnudagskvöld bauð Al-
þýðubandalagið í Reykjavík til
hófs í Domus Medica. Þar voru
ýmis dagskráratriði; Atli Heimir
lék á píanó, og síðar lék Atli
undir fjöldasöng, Sigurjón Pét-
ursson flutti snjallt og skemmti-
legt ávai-p, Elísabet Erlingsdóttir
söng einsöng. Heimir Ingimars-
son las sögu eftir Einar Kristjáns-
son frá Hermundarfélli og Sverr-
ir Hólmarsson las kafila úr síð-
ustu bók Soltsénitsyns — Innsti
hringur vítis. Var gerður góður
rómur að skemmtuninni. en
Gunnar Guttormsson stiórnaði
samkomunni af myndarskap.
Er skemmtuninni lauk svo um
kvöldið voru tilkynnt úrslit í
miðstjórnarkjöri og er greint frá
þeim annars staðar í blaðinu.
Fjórar auka-
síður í dag
um flokks-
raösfundinn
Þessa mynd tókljósmynd-
ari Þjóðviljans af Ragnari
Arnalds, formanni Alþýðu-
bandaiagsins, er Ragnar
flutti framsöguræðu sína
mn huginyndagrundvöll
vinstristefnunnar og verk-
efni Alþýðubandalagsins. —
Ræða Ragnars er birt í heild
i sérstökum viðauka við
Þjóðviljann í dag þar sem
á 4 síðum eru birtar, auk
ræðu Ragnars, myndir frá
flokksráðsfundinum svo og
landbúnaðarráðstefnunni, er
haldin var í gær, og loks
greint frá úrsíitum mið-
stjómarkjörs.
Á fjórðu síðu blaðsins er
forustugrein þess um
niðurstöður flokksráðsfund-
ar og vinstrasamstarf.