Þjóðviljinn - 04.10.1972, Qupperneq 1
1 gær tók til starfa nýr skó
Keykjavik — Kellask
Blaóamaóur og ljósmynd;
Pjóðviljans brugðu sér á ve
vang, og frá þvi er greint á :
siðu. — Myndin er af Kel
skóla.
Sildveiði
Einn bátur frá Hornafirði hefur
verið á reknetum siðustu tvær
vikur og fengið allt að 80 tunnum
af sild eftir nóttina. Þykir það góð
veiði, og er síldin stór og væn og
hæf bæði sem beitusild og
söltunarsíld. Þessi sild hefur þó
eingöngu farið i beitufrystingu,
sagði Aðalsteinn Aðalsteinsson
við blaðið i gær.
Þaðer Skinney 'er stundar þess-
ar veiðar. Hafa þær þótt gefa það
góða raun, að Akurey er að búa
sig út á reknetaveiðar þessa
daga.
Erfitt hefur verið að fá reknet
keypt hér á landi. Þannig varð út-
gerð Skinneyjar að kaupa nælon-
net i Færeyjum, og leggur bátur-
inn 50 net i lögn yfir nóttina. Hef-
ur hann löngum fengið tunnu i
hvert net, og þótti það gott hér áð-
ur fyrr á reknetum. Siðustu daga
hefur Skinney fengið 15 til 20
tunnur eftir nóttina.
Útgerð Akureyjar hefur fest
kaup á reknetum hjá útgerðar-
manniá Dalvik. A þessi útgerðar-
aðili á Dalvik bæði gömul og ný
net, og hefur hann gert það að
skilyrði, að Akurey verði að
kaupa öll netin. Eru þannig á leið-
inni til Hornafjarðar nælonnet,
hampnet og bómullarnet, en þau
siðarnefndu þykja ekki eins fiskin
og nælonnetin.
Ekki hafa fleiri bátar á Horna-
firði hugsað sér aö gera út á rek-
net i haust. Sildveiðar veröa
leyfðari nótá næsta ári, og hættir
þá sú friðun sildarinnar um allt
land. Sjómönnum á Hornafirði
þykir þessi friðunartimi of
skammur, sagði Aðalsteinn, og
vilja ekki hætta sér út i fjárfest-
ingu á netum af þeim sökum.
Veiöar i reknet hættu hér við
land fyrir tólf árum. Hins vegar
er vitað að Rússar og Norðmenn
hafa veitt sild i reknet á haustin
til þessa — hér á hafinu fyrir
utan, sagði Aðalsteinn. Skinney
hefur lagt netin út af Tviskerjum,
3ja til 4ra tima stim héðan.
Ekki hefur verið ákveöið verðið
á sildinni ennþá til sjómanna.
— gm.
Krag veik fyrir manni
úr verkalýðshreyfingunni
Ella var eining flokksins talin í mikilli hættu
Afsögn Krags sem forsætisráðherra Dana er
taiin pólitiskt bragð; hann geti ekki sameinað
flokk sinn aftur eftir inngönguna i EBE, og þvi sé
reynt að finna einingartáknið i verkalýðsleið-
toganum Anker Jörgensen.
Kaupmannahöfn 3/10— Jens
Otto Krag, forsætisráðherra
Danmerkur,. sagði af sér i dag,
og er það sagt vera af
persónulegum ástæðum. Þar
með viröist vera lokiö 25 ára
stjórnmálamannsferli hans, en
honum lauk með þvi sem
margir telja stærsta stjórn-
málasigur hans, en aðrir mikinn
ósigur fyrir dönsku þjóðina.
Eftir afsögn Krags fer utan-
rikisráðherrann K.B. Andersen
með málefni forsætisráðu-
neytisins unz nýr forsætisráð-
herra hefur verið settur i em-
bætti.
Krag og forusta danska
Jafnaðarmannaflokksins til-
nefna Anker Jörgensen i em-
bætti forsætisráðherra, en hann
er einn helzti forystumaður
flokksins i verkalýðsmálum.
Jörgensen varð formaður
stærsta verkalýössambands
Danmerkur, DASF (Verka-
mannasambandsins), 1968, en
setið á þingi siöan 1964.
Anker Jörgensen er alinn upp
á munaðarleysingjahæli i Kaup-
mannahöfn, en tengdist ungur
verkalýöshreyfingunni og á
allan frama sinn henni að
þakka. Hann stendur nú á
fimmtugu. Jörgensen er talinn
standa til vinstri i Jafnaðar-
mannaflokknum, enda er
Verkamannasambandið eitt
helzta vigi vinstri manna og
kommúnista i verkalýðshreyf-
ingunni. Hann átti þátt i að
stofna Sósialdemókratiska
félagið 1966, en það var gagn-
rýnið á flokkinn. Siðasta þing
Verkamannasambandsins
snerist mjög harðlega gegn að-
ild Dana að EBE, en Jörgensen
var fylgjandi aöild og beitti sér
fyrir stefnu Krags i málinu.
Bent er á það, að þegar
Jörgensen varður nú forsætis-
ráðherra er aftur upp tekinn sá
hatturj aö foringi jafnaöar-
manna á þingi og i stjórn sé úr
röðum verkalýðsins. Aðeins
Jens Ottó Krag og Viggo Kamp-
mann voru undantekningar frá
þeirri regu, en þeir eru báðir
menntamenn.
Rikisstjórn sósialdemó-
krata er minnihlutastjórn. en
styðst við SF-flokkinn, sem er til
vinstri við stjórnina og gersam-
lega andvigur henni hvað varö-
ar Efnahagsbandalagiö. Gert
Petersen, einn af leiðtogum SF’-
manna, lýsti yfir þvi, að fiokkur
sinn gæfi Jörgensen engar
Jens Otto fer —
tryggingar um stuðning, og i
gærkv. voru uppi miklar get-
gátur um þaö, aö SF kjósi aö
framkalla stjórnarkreppu.
Krag kveðst ætla aö draga sig
i hlé út úr stjórnmálum. Hann
hefur tilkynnt að flokkurinn hafi
nú þingsæti hans til ráöstöfunar,
og hann stendur upp úr sæti for-
manns i flökknum. Erling
Dinesen atvinnumálaráðherra
er settur formaður þangaö til á
næsta flokksþingi.
Ankcr kemur
Patursson eftir danskt já:
Yonandi standa Danir
við orð sin
Bretar neituðu í gær-
kveldi aðafferma færeyskt
flutningaskip sem kom til
Bretlands i gær.
Forvígismenn hafnar-
verkamanna á Bretlandi
fengust ekki til þess í gær
að gefa upp ástæður fyrir
þessari synjun um af-
fermingu skipsins, en talið
er að hún standi í beinu
sambandi við þá ákvörðun
Færeyinga að veita brezk-
um togurum sem stundað
hafa ólöglegar veiðar í
landhelgi við ísland enga
viðgerðaþjónustu.
Færeyska skipið hélt til
Noregs með farm sinn.
Færeyingar hafa þriggja ára
frest til þess að taka afstöðu til
samninga eða aðildar með tilliti
til Efnahagsbandalags Evrópu.
Erlendur Patursson sagði, að
hann vonaöist til að staöiö yröi við
þá yfirlýsingu af hálfu Dana aö
leitast við að tryggja öörum
Norðurlandaþjóöum, þar á meöal
Færeyingum, eðlilega samninga
við EBE. Erlendur sagði, að hann
teldi nauðsyn aö auka norræna
samvinnu á sviði fiskveiöa.
Minnti hann sérstaklega á aukið
markaðssamstarf Færeyinga, Is-
Framhald á 11. siöu.
Þeir framleiða sprengjumar
Honeywell — það er sak-
leysislegt nafn. Og vörurnar
scm islendingar kaupa frá
Honeywell, mótorlokár, stofu-
hitastillar, Ijósmyndavörur,
sýningarvélar, leifturljós
o.s.frv. — allt er þetta nauð-
synjavara. Einarsson og
Pálsson h.f. Laugavegi 168 er
umboðsaöili fyrir Honeywell-
samsteypuna á islandi. Varmi
dreifir vörunum og selur í smá-
sölu.
En oft leynist óhugnaður bak
við sakleysisleg nöfn, og sam-
steypan Honeywell framleiðir
lika sprengjur af öllum mögu-
legum tegundum — sem
sjónvarpsáhorfendum gafst
m.a. kostur á að sjá f sjónvarpi i
fyrrakvöld iþættinum „Séð með
eigin augum”.
Um fyrirtækið og framleiðslu-
vörur þess er grein á 5tu siöu.)