Þjóðviljinn


Þjóðviljinn - 09.01.1973, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 09.01.1973, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 9. janúar 1973 CJ 0 D D [þ[?®GGÖI7 / . D[o)[po)GðflF , r, íslandsmótið í körfuknattleik - 1. deild _J KR og IR eru enn sem fyrr stórveldi í körfubolta Þrátt fyrir spár manna um að önnur lið en KR og ÍR muni nú blanda sér i toppbaráttuna i 1.- deildarkeppnina i körfuknattleik, er ekkert útlit fyrir að svo verði i ár. Enn sem fyrr eru þessi lið i sérflokki hvað getu snertir. Þau unnu bæði sina leiki nokkuð auðveldlega um siðustu helgi. KR sigraði ÍS og ÍR sigraði Val. Þá léku Ármann og UMF'N og sigruðu Ármenningar. Svo virðist sem algert öngþveiti riki í dómara og starfsmannamálum i körfuknattleiknum um þessar mundir. Til að mynda voru tveir íR-ingar i ábyrgðarmestu störfunum, timavörður og skrifari, i leik ÍR og Vals. Og þegar leitað var skýringa á þessu var svarið að enga menn væri að fá til þessara starfa. Og eins var sagt, að jafn mikið vandamál væri að fá dómara til starfa. Það er þvi greinilega mikið að hjá KKÍ og þörf á að taka málin þar fastari tökum en verið hefur. Sagt er aö orsökin fyrir þvi hve erfitt er að fá dómara til starfa sé sú að leikmenn komist upp með hverskonar orðaskipti við dómara og geti nánast hagað sér eins og þeim dettur i hug gagnvart þeim. 1 leik Vals og IR sá maður IR-ingana hvað eftir annað skamma dómara og rifast i þeim fyrir einstaka dóma. Svona framkoma er auð- vitað algerlega fyrir neðan allar hellur og aðeins til þess fallin að hrekja menn frá dómara- störfum. Þær agareglur sem KKI setti í fyrra reyndust i þessum málum vera orðin tóm þegar á reyndi, samanber kæru dómara á tvo leikmenn KR fyrir óprúðmannlega framkomu, svo leikmenn geta óhindraðir hagað sér eins og þeir vilja gagnvart þeim i dag. Ármann — UMFN 71:60. Þessi leikur fór fram á laugardaginn og var allan timann heldur jafn. Ármenningarnir voru dálitið seinir i gang og UMKN komst i 4:0. En siðan tóku Armenningar við sér og höfðu náð 9 stiga forustu i leikhléi, 33:24. 1 siðari hálfleik jafnaðist leik- urinn um tima og munaði þá aðeins 2 stigum og þegar örstutt var til leiksloka var 6 stiga munur Armanni i vil, 65:59, en þessar lokaminútur nýttu Ármenningarnir vel og sigruðu örugglega 71:60. Stigahæstu leikmenn Armanns voru Jón Sigurðsson með 17 stig og Jón Björgvinsson með 14. Hjá UMFN voru þeir Gunnar Þorvarðsson og Brynjar Sigmundsson hæstir með 16 stig hvor. KR — ÍS 74:62 Þessi leikur fór einnig fram á laugardaginn. KR-ingarnir náðu í byrjun mjög góðum leik og komust i 14:4. Þá voru yngri og reynsluminni leikmennirnir settir inná en þeir réðu ekkert við stúdentana og staðan breyttist i 16:14 fyrir 1S. Þá komu sterkari menn inná aftur hjá KR og náðu að rétta stöðuna við og i leikhléi var hún 37:30 KR i vil. En það var eins og KR-ingarnir næðu sér aldrei almennilega upp eftir að hafa misst niður forskotið frá upphafsminútunum. Munurinn varð aldrei mikill i siðari hálf- leik. A stigatöflunni sást 36:41 KR i vil en mest varð bilið 64:46. Lokastaðan varð svo eins og áður segir 74:62. Stigahæstir KR-inga voru þeir Kolbeinn Pálsson með 35 stig og Kristinn Stefánsson með 14. En hjá IS Bjarni Gunnarsson með 15 stig og Steinn Sveinsson með 12 stig. ÍR — Valur 103:86. Þessi leikur, sem fram fór á sunnudaginn, var lengi vel mjög jafn og skemmtilegur. IR- ingarnir leiddu i leikhléi 49:45 og i þeim siðari hélzt munurinn þetta 5-15 stig lengst af. En undir lokin duttu Valsmennirnir niður og IR-ingar breyttu stöðunni úr 80:72 i 103:86 sem urðu lokatölur leiksins. Hjá 1R var Agnar Friðriksson stigahæstur með 23 stig, Anton Bjarnason með 21 stig, Einar Sigfússon með 20, Kolbeinn Kristinsson með 19 og Kristinn Jörundsson með 18 stig. Hjá Val var Þórir Magnússon stigahæstur með 26 stig en Kári Mariasson var með 18 stig. Handknattleikur 1. deild Ungur Valsmaður skorar körfu hjá 1R. Til vinstri má sjá Agnar Friðriksson fylgjast með, en hann var stigahæstur iR-inga i leiknum. (Ljósm. SMARSI) r Armann - Haukar og Valur IR í kvöld Þá hefst l.-deildarkeppnin i handknattleik að nýju i kvöld eftir jólahléiö og I fyrri leikn- um i kvöld mætast Armann og Haukar en siðari leikurinn verður á milli Vals og ÍR, liðanna sem nú eru i 2. og 3ja sæti i deiidinni. Báðir þessir leikir eru afar þýðingarmiklir. Annarsvegar leikur Armanns og Hauka sem eru jöfn i næst neðsta sæti með 2 stig hvort og svo leikur topp- liðanna Vals og ÍR. Gera má ráð fyrir að það iiðið sem sigrar i leik Hauka og Ármanns sé sloppið úr fall- hættunni sökum þess að KR- ingar sitja á botninum með ekkert stig. Leikurinn verður án cfa jafn og skemmtilegur. Það verður barist til siðustu minútu cins og vant er i svo þýðingarmiklum leikjum. Armcnningarnir náðu sér vel á strik i siðasta leik sinum fyrir jól, þegar þeir lögðu sjálfa tslandsmeistarana að velli.Haukunum hefur gengið misjafnlega i vetur, en lið þeirra hefur sýnt miklar framfarir frá þvi fyrst i haust. Um siðari leikinn er erfitt að spá. Þó má telja vist að leiki Vals-liðið eins og það getur bezt, þá sigri það nokkuð auö- veldlega, en spurningin er ailtaf hvort liðið nær sér upp eða ekki. Það hefur átt mjög misjafna leiki og virðist annað hvort leika eins og lið gera allra bezt eða þá að það dettur niður i ekki neitt eins og geröist i leiknum við Fram i haust. ÍR hefur átt jafna leiki og hefur sýnt miklar fram- farir frá þvi i fyrra og e'r örugglega með eitt af beztu liöunum i 1. deild i ár. Leikirnir fara fram i Laugardalshöllinni og hefst sá fyrri kl. 20.15. Staðan i 1. deild i handknatt- leiknum, nú þegar keppnin hefst aftur eftir jólafri. Fll 5 5 0 0 91:82 10 Valur 4 3 0 1 90:65 6 ÍR 4301 79:67 6 Vikingur 5 3 0 2 112:102 6 Fraill 5 3 0 2 98:91 6 llaukar 5 1 0 4 90:95 2 Ármanh 5 1 0 4 81:108 2 KR 5 0 0 5 83:114 0 Markahæstu menm Geir Hallsteinsson FH 38 Ingólfur Óskarsson Fram 33 Einar Magnússon Vikingi 31 Vilberg Sigtryggsson Armanni 27 Ólafur ólafsson Haukum 26 Bergur Guðnason Val 25 Haukur Ottesen KR 25 Brynjólfur Markússon iR 25

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.