Þjóðviljinn - 06.11.1973, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 06.11.1973, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 6. nóvember 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Jón Asgeirsson Jón r Asgeirsson formaður ASN Þing Alþýðusambands Norðurlands var haldið um helgina i BifrÖst á Sauðárkróki. Ályktanir þingsins hafa ekki borist blaðinu, en að norðan fengum við fréttir af stjórnarkjöri. Tveir listar voru i kjöri til stjórnar, og var Jón Helgason fyrir öðrum, en Jón Ásgeirsson fyrir hinum. Hlaut listi Asgeirs- sonar 30 atkvæði, en listi Helga- sonar 25 atkvæði. Stjórn ASN skipa þvi: Jón Asgeirsson formaður Einingar formaðurj Jón Ingimarsson formaður Iðju varaformaður, og aðrir i stjórn Kolbeinn Friðbjarnarson Siglu- firði, Tryggvi Helgason Akureyri og Hallgrimur Jónsson Akureyri. -úþ Menningar- pólitík á dagskránni KULTURPOLITIK — TEORI ELLER PRAKSIS nefnist fyrir- lestur, sem fluttur verður i Norræna húsinu fimmtudaginn 8. nóvember kl. 20.30. Fyrirlesarinn, Hugo Jensen, er fulltrúi i menntamálaráðuneytinu danska. Hann starfar þar meðal annars að málum, er varða ýmiss konar menningarmiðstöðvar og uppbyggingu þeirra. Hugo Jensen er fulltrúi danska menntamála- ráðuneytisins i Tórshavn- nefndinni, þeirri nefnd, sem undirbyr byggingu norrænnar menningarmiðstöðvar i Tórs- havn. Hann dvelst að þessu sinni i Reykjavik m.a. til þess, aö hann geti fylgst með starfsemi Norræna hússins i nokkra daga. t fyrirlestri sinum mun Hugo Jensen annars vegar ræða hið almenna inntak orðsins menningarmálastefna, kultur- politik, og hins vegar á hvern hátt hugtakinu menning hefur i fram- kvæmd verið beitt, t.d. við nokkrar þeirrar menningarmið- stöðva, sem hann hefur haft reynslu af. Með hliðsjón af þessu mun hann einnig ræða nokkur atriði, sem fram hafa komið i sambandi við skipulagningu Norræns húss i Tórshavn. Að fyrirlestri loknum gefst mönnum kostur á umræðum um efnið, og er þess að vænta, að margir munu fúsir til að taka til máls. Gísli Guðmundsson á Súganda JStundum eru 60 togarar inni í friðaða hólfinu9 Við hringdum i Gisla á Súganda i gærmorgun og inntum hann eftir gangi mála á Vestfjarða- miðum um helgina og álits hans á samnings- drögunum sem forsætisráðherra kom með heim frá London. — Jæja, góðan daginn, sagði Gisli. — Ég hef nú verið að hlusta á talstöð vestfirskra linubáta. Ég hef lika i nótt hlusta á isfirskan skuttogara sem gat þess að margir Bretar væru nú á 25 milna svæðinu út af Deild. Einnig væru þeir á Grunn-Halanum, sömuleiðis væru þar þýskir og færeyskir togarar. Hann sagðist búast við þvi að þeir fengju að vera þar óáreittir næstu árin og hann virtist mjög gramur og sár yfir þvi. Hvað skal nú vera að ske. Það er þó liklega ekki verið að matbúa eftir matseðli ólió. Já, einmitt það. — En, hvaö er svo að frétta af súgfirskum vígstöðvum og hver er afstaða þin til þeirra mála sem hafa veriö efst á baugi undanfarið t.a.m. land- helgismálsins: — Ég er nú orðinn svo gamall sem á grönum má sjá, og fyrir nokkru hættur á sjó, en mitt álit er ætið hið sama siðan að Bretar höfnuðu samningsmöguleikum i vor, að við þá eigi alls ekki að semja. Þeir svöruðu með of- beldi og yfirgangi og sendu á okkur herskip og dráttarbáta. Islenska stjórnin ætti a6 muna það og sömuleiöis islenska þjóðin. Nú fara breskir skipstjórar sennilega að veröa hræddir við islenska veðráttu, ekki is- lenska hótun um stjórnarslit, og breskir útgerðarmenn og rikisstjórn þeirra munu nú vilja semja, enda hefur Ólafur Jó„ boðið þeim sennilega allt fritt. Ólafur er þó enginn al- máttugur guö. Þjóðin hlýtur að treysta á margendurtekin loforð rikisstjórnarinnar og alþingismanna að minnsta kosti margra þeirra, að hvergi verði hvikað frá áður settu marki. Annað mun teljast hrein svik við islensku þjóöina og þeir menn sem þannig haga sér munu skoðaðir sem land- ráðamenn og ekki i húsum hafandi og til einskis nýtir. — Hvað er svo annað að frétta frá þér? — Vitaskuld það sama og komiö hefur skýrt fram I fjöl- miðlum og viðtölum við vest- firska sjómenn, aö þeir eru óánægðir út i æðstu menn landhelgismála og varnir á fiskveiðilögsögunni' yfirleitt. Og ennfremur að vestfirskir sjómenn hafa næstum þvi verið sagðir ljúga þvi sem þeir hafa bæði séð, heyrt og oröið varir við á vestfirskum mið- um undanfarnar vikur. Það er álit allra, nema þá forhertra hægrisinnaðra framsóknarmanna, en þeir eru nú fáir hér sem betur fer eða láta að minnsta kosti ekki á sér kræla, að ekki eigi að semja við Breta. í dag, 5.11. eru nú liönir 34 dagar, að báöum dögum með- töldum, siöan herskip Breta fóru út fyrir 50 milna mörkin. Það eru lika 34 dagar siðan is- lenska rikisstjórnin eöa minnsta kosti einhver hluti hennar, gafst upp fyrir Bret- um. Landráð, það er stórt orð, hvað um það. Ef samið verður nú við Breta á þeim forsendum, eöa réttara sagt samkvæmt þeim matseðli sem Ólafur Jó- hannesson kom með sér aö utan, mun það skoðast sem hrein uppgjöf islcnskra stjórn- valda. Raunar hafa æðstu menn landhelgismála nú um 5 vikna skeið bæði i orði og verki hopað á hæli fyrir Bretum. Bretar hafa þvi raunverulega sigrað. tslenska þjóðin hefur verið svikin og eru nú liðnar 5 vikur siðan það gerðist. Forsætisráðherra okkar, sem sagöur er fara einnig meö dómsmál, og er það sennilega óvéfengjanlegt, lofaði þvi, eða réttara sagði að þó svo að breskar freigátur og dráttar- bátar færu út fyrir 50 milurnar mundi verða haldið áfram vörnum landhelginnar með sama hætti og áður. Lúðvik Jósepsson, sjávarútvegsráö- herra, gat þess einnig i ræðu og riti um málið að áfram yrði haldið að hrella landhelgis- brjóta og meira að segja að halaklippa þá ef með þyrfti til þess að stugga þeim útfyrir. Gisli Guömundsson Vitanlega hefur Lúðvik haft þetta upp eftir ólafi Jó og Pétri Sigurðssyni. Það vita allir landsmenn nú, að þessi loforð hafa verið svikin. Togarar hafa fiskaö algjör- lega óáreittir hvar sem er og meira að segja i friðuðum hólfum i svokölluöum Þverál undan Kögri og Hornbjargi. Þar hafa stundum verið fast að 60 skip eða meir og flest hafa þau verið bresk. Loforð slik sem að ofan greinir, virðast ekki mikils virði. Munu þvi islenskir sjó- menn og aörir landsmenn seint gleyma þeim. Kjörorðið er nú að aldrei skuli samið við Breta, eða að minnsta kosti ekki sýna þeim neina linkind eða eftirgjöf i einu eða neinu frá þvi sem þeim var boðið i vor. Heyrst hefur nú frá breskum skipstjórum i tal- stöðvum þeirra, að loksins hafi nú breska stjórnin sigrað Islendinga i þorskastriðinu og skipstjórar hennar hátignar séu nú m jög ánægðir. Heath er sennilega hörkuslægur samningamaður, en Ólafur þakklátur heimboðinu og öðru fremur gestrisinn og vinveitt- ur landhelgisþjófum, saman- ber siðustu 5 vikur. Ef gengið verður að afar- kostum þeirra félaganna Ólafs og Heaths verður sjálfstæði og efnahag þjóðarinnar stefnt i voða, þvi fiskimið okkar verða brátt þurrausin og eru þegar sum þeirra orðin það. Það ber þvi að sýna hörku á móti of- beldinu hvort heldur það er heima eða að heiman. Og þvi auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Ég læt þetta nægja. Yfir. —úþ Nemendur „Myndsmiðjunnar” á Akureyri skoöa Asgrfmssýninguna sem nú er opin þar nyröra (Ljósm. Matthlas Gestsson) Sýning Gayets framlengd Myndlistarsýningin á grafiskum verkum Frakkans Vincent Gayet i Listasafni ASl hefur verið mjög vel sótt, og hefur nú verið ákveðið að framlengja sýningunni til sunnudagskvölds 11. nóv. Sýnir.gin er á þriðju hæð i Al- þýðubankahúsinu, Laugavegi 31. Allmargar myndir hafa þegar selst á sýningunni. Gjöf Ólafur Jóhannesson, forsætis- ráðherra, afhenti i dag Sigurgeiri Kristjánssyni, forseta bæjar- stjórnar Vestmannaeyja, ávisun að upphæð s.kr 15.000,00 sem er gjöf frá Kvennasambandi sænska miðflokksins og blaðinu Land- stidningen östergötland i Sviþjóð til Vestmannaeyinga vegna sjúkrahússins i Vestmanna- eyjum. Aukinn myndlistaráhugi á Akureyri Myndlistarfélag Akureyrar, sem stofnað var i fyrra, hefur nú fengið til umráða gamalt timburhús, og starfrækir þar nú mynd- listarskóla undir naf ninu „Mynd- smiðjan”. Þegar munu um 70 nemendur hafa innritast i skólann. Hinn 27. október opnaði As- grimssafn sýningu á verkum As- grims Jónssonar i Landsbanka- húsinu á Akureyri. Eru sýndar þar 40 myndir, oliumálverk, vatnslitamyndir og teikningar. Frú Bjarnveig Bjarnadóttir for- stöðukona Asgrimssafns opnaði sýninguna með ávarpi, og Bjarni Einarsson bæjarstjóri þakkaði fyrirhönd Akureyringa. Sýningin hefur verið vel sótt. Formaður Myndlistarfélags Akureyrar er óli G. Jóhannsson. Auglýsingasíminnl er 17500 E WÐVIUINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.