Þjóðviljinn - 30.07.1975, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 30.07.1975, Blaðsíða 12
Miðvikudagur 30. júll 1975. Bandarísk kjarnavopn í S-Kóreu? HONG KONG 29/7 — Norður- kóreumenn ásökuðu bandarikja- menn i dag um að hafa flutt kjarnavopn til Suður-Kóreu til að undirbúa kjarnorkustyrjöld. Fréttastofa Norður-Kóreu sagði að það hefði verið Kim Poong Sup hershöfðingi, fulltrúi Norður-Kóreu i vopnahlésnefnd- inni, sem bar fram þessa ákæru. Kim hershöfðingi sagði að Norður-kóreumenn litu mjög alvarlegum augum á ástandið og krefðust þess að bandaríkjamenn flyttu allt sitt herlið og öll kjarna- vopn burt úr Suður-Kóreu. Helsinki- ráðstefnan hafin ÞriggQ daga fundur 35 þjóðar- leiðtoga hefst i Helsinki á morgun. Þetta er stærsta ráð- stefna þjóðarleiðtoga, sem haldin hefur verið i Evrópu og taka þjóðarleiðtogar allra Evrópu- rikja, að Albaniu undanskilinni, þátt i þessari ráðstefnu. Þar að auki sitja fulltrúar Kanada og Bandarikjanna þessa ráðstefnu. Þessi þriggja daga fundur eru lokin og hápunkturinn á öryggis- málaráðstefnu Evrópu og hefst fundurinn á morgun með þvi að leiðtogarnir munu undirrita hina svokölluðu 20 þúsund orða yfir- lýsingu. Heiðríkjan skammvinn Það var sagt hér áður fyrr að skyndileg heiðrikja eins og við fengum i gær, boðaði sjaldnast gott. Þvi miður sagði Páll Berg- þórsson, veðurfræðingur að i þetta skipti væri útlit fyrir að heið- rikjan yrði skammvinn syðra og i dag er búist við suðvestanátt og skýjuðu á Vesturlandi, en hins vegargetur orðið bjart fyrir aust- an og norðan. Ekki virðist hafa verið eins kalt hér syðra og marg- ir héldu, þvi allt útlit er fyrir að júlimánuður verði ekki nema rétt fyrir neðan meðallag hvað hita- stig snertir. Hins vegar hefur verið sólarminna en i meðalári. Búið er að taka saman tölur yfir hitastig i Stykkishólmi i júli og er hitastigið að meðaltali 10 stig, en 10,4 i meðalári. þs Gowon steypt skóla og var m.a. i her Sam- einuðu þjóðanna i Kasmir 1966. Hann var gerður að ofursta i her Nigeriu i fyrra. Rétt eftir að Jakubu Gowon, hershöfðingi, sem sat á fundi Einingarsambands Afrikurikja i Kampala, fékk þessar fréttir, yfirgaf hann fundinn og hélt til hótels sins, þar sem hann ræddi við Idi Amin, hinn nýkjörna for- mann Einingarsambandsins, og Mobutu Sese Seko, forseta Zaire. Eftir það kom hann ekki á fundinn, og sagði útvarpsstöð i Luanda að hann væri lagður af stað til óþekkts ákvörðunar- staðar, en fréttamenn töldu þó að hann myndi enn vera i Kam- pala. Idi Amin. sagði frétta- mönnum að hann vissi nákvæm- lega hvað Gowon ætlaði að gera, en vildi ekki segja frá þvi. Svc sagði hann að hann gæti ekkert um þetta mál rætt, þar sem það væri innanrlkismál systurrikis. Sagðist hann nú biða eftir skila- boðum frá Lagos, höfuðborg Nigeriu. Nigería-Uganda 29/7.—Jakubo Gowon hershöfðingja, forseta Nigeriu, var steypt af stóli i nótt i herforingjabyltingu. Stjórn landsins hefur siðan 1967 verið i höndum herforingjaráðs, en i þvi eiga sæti æðstu herforingjar frá hinum 12 sambandsrikjum Nigeriu. í útvarpsyfirlýsingu frá Lagos, höfuðborg Nigeriu, sagði Joseph Namvan Garba ofursti að herinn i iandinu hefði ákveðið að gera þessar breytingar á æðstu stjórninni vegna þeirrar þróunar, sem hafi átt sér stað i landinu undan- farna mánuði. Gowon hershöfð- ingi er ekki lengur æðsti maður herforingjastjórnarinnar né hersins, sagði ofurstinn. Þá var það undirstrikað að byltingin hefði verið gerð án átaka og ibúarnir beðnir að vera rólegir, þvi að hver sá sem væri staðinn af þvl að skapa óróa yrði hand- tekinn. Þá hefur verið lýst yfir útgöngubanni á næturnar og öllum flugvöllum i landinu og landamærastöðvum hefur verið lokað. Gowon hershöfðingi kom til valda i Nigeriu eftir hina blóðugu byltingu hersins þar árið 1966 og var æðsti maður rikishersins i borgarastriðinu, sem fylgdi i kjölfarið, en það stóð yfir i tvö og hálft ár. Gowon er nú i Kampala, höfuðborg Uganda, þar sem hann tekur þátt i fundi æðstu manna einingarsamtaka Afrikurikja. Samkvæmt heimildum frá Kampala er talið að maðurinn á bak við herforingjabyltinguna i Nigeriu sé Josep Mamvan Garba ofursti. Hann er náinn vinur Gowons hershöfðingja og hefur m.a. verið foringi lif- varðarsveitar Gowons. Hann er menntaður úr breskum her- Fyrsta loðnan á land gœr Fyrsti loðnuaflinn á þessari vertið barst á land á Siglufirði i gær. Það var Eldborg GK sem kom með aflann, alls um 500 lestir. Það var haft eftir skip- stjóranum Gunnari Hermanns- syni að loðnan hefði verið a 10-20 faðma dýpi, en of blönduð smáu. 1 gær nutu menn sólarinnar I sundlauginni I Kópavogi eins og annars staðar sunnanlands, en allt útlit var fyrir að ánægjan yrði skammvinn. Bráðabirgðalög um fjáröflun vegna landhelgisgœslu Þingað í Kampala Forseti tslands hefur i gær, samkvæmt tillögu fjármálaráð- herra, staðfest svofelld bráða- birgðalög: „Fjármálaráðherra hefur tjáð mér, að vegna fyrirhugaðrar út- færslu islensku fiskveiðilandhelg- innar i 200 milur þann 15. október n.k., beri brýna nauðsyn til að efla Landhelgisgæsluna að tækja- kosti, svo tryggja megi viðunandi eftirlit með veiðiskipum innan hinnar nýju fiskveiðilandhelgi. Jafnframt hefur fjármálaráð- herra tjáð mér, að rikisstjórnin hafi samþykkt að stofna til kaupa á nýrri flugvél i Hollandi til eflingar Landhelgisgæslunni, svo og að láta framkvæma endur- bætur á varðskipinu óðni, og að taka þurfi lán til þessara fram- kvæmda, að hluta til erlendis. Fyrir þvi eru hér með sett bráðabirðgalög samkvæmt 28. gr. stjórnarskrárinnar, á þessa leið: l.gr. Rikisstjórninni heimilast að taka lán allt að 450 miljónir króna vegna kaupa á gæsluflugvél fyrir Landhelgisgæsluna, og allt að 140 miljónir króna vegna endurbóta á varðskipinu Óðni og verða lánin að hluta til tekin erlendis. 2-gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.” KAMPALA 29/7 —Þjóðarleiðtog- ar Einingarsambands Afriku- rikja hófu I dag umræður um þau vandamál, sem fyrir fundinum liggja, en það eru deilumálin fyrir botniMiðjarðarhafs, staða traels i Sameinuðu þjóðunum, bardag- arnir i Angóla og kynþáttadeilur i suðurhluta Afriku. Fyrsta verk þeirra fulltrúa, sem sitja fundinn, var að kjósa Idi Amin forseta Einingarsam- bands Afríkurikjanna fyrir næsta ár. Það var Anwar Sadat Egypta- landsforseti, sem stakk upp á honum, og var sú uppástunga samþykkt með lófataki. Idi Amin lofaði að vera trúr og dyggur for- maður Einingarsambandsins og koma þvi ekki i nein vandræði. Idi Amin lýsti þvi einnig yfir að honum væri ekkert i nöp við Július Nyerere, forseta Tansaniu, sem hefur neitað að taka þátt i fundinum af andstöðu við Idi Amin. Nyerere hefur sagt að Amin sé „morðingi, kúgari, svartur fasisti og yfirlýstur aðdá- andi fasisma”. En Amin sagði að hann teldi Július Nyerere og þjóð Tansaniu vera bræður si'na og sytur. Forseti Sómaliu hvatti til þess að Einingarsamband Afrikurikja skipaði nefnd til að koma á sáttum milli úganda- manna og tansaniumanna. Portúgal: Astand ótryggt Lissabon 29/7 Portúgalska herforingjastjórnin kom á ritskoðun aftur í dag og í fyrsta sinn síðan herinn tók vöidin af Cetanostjórn- inni í fyrra. Ritskoðunin nær þó aðeins til pólitískra frétta frá Angola, en þar berjast tvær stærstu f relsisf ylkingarnar og getur það komið í veg fyrir að portúgalir yfirgefi landið í nóvember eins og áætlað var. Francisco da Costa Gomes, forseti Portúgals, hefur frestað för sinni á örygg isráðstef nuna í Helsinki fram á fimmtu- dag, vegna ótryggs ástands heima fyrir. Sósíalistaflokkurinn hefur krafist þess að herfor- ingjastjórnin komi ein- hvers konar hjálpræðis- stjórn þjóðarinnar á fót, til þess að koma á röð og reglu í landinu, þannig að hætta verði ekki á algjöru stjórnleysi. Blaðberar Þjóðviljinn óskar eftir blaðberum i eft- irtalin hverfi: Asgarð Langagerði Einnig til afleys- inga i ágústmánuði i eftirtalin hverfi: Framnesveg Vesturgö tu Sólvallagötu Asvallagötu Hringbraut Tó masarh aga Þjóðviljinn Simi 17500 DIQÐVIUINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.