Þjóðviljinn - 18.09.1976, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 18.09.1976, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 18. september 1976. Skrifiö eöa hringið. Sími: 17500 Eftir þetta þorir eng- Allir, sem sjá þennan svo- kallaöa veg, sagöi feröa- langurinn, ljúka upp einum munni um að hann sé óaksturs- hæfurogþaðverður blátt áfram að vinda bráðan bug áð þvi að koma i veg fyrir að hann valdi stórslysum. inn að skamma Vegagerðina Ferðalangur að vestan leit hér inn á blaðið á mið- vikudaginn og var ærið argur yfir þeim vegarkafla, sem Sverrir Runólfsson stóö fyrir gerö á, sællar minningar, sam- kvæmt einhverjum „visinda- legum” aðferðum að vestan. Ferðalangur sagðist ein- dregið leggja það til, að þeir sem ákveðnast mæltu með þvi, að Sverri væru fengnir i hendur ærnir fjármunir til þessarar sérkennilegu starfsemi, gerðu sérnúferð þarna uppeftir, litu á árangur iðju sinnar og prófuðu að aka eftir „veginum”. Blöð, útvarp og sjónvarp hefðu verið notuð til áróðurs fyrir þessu tiltæki og væri það talandi vottur þess, hvernig misnota mætti fjölmiðla. Þá ætti ekki að nota til þess að telja menn á að gera vitleysur ogþaðauk heldur dýra vitleysu. Segja mætti lika, að með þvi að egna Sverri til þess að fara i þessa vegalagningu, svo ger- samlega misheppnuð sem hún hefði reynst, væri búið að gera Vegagerð rikisins að einskonar heilagri kú, sem náttúrulega væri nú hæpið. En enginn mundi nú þora að skamma hana eftir þetta og kæmi þó fyrir að þess væri þörf. Dyrfjöll — Þetta hefur skrattakorniö enginn fiskur verið hér i sumar, sagði Hiimar Einarsson á Sól- bakka i Bakkafirði eystra i við- tali við biaðið á miðvikudaginn var. — Héðan hafa róið einar 13 trillur i sumar og er það i sjálfu sér ekki svo litill floti i ekki fjöl- mennara byggðarlagi, bætti Hilmar við. Og þetta eru yfir- leitt heimabátar, þeir munu allir vera skráðir hér nema einn. Bátum fjölgar hér með hverju ári. I vor komu hingað t.d. þrjár nýjar trillur. Eina þeirra á raunar maður, sem bú- settur er i Reykjavik. Eigandi annarar, og er sá vestfiröingur, flutti hingað austur. Tvö ibúöarhús eru nú hér i smiðum og eru það einstakling- ar, sem að þeim byggingum standa, annar ungur maður héðan úr plássinu. önnur tvö voru byggð i fyrra. bó að aflinn hafi verið þetta tregur i sumar þá hefur atvinna verið alveg sæmilega góð. Staf- ar það af þvi hversu það fólk er tiitölulega fátt, sem vinnu stundar I landi. Karlmenn eru flestir á sjónum. Þó mundi maður nú þiggja, að atvinna væri ennþá meiri. Hér er ekki aðstaða fyrir hendi til frystingar á aflanum. Hann er mestmegnis saltaður og svo er dálitið verkað af skreið. Héðan voru gerðir út þrir trillubátar i april og mai i vor. Þeir öfluðu ágætlega og var hin besta útkoma á þeirri útgerð. Fólki fjölgar hér alltaf heldur en hitt. En það vantar húsnæði. Eg hygg aö ýmsir vildu dvelja hér yfir sumarið og gera héðan út ef hér væri i nokkurt hús að venda. Það er sjálfsagt sama hvar menn eru búsettir, alls- staðar vantar þá eitthvað. Hér á Bakkafiröi vantar okkur eink- um þrennt: fleira fólk, fleiri Skagaströnd (Höfðakaupstaður). Þurfum umfram allt betri höfn Umsjón: Magnús H. Gíslason báta og betri höfn. Og þótt ég nefni höfnina siðast þá er hún undirstaðan. Ef hafnaraðstaða batnaði svo að unnt yrði að gera héðan út, með sæmilegu öryggi, stærri báta þá kæmi hitt á eftir. Þá múndi bátunum fjölga og fólkinu einnig. Þvi er bætt hafn- araöstaða okkar stærsta mál hér á Bakkafirði. Og við teljum það enga ósanngirni eða heimtufrekju þótt við ætlumst til þess að við þörfum okkar sé orðið i þessum efnum. Aðstaða fyrir trillurnar batnaði mikið við það að komið var fyrir krana hér á bryggj- unni. Hann á að geta lyft 5 smá- lestum og á þvi auðveldan leik við trillurnar þvi þær eru yfir- leitt þrjú til f jögur tonn. Aöstaða stærri báta er hinsvegar erfið hér við bryggjuna, ef illa viðrar. Þá verða þeir að láta frá landi. En ég endurtek það: Bætt hafnaraðstaða er það sem við þurfum umfram allt hér á Bakkafirði. Allir vita um heyskapartiðina hér á Austurlandi i sumar. Menn voru búnir að hiröa fyrir miðjan ágúst. Blaðið náði einnig sem snöggvast tali af sr. Sigmari Torfasyni á Skeggjastöðum i Bakkafirði. — Þó að ég sé orðinn þetta gamall, sagði sr. Sigmar, 58 ára, þá man ég ekki eftir jafn góðu sumri og nú. Raunar má segja það um árið allt. Strax upp úr áramótum i fyrra var veðráttan mjög góð og hélst svo allan veturinn, vorið og sumarið og nú má einnig fara að segja haustið, alltaf hefur rikt veður- bliða. Ég er að visu ekki svo minnugur að ég muni glöggt ár- ferði frá minum bernskuárum enhitt vil ég fullyrða, að ég man ekki eftir neinu ári jafn góð- viðrasömu og þessu og nú siöast i dag hefur verið glaða sólskin og blæjalogn. — mhg — Já, ég get gjarnan byrjað þetta spjall okkar á þvi að segja þér það, að hér er mikil og aimenn reiði út i gerðardóms- lögin, meðai sjómanna. Og svo þá i framhaidi af þvi, að togarinn okkar erbúinn að fiska um 2060 smál. frá áramótum. Agæt atvinna hefur verið hér i sumar. Hugmyndin var, að aöalgatan hér i' bænum yrði malbikuö i sumar. baö hefur nú dregist og er ekki byrjað á þvi ennþá,en ég held, að i það veröi fariö i næstu viku. Efnið er fengið frá Sauðárkróki. Nokkrar hafnarframkvæmdir hafa verið hér i sumar. Dýpkunarskipið Grettir kom og gróf hér upp úr höfninni, en til stóð raunar að gera annað og meira. Meiningin var að ramma niður 60 metra stálþil. Við það varð þó aö hætta vegna þess að það verk var ekki nógu vel undirbúiö eða það verður maður að ætla,þvi ástæðan til þess aö frá þvi var horfið nú var sú, að klöpp reyndist þar fyrir, sem setja átti niður stáljxiið. Vitamálaskrifstofan átti nú að vera búin að athuga aðstæður þarna, en henni virðist eitthvað hafa „feilaö” við þær rann- sóknir, og þvi varð að fresta þessu verki til næsta sumars. Grettir kom þvi ekki að öllú leyti að þeim notum, sem ætlað vai;þvi auk þess sem honum var ætlað að dýpka höfnina hér framundan, átti hann lika að dýpka upp með stálþilinu svo að þar fengist viðlegukantur. Hann verður nú ekki fyrir hendi i ár, úr þvi svona fór. Á vegum rafveitunnar er verið að vinna að breytingum á raflögnum i bænum. Aþvi verki var raunar byrjað á árinu 1970 með þvi að leggja rafmagn i jörð, en svo hefur ekkert frekar verið að þvi unnið siðan 1972, að nú er aftur tekið til þar sem þá var frá horfið. Talsvert er að þessu gert nú og þó einkum lögð áhersla á að koma i jörð linum við þá götu, sem á að olíu- malbera. Það er orðin brýn þörf á að leggja niður þessar loft- linur hjá okkur og koma raf- linunum fyrir til frambúðar, þvi allar likur eru á þvi, að ekki verði um heitt vatn hjá okkur að ræða i framtiöinni. Bátarnir eru nú að fara út á rækjuna. Það var gefið leyfi til þess að veiða á Ingólfsfjarðarmiðum og það verður ekki byrjað á hinum hefðbundnu veiðum hér inni I Flóanum fyrr en i okt. Við fórum fram á þaö við sjávar- útvegsráðuneytiö að þessar veiðar yrðu leyfðar og féllst ráðuneytið á það. Fiskifræöingar telja, að Þarna megi taka 200 þ tonn á ári, en i fyrra urðu það aöeins 100 tonn, þannig að þessi mið virðast ekki vera fullnýtt. Nú er heppilegasti árstiminn til þess að sækja á þessi mið, þvi aö það er erfitt. Veriö er nú að ganga frá smiði siðasta trébátsins, sem smiðaður verður i skipa- smiðastöð Guðmundar Lárussonar, og er báturinn seldur til borlákshafnar. Þar með er verkefni stöðvarinnar lokið, þvi ákveðið er, aö ekki verði fleiri trébátar smiðaðir þar, en óvist er hvað úr plast- bátasmiðinni verður. Guðmundur er búinn að basla I þessum lánamálum a.m.k. i hálft annað ár. Hann fær loforð á loforð ofan en annað hefur nú ekki verið að þessu. Ég skal ekki um það segja hvort Guð- mundur gefst upp á þessari bið, en búast má við að að þvi komi ef ekki raknar fljótlega úr. mhg Bátarnir búast á Ingó Ifsfjarða rmið

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.