Þjóðviljinn - 22.03.1977, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 22.03.1977, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 22. mars 1977 ÞJóÐVlLJINN — SIÐA 3 INDLAND Algjör umskipti í þingkosningum Nýju-Delhi 21/3 reuter — úrslit þingkosninganna á Indlandi sem lauk í gær boða algjör umskipti i ind- verskum stjórnmálum. Þjóöþingsflokkur Indiru Gandhi beið gífurlegt af- hroð og missti þau völd sem hann hefur haft í landinu nær samfellt frá því Indland losnaði undan breskri stjórn árið 1947. Þegar úrslit voru kunn i 416 kjördæmum af 542 höfðu tveir helstu andstöðuflokkar Indiru — Alþýðuflokkurinn (Janata Party) og hinn nýi Þjóðþingsflokkur Jagjivans Ram - fengið samtals 216 þingsæti eða meira en helm- ing. Þjóðþingsflokkurinn hafði þá hlotið 135 þingsæti. Þjóðþingsflokkur Indiru Gandhi beið gifurlegt afhroð og hún og sonur hennar náðu ekki kjöri Magir helstu leiðtogar Þjóð- þingsflokksins náðu ekki kjöri i sinum kjördæmum. Ind- ira sjálf mátti þola þá niðurlæg- ingu að tapa með 55 þúsund at- kvæða mun fyrir einum helsta andstæðingi sinum, Raj Narain, en hann er sá sem kærði Indiru fyrir kosningasvik á sinum tima. Hæstiréttur fann hana seka og brást hún þá við á þann hátt að lýsa yfir neyðarástandi I landinu og i krafti þess að fangelsa helstu andstæðinga sina, þám. Narain. Eftir að séð varð hver úrslit kosninganna yrðu kallaði Indira stjórn sina á aukafund þar sem Sérkröfur mótaðar í vikulokin Dagsbrún samþykkti sinar sérkröfur á sunnudag Þessa dagana eru verkalýðsfé- lögin að ganga frá sérkröfum sin- um og er þess vænst á skrifstofu ASi að heildaryfirlit um þær geti legið fyrir i vikuiokin. Lögum samkvæmt þurfa sérkröfurnar ekki að iiggja fyrir fyrr en á miðj- um uppsagnartima, um miðbik april, en áhersla er lögö á að flýta framlagningu þeirra til þess að greiða fyrir samningaumleitun- um. Verkamannafélagið Dagsbrún hélt fund á sunnudaginn I Iðnó, þar sem rætt var um breytingar á samningum Dagsbrúnar til viðbótar aðalkröfum ASt. Eövarð Sigurösson, formaður Dagsbrún- ar, sagði i gær að fundurinn hefði verið fjölsóttur og gagnlegur. Hann stóð frá kl. 14 fram undir kl. 10 og voru fluttar átján ræður. Stjórn félagsins lagði fyrir fund- inn ýtarlega kröiugerð, sem mikil forvinna hafði veriðlögði, og rætt um á fundi með trúnaðarmönn- um. Að sögn Eðvarðs voru þessar tillögur samþykktar efnislega, og verður nú haft samráð um þær við önnur félög innan Verka- mannasambandsins, og stefnt að þvi aö leggja kröfurnar hið fyrsta fyrir atvinnurekendur. t tillögun- um er bæði f jallað um taxta- og kjaraatriði. —ekh. Iðja, Akureyri Stjórnin var sjálf- kjorin Aðalfundur Iðju, félags verk- smiðjufólks á Akureyri var hald- inn i Alþýðuhúsinu, sunnudaginn 20. mars s.l. Á fundinum fóru fram venjuleg aðalfunarstörf. Stjórn félagsins var sjálfkjörin en hana skipa: Formaður Jón Ingimarsson, varaformaður Hallgrimur Jónsson, ritari Höskuldur Stefánsson, gjaldkeri Kristin Hjálmarsdottir, með- stjórnandi Ingiberg Jóhannesson. Varastjórn: Svanur Jóhannsson, Sveinmar Gunnþórsson, Birgitta Jónsson og Anton Jónsson. Aöalmenn I trúnaðarmanna- ráð: Arni Ingólfsson, Lilja Marinósdóttir, Kjartan Sumar- liðason, Indriöi Hannesson, Bragi Jón Ingimarsson, form. Iðju Sigurgeirsson og Geirlaug Sigur- jónsdóttir. Varamenn I trúnað- armannaráð: Herborg Her- björnsdóttir, Hekla Geirdal, Jóhann Sigurðsson og Barbara Armann. Eftirfarandi samþykktir voru gerðar á fundinum: 1. Samþykkt var að segja upp gildandi kaup- og kjarasamningi. 2. Samþykkt að leggja 1 millj. kr. i verkfallssjóð. 3. Samþykkt að styrkja Framhald á bls. 18. ákveðið var að aflétta neyðar- ástandinu og sleppa öllum föngum sem sátu inni vegna þess. 1 þeim hópi voru margir stjórn- málamenn en einnig smyglarar og svartamarkaðsbraskarar. Af öörum málsmetandi leiðtog- um sem féllu i kosningunum má nefna hinn volduga en ekki að sama skapi vinsæla son Indiru, Sanjay Gandhi, dómsmálaráð- herrann, Rma Gokhale, sem samdi drög að stjórnarskrár- breytingum sem samþykktar voru I fyrra (og stórjuku vald Indiru), bæði núverandi og fyrr- verandi varnarmálaráðherra, Bansi Lai og Swaran Singh, og upplýsingaráðherrann, Vidya Charan Shukla, en hann fyrir- skipaði stranga ritskoöun ind- verskra fjölmiðla I kjölfar neyð- arástandslaganna. Búist hafði veriö við þvi að Indira Gandhi segði af sér embætti I dag en blaðafulltrúar hennar skýrðu frá þvi að hún hefði frestað þvi til morguns. Alþýðuflokkurinn hefur enn ekki útnefnt leiðtoga sinn og væntanlegt forsætisraðherra- efni og verður það ekki gert fyrr Indira Gandhi að koma af kosn- ingafundi i Uttar Pradesh. en á fimmtudag eftir þriggja daga umræður flokksleiðtoga. Búast má við þvi að það reynist erfitt þvi flokkurinn er mjög sundurlyndur enda ekki oröinn nema sex vikna gamall, fram að þvi var hann fjórir flokkar sem sameinuðust um andkommún- isma og andstööu við Indiru. Lik- legastur til að hreppa hnossið er talinn formaður flokksins, Moraji Desai sem orðinn er 81 árs gam- all. Hann getur þó átt von á sam- keppni frá Jagjivan Ram fyrrum landbúnaöarráðherra i stjórn Indiru. Hinn nýi Alþýöuflokkur er óþekkt stærð i indverskum stjórn- málum og er þvi erfitt aö spá nokkru um það hvort valdataka hans muni hafa miklar breyt- ingar á indversku þjóðfélagi i för með sér. 1 kosningastefnuskrá sinni segist flokkurinn vilja stjórna i anda Mahatma Gandhis og heitir valddreifingu jafnt i efnahagslifinu sem á stjórnmála- sviðinu. Einnig kveðst flokkurinn ætla að leggja höfuðáherslu á landbúnað, baðmullarrækt og smáiðnaö en ekki stóriðju eins og nú er efst á blaði. ZAIRE Biður um meiri adstod Washington, Dar-es-salaam 21/3 reuter — Stjórn Mobuto Sese Seko i Zaire hefur beðið bandarisku stjórnina um enn frekari aðstoð i baráttunni gegn innrásarmönn- unum sem sagðir eru hafa náð fimm borgum á sitt vald við landamæri Angólu. I siðustu viku samþykkti bandariska stjórnin aö senda her- gögn og vistir að verðmæti ein miljón dollara til Zaire að beiðni Mobutos og átti siðari hluti þeirrar sendingar að leggja af stað i dag. Bandariska stjórnin segist þó ekki senda vopn heldur einungis varahluti I hergögn, fjarskiptatæki, fatnað og lyf. Sending þessi er felld inn I samn- ing milli Bandarikjanna og Zaire sem hljóðar upp á sölu hergagna fyrir 30 miljónir dollara til Zaire. Stjórnir Belgiu og Frakklands hafa einnig orðið við beiðni Mobutos og sent vopn og skotfæri til landsins. Fidel Castro forseti Kúbu sem nú er i Tansanlu sagði á blaða- mannafundi i dag að ekkert væri hæft I þvi að kúbanskir hermenn berðust i Zaire, né hefðu þeir átt neinn þátt i þjálfun innrásarliðs- ins eða útvegun hergagna. Sögur um slikt væru til orönar vegna „getuleysis stjórnarinnar (i Zaire) I að glima við vandann sem er algert innanrikismál. Þær eru tylliástæða til að fá hernaöar- aðstoð frá bandarisku heims- valdasinnunum og evrópsku ný- nýlenduherrunum ’ ’. INNLENT LÁN RIKISSJÓÐS ÍSLANDS 19771.FL. VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI Samkvæmt heimild í fjár- lögum fyrir árið 1977 hefur fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, ákveðið að bjóða út verðtryggð spariskírteini, að fjárhæð 600 milljónir króna. Kjör skírteinanna eru íaðal- atriðum þessi: Meðaltalsvextir eru um 3.5% á ári, þau eru lengst til 20 ára og bundin til 5 ára frá útgáfu. Skírteinin bera vexti frá 25. mars og eru með verðtrygg- ingu miðað við breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar, er tekur gildi 1. apríl 1977 Skírteinin, svo og vextir af þeim og verðbætur, eru skatt- frjáls og framtalsfrjáls á sama hátt og sparifé. Þau skulu skráð á nafn. Skírteinin eru gefin út í þremur stærðum, 10.000, 50.000 og 100.000 krónum. Sala skírteinanna stendur nú yfir og eru þau til sölu hjá bönkum, bankaútibúum og sparisjóðum um land allt svo og nokkrum verðbréfasölum í Reykjavík. Sérprentaðir útboðsskilmál- ar liggja frammi hjá þessum aðilum. Mars 1977 SEÐLABANKI ÍSLANDS

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.